Leita í fréttum mbl.is

Pósturinn hefur endanlega gengið frá félagslífi mínu!

 1

Ég er ónýt, miður mín, að andlegum niðurlotum komin og ég á eftir að eiga ömurlega helgi.

Ég er ekki búin að fá boðskortið frá Landsbankanum en það verður flogið kl. átta í fyrramálið til Ítalíu og þar með er þessi annars skemmtilega ferð til Ítalíu á vegum bankans fallin steindauð til jarðar.

Þó boðskortið frá Kaupþingi berist í fyrramálið í matinn annað kvöld, kemst ég ekki í strípur og klippingu fyrirvaralaust og ég á eftir að versla mér dress.  Get ekki látið sjá mig í áramótadressinu sem ég var í í þyrlupallapartíinu í London á gamlaárskvöld.

Ég veit að þetta er ekki bönkunum að kenna.  Er búin að skipta við alla íslensku bankana í áraraðir og hlýt að vera nokkuð góður viðskiptavinur í tímalengd talið (hóst). 

Það er andskotans Íslandspóstur sem er að klúðra mínu félagslífi algjörlega.

Ég er ZERO happý!

Ég mun eyða helgini algjörlega niðurbrotin, heima í rúmi.

Dem, dem, dem! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert greinilega með latann "útburð" minn "útburður" kom með kortið til mín í dag, þannig að ég get farið ef ég kæri mig um. Þegar ég sá hjá hverjum ég átti að sitja þá nennti ég ekki.  Ég hef nefnilega aldrei fílað hann Kalla Prins.  Iss þú ert ekki að missa af neinu. Ég er bara glöð að ég skipti ekki við Þennann banka þannig að ég er ekki að borga fyrir herlegheitin.

SMJÚTS  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 21:22

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe þyrlupallapartíinu missti ég af. Þú ert óforbetranleg. Ég skal skella stripum í þig kelling og lána þér kjól sem er orðinn alltof lítill á mig.

Jóna Á. Gísladóttir, 13.9.2007 kl. 21:29

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heyrðu Jóna, hví í andsk... svararðu ekki póstinum mínum?  Setti örgla þjú spurningarmerki í hann.  Þýðir það ekki að ég sé að spyrja?  Og kallar spurning ekki á svör.  Ég kem í fyrró í strípur og ætti að ná í partíið á réttum tíma.  Efast ekki um að kortið kemur í fyrró.

Guðrún, þú kannt ekki gott að meta,

Snobbnefndin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 21:36

4 identicon

Nei það er kanski rétt hjá þér. Ég  kann bara ekki ennþá á snobbið .. ég er svoddan unglingur ennþá.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 21:38

5 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Hahahaha, mér er slétt sama þó að ég sé ekki í klíkunni, en samt, finnst manni óneitanlega að það mætti eyða þessum partýpeningum frekar í að koma til móts við viðskiptavinina sem í raun borga brúsann. En já, góða skemmtun annað kvöld skvís, verst með Ítalíu ferðina, hún hefði verið spennandi. Kannski eru þessir bankar í keppni um hvor þeirra býður í flottara partý, aldrei að vita?

Bjarndís Helena Mitchell, 13.9.2007 kl. 21:52

6 Smámynd: krossgata

Ha?  Hvaða kort?  Hvaða partý?  Ég held móðurskipið hafi komið og sótt mig, ég er ekkert með á nótunum.

krossgata, 13.9.2007 kl. 22:13

7 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Mitt boðskort kemur örugglega á morgun

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 13.9.2007 kl. 22:21

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Búinn að fá mitt kort.

Tilkynnig um óheimilan yfirdrátt, vinsamlega hafið samband við starfsfólk bankans.

Þarf að greiða fargjaldið sjálfur.

Þröstur Unnar, 13.9.2007 kl. 22:29

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hva meinaru haddna kéddling. ég er löngu búin að svara þér

Jóna Á. Gísladóttir, 13.9.2007 kl. 22:52

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

helv.........pósturinn!

Heiða Þórðar, 13.9.2007 kl. 23:18

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já bévítans pósturinn!

Þröstur:  G'oður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 23:20

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hér biðu bara auglýsingapésar í póstkassanum mínum. Til öryggis, ef bréfinu hefur seinkað, ætla ég í síðkjól í vinnuna á morgun, uppsett hárið og með farða á andlitinu. Verst að Tommi verður ekki að keyra, það yrði upplit á mínum strætókalli!

Guðríður Haraldsdóttir, 13.9.2007 kl. 23:56

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég ætla að tékka á morgun hvort pabbi gamli hafi fengið svona miða, og lúra hann út úr honum.  Ég er hvort sem er miklu ferðafærari heldur en gamla brýnið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2007 kl. 00:10

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hef lúmskan grun um að Pólski útburðurinn minn áframsendi allan minn póst til ættingja í Kraká.  Ég hef ekki fengið ávísanir né boðskort í tvö ár, sem stemmir við það hvenær hann byrjaði.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.9.2007 kl. 00:49

15 Smámynd: Jens Guð

  Þessi kort voru ekki send með póstinum.  Að vísu ekki Landsbankakortin.  Þau voru keyrð út af starfsmönnum bankans.  Ekki svo að skilja að ég hafi fengið svona kort.  Enda er ég upptekinn um helgina vegna opnunar sendiráðs Færeyja í Reykjavík.  Þar verður aðaldæmið. 

Jens Guð, 14.9.2007 kl. 00:58

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krakkar: Við höfum öll verið fórnarlamb póstsin.  Það er ekki flóknara en það.  Það verður skarð fyrir skildi þar sem við munum lýsa með fjarveru okkar.  Jens:  Ertu að djóka?  Á að fara að opna færeyskt?  Jón Steinar: taktu póst á teppið.

Góðan daginn börnin góð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.9.2007 kl. 07:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband