Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Linkur og baráttukveðjur!

Ég hvet ykkur til að lesa þetta gott fólk og fylgjast með.

Mér lýst svo vel á þetta framtak að það gæti endað með að ég gengi í þessa hreyfingu, frekar en Framsóknarflokkinn svona eftir á að hyggja enda honum ekki viðbjargandi.  Dæs.

Áfram krakkar og baráttukveðjur frá mér á kantinum.

Enn sem komið er að minnsta kosti.

Jabb, mér líst óggissla vel áetta.

Komasvo.


Allt launþegum að kenna

Ég hef aldrei botnað í því hvað atvinnurekendur eru að gera í stjórnum lífeyrissjóða verkafólks.

Sjómannafélagið er greinilega sammála mér.

Ekki nóg með að ég kæri mig ekkert um atvinnurekendur í þessu samhengi þá er ég sem vinstri sinni full tortryggni út í hið seinni tíma ástarsamband sem er á milli fulltrúa launþega og atvinnurekenda.

Þetta eru gagnstæðir pólar sem eiga ekkert að vera að daðra og dufla hvor við annan og ég vil ekki sjá þessa heljarinnar samvinnu sem er svo mikið talað um núorðið og orðið þjóðarsátt klingir viðvörunarbjöllum í hausnum á mér.

Launþegar báru ekki mikið úr býtum í þessari svo kölluðu þjóðarsátt um árið.

Miðað við launataxta verkafólks þá hefur verkalýðsbarátta litlu skilað hér á landi og ég væri persónulega búin að setja þessa toppa sem semja fyrir hönd launþega á árangurstengd laun.

Vá hvað þeir ættu erfitt með að fylla á formannsbílinn þá karlarnir.

Hvaða glóra er í því að verkalýðsfrömuðir skuli vera með margföld laun viðsemjenda sinna?

Rosalega finnst mér það firrt fyrirkomulag.

Sennilega finnst það öllum nema þeim örfáu sem njóta launanna.

 Já ég er að tala umformenn/konur stéttarfélaga.

Annars er þetta svona og ekki litlar líkur á að það breytist í fyrirsjáanlegri framtíð enda kreppa og það er nú heldur betur góð ástæða til að halda launum áfram lágum því auðvitað er það massinn sem ber byrðarnar fyrst og fremst og ævinlega.

En hvernig var það annars?

Hverjar voru röksemdirnar gegn launahækkunum aftur í gróðærinu?

Æi, hvernig læt ég, auðvitað var atvinnurekendum þröngur stakkur skorinn þá líka, vegna þensluáhrifa og verðbólguhættu.

Skammist ykkar launþegar á Íslandi.

Þetta er ALLT ykkur að kenna.

 


mbl.is „Menn fara best með eigið fé“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað skrifar maðurinn undir

Ég skrifaði ekki undir áskorun á forsetann um að samþykkja ekki Icesave-ríkisábyrgðina.

Það er bara svo út í hött að ætla að neita að borga hversu óréttlátt sem það nú er.

Málið er að Icesave er staðreynd, AGS er það líka.

Það er líka borðleggjandi að við fáum ekki krónu neinsstaðar frá nema að þetta andstyggðar mál sé afgreitt formlega.

Ekki að mér finnst það ekki fúlt, ónei, en kommon, raunveruleikinn er þarna krakkar mínir.

Það má sparka í sköflunginn á mér, I´m a big girl, en þetta er svona og ekki öðruvísi.

Cry me a river.


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikhús fáránleikans

leikhús

Það er svo ótrúlega kaldhæðnislegt og er gleðivekjandi fyrir kvikindi eins og mig að lesa um þetta!

Þessu liði hlýtur að svíða óheyrilega undan því að neyðast til að binda vonir sínar við ÓRG.

Ómægodd.

Það mætti skrifa um þetta harmleik með kvikindislegu ívafi.

Einhver ætti að taka það að sér.

Nei, annars það er óþarfi.  Raunveruleikinn er stundum mun bitastæðari en dramatískustu ritverk.

Instant karma hérna ef einhverntímann.

I love it.

 


Af uppskafningum og útlensku bjargráði

Vá, nú renna upp góðir tímar.

Íslenska komin í gúggúl þýðingarvélina.

Ég ætla að láta þýða ýmsar þingræður sem ég hef átt erfitt með að skilja yfir á ensku eða sænsku og athuga hvort ég fæ ekki botn í þær á erlendu tungumáli.

Getur ekki orðið þvælnara en á frummálinu, kannski leynist þar glóra ef ég er heppin.

Finnska gæti komið betur út en íslenskan hjá sumum mætum þingmönnum.

Rakastastinúa.

Svo langar mig í tilefni sunnudagsins að fá smá útrás yfir orðanotkun ákveðinnar starfsstéttar við Austurvöll.

Málið er að það er allt fullt af málfarsfasistum sem troða sér inn í athugasemdakerfi fólks á blogginu og leiðrétta það stöðugt.

Málfarsbloggin eru hins vegar fróðleg og skemmtileg og ég les þau með mikilli ánægju.

Ég get þolað bæði sjálfri mér og öðrum að verða á í messunni málfarslega en ég þoli ekki uppskrúfað málfar og yfirborðsmennsku í tali og þegar ég rekst á það - nú þá hætti ég að hlusta.

Sumir þingmenn eru alltaf að "koma fram fyrir þjóð sína" og þeir eru með svo miklar áhyggjur af "þjóðinni sinni".

Gússí-gússí.

Þjóðin mín; ég gæti gubbað.

Djöfuls hroki.

Hvernig væri að tala um "þjóðina" og vera meðlimur hennar heldur en að tala um hana eins og fóstra talar um börnin sín.

Birgitta í Borgarahreyfingunni notar t.d. mikið "þjóðin mín".

Getur verið að þingkonan noti þennan stíl svona almennt?

Að henni sé "illt í augunum sínum" af þreytu?

Svöng í "maganum sínum"eftir langar fundasetur yfir Icesave?

Óánægð með "sjónvarpsdagskránna sína" þegar á að slappa af yfir RÚV á síðkvöldum.

Birgitta er ekki ein um þetta uppskrúfaða og væmna málfar sem setur mig tafarlaust í öflugt pirringskast.  Það eru þó nokkrir sem fara á kostum í uppskafningadeildinni.  Sigmundur Ernir er annað dæmi sem ég man eftir í augnablikinu.

Í staðinn fyrir að fara hamförum yfir þágufallssýki og einstaka enskuslettum í bloggi (blogg er talmál gott fólk) þá mætti biðja þetta fólk sem lufsast hefur inn á þing, margir fyrir hrein mistök, að tala mannamál og að það hætti að standa í pontu með sínar prívat sjálfshátíðir, talandi niður til "þjóðar sinnar".

Plís "Birgittan mín" og þið hinir "þingmennirnir mínir".

Komið endilega út úr sjálfshátíðartjandinu og takið ykkur sæti með oss hinum.

Afsakið meðan ég teygi mig í ostaskerarann minn og sneiði af mér aulahrollinn minn.

Lalalalala.

Og hefjast nú leikar.


mbl.is Íslenska í þýðingarvél Google
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo 2007

Þessi frétt er svo dásamelga 2007 að það er ekki fyndið!

500 ankeri notuð til að halda niðri bílakjallarahúsi við hlið Tónlistar- og ráðsefnuhússins!

Gróðærisminnismerkinu sem ég hef fullkomna andstyggð á.

En varðandi ankerin 500 heldur einhver að þorri lesenda fréttarinnar skynji stærðina í ankerafjölda?

Það hefði getað staðið að bílakjallarahúsinu væri haldið uppi af hvorki meira né minna en 7 ankerum og ég hefði samstundis trúað því að það væri svaka ankeraurmull.

Fréttin hefur sem sagt engan tilgang nema hún sé skrifuð fyrir ankerisáhugamenn og fólk sem hannar svona hús.

Vá hvað ég er áhugalaus um ankerin.

Svo er þetta montfrétt í þokkabót.

Alveg: Við erum með 500 ankera bílakjallara - ekki fleiri ankeri í svoleiðis byggingu í heiminum fyrir utan eitt í Dubai. Nananabúbú.  Aular.

Annars er ég með hugmynd.

Byggjum bílakjallarann og látum tónlistarhúsið eiga sig.

Ekki af því ég vilji ekki tónlistarhús það er skömm að því að við skulum ekki eiga eitt slíkt en mig langar ekkert að tengja músíkina í landinu við Björgólf og þá kumpána.

Listin á einfalaldlega betra skilið.

500 ankeri já.  Ég er svo helvíti mikið nær.

Frusss

Jabb og ég flokka þessa færslu að sjálfsögðu undir "Landsbankadeildina".

Merkilegt hvað maður hefur haft mikið notagildi af þeim aukaflokki.

Og við erum ekki að tala um fótbolta hérna börnin mín á vatninu.


mbl.is Bílakjallarinn við 500 ankeri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunaflokkurinn berst um á hæl og hnakka

Leynt og ljóst hafa Bjarni Ben og Sigmundur Davíð unnið að því að koma því þannig fyrir að stjórnin falli.

Það er auðvitað eðlilegt að stjórnarandstaða sækist eftir að komast á bekkinn en það er til háborinnar skammar að hegða sér svona á þessum erfiðu tímum í sögu þjóðarinnar.

Málefni og hagur þjóðarinnar hafa verið sett til hliðar en klækjastjórnmál hafa ráðið allri framgöngu þessa fólks, allt gert til að komast að kjötkötlunum.

Ég á orðið í erfiðleikum með að fylgjast með í þinginu vegna framíkalla frá stjórnandstöðunni sem hagar sér eins og götustrákar af báðum kynjum (fyrirgefið götustrákar).

Nú þarf ég ekki að velkjast í vafa lengur um hver áform BB og félaga eru.

"Verði fyrirvörunum við ríkisábyrgð á Icesave-samning ríkisstjórnarinnar hafnað, verði ekki fallist á skilaboðin frá Alþingi, er ég jafnframt þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin eigi að segja af sér,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á opnum fundi í Valhöll í morgun."

Hrunaflokkurinn ætlar ekki að gera það endasleppt.

Bjarni Ben ætar að troða sér í stjórn.

Ég veit að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn leggja mikið á sig núna.

Það þarf að verja gamla valdabatteríið, koma í veg fyrir breytingar og pólitísk uppgjör.  Sannleikurinn má ekki verða ljós.

Þeim má ekki verða kápan úr því klæðinu.


mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað næst?

Ég hef alltaf haft illan bifur á Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

Eftir að hann var kallaður til "hjálpar" hefur sú skoðun mín styrkst ef eitthvað er.

Þeir hafa hér töglin og haldir, það er nokkuð ljóst, þessi ógæfustofnun sem farið hefur með djöfulgangi um lönd í efnahagskrísu og ekki í eitt einasta skipti svo mér sé kunnugt um, hafa þeir lagað ástandið í viðkomandi löndum.  Þvert á móti hafa þeir skilið eftir sig sviðna jörð.

Að halda að þeir séu með göfugri markmið og betri vinnubrögð hér á landi er barnaskapur svo ekki sé meira sagt.

Án tillits til þess álits sem fólk hefur á afrgreiðslu Icesave þá er það frá í bili skyldi maður ætla.

En er það svo?

Ég held að stjórnvöld hafi ekki haft annan kost í stöðunni en að samþykkja málið vegna þess að AGS heldur allri lánafyrirgreiðslu í gíslingu.

Nú segja þeir að seinni hluti lánsins verði að "líkindum" afgreiddur í september.

Ætli það séu ekki fleiri skilyrði sem þeir eiga eftir að draga úr pússi sínu?

Hvað með Magmamanninn, sem hefur verið með starfsemi sína í löndum þar sem AGS hefur farið með "aðstoð" sína?

Þessi sem lætur eins og Ésú endurborinn fullur kærleika og umhyggju fyrir náttúrunni og afkomu Íslands?

Getur verið að eignarhald þess félags á auðlindunum sé annað skilyrði?

Kannski fleiri?

AGS ræður nú þegar vaxtastefnunni og stjórna Seðlabankanum.

Nei, AGS er ólán sem aldrei hefði átt að kalla til.

Nú sitjum við hreinlega í súpunni og hér ráða þeir öllu.

 


mbl.is Icesave losi lánastíflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Essa sú?

Essa sú Sigurjón sem heldur því fram að hafa á sínum tíma ekki talið að ríkisábyrgð væri á Icesavereikningunum?

Essa sú Sigurjón sem mætir í fréttirnar með attitjút lítið hrifinn af samningnum við Icesave en ert glaður með fyrirvarana alveg eins og þú sért einhver utanaðkomandi, blásaklaus borgari sem hefur ekkert með málið að gera?

Essa sú aulinn þinn sem ert enn að rífa kjaft?

Arg.

Tímdi varla að nota krúttlega "essasúið" á þig plebbinn þinn.


mbl.is Taldi ekki ríkisábyrgð á Icesave-reikningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hlusta, ég meðtek

Ég vil bara leggja á það áherslu sjálfri mér til áminningar ef minni mínu hrakar á næstunni eða ég fer að bulla til uppbökkunar á atkvæði mínu í kosningunum s.l. vor...

að þegar Eva Joly talar þá hlusta ég og tek fullt mark á því sem hún segir.

Ég trúi henni einfaldlega betur en flestum öðrum.

Mundu það Jenný Anna Baldursdóttir.


mbl.is Telur nýjan starfshóp pólitískt útspil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2987749

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband