Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 24. mars 2007
DAGURINN Í DAG
Þarna úti er félagi sem berst í fallhættu eftir margra ára edrúmennsku. Ég vil að viðkomandi viti að ég hugsa til hans og við hann vil ég segja þetta: Þú veist hvað þér ber að gera, þú hefur verkfærin og nú er bara að nota þau. Ég læt fylgja "daginn í dag" en þar ættir þú að geta fundið eitthvað þér til hugarhægðar. Taktu klukkutíma í einu, eða jafnvel mínútu. Löngunin gengur yfir og það er hjálp að fá. Þú þarft bara að sækja hana. Mundu að lögnunin til að hætta að drekka er það sem rak okkur af stað í upphafi, nýttu þér hugsunina um það. Til þín fylgja hlýjar hugsanir frá mér en aðeins þú getur tekið skrefið.
Þegar ég fór í mína áfengismeðferð í fyrra og ég var dregin frá grafarbakka og inn í hús, fékk ég lítið spjald sem heitir "Dagurinn í dag" að gjöf. Þetta er lífsspeki sem ég held að allir hafi gott af að tileinka sér.
Í dag ætla ég að láta deginum nægja sína þjáning og ekki taka ákvörðun lengra fram í tímann en næstu tólf stundir. Ég ætla ekki að reyna að brjóta til mergjar öll vandamál lífs míns.
Í dag ætla ég að vera ánægð. Ég ætla að trúa því sem Abraham Lincoln sagði: "Flestir eru eins ánægðir og þeir einsetja sér að vera."
Í dag ætla ég að leitast við að fá andlegan styrk. Ég ætla að læra eitthvað nytsamt. Ég ætla að lesa eitthvað sem krefst áreynslu, hugsunar og einbeitingar.
Í dag ætla ég að laga mig eftir aðstæðunum en ekki reyna að breyta öllu í það horf sem mig langar til sjálfa.
Í dag ætla ég að þjálfa mig á þrennan hátt. Ég ætla að gera einhverjum gott, án þess að nokkur viti. Ég ætla að gera eitthvað sem mér leiðist, aðeins til þjálfunar. Og ef tilfinningar mínar eru særðar, ætla ég ekki að láta á því bera.
Í dag ætla ég að vera eins snyrtileg og mér er unnt, tala rólega og koma kurteislega fram. Gagnrýna engan. Reyna ekki að bæta eða aga nokkurn annan en sjálfan mig.
Í dag ætla ég að fara eftir áætlun. Líklega fylgi ég henni ekki nákvæmlega, en ég ætla að fara eftir henni í höfðudráttum. Ég ætla að forðast tvo kvilla: hraða og ráðleysi.
Í dag ætla ég að hafa hálfrar stundar ró aðeins fyrir sjálfa mig, til hugleiðingar og hvíldar. Á þessari hvíldarstund ætla ég að öðlast betra yfirlit um líf mitt.
Í dag ætla ég að vera æðrulaus. Ég æla ekki að vera hrædd við að njóta þess sem fagurt er og trúa því að veröldin gefur mér á sama hátt og ég henni.
Í dag ætla ég að reyna að temja mér auðmýkt hjartans og vera ekki hrædd við að viðurkenna breyskleika minn.
Baráttukveðjur,
Bloggar | Breytt 14.6.2007 kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 24. mars 2007
LAUGARDAGSPÆLINGAR
Það er svo margt sem mig langar að blogga um. Samt er það stundum þannig að hugsanirnar eru eins og rússibani á fullri ferð, láta ekki að stjórn. Þannig hefur það verið undanfarið hjá mér, einfaldlega vegna þess að ég hef látið öllum illum látum með sjálfa mig. Farið fram úr mér, gert of mikið, mæðst í mörgu eins og Marta greyið og hreinlega gleymt að forgangsraða.
Ég var að hugsa um hversu rík þörf er innra með okkur að máta alla skapað hluti við okkur sjálf. Auðvitað er það nauðsynlegt að velflestu leyti, við höfum bara okkar reynslu til að notast við. Það sem er þó að fara í taugarnar á mér er þessi þörf margra til að hafna öllu sem er þeim ekki þóknanlegt.
Áður en ég komst til vits og ára uþb í október á síðasta ári (ekki alveg svona slæmt) þá var ég óþolandi dómhörð oft á tíðum. Ég hafði ZERO tolerans fyrir fólki sem fór aðrar leiðir en ég. Þetta viðurkenndi ég ekki svona opinberlega en ef ég dæmi sjálfa mig af ummælum mínum á þessum sokkabandsárum þroska míns, þá er ég vegin og léttvæg fundin. Ergo: "Guilty as charged". Ég ætla ekki að mála skrattann á vegginn en ég var illa haldin af dómhörku. Einkum og sérílagi upp úr þrítugt. Ég er núna eldri en sjálf erfðasyndin (af hinni friðelskandi blómakynslóð) en sem betur fer hefur mér með víxlsporum mínum í lífinu lærst að hver manneskja er dýrmæt, þrátt fyrir að hún sé etv hundleiðinleg, með allt aðra lífsýn en ég sjálf og að viðhorf hennar minni mig á geimveru.
Til að útskýra hvað ég meina svona blákallt þá kem ég með nokkur dæmi um fullyrðingar mínar:
Alkahólistar eru aumingjar (þarna hef ég greinilega ræst karmalögmálið því ég endaði í meðferð sjálf og fékk upplýsingar um sjúkdóminn alkahólisma frá fyrstu hendi. Ég lærði "the hard way" að alkahólistar eru ekki aumingjar enda hefði ég seint skrifað upp á að ég væri vesalingur)
Fólk sem er ekki sammála mér í pólitík eru hugsjónalausir hálfvitar Þarna varð mér illa á í messunni og fékk að komast að því fullkeyptu að fólk er, án tillits til stjórnmálaskoðana, fyrst og fremst manneskjur sem allar hafa sama útgangspunkt. Þe að betrumbæta samfélagið. Eini munurinn á milli fólks eru leiðirnar að markinu. (verð þó að taka fram að "sumir" virðast löngu hafa gleymt þessari fallegu fyrirætlun og skara bara eld að eigin köku).
Konur sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn eru handbendi kvennakúgunarafla og því með greindarvísitölu langt undir stofuhita Þetta þurfti ég að éta ofan í mig eins og margt annað. Allar konur sem vilja hafa áhrifa á samfélagið eru af hinu góða en eins og áður er nefnt eru leiðirnar að markinu margar og þótt ég sé fullkomlega og algjörlega óssammála þeim þá þýðir það ekki að þeirra hugsjónir séu eitthvað verri en mínar.
Ég tók nú bara svona yfirborðskennd dæmi. Dómharka sem beinist persónulega að fólki er þó verst og ég kom því miður við í þeirri deild líka og dvaldi þar mun lengur en sem nam einum kaffibolla. En ég gengst við vanþroska mínum. Orð og hugsanir hafa ábyrgð.
Í dag ætla ég ætla ég að tala rólega og koma kurteislega fram. Gagnrýna engan. Reyna ekki að bæta eða aga nokkurn annan en sjálfa mig.
Svo mörg voru þau orð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 23. mars 2007
Ég er svo standandi hlessa.....
...á að Geir Haarde skuli telja samstarf Samfylkingar og VG versta kostinn. Eru ekki allir orðlausir yfir þessari skoðun forsætisráðherra? Allt telst nú vera fréttaefni. Ég hefði haldið að Geir teldi alla kosti versta í ríkisstjórnarsamstarfi þar sem Sjálfstæðisflokkur ætti ekki hlut að máli. Nema ef takmark flokksins er nú um stundir að vera í stjórnarandstöðu.
Annars gengur þessi frétt Mbl. út á að kynna viðtal við Geir Hilmar í sunnudagsblaði Moggans og er það Agnes Bragadóttir sem á heiðurinn af því. Það verður spennandi að fylgjast með hvort Geir hafi eitthvað nýtt fram að færa. Hann ætlar að tjá sig ma um jafnréttismál og hverju flokkurinn hefur áorkað í þeim málum þá væntanlega á kjörtímabilinu. Ég vona að hann tjái sig um fleira en þau mál því það getur ekki tekið upp meira rými en uþb, 2-3 línur með stóru letri. Ég bíð spennt.
![]() |
Geir H. Haarde telur samstarf Samfylkingar og VG versta kostinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 23. mars 2007
FAMILIA GRANDE
Ég las á blogginu hans Sigmars stórskemmtilegan pistil þar sem hann segist vera sérfræðingur í samsettum fjölskyldum. Það er greinilega rétt. Þessari sérfræðikunnáttu deilir Sigmar með velflestum íslendingum. Að vera í samsettri fjölskyldu til hægri og vinstri er sú besta þjálfun í félagslegri færni sem hægt er að hugsa sér.´
Elsta dóttir mín á einn son, pabbi hans á 3 dætur. Sú elsta á kærasta, hann á tvö börn. Tvö barnabörn á ég til viðbótar en feður þeirra komu barnalausir til leiks. Pabbi elstu dóttur minnar á fimm stelpur. Þær eru skásystur allra dætra minna en ég á þrjú börn með tveimur mönnum. Flókið? Núverandi eiginmaður á fjögur börn með tveimur konum. Hehe. Einu sinni vorum við með jólaboð og allan fjöldann í einu. Það boð var á við meðalfermingaveislu og ef skynsemin hefði verið með í för myndum við hafa leigt undir fjölskylduna eins og eitt félagsheimili.
Ég er heppin. Börnin "okkar" hafa vandræðalaust náð fínum tengslum. Í því efni hafa aldrei komið upp vandræði. Börn á öllum aldri eru reyndar aldrei vandamál, það er fullorðna fólkið sem sér yfirleitt um að skapa þau. Það er mín reynsla. Barnabarna-möguleikinn er stór og það verður spennandi þegar þau fara að birtast eitt af öðru. Það er eitt það skemmtilegast sem ég hef upplifað að fá að vera í félagsskap þeirra barnabarna sem ég þegar á.
Datt þetta svona í hug þegar ég las pistilinn hans Sigmars. Ég er rík kona.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 23. mars 2007
Kristjanía að innlimast í Danmörku?
Nú eru Kristjaníubúar að ræða tilboð danska ríkisins um að sameinast Danmörku af fúsum og frjálsum vilja. Ég hef aldrei verið svo mikill hippi að mig hafi langað til að búa í Kristjaníu en sem fyrirbæri var fríríkið merkileg tilraun. Þegar ég gekk í gegnum Kristjaníu á 8. áratugnum var þar ekki fallegt um að lítast, sorphaugar út um allt og börn og ótrúlegur fjöldi hunda að velta sér innan um sorpið í einum hrærigraut. Ég man að mér fannst það ekki par sjarmerandi og varð þeirri stund fegnust þegar ég komst þaðan út. Fyrir nokkrum árum gekk ég aftur þar í gegn, sem ráðsettur túristi hm.., og þá var ástandið öllu betra. Þarna var orðið reglulega huggulegt.
Það er kannsk i lögmál í lífinu að allt gangi sér til húðar. Að nýjir vendir sópi best. Ég hef ekki næganlega þekkingu á því sem er að gerast þarna til að vera með því eða á móti. Allavega var Kristjanía nokkurskonar afkvæmi hippismans, fallegar hugsjónir sem því miður margar hurfu upp í reyk, í orðsins örgustu.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með hver örlög fríríkisins verða.
![]() |
Framtíð Kristjaníu óviss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 23. mars 2007
Hraðakstur og ölvun....
...skýra meirihluta banaslysa á síðasta ári en þau voru 31 talsins. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Mér finnst þetta hroðalegar staðreyndir. Hraðakstur og ölvun aðal orsakavaldar! Yngstu ökumennirnir eru valdir að flestum slysanna. Banaslys í umferðinni hafa ekki verið svona mörg síðan 1977. Þegar svona staðreyndir liggja fyrir verður þá ekki að fara að taka á vandamálinu?
Í Svíþjóð þar sem ég bjó lengi var undantekningarlaust fangelsisdómur sem fylgdi því að keyra fullur. Þannig var það bara. Ég fullyrði að þetta hafði mikinn fælingarmátt. Einu sinni reyndi þekktur sjónvarpsmaður þar í landi að fá undanþágu frá fangelsisvist með því að framvísa vottorði frá lækni sem fullyrti að maðurinn væri með innilokunarkennd og þunglyndi og gæti því ekki setið inni. Á þetta var ekki hlustað. Maðurinn hafði keyrt drukkinn og inn skyldi hann.
Spurningin er hvort færa eigi bílprófsaldur upp um einhver ár. Ég held að það myndi breyta töluverðu. Hraðaksturinn er oft mikill hjá ungum ökumönnum og hann er annar meginþátturinn í banaslysum í umferðinni s.l. ár.
Ég varpa þessu svona fram. Það er ekki endalaust hægt að horfa á masandi og mjálmandi meðan fjöldi fólks lætur lífið í umferðinni. Sárt að það skuli oft vera vegna þessara alvarlegu brota sem væri hægt að koma í veg fyrir með aðgerðum.
Hvað finnst ykkur bloggvinir góðir?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
VESALINGS STARHAGI
Ég er ein af þeim sem skrifuðu undir mótmæli gegn opnun Háspennu í Mjóddinni. Nú er það mál úr sögunni og þökk fyrir það. Nú á að koma þessu "fyrirtæki" sem blómstrar á annara harmi þe hefur tekjur af spilafíklum að stórum hluta, fyrir á Starhaga. Borgarfulltrúar Samfylkingar og VG lögðu í dag fram bókun á fundi borgarráðs þar sem það er átalið að láta Háspennu eftir dýrmæta byggingarlóð við Starhaga. Nú get ég ekki séð að nokkurt íbúðahverfi kæri sig um þessa starfsemi. Hreint óskaplega gætum við verið án svona spilasala. Nú spilar fólk á netinu líka og lendir þar í alls konar vandræðum. Er það ekki nóg? Mér finnst eitthvað svo sjúklegt við að líknarfélög hafi hag af spilakössum. Mér finnst það í raun absúrt.
Spilafíkn mun vera hryllilegur sjúkdómur. Hún snertir alla fjölskyldu fíkilsins með ófyrirsjáanlegum afleiðingum (sjálfsvíg ekki óalgeng). Það má vera að það teljist til frelsis að fólk fái að spila rassinn úr buxunum. Það er þá frelsi sem ég kæri mig ekki um.
![]() |
Gagnrýna að Háspenna fái lóð við Starhaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
AF HÚS-LÆKNI
Nú er komið að því. Í kvöld kemur Hús-læknir í heimsókn. Flest allar konur sem ég þekki geta ekki vatni haldið vegna löðrandi kynþokka þessa manns. Hann er haltur, fúlskeggjaður, viðskotaillur við samstarfsfólk sem og sjúklinga, lýgur, lætur brjótast inn til fólks og er almennt til ama og leiðinda. Sjálf missi ég helst ekki af lækninum, þó kynþokki hans þvælist ekki mikið fyrir mér, finnst attitjúdið agjört törnoff. En þessi læknir sem engu eirir hefur slegið í gegn hjá konum.
"The bad boy syndrome"
Það er rannsóknarefni í sjálfu sér hvers vegna konur laðast að kúkalöbbum. Þetta er alþekkt. Því andstyggilegri sem þeir eru þess meira spennandi. Undarlegur ári. Glæsilegasta mannflak í heimi, þe. Keith Richards virkar eins og segull þegar kemur að kvenfólki, líka áður en hann átti cent inni á banka og þegar hann var tannlaus af heróínneyslu. Hm...
Björgunarheilkennið
Þessi dularfulla löngun sumra kvenna til að elska vonda menn hefur verið útskýrt með þörf þeirra til að bjarga viðkomandi, ala hann upp að nýju og gera hann að góðmenni. Það tekst víst sjaldan en oft er haldið áfram að reyna alveg þangað til að kona rankar við sér og sjá.. æfin er að renna sitt skeið á enda. Það ku vera eitthvað svo spennandi við svona ónkyttastráka segir sagan, svo mörg verkefni sem bíða úrlausnar, rosalega mikið að takast á við.
En kannski er þetta bara enn ein mýtan. Ég ætla ekki að fullyrða neitt um það. Ég veit bara með fullri vissu að margar konur, heill hópur af þeim munu sitja límdar fyrir framan sjónvarpið í kvöld og horfa á Dr. House haltra um ganga, móðga gesti og gangandi á báða bóga, ljúga, svíkja og pretta til að komast fyrir mein hjá dularfullum sjúklingum sem segja ekki satt til um sjúkrasöguna. Allt af því að hann er svo fjandi góður læknir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
INNAN HEIMILIS
Nú gerist ég "domestic". Maysan og Oliver koma loksins í dag újeújeúje. Löng bið á enda og allir að tryllast úr gleði.
Amma Brynja ætlar að ná í þau á flugvöllinn og svo er að bíða fallega eftir að þau birtist. Nú er bara að vona að vondir vírusar og bakteríur haldi sér frá dóttur minni og barnabarni þessar mínútur áður en þau leggja í hann frá London. Vér biðjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
JAKOB FRÍMANN, MISSTI ÉG AF EINHVERJU???
Jæja þá er Íslandshreyfingin að verða að veruleika. Ómar og Margrét hafa boðað til blaðammanfundar vegna framboðsins, í dag ásamt Jakob F. Magnússyni og Ósk Vilhjálmsdóttur. Síðastu upplýsingar sem ég hafði voru að Jakob yrði ekki með. Hm.. fylgist ég ekki nógu vel með?
Það verður spennandi að sjá stefnumálin en Íslandshreyfingin - lifandi land ætlar að bjóða fram í öllum kjördæmum.
![]() |
Kynna framboð Íslandshreyfingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.8.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 2988389
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr