Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

LÁNANÐU MÉR LYKILINN...

22

..lagsi.  Ég vil lifa lengur.  Hm.. Bandarískir vísindamenn telja sig hafa fundið út hvers vegna hófsemi í mat kann að eiga þátt í að lengja líf mann.  Þeir hafa rannsakað erfðaefni orma og leiða í ljós gen sem eiga þátt í þeim viðbrögðum við minni inntöku kaloría.

Þetta eru flottar fréttir.  Með mínu nýfengnu insúlínháðu sykursýki er óhollusta no,no fyrir mig.  Þess vegna hlýt ég að lifa lengur.  Þess vegna bið ég um lykilinn góða að langlífinu.

Stendur ekki einhverstaðar að maðurinn sé aumasti ormur í samanburði við Guð.  Nú skil ég út á hvað sú setning gengur.

Síjúgæs!

 


mbl.is Finna lykil að langlífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERKÓIÐ MITT Á AFMÆLI

'uff þegar ég sá þessa frétt þá táraðist ég bara.  Nú er gamla Verkó (eða verkamannabústaðirnir) búnir að standa í 75 ár.  Þarna ólst ég upp á Hringbraut 84 og þarna var yndslegt að búa.  Íbúð eins og ég bjó í kostaði heilar 11.000 kr. á þessum tíma. 

Í Verkó bjuggu skemmtilegir karakterar eins og t.d. ég (hehe).  Þessir nýju verkamannabústaðir töldust ofsa fínir því þar var baðkar, fjarhitun, heitt rennandi vatn og rafmagnseldavél.  Íbúðirnar þóttu hollar og góðar.  Það get ég staðfest þó ég hafi nú komið til sögunnar öllu seinna. 


mbl.is 75 ár frá því flutt var í verkamannabústaðina í Vesturbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TÍU BLOGGVINIR Í RUSLIÐ

22

Í tilefni að vor- og sumarkomu þá hreinsar kona í kringum sig.  Ekki bara á lóðinni (lesist svölunum), úr hornum og skápum heldur líka í bloggheimum.  Í dag skutlaði ég tíu "bloggvinum" út í cypertómið.   Þetta eru bloggvinir sem ég sé aldrei nein ummerki um á mínum eðla fjölmiðli.  Róleg krakkar, fólk þarf ekki að kommentera í sífellu þegar það lítur hér við,  ég er ekki að meina það en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.  Ég fer samviskusamlega minn blogghring á hverjum degi og ég tel það tímafrekt á stundum.  Finnst það samt alltaf skemmtilegt.  Ég nenni hins vegar ekki að vera að heimsækja fólk sem ég aldrei sé einu sinni reykinn af. 

Sem sagt tíu litlir bloggvinir heyra nú sögunni til á mínu bloggi.

SíjúHeart


OG ÉG NEITA AÐ BORGA..

23

..fyrir þennan loddaraleik sem ákæruvaldið er búið að vera í, margendurtekið, varðandi Baugsmálið.  Ég tími þessu ekki.  Hvað kostar þessi málarekstur allur frá upphafi?  Gefa svör núna!

Jón Ásgeir var dæmdur í 3. mánaða skilorðsbundið fangelsi og Tryggvi í 9 mánaða fanelsi, báðir dómarnir skilorðsbundnir.  Jón Gerald sleppur.  Skyldi ríkissaksóknari geta komið enn einu sinni með ákærulista og haldið áfram?  Væri ekki hægt að nota orkuna hjá því fróma embætti í nauðgunar- og sifjaspellsmálin? Ég bara spyr og spyr enda ekki nema von.  Ég amk,  stend með Bónusmönnum og finnst allur málatilbúnaðurinn frekar leim.  Ég færi í mál ef ég væri þeir eða nei annars "strike this one"´.  Nóg komið.


mbl.is Jón Ásgeir og Tryggvi dæmdir í skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG SORPHAUG DAGSINS Á..

22

..bloggarinn Sveinn Hjörtur sem vænir mig um að bera út um sig óhróður (ég er líka að kalla hann lygara) þegar ég bloggaði um vafasama takta hans þegar hann endursegir prívatsamtal sem hann segist hafa átt við Steingrím J. Sigfússon eftir Kastljóssþáttinn 1. maí.  Ég ætla ekki að endurgjalda honum greiðann og "linka" inn á hann hér, vil ekki auglýsa hann á minni eðalbloggsíðu.

SH "linkar" hins vegar á mína bloggsíðu undir orðinu "óhróður" og kann ég honum bestu þakkir fyrir. Slæm auglýsing er víst betri en engin.  Maðurinn hefur sjálfur þotið upp vinsældalista bloggsins út á skrif sín um Steingrím J. og hann er allur að færast í aukana.  Nú hefur hann móttekið heilan hóp af ímeilum, segir hann,  frá illa innrættum VG og mikið rosalega væri nú skemmtilegt ef hann birti ímeilin sín á blogginu svo við getum séð hvurs lags and framsóknarlegt hyski við erum.

Ég ætla ekki að eyða meiri púðri í þetta mál, enda algjör óþarfi að skrifa gegn Framsókn þessa dagana.  Þeir sjá alveg um það sjálfir.  Til hamingju Sveinn Hjörtur og haltu endilega áfram.

 


AMMA-BRYNJA FÆR..

23

(H)rós dagsins fyrir að vera flottasta amman í heiminum (fyrir utan mig nottla). Hún Brynja sem er gömul vinkona mín frá því í gamla daga er nú tengdó hennar Maysu minnar og hin amman hans Olivers. Svona kemur fólk oft svo skemmtilega inn í líf manns á ný.  Brynja notar hvert tækifæri sem hún fær til að heimsækja Oliverinn, Maysuna og Robba í London, taka myndir og setja inn á barnaland svo maður geti slegið á söknuðinn eftir barnabarninu. Ekki ónýtt að eiga eina ömmu-Brynju í lífinu.

22Þetta eru EKKI sígós sem Maysan heldur á.  Þetta er bara léleg eftirlíking. Frruusss.

Nú ætlar Brynja mín að vera hjá Oliver á tveggja ára afmælisdeginum hans þ. 12. maí og halda þar uppi merkjum fjölskyldunnar. Mér líður alltaf vel þegar amma-Brynja er hjá krökkunum.  Færir þau nær mér og svo veit ég að ég fæ góðar myndir þegar hún kemur heim. Svo er ekki verra að Oliverinn fær til sín ömmuna sem honum þykir svo vænt um. Smútsj. elsku Brynja mín.

48

Við amma-Brynja erum ekki sammála í pólitík.  Þess vegna höfum við rætt möguleikann á að læsa hvor aðra inni á kjördag svo þetta falli slétt hehe.  Segi sonna.


KARTÖFLUÓÐALIÐ HEIMA

22

Nú hefur Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra keypt sér óðal að Kirkjuhvoli í Þykkvabæ og flutt þangað lögheimilið sitt.  Þegar ég sá fréttina hélt ég að hinn kartöflubóndinn, nafni hans úr Vestmannaeyjum væri að flytja búferlum en auðvitað var það ekki svo.  Árni þarf að sinna sínu fólki og er innmúraður Eyjamaður.  Ætli það sé nýjasta innstöffið hjá elítunni að eiga sveita- og þéttbýlisheimili?  Rosalegt veldi er á þessu fólki.  Það fylgir fréttinni að ÁM ætli að halda áfram að búa í Hafnarfirði jafnframt og dveljast þar lungann úr árinu.

Ég tek fram að ég er ekki öfundsjúk hef ekki áhuga á óðali uppi í sveit.  Né heldur geng ég með stóra drauma um að verða rík (nema þá í andlegum skilningi).  Mér finnst fréttin bara undirstrika þetta bil milli ríkra og snauðra sem hefur stækkað og stækkað í tíð núverandi ríkisstjórnar, bil sem verður óbrúanlegra eftir því sem núverandi valdhafar fá lengri tíma til að gera og skera (niður). 

Í almáttugs bænum gefum þessum körlum frí.  Þeir eru ekki tengdir við líf venjulegs fólks enda sést það glöggt þegar þeir mæta þreytulegir til kosningafunda í sjónvarpi. Eins og þeir séu að mæta af leiðri skyldu.  Árni sat í Kastljósinu með sinn "mérersvostórlegamisboðiðsvip" og Jón við hliðina á honum eins og herptur handavinnupoki í verulegri klemmu.

Sendum D og B í tímabært leyfi, langt leyfi.


mbl.is Árni flytur lögheimili í Þykkvabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BYRGIÐ - STUTT OG LAGGOTT

22

Eða það ætla ég rétt að vona en rannsókn á kærum fyrrum vistmanna Byrgissins er lokið hjá Sýsla á Selfossi. Kærurnar hafa verið sendar ríkissaksóknara. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvert þetta mál kemst allt saman.  Vonandi læra yfirvöld af þessu sorglega dæmi um Byrgið og þeirri "meðferð" sem þar átti sér stað að það er ekki vænlegt til árangurs að láta áhugasamtök sjá um áfengis- og fíkniefnameðferðir.  Nú hefur ekki heyrst frá Byrgisgvendi nokkuð lengi.  Hann er auðvitað ábyrgur ásamt þeim sem létu hann hafa peninga til starfseminnar, þrátt fyrir að viðvörunarbjöllur hafi hringt.  Þetta hefur verið fjárhagslegt himnaríki perranna....í boði Framsóknar.


mbl.is Byrgisrannsókn lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STUNDUM ER BETRA AÐ ÞEGJA!

22

Framsóknarbloggarinn Sveinn Hjörtur segir kjaftasögu á blogginu sínu í dag um samskipti sín og Steingríms J. Sigfússonar eftir Kastljóssþáttinn í gærkvöldi.  Hann segist ekki geta haft sumt eftir en tíundar annað og fullyrðir að Steingrímur J. hafi misst sig við sig.  Það má nefna það í framhjáhlaupi að Sveinn Hjörtur er á fullu upp vinsældalistann á blogginu, kjaftasögur hafa alltaf verið vinsælar á Íslandi. 

Mér finnst eitt að segja skoðanir sínar um menn og málefni sem eru til umfjöllunar hverju sinni.  En að koma með samtöl sem einhver segist hafa átt við nafngreindan þennan eða hinn er algjörlega glórulaust og fyrir neðan allar hellur.  Ég man ekki til þess að nokkur maður hafi hafi skrifað um samskipti sín við fólk undir þessum formerkjum áður.  Ég las reyndar pistil eftir Helgu Sigrúnu, framsóknarkonu og  þingmannsefni úr Reykjanesbæ, þar sem hún tíundaði bjórdrykkju eins frambjóðenda Samfylkingarinnar þegar hún bloggaði um fund sem hún hafði setið. 

Er þessi rætni í Framsóknarflokknum landlægur andskoti?


HÉR HEFST SKRÁNING Á....

44

..reiðhjólasögu Jenny Unu Errriksdóttur.  En í dag ætla amma og Einarrrr að fara í Markið og versla hjólið sem þið sjáið hér fyrir neðan.  Jenny veit að við ætlum að ná í hana og mömmu eftir skóla og kaupa fyrsta alvöru farartækið hennar.  Hjólið fær hún ma vegna þess að hún er "umsyggjusöm", "skiptist alltaf á", "er alltaf glöð","elskar jákarla, gívaffa og kókófíla"  og svo þarf barnið að geta farið með sjálfa sig á milli staða.  Hreyfisaga Jenny á  fótknúnum farartækjum er skráð hér á blogginu í fyrsta sinn.  Áður en amma hennar hefur snúið sér við mun Jennslubarnið halda á ökuskírteini.  OMG!

22

Amma-Brynja fer til London í afmælið hans Olivers 12. maí og með sér mun hún hafa pening frá Ömmunni og Einarrri til að kaupa hjól handa 2. ára strák sem fer alltaf hratt yfir, líka á tveimur jafnfljótum.

 

LovjúHeart

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.8.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 144
  • Frá upphafi: 2988329

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 142
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband