Leita í fréttum mbl.is

AMMA-BRYNJA FÆR..

23

(H)rós dagsins fyrir að vera flottasta amman í heiminum (fyrir utan mig nottla). Hún Brynja sem er gömul vinkona mín frá því í gamla daga er nú tengdó hennar Maysu minnar og hin amman hans Olivers. Svona kemur fólk oft svo skemmtilega inn í líf manns á ný.  Brynja notar hvert tækifæri sem hún fær til að heimsækja Oliverinn, Maysuna og Robba í London, taka myndir og setja inn á barnaland svo maður geti slegið á söknuðinn eftir barnabarninu. Ekki ónýtt að eiga eina ömmu-Brynju í lífinu.

22Þetta eru EKKI sígós sem Maysan heldur á.  Þetta er bara léleg eftirlíking. Frruusss.

Nú ætlar Brynja mín að vera hjá Oliver á tveggja ára afmælisdeginum hans þ. 12. maí og halda þar uppi merkjum fjölskyldunnar. Mér líður alltaf vel þegar amma-Brynja er hjá krökkunum.  Færir þau nær mér og svo veit ég að ég fæ góðar myndir þegar hún kemur heim. Svo er ekki verra að Oliverinn fær til sín ömmuna sem honum þykir svo vænt um. Smútsj. elsku Brynja mín.

48

Við amma-Brynja erum ekki sammála í pólitík.  Þess vegna höfum við rætt möguleikann á að læsa hvor aðra inni á kjördag svo þetta falli slétt hehe.  Segi sonna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ertu ekki að grínast Jenný!!! Er þetta hún Maysa þín??? Ég er að fara að senda þér tölvupóst... núna!

Brynja er kúl týpa, þótt hún sé með vondar skoðanir í pólitík (haha) en pólitík er aldrei persónuleg... Það veit allt almennilegt fólk!  

Laufey Ólafsdóttir, 3.5.2007 kl. 11:12

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 knús til þín - sæta

Hrönn Sigurðardóttir, 3.5.2007 kl. 11:16

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já sendu póstinn kona er núna að drepast úr forvitni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 11:26

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Við búum á svaaaakalega fámennu landi. Laufey, þarft ekkert að senda tölvupóst. Ræðum þetta bara hérna.

Jóna Á. Gísladóttir, 3.5.2007 kl. 12:25

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já ræðum það endilega hér en Laufey þekki dóttur mína og tengdason.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 12:29

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Voðalega er fólk forvitið! Jú, ég kannast við dóttur Jennýjar og tengdason. Frábært fólk sem ég óska innilega til hamingju með litla strákinn! ...og að sjálfsögðu Jenný líka!

Laufey Ólafsdóttir, 3.5.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985861

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.