Leita í fréttum mbl.is

TÍU BLOGGVINIR Í RUSLIÐ

22

Í tilefni að vor- og sumarkomu þá hreinsar kona í kringum sig.  Ekki bara á lóðinni (lesist svölunum), úr hornum og skápum heldur líka í bloggheimum.  Í dag skutlaði ég tíu "bloggvinum" út í cypertómið.   Þetta eru bloggvinir sem ég sé aldrei nein ummerki um á mínum eðla fjölmiðli.  Róleg krakkar, fólk þarf ekki að kommentera í sífellu þegar það lítur hér við,  ég er ekki að meina það en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.  Ég fer samviskusamlega minn blogghring á hverjum degi og ég tel það tímafrekt á stundum.  Finnst það samt alltaf skemmtilegt.  Ég nenni hins vegar ekki að vera að heimsækja fólk sem ég aldrei sé einu sinni reykinn af. 

Sem sagt tíu litlir bloggvinir heyra nú sögunni til á mínu bloggi.

SíjúHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hjúk  Ég hélt þú værir búin að kasta mér í ruslið, en ég var fljót að skanna hliðarvænginn og sá mig!

Edda Agnarsdóttir, 3.5.2007 kl. 16:04

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ég hef engar áhyggjur ég veit þú elskar mig

Hrönn Sigurðardóttir, 3.5.2007 kl. 16:06

3 Smámynd: Bergrún Íris Sævarsdóttir

aldeilis verið að taka til :) tók einmitt svona til á myspace-inu mínu um daginn enda 300 vinir heldur mikið :s

Bergrún Íris Sævarsdóttir, 3.5.2007 kl. 16:38

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Voru þetta allt negrastrákar ?

Anna Einarsdóttir, 3.5.2007 kl. 16:39

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna mín þetta voru allt strákar.  Þannig er nú það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 16:43

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Guð minn ég hélt í fyrstu að þú værir búinn að kasta mér út.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.5.2007 kl. 17:10

7 Smámynd: Hugarfluga

Sneddí. Ég er búin að gera þetta tvisvar og ætla í þriðja rúnt fljótlega.

Hugarfluga, 3.5.2007 kl. 17:14

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vil nú alveg vera vinkona þín hugarfluga!

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 17:24

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hárrétt hjá þér.

Sigfús Sigurþórsson., 3.5.2007 kl. 18:24

10 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

gott að vera enn í náðinni

Sædís Ósk Harðardóttir, 3.5.2007 kl. 18:33

11 Smámynd: Hugarfluga

Og ég vil sko alveg líka vera vinkona þín, Jenný Anna

Hugarfluga, 3.5.2007 kl. 18:34

12 Smámynd: Magnús Þór Jónsson

Úff.  Slapp naumlega.  Lofa að vera duglegri að kommenta, kem hér inn á hverjum degi, enda klassa síða!

Magnús Þór Jónsson, 3.5.2007 kl. 19:36

13 Smámynd: Kolgrima

Trallalallalaaa!

Kolgrima, 3.5.2007 kl. 19:38

14 Smámynd: Ragnheiður

Já það er líklega rétt, maður verður að kíkja á þessa bloggvini og hafa þá í lagi. Ég er búin að laga síðuna fyrir þig

Ragnheiður , 3.5.2007 kl. 19:39

15 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

vúhú! Kann að meta vináttu þína enn betur núna!

Laufey Ólafsdóttir, 3.5.2007 kl. 19:51

16 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Mikið svakalega ertu vond í dag, nú gráta 10 strákar sig í svefn

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 3.5.2007 kl. 21:17

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei níu gráta sig í svefn með ekkasogum einn bað um að fá að koma aftur.  Honum var hleypt inn til reynslu

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 22:31

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

I still love you ... always ... Ef þú kannt ekki útlensku þá þýddi þetta að ég vildi gjarnan halda áfram að vera bloggvinur þinn!

Guðríður Haraldsdóttir, 3.5.2007 kl. 22:53

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí mín ég hendi þér ekki út.  Henti nokkrum köllum bara sem aldrei láta sjá sig.  Styttir blogghringinn hjá skemmtilega fólkinu. Smútsj.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 23:59

20 identicon

Jenný þú ert hryðjuverkamaður á blogginu. Stjórnsöm með eindæmum og djöflast í fólki að hafa hlutina eins og þu vilt að þeir séu.

Axel Jón Fjeldsted (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 12:59

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska þig líka Axel Jón

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.