Leita í fréttum mbl.is

KARTÖFLUÓÐALIÐ HEIMA

22

Nú hefur Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra keypt sér óðal að Kirkjuhvoli í Þykkvabæ og flutt þangað lögheimilið sitt.  Þegar ég sá fréttina hélt ég að hinn kartöflubóndinn, nafni hans úr Vestmannaeyjum væri að flytja búferlum en auðvitað var það ekki svo.  Árni þarf að sinna sínu fólki og er innmúraður Eyjamaður.  Ætli það sé nýjasta innstöffið hjá elítunni að eiga sveita- og þéttbýlisheimili?  Rosalegt veldi er á þessu fólki.  Það fylgir fréttinni að ÁM ætli að halda áfram að búa í Hafnarfirði jafnframt og dveljast þar lungann úr árinu.

Ég tek fram að ég er ekki öfundsjúk hef ekki áhuga á óðali uppi í sveit.  Né heldur geng ég með stóra drauma um að verða rík (nema þá í andlegum skilningi).  Mér finnst fréttin bara undirstrika þetta bil milli ríkra og snauðra sem hefur stækkað og stækkað í tíð núverandi ríkisstjórnar, bil sem verður óbrúanlegra eftir því sem núverandi valdhafar fá lengri tíma til að gera og skera (niður). 

Í almáttugs bænum gefum þessum körlum frí.  Þeir eru ekki tengdir við líf venjulegs fólks enda sést það glöggt þegar þeir mæta þreytulegir til kosningafunda í sjónvarpi. Eins og þeir séu að mæta af leiðri skyldu.  Árni sat í Kastljósinu með sinn "mérersvostórlegamisboðiðsvip" og Jón við hliðina á honum eins og herptur handavinnupoki í verulegri klemmu.

Sendum D og B í tímabært leyfi, langt leyfi.


mbl.is Árni flytur lögheimili í Þykkvabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ertu að meina að þá að hann verði seint sakaður um fégræðgi?

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 00:36

2 Smámynd: Ragnheiður

Jenný...hvað á ég þá að hafa á síðunni ?

Ragnheiður , 3.5.2007 kl. 01:18

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Kartöflukommúna þar sem allir heita Árni? Hvernig ætli samkomulagið yrði á því heimili?

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 3.5.2007 kl. 01:45

4 identicon

Árni *2 + Þykkvibær + kartöflur= Mér líst nú nokkuð vel á þessa formúlu. Hún getur til dæmis þýtt: Árnarnir Mathiesen og Johnsen hafa ákveðið að hætta í pólitík og gerast kartöflubændur  Málið dautt!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 02:06

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ætla ekki að skrifa það sem ég las á einhverju bloggi um þá félaga en hvað hefur Þykkvabærinn með sína kartöflurækt til saka unnið?

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 10:09

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragga mín það sem þú varst með eða eitthvað ljósara.  Hvað er td að þessu formi?. Það er í fleiri litum?  Annars er þetta bara smekksatriði og örgla bara hégómi í mér.  Finnst leiðinlegra að lesa þetta brúna og litlausa dæmi. Smúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 10:10

7 Smámynd: Hlynur Hallsson

Sammála þér Jenný með að þeir þurfa langt og gott frí. Svona 4-8 ár í það minnsta. Þeir geta þá eitt meiri tíma á búgörðunum sínum. Bestu baráttukveðjur,

Hlynur Hallsson, 3.5.2007 kl. 10:39

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sömuleiðis félagi Hlynur nú tökum við þetta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 10:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mátulegt frí er málið,

mikið er það rétt.

Dundað við kartöflukálið

og keppt við þá nýríku stétt.

Sem elskurnar nú hafa alið

upp við sitt breiða brjóst.

En fríið í tugum þó talið.

Tel betra, er nokkuð ljóst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2007 kl. 11:00

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur Cesil þú ert BARA snillingur

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 11:13

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 Takk hehehehe..Þetta bara kom svona út úr mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2007 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.