Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 15. september 2007
Hættulegt fólk!
Í gærkvöldi horfði ég á Bill O´Reilly á Fox, mér til dundurs og skemmtunar. Maðurinn er svo sjúklega hægri sinnaður, eins og allir vita sem kíkja þarna inn, að CIA er eins og sunnudagaskóladrengur á leið í kirkju, þegar kemur að samsæriskenningum.
Öfgafullir vinnstri menn og óvinir Ameríku eru skv. O´Reilly, þessa dagana:
Sean Penn, Alec Baldwin, Rosie O´Donnell og John Cusack (sem að sögn Bills er varla frægur, sko, hefur bara leikið í nokkrum lélegum myndum).
Ameríkanar eru í góðum málum í óvinadeildinni, ef þetta fólk er mesta áhyggjuefnið.
God bless America.
Úje!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 15. september 2007
Og enn er migið..
..í miðbænum um helgar, þrátt fyrir sektir og heimsókn á löggustöðina. Hvað er þetta með þvag og Íslendinga? Sumir mega ekki "vatni halda" til að komast yfir hland (þvagleggirnir), og sumir hætta ansi miklu til að losna við það.. þar sem þeir standa.
Kominn tími á ferðakoppa? Ég er ekki frá því að það eigi að skylda fólk til að taka með sér ferðakoppa á djammið. Koppa sem ég legg til að framleiddir verði í skyndi, ferðavænir og samanbrjótanlegir, og hægt að stinga í vasa eftir notkun ( ).
Merkilegt hvað Íslendingar eru pervert í þvagmálum. Einhver kallaði þetta þvagfrygð. Þvagleggirnir á Selfossi eru með óeðlilega hlandhneigð og djammararnir í miðbænum líka. Birtingarmynd þessa blætis er ólík en söm. Erum við ekki almennilega klósettvædd á landinu eða hvað?
Ef við gefum okkur að hinn gullvæga 10% regla sé í fullu gildi, þá voru þessir 14 sem teknir voru við útimig í hópi 140 hlandvappara. Vel af sér vikið hjá löggunni.
Ég bíð spennt eftir hlandkoppaframleiðslu og þangað til tel ég pissufrömuðina, glöð í (ó)bragði.
Dónjúrineitonmædressplís!
Úje
![]() |
Fjórtán handteknir fyrir hegðunarbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 15. september 2007
Bloggarar hafa áhrif í umræðunni!
Ég var afskaplega glöð þegar ég sá þessa frétt í Mogganum í morgun. Þar er verið að skrifa um viðbrögð bloggara við mildun dóms yfir nauðgara. Þessum sem fór svo illa með konuna að ekki var hægt að gera á henni hefðbundna skoðun á kynfærum vegna áverka.
Það ver vitnað í hana Birnu Dís, bloggvinkonu mína (www.skralli.blog.is) , ásamt fleiri bloggurum.
Ég held að ég hafi bloggað um hvern einasta nauðgunardóm sem hefur fallið, síðan ég byrjaði að blogga. En í þetta skiptið sat ég hjá. Það þyrmdi svo yfir mig og ég varð svo reið að ég hugsaði með mér að í þetta skipti ætlaði ég að telja upp á tíu.
Það má vera að dómar í nauðgunarmálum séu farnir að þyngjast, en það er ekkert að þakka fyrir og að dómurinn skuli mildaður þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi líka fundið manninn sekan um munnmök, er viðurstyggilegt og honum til skammar. Virðing mín gagnvart Hæstarétti er ekki að sliga mig, það verð ég að segja. Er þetta fólk sem skipar dóminn af þessum heimi?
Annars bendi ég á góða umfjöllun um málið hjá fleiri bloggurum:
Ég gleðst yfir því að bloggarar virðast hafa áhrif á umræðuna í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir að við förum svakalega í taugarnar á sumum, sem telja sig eina bæra til að fjalla um þjóðfélagsmál.
Ójá!
![]() |
Bloggheimar loga vegna dóms yfir nauðgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Föstudagur, 14. september 2007
Égvilekkisjáana!
Ég vil ekki sjá þessa nýju myndavél frá Sony, sem tekur mynd ef maður brosir.
Í henni er forrit sem þekkir bros.
Ég er viss um að þessi vél getur ekki gert greinarmun á skelfingarviprunni á munninum á mér þegar ég er hrædd og þegar ég set upp ljósmyndabros.
Hvorutveggja er jafn hræðilegt.
Ég vil láta taka af mér myndir, þar sem sést hvað ég er gáfuð og laus við alla tilgerð.
Alveg eins og munkur í nirvanasælu sem er löngu laus við hégómagirndina og starir vitru og djúpu augnaráði út í alheiminn.
Bara þannig vill ég sjást.
Þannig að þessi myndavél er dauð fyrir mér.
Later.
![]() |
Myndavélin stillt á bros |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Föstudagur, 14. september 2007
Á maður að tapa sér í fögnuði..
..vegna þess að Tískuráð Bretlands ætla ekki að leyfa fyrirsætum undir 16 ára aldri að sýna á Tískuvikunni í London, sem hefst á morgun?
16 ára stelpur eru bara krakkar líka. Það verður haldið áfram að nota börn til að selja föt, börn með átraskanir, og engan þroska til að hrærast í þeim bilaða heimi, sem tískuheimurinn er.
Lóelítuheilkennið er lífseigt í bransanum. Smástelpur sem vart eru búnar að missa mjólkurtennurnar eru stífmálaðar, og hökta svo um í fötum sem hanga utan á þeim. Það er svo sexý og vænlegt til sölu að nota smábörn til að selja föt fyrir fullorðnar konur.
Jafnframt eiga fyrirsæturnar að framvísa heilbrigðisvottorði áður en þær koma fram. Hvað á það vottorð að innihalda? Yfirlýsingu um að viðkomandi sé ekki með átröskun? Ef það stæði á enninu á okkur sem hafa þjáðst af átröskun, hvernig fyrir okkur væri komið, væri þetta varla vandamál. En anorexía þarf að vera gengin ansi langt áður en það fer að sjást utan á fólki.
Demæmsóangrí!
![]() |
Engar fyrirsætur undir sextán ára aldri á Tískuviku í Lundúnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 14. september 2007
Ég er örugg, verð allra kerlinga elst!
Ég held að ég sé hætt við að hætta að reykja. Samkvæmt rannsókn sem Halla Skúladóttir, hefur gert, þá eru reykingamenn sem borða mikið af ávöxtum og grænmeti ekki í eins mikilli hættu á að fá lungnakrabbamein en þeir sem borða minna af þessari nauðsynja matvöru.
Eftir að ég greindist með sykursýki, borða ég grænmeti og ávexti sem aldrei fyrr. Meðal niðurstaðna Höllu er að ef reykingamenn borða yfir 400 grömm af grænmeti og ávöxtum á dag dragi það úr líkum á lungnakrabbameini um allt að 35%.
Ég borða lágmark 400 grömm af grænmeti á dag. Lauk í allskonar litum, stærðum og gerðum, rósakál, gulrætur, paprikur og brokkoli og tómata, maður minn hvað ég borða tómata. Svo úða ég í mig bláberjum frá Kanada og jarðaberjum frá Hollandi. Já, já.
Þetta heitir að vera með nefið fast í fjandans naflanum á sér. Ég sko.
Auðvitað ætla ég að hætta að reykja. Það er löngu tímabært og ég er búin að fá mig fullsadda af því að anga úr reykingalykt og finnast ég vera gangandi umhverfisslys hvar sem ég kem. En ennþá blundar í mér hroki fíkilsins og hann kviknar og mun kvikna í hvert skipti sem reykingamönnum verður gert erfitt fyrir á meðan ríkið hefur beinan hagnað af fíkninni.
Ég hætti að reykja 1.október og þann dag mun verða léttskýjað yfir Reykjavík, einkum og sér í lagi yfir Seljahverfinu.
Ævondervæ!
Úje
![]() |
Neysla grænmetis og ávaxta dregur úr líkum á lungnakrabba |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 14. september 2007
Furðufugl með hegðunarvandamál!
Við fórum í vikunni, með hana Jenný Unu Eriksdóttur, til að velja páfagaukinn sem staðið hefur til í allt sumar að kaupa, en ekki orðið af. Jenný var svakalega spennt að fá "Bördísín" en fuglinn fékk nafngiftina Bördí vegna forvera síns á þessu heimili, sem einn daginn hné niður í miðri aríu og dó, okkur húsbandi til mikillar sorgar.
Hvað um það, við fórum í Dýraríkið og keyptum Bördí með fylgihlutum (búr, rólu, leikföng, matur og sollis) og það kostaði hvítuna úr augum okkar allra. Jenný valdi Bördí, en Einarrr varð að halda "roslalega fast" utan um hana, því hún var svo hrædd við "lætin" í fuglunum. Fyrir valinu varð gári, blár, gulur og svartur að lit. Jenný var svolítið sár því hún hafði tilkynnt öllum að hún ætlaði að fá bleikan bördí. En stundum verður maður að slá af kröfunum.
Svo gisti Jenný hér um nóttina en auðvitað vildi hún fylgjast með sínum fugli.
Bördí sem leit svo sakleysislega út í búðinni, er ekki allur sem hann er séður. Við erum búin að hleypa honum út nokkrum sinnum og OMG þvílíkt ves, að koma honum inn í búrið aftur. Hann hendist um allt. Í gærkvöldi slapp hann inn í eldhús (fíflið ég gleymdi að loka hurð). Eftirköst: kryddvörur á gólfi, ónýtt loftljós, pappírar úr hillu á víð og dreif um eldhús og húsmóðir með taugaáfall. Fuglinn er ofvirkur með hegðunarvandamál. Þegar svo loksins tókst að koma viðkomandi vænghafa í búrið, fór hann í fýlu og þegar þetta er skrifað lætur hann enn eins og hann sé tré. Hreyfir hvorki legg né lið (æi þið vitið).
Það stefnir í þjálfun á Bördí. Hvernig þjálfar maður páfagauk með attitjúd?
Er farin að kenna honum að flauta "Free as a bird".
Later!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Föstudagur, 14. september 2007
ÞVAGLEGGSFRÉTTIR
Samgönguráðherra ætlar að skipa starfshóp til að samræma reglur milli lögregluembætta um sýnatöku hjá ökumönnum sem grunaðir eru um neyslu ólöglegra efna.
Þetta er fallegur dagur. Nú getur maður kannski farið að kíkja í kaffi til Ásdísar bloggvinkonu eða farið í bíltúr til Þingvalla til að skoða haustlitina. Ekki misskilja mig ég myndi aldrei keyra undir áhrifum, en líkurnar á því að lenda illa í þvagleggslöggunni, svo ég bara tali ekki um Yfirþvaglegginn sjálfan, sýslan í umdæminu, minnka töluvert ef það verður gert opinbert, að svona nauðungarsýni séu ekki leyfileg vinnubrögð.
Hér hefur viðhorf almennings (bloggara) greinilega haft áhrif því í fréttinni stendur:
"Ástæður þess að starfshópurinn er skipaður má að miklu leyti rekja til mikillar umræðu sem varð eftir að kona kærði lögregluna á Selfossi fyrir valdbeitingu. Settur var upp þvagleggur hjá konunni með valdi í maí síðastliðnum og sköpuðust miklar umræður í þjóðfélaginu í kjölfarið."
Úps, verð að skreppa, er svo mál að pissa.
Kem að vörmu
Úje
![]() |
Reglur um sýnatöku samræmdar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Pósturinn hefur endanlega gengið frá félagslífi mínu!
Ég er ónýt, miður mín, að andlegum niðurlotum komin og ég á eftir að eiga ömurlega helgi.
Ég er ekki búin að fá boðskortið frá Landsbankanum en það verður flogið kl. átta í fyrramálið til Ítalíu og þar með er þessi annars skemmtilega ferð til Ítalíu á vegum bankans fallin steindauð til jarðar.
Þó boðskortið frá Kaupþingi berist í fyrramálið í matinn annað kvöld, kemst ég ekki í strípur og klippingu fyrirvaralaust og ég á eftir að versla mér dress. Get ekki látið sjá mig í áramótadressinu sem ég var í í þyrlupallapartíinu í London á gamlaárskvöld.
Ég veit að þetta er ekki bönkunum að kenna. Er búin að skipta við alla íslensku bankana í áraraðir og hlýt að vera nokkuð góður viðskiptavinur í tímalengd talið (hóst).
Það er andskotans Íslandspóstur sem er að klúðra mínu félagslífi algjörlega.
Ég er ZERO happý!
Ég mun eyða helgini algjörlega niðurbrotin, heima í rúmi.
Dem, dem, dem!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Hamfarablogg
Sumir eiga einfaldlega ekki að hafa með börn að gera, það er alveg klárt, hvað mig áhrærir. Reglulega í gegnum árin hef ég heyrt af foreldrum sem keyrt hafa drukkin undir stýri með börnin í bílnum. Í sumum tilfellum hefur það gerst reglulega.
Ég fer ekki ofan að því að fólk sem stofnar lífi barna sinna í hættu með þessum hætti, ætti að fá frí frá foreldrahlutverkinu, a.m.k. þar til viðkomandi hafa kippt upp um sig og tekið á sínum málum.
Er barnaverndarnefnd tilkynnt um svona mál?
ARG
![]() |
Ölvaður ökumaður með barn sitt í bílnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr