Leita í fréttum mbl.is

Hamfarablogg

Sumir eiga einfaldlega ekki að hafa með börn að gera, það er alveg klárt, hvað mig áhrærir.  Reglulega í gegnum árin hef ég heyrt af foreldrum sem keyrt hafa drukkin undir stýri með börnin í bílnum.  Í sumum tilfellum hefur það gerst reglulega. 

Ég fer ekki ofan að því að fólk sem stofnar lífi barna sinna í hættu með þessum hætti, ætti að fá frí frá foreldrahlutverkinu, a.m.k. þar til viðkomandi hafa kippt upp um sig og tekið á sínum málum.

Er barnaverndarnefnd tilkynnt um svona mál?

ARG

 


mbl.is Ölvaður ökumaður með barn sitt í bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Mikið er ég sammála þér Jenný mín. Ég trúi ekki öðru en að barnaverndarnefnd sé látin vita af svona málum.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.9.2007 kl. 19:25

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég er viss um að Barnavernd er að kafna úr svona málum ... það er alla vega mikið að gera hjá þeim, hef ég heyrt. 

Guðríður Haraldsdóttir, 13.9.2007 kl. 19:35

3 Smámynd: Blómið

Barnaverndarnefnd fær að vita af öllum málum sem lögregla hefur afskipti af og tengjast börnum og unglingum undir lögaldri.   Því miður eru þau svo mörg, eftir því sem manni hefur skilist, að lítið er hægt að fylgja þeim eftir nema um síendurteknar tilkynningar sé að ræða.   Það er bara sorglegt til þess að hugsa að ekki sé búið betur að þessum málaflokk. 

Blómið, 13.9.2007 kl. 19:44

4 identicon

Þetta er eitt augljósasta dæmið um það hvaða áhrif alkóhól hefur á fólk, og mest áhrif hefur það á fólk sem er með alkagen í sér. Dómgreindin fer út um gluggann við fyrsta sopa og við tekur stjórnleysi og rugl sem tekur m.a. á sig þessa mynd. Ég finn mest til með barninu sem býr við þetta stjórnleysi og vona að það og svo konan fái viðeigandi meðferð.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 20:42

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

æi þetta er svo agalega sorglegt.

Jóna Á. Gísladóttir, 13.9.2007 kl. 20:44

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já stelpur það eru alltaf börnin sem eru þolendur fullorðna fólksins. ARG

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 20:47

7 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Slæmt... mjöööög slæmt.

Laufey Ólafsdóttir, 13.9.2007 kl. 20:52

8 identicon

NKL - Jenný - þau verða verst úti - Arrggg! með þér.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 20:53

9 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Ömurlegt.

Bjarndís Helena Mitchell, 13.9.2007 kl. 20:55

10 identicon

Ömurlegt þegar börn þurfa að druslast með fulla eða dópaða foreldra.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 21:00

11 identicon

Ég er gjörsamlega orðlaus yfir þessari mömmu, ef mamma má þá kallast. Dómgreindaleysi í hámarki að ég tel.

P (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 21:21

12 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Barnaverndarnefnd bara hlýtur að vera látin vita af svona :-O

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 14.9.2007 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband