Leita í fréttum mbl.is

Og enn er migið..

 1

..í miðbænum um helgar, þrátt fyrir sektir og heimsókn á löggustöðina.  Hvað er þetta með þvag og Íslendinga?  Sumir mega ekki "vatni halda" til að komast yfir hland (þvagleggirnir),  og sumir hætta ansi miklu til að losna við það.. þar sem þeir standa.

Kominn tími á ferðakoppa?  Ég er ekki frá því að það eigi að skylda fólk til að taka með sér ferðakoppa á djammið.  Koppa sem ég legg til að framleiddir verði í skyndi, ferðavænir og samanbrjótanlegir, og hægt að stinga í vasa eftir notkun ( Whistling).

Merkilegt hvað Íslendingar eru pervert í þvagmálum.  Einhver kallaði þetta þvagfrygð.  Þvagleggirnir á Selfossi eru með óeðlilega hlandhneigð og djammararnir í miðbænum líka.  Birtingarmynd þessa blætis er ólík en söm.  Erum við ekki almennilega klósettvædd á landinu eða hvað?

Ef við gefum okkur að hinn gullvæga 10% regla sé í fullu gildi, þá voru þessir 14 sem teknir voru við útimig í hópi 140 hlandvappara.  Vel af sér vikið hjá löggunni.

Ég bíð spennt eftir hlandkoppaframleiðslu og þangað til tel ég pissufrömuðina, glöð í (ó)bragði.

Dónjúrineitonmædressplís!

Úje 


mbl.is Fjórtán handteknir fyrir hegðunarbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 ég held að þessi nefnd sem sett var á laggirnar til að finna út hversu mörgum almenningsklósettum væri þörf á í miðborginni hafi brugðist bogalistin.

Jóna Á. Gísladóttir, 15.9.2007 kl. 12:51

2 Smámynd: Karl Tómasson

Hvað hét þessi nefnd?

Hlandvarnir. Eigum við ekki að gefa kost á okkur í stjórn Hlandvarna, Jenný og Jóna?

Karl Tómasson, 15.9.2007 kl. 12:57

3 identicon

Eru nýju velbúnu nefndar-klósettin 5 nokkuð komin í gagnið? Það þarf allavega  ekki þvaglegg á þá sem eru í miðbænum. Mikið frekar þvagrennur við götur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 13:02

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Kalli þetta er nú þegar ákveðið. Lét enginn þig vita? Jenný er formaður Hlandvarna, þú ert varaformaður, Birna Dís er gjaldkeri og ég er ritari. Hér með er auglýst eftir varastjórn og sjálfboðaliðum til að kynna átakið og félagið í miðbænum eftir miðnætti um helgar.

Jóna Á. Gísladóttir, 15.9.2007 kl. 13:06

5 identicon

„Kominn tími á ferðakoppa?“

Þetta er viðskiptahugmynd Jenný - nú er bara að útfæra nánar

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 13:08

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég var einmitt að hugsa það sama og Anna, væri kannski hægt að hagnast á þessu migustandi

Huld S. Ringsted, 15.9.2007 kl. 13:15

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur og Kalli Tomm, stofnum fyrirtæki um málið og köllum það Hlandvarnir unlimited!

Úje

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 13:41

8 identicon

Evast um að þú myndir vilja láta einhvern míga utan um húsið þitt,

Bjó R.V.K miðbæ meðan ég var í skóla, var ekkert skemtilegt að fá fólk um nótt að míga og öskur og læti fyrir utan gluggan minn.

(Ekki næst að kvarta, ef fólk þarf að tefla við páfann)

Mikki (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 14:10

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mikki ég er ekki með því að fólk mígi þar sem það stendur?  Hvernig dettur þér það í hug?

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985731

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.