Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Kreppuspjall á kærleiks

Edda Rós Karlsdóttir, sagði á félagsfundi SVÞ í morgun að fyrsta verkefni stjórnvalda til að koma Íslendingum út úr kreppunni væri að koma krónulufsunni í gang.

Það eru allir reiðir þessa dagana og það er ekkert skrítið við það.

En afhverju er verið að beina reiðinni að blásaklausu krónukrúttinu sem hefur ekkert gert af sér nema að vera til?  Ekki  henni að kenna að hér séu fíbbl að möndla með´ana.

Króna var stór nammipeningur þegar ég var barn, túkallinn var heví djútí fjársjóður.

Skamm.  Ekki við krónuna að sakast.  En við eigum að nota hana í skartgripi og fara í evru.

En svo að krepputali dagsins hér á kærleiks.

Ég: Kreppan er heldur betur búin að setja strik í reikninginn.  Ég sem ætlaði til London að heilsa upp á barnabarnið og kaupa jólagjafir.  Fjárinn sjálfur bara.

Húsband ákveðinn: Það er út úr mynd.  Ekki séns að við höfum efni á því.

Ég: Ég veit það en ég ætlaði áður en delinkventarnir fokkuðu upp mínum fjárhag og fjárhag íslensku þjóðarinnar.  Ég gæti lamið þá.  Hreinlega slegið þeim saman. 

Húsband: Láttu ekki svona, það þýðir ekkert að ergja sig á þessu, við förum seinna.

Ég: Seinna, seinna, seinna, það er alltaf allt einhverntíma seinna, ég vil fara núna" (búin að tala mér til hita).

Húsband: Dona, dona, ástin mín, við getum skroppið á Þingvöll á sunnudaginn og tekið með okkur nesti. (Hann glotti viðurstyggilega).

Ég: Auli.

Kreppan er að kroppa í mitt dásamlega skapferli

Ég er að verða heiminum hættuleg.

Svo langar mig ekkert til London, nei ég vil ekki sjá það. 

Ég vil fara og hitta aðra hryðjuverkamenn í mínu fríi.

Mér líður vel með mínu fólki.

Og hana nú!


mbl.is Koma „krónulufsunni" í gang á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk Pólland.

Geir vissi ekki um pólska lánið í hádeginu, nú veit hann af því.

Það er út af því að Pólverjar höfðu samband við Svía um málið eða eitthvað svoleiðis ladída.

Fyrirgefið en ef þetta er ekki til þess fallið að maður fái raðtaugaáföll þegar forsætisráðherrann veit ekki það sem flestir aðrir vita þá veit ég ekki hvað.

Og til ykkar allra sem eruð búin að vera að röfla yfir Pólverjunum sem hér hafa unnið skuluð lúta í gras.  Skammast ykkar.

Pólska þjóðin er að reynast Íslendingum öllu betur en mörg okkar reyndust henni.

Úff ég gæti talið upp hluti en ég sleppi því.

Man eftir bloggfærslum og athugasemdum sem gerðu mann grænan í framan.

Segi einfaldlega í auðmýkt minni við ykkur sem voruð eins og viti fyrt vegna veru fólksins hér þegar enginn annar fékkst í störfin;

Nananafokkingbúbú!

Já og ég blóta að vild ykkur kemur það ekki afturenda við.

Takk Pólland.


mbl.is Geir staðfestir pólska aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með spillingarliðið

Félagar úr VR stóðu fyrir utan skrifstofur VR í hádeginu.

Þeir voru að mótmæla siðleysinu í formanni og stjórn félagsins.

Þeir ætla að halda því áfram þangað til að liðið segir af sér.

Mikið rosalega er ég ánægð með þetta fólk.  Ég er reyndar ánægð með fullt af fólki þessa dagana, það er nefnilega vöknun í gangi.

Þyrnirósarsvefninn hefur verið rofinn, fólk er að vakna og því líkar ekki það sem blasir við enda ekki ástæða til.

Á morgun verður mótmælt á Austurvelli kl. 15,00.  Ég er þess fullviss að fleiri og fleiri munu mæta, þetta er bara byrjunin.

Borgarafundir verður í Iðnó á laugardag kl. 13,00.  Það er að mæta þangað fyrst og svo beint á völlinn kl. 15,00.

Svo var tölvuóða tónskáldið með hugmynd, kíkið á hana.

Farin að þvo upp, taka til á lóð og vinna álfur.

Later!

Allir saman nú, burt með spillingarliðið.


mbl.is Klanið burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hníg ekki til jarðar í aðdáunarkrampa en..

Ráðuneytin hafa gripið til sparnaðaraðgerða.

Það hefur meira að segja verið dregið úr utanlandsferðum eins og kostur er.

Og nú eiga allir að henda sér á skeljarnar, horfa til himins og klappa fyrir batteríinu.

Fyrirgefið en ég er ekki að missa mig í hysteríu vegna eðlilegra hluta eins og sparnaði í ráðuneytum, það er svo löngu tímabært. 

Þannig að ég sit hér hrifningsvana og hugsa með mér, loksins lyfti einhver rassi í ráðuneyti.  Hvað ferðalög varðar finnst mér útstáelsið á "sumum" duga íslensku þjóðinni vel fram á næsta áratug.

Og nei, ég er ekki skilningsvana á þeirri staðreynd að ákveðin ferðalög um heiminn eru nauðsynleg.

Það er einfaldlega þannig að við erum ríkið og við sem fyrirtækiseigendur þurfum að draga saman rétt eins og við herðum sultarólina á heimavelli.

Reyndar hefur bullað í mér heilbrigð reiði vegna einkaþotuleigu og annars hégóma fyrr á árinu.

En kannski var flottræfilshátturinn og neysluhyggjan smitandi, hvað veit ég?

Ég er með allskyns sparnaðaruppástungur fyrir starfsfólk mitt/okkar í ráðuneytunum.

Við erum bláfátæk þjóð af efnahagslegum gæðum og höfum ekki efni á bruðli.

Ódýrari ráðherrabíla og fólk flytur sig sjálft á milli staða. 

Bæbæ utanlandsferðir og Björn Bjarnason situr heima það sem eftir lifir árs.  Maðurinn er búinn að vera eins og landafjandi út um heim á þessu ári.

Fækka sendiráðum all verulega.  Við erum þrjúhundruðþúsund manna þjóð.  Get a live and a grip.  Þetta sendiráðsbruðl er út úr öllu korti.

Niðurskurður í veislum á vegum hins opinbera og út með áfengið.  Kostar peninga.  Kaffi dugar fínt, en það má gera á þessu ákveðnar undantekningar.

Aðstoðarmenn út, ég held að þeir hafi allir fimmhundruðþúsundkall á mánuði.  Ég efa ekki að það eru full not fyrir þessa starfsmenn en nú er kreppa við höfum ekki efni á svona fíneríi.  Umboðsmaður Íslands er orðinn opinber starfsmaður til aðstoðar einhverjum íhaldsþingmanni.  Ráðinn í miðri kreppu. Draga til baka takk.

Nú hefur einhver grafið upp laun konunnar í Landsbanka, en hún er með tæpar tvær á mánuði (1.950).  Bæði hún og Birna Glitnis eru með afnot af glæsibifreiðum.

Ætla ráðamenn, í þessu tilfelli viðskiptaráðherra, aldrei að læra?

Við höfum ekki efni á þessum flottræfilshætti bankatoppa. 

Arg.


mbl.is Dregið úr ferðum ráðuneyta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Símtólið tek

 rauðursími

Furðulegt hvað ég er stundum liggjandi í símanum.

Ég er reyndar orðin frekar afhuga símtólum eftir að hafa verið með himinháa símareikninga til margra ára.

Lengi vel var ég í afneitun á eigin sök í málinu. 

Þegar stelpurnar mínar voru enn heima var ég handviss um að þeim væri um að kenna.  Þær lágu í símanum ég hins vegar var örsnögg og hringdi sjaldan.  Já ég trúði því.  Afneitun er dásamlegt aðferð til að hanga í ósiðunum.

Stundum hélt ég að sími nágrannans væri tengdur inn á minn og ég væri að borga fyrir alla hans símaþjónustu og líka fyrir hans leiðinlegu fjölskyldu.  Mér var ekki skemmt.

Ég var jafnvel tilbúin að trúa því að það væri starfsmaður á gamla Landsímanum sem væri að ofsækja mig.  Ég var í alvöru að velta því fyrir mér, reikningar voru óskiljanlega háir.

Við fyrrverandi áttum mörg, innihaldsrík og gefandi rifrildi vegna símareikninga.

Maðurinn var með tómar andskotans ásakanir í minn garð.  Ég var helsærð vegna mannvonsku hans.

Svo fóru dæturnar að heiman en símareikningurinn fitnaði samt eins og púkinn á fjósbitanum.

Það var samt ekki mér að kenna.  Ég skildi ekkert í þessu.

En nú orðið er ég orðin pen.  Reikningarnir eru vel ásættanlegir og allir eru glaðir.

Ég fór líka yfir í nýtt símafyrirtæki þar sem það kostar ekki hvítuna úr augum mér að lyfta upp tóli.

En vípsívú um leið og ég var komin með ódýra símaþjónustu þá hætti ég að nenna að halda partí í gegnum símann.

Engin spenna í því lengur, nú eða þá að ég hef loksins fullorðnast.

Heimasíminn var stundum læstur inn í skáp þegar ég var unglingur.

Mér lá ógeðslega mikið á hjarta, fullt af stöffi til að kryfja til mergjar.

Ég er svo fjarskiptatæknióð að ég er ein af þeim sem grét af gleði þegar gemsarnir komu á markaðinn.  Möguleikarnir hlupu á milljónum.

Ég er (var) kontrólfrík.  Fyrir okkur sem þannig erum innréttuð er sími í tösku eða vasa fjölskyldumeðlima ein besta uppfinning síðan kveikt var á fyrstu perunni.

Ég gat hringt í stelpurnar mínar og húsbandið any time og tékkað hvort allt væri í lagi.

Ég held að tilurð gemsans hafi ekki glatt þau neitt sérstaklega þegar ég kynntist notkunarmöguleikunum.

Þau eru hætt að kvarta - en bara vegna þess að ég er orðin leið á eftirlitinu.

Nennessueggi ég sver það.

En í kvöld talaði ég í símann - í rúman klukkutíma.

Mikið djöfull var það hressandi.

Úje.


Aldrei leiðinleg stund

 pd_arguing_080129_ms

Maturinn hækkar og hækkar.

Hvað er til ráða spurði ég vinkonu mína og húsband þegar við sátum úti í smók áðan.

Hm... sagði eiginmaðurinn, á maður að fara að borða unnar kjötvörur aftur?  Það er svo óhollt.

Við reyktum aðeins meir og það sá ofan í svört lungun þegar við soguðum nautnalega að okkur eitrið.

(Innskot frá mér og hefur ekkert með þessa matarfærslu að gera).

Vinkona mín var að fara heim að elda medisterpylsu og kartöflumús.

Húsband varð dreyminn í framan og velti fyrir sér hvort það væri ekki kominn tími á medister eftir hollt mataræði undanfarinna ára.

Ég: Jú eða bjúgu.

Hann: Bjúgu, nei, þau eru svo feit og lufsuleg.  Öll plöstuð og svona. Með fitukúlum í.

Ég: Heldurðu að medisterinn sé úr eðalafgöngum?

Nei, sagði húsband en stundum er matur misógeðslegur.

Hvað um það við fabúleruðum svolítið um hvað væri hægt að hafa í matinn á krepputímum fyrir ótýndan pöbul sem við jú tilheyrum (þrátt fyrir að vera bæði af konungum komin, en  enginn er neitt að láta mann njóta þess hér í þessu smalasamfélagi).

Ég velti upp hugmyndum sem honum leist misvel á:

Svið með rófustöppu, kjötbollur í brúnni sósu, reyktan fisk, kálböggla, lifrarpylsu og sagógrjónagraut, sætsúpu með tvíbökum, plokkfisk og hræring.

Hann var alveg sáttur við þessa upptalningu að undanskilinni lifrarpylsu, kálbögglum og hræring.

Go ahead sagði hann á íslensku.

Ég sagði Can´t do á ensku því af þessum lista borða ég sætsúpu, mögulega svið og mögulega kjötbollur.

Hann: Af hverju varst þú þá að telja þetta upp.

Ég: Af því ég hef ekkert betra að gera. 

Svona er hjónabandið, aldrei leiðinleg stund.  Akademískar samræður okkar hjóna ættu að vera til á bók.

Ekki einu sinni í kreppunni missum við okkur í að ræða hversdagslega hluti.  Aldrei.


mbl.is Miklar hækkanir á matvöru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifi ég eða dey?

Geir Haarde virðist hafa tröllatrú á leyndarmálum, feluleikjum, og ósannsögli, því miður.

Nú er IMF búinn að fresta fyrirtöku lánabeiðninnar frá Íslandi.

Geir var að hósta þessum frábæru fréttum út úr sér á Alþingi rétt í þessu.

Ég sit reyndar og hlusta á umræðurnar á þinginu en í hvert skipti sem ráðherrar koma í pontu fæ ég óslökkvandi löngun til að lækka í sjónvarpinu.  Svo leið er ég á stöðlum ekkisvörum, undanslætti og réttlætingum.  En, ég er sterk kona, ég hlusta.

Ég garga (í hljóði reyndar) í hvert skipti sem þeir tala um bakahrunið í heiminum eins og það sé eina ástæðan fyrir því hvernig komið er fyrir landinu, vegna þess að þó alþjóðlega krísa sé staðreynd þá erum við að upplifa öllu verri hluti til viðbótar við það, við erum að horfast í augu við gjörspillt banka- og stjórnkerfi sem er séríslenskt fyrirbrigði.

Við heyrum að Bretland og jafnvel Holland beiti sér gegn lánveitingu IMF til Íslands.

Má þá ekki segja það beint út?

Má fjandinn hafi það, ekki segja sannleikann?  Við erum sjóuð þjóð eftir hamfarirnar undanfarið.  Við þolum að heyra hvernig málin standa.

Mér líður reyndar eins og sjúklingi með alvarlegan sjúkdóm sem bíður eftir niðurstöðum.

Lifi ég eða dey?

Úkraínumenn og Ungverjaland sóttu um lán hjá IMF á eftir okkur.

Báðar þjóðirnar hafa fengið lánin.

Illugi skrifar um þetta.

Þessi óvissa er farin að taka örlítið á taugarnar.


mbl.is IMF-beiðni frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleysingjaflokkur stofnaður?

Hvern fjárann er formaður stéttarfélags að gera sem stjórnarmaður í Kaupþingi?

Hvað veit ég en ég er svo skyni skroppin að finnast stéttarfélagsforysta og stjórnarseta í banka passa illa saman.

Reyndar vil ég skjóta því að hér í morgunsárið þar sem ég sit bálill við tölvuna að ég er reyndar löngu búin að missa virðingu fyrir stéttarfélögum, þau orðin jakkafatavædd fyrir löngu og ekki í neinum tengslum við það fólk sem þau eru að gæta hagsmuna fyrir.

Hluti af mér fann örlítið til með Gunnari Páli Pálssyni þegar ég horfði á hann í Kastljósi í gær.

Ekki misskilja mig, það blindaði mér ekki sýn en ég uppgötvaði þarna að jakkafatamafíustrákarnir (og stelpurnar) eru búnir að vera að leika sér með peninga bankanna eins og væru þeir Matadorpeningar og svo þegar allt er komið í óefni þá er valin önnur siðlaus leið af tveimur.

Og ég hugsaði; þessi maður verður að segja af sér.

Hann sagði: Ég mun ekki segja af mér, ég fékk persónulegan stuðning í þessu máli.

Gunnar Páll eins og allir hinir sem eru að bíða af sér þennan netta pirring almennings sér ekki alvarleikan í málinu.

Svo kom bomban.  Stjórn VR styður Gunnar Pál og gefur út um það yfirlýsingu.

Þá varð mér ljóst að krakkarnir í sandkassanum standa þétt að baki hvort öðru og gerast í leiðinni jafn siðlaus og formaðurinn þeirra.

Er þetta ekki orðið helvíti gott bara?

Ónei, Gunnar Páll vill andskotans svigrúm (Ólafur Ragnar, þú mátt hafa svigrúmskjaftæðið á samviskunni) til endurvinna traustið.

Bíddu, bíddu, hvað töpuðust margir milljarðar í Kaupþingi?

Hundruðir milljarða?

Jájá, auðvitað átt þú að fá tækifæri og andrúm til að endurvinna traustið. Tap bankans var svo lítið og löðurmannlegt.  Ákvörðunin sem þú og félagar þínir tóku um að skuldhreinsa toppana svo lítið siðlaus eða þannig.

Ég er nú hrædd um það.

Af hverju stofna bankatopparnir og allir hinir sem eru að víkja sér undan ábyrgð þessa dagana ekki nýjan stjórnmálaflokk?

Siðleysingaflokkinn?

"#$$%%&/(/()=/(/(=/=(/&/&%%&

Burt með spillingarliðið.


mbl.is Nýtur trausts stjórnar VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurjón enn í bankanum - eruð þið að grínast í mér?

Ef ég væri ekki svona vel upp alin og algjörlega laus við ofbeldishneigð þá væri þessi stund, þessi mínúta þegar ég sá þetta hér fyrir neðan mitt móment til að versla mér heykvísl.

Orðið á götunni segir:

Sigurjón er enn í bankanum

Orðið á götunni er að Sigurjón Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans, sé enn að störfum í bankanum á nýrri skrifstofu, sem hafi verið sérstaklega innréttuð fyrir hann. Hann er enn sagður leggja í gamla bankastjórabílastæðið sitt eins og ekkert hafi í skorist og spígspora um bankann eins og sá sem öllu ræður.

Einum starfsmanna bankans ofbýður þetta svo að hann getur ekki orða bundist lengur: “Svo virðist sem í raun hafi ekkert breyst í Landsbankanum þrátt fyrir fall hans. Sigurjón Árnason er ennþá allt í öllu þar. Hann virðist stýra öllu í gegnum konuna sem enginn veit hvað fær í laun. Samkvæmt fréttatilkynningu sem gefin var út þegar Sigurjón og Halldór létu af störfum var sagt að þeir myndu verða hinum nýja banka til ráðgjafar einhvern tíma.

“Staðreyndin er sú að ennþá kemur Sigurjón á sínum bíl og leggur í stæði bankastjóra. Hann fékk undir sig heila hæð yfir Reykjavíkurapóteki sem bankinn er með á leigu. Þar var allt innréttað uppá nýtt fyrir hann í hvelli og þar starfa honum til aðstoðar hátt í 10 starfsmenn!!!!!!!!!!! Hvað skyldi gerast þar???? Um þetta má ekki tala í bankanum og mikið pukur er í kringum þessa starfsemi Sigurjóns. Ég hef grun um að enginn geri sér grein fyrir hversu fyrirferðarmiklir gömlu stjórnendurnir eru enn þann dag í dag. Í það minnsta gengur Sigurjón um ganga eins og maðurinn sem öllu ræður.

Því miður hefur lítið sem ekkert breyst.”

Þið vitið hver Sigurjón er gott fólk, þessi sem var látinn fara og kennir öllum um nema sjálfum sér.

Björgvin viðskiptaráðherra og hinir í ríkisstjórninni hljóta að hafa verulega einbeittan brotavilja þegar kemur að því að fara á bak við almenning, ljúga að honum og setja upp blekkingarsjó.

Leikhús fáránleikans hvað?

Burt með spillingarliðið!
 


Djöfuls glæpajurtin

c_documents_and_settings_hp_owner_my_documents_my_pictures_22_189417

Svona á að gera þetta.  Húrra fyrir íslenska dómskerfinu.

Mannandskoti nokkur þrídældi bensíni á bílinn sinn fyrir samtals 7.508 krónur og stakk af án þess að borga.

Haldiði að það sé?

Djöfuls glæpajurtin.

Hann fékk 45 daga skilorðsbundið fangelsi helvítið áonum.

Skilaboðin eru skýr.   Glæpir borga sig ekki á kærleikseyjunni.

Á Íslandi þrífast öngvir bensínþjófar, hvað þá hangikjötlærisþjófar.

Mitt auma hjarta gladdist yfir þessu.

Tökum smákrimmana, merjum þá, berjum þá og látum þeim blæða.

Svo stórkrimmarnir geti haldið áfram að dunda sér við að taka þjóðina í görnina.

Afsakið á meðan ég rækta ákveðna "boddíkal fúnksjón" lútandi yfir klósettskálina.

Blóta ég of mikið?

Jájá, mér er bara svo misboðið fyrir hönd bensínstöðvarinnar og Sláturfélags Suðurlands.

Irrrrrrrrrrrr

BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ!


mbl.is Skilorð fyrir bensínþjófnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband