Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Skilorðsbundinn

Enn einn skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi, hefur fallið og nú gegn fjórum lögreglumönnum.  Tveimur á Grenivík og tveimur í Stykkishólmi.

Þessi rauf skilorð eins og annar ofbeldismaðurinn í dómnum sem leit dagsins ljós í gær.

Ég einsetti mér að blogga um skilorðsbundna ofbeldisdóma og mér sýnist á öllu að ég fái nóg að gera.

Ójá.


mbl.is Sex mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi gagnvart lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott og nauðsynlegt framtak.

"Veitum þeim vernd" er yfirskrift norræns átaks sem ætlað er að vekja athygli á stöðu hælisleitenda á Norðurlöndum.  Þetta er hvatning til stjórnvalda á Norðurlöndunum til að taka á móti fólki sem býr við ofbeldi og stríð.

Ég persónulega, tel að við Íslendingar getum gert öllu betur en við gerum nú.  Fram að þessu höfum við ekki verið hálfdrættingar í þessum málum, miðað við nágrannaþjóðirnar. 

Í fréttatilkynningunni stendur:

Fólk sem flýr innanlandsátök, vargöld og gróf mannréttindabrot þarfnast aðstoðar alþjóðasamfélagsins. Í dag er staðan sú að þetta fólk fær ekki þá vernd sem það sækist eftir. Stundum er vístað til þess að ofbeldið sé ekki nægjanlega grimmilegt til að teljast til ofsókna eða þá að fólki tekst ekki að sýna fram á að ofbeldið hafi beinst að þeim persónulega. Það er hlutverk flóttamannastofnunarinnar að aðstoða flóttafólk og við vonum heilshugar að það fólk sem flýr ofsóknir og vargöld fái þá vernd sem það þarfnast, og ber, á Norðurlöndum” segir Erica Feller, Aðstoðarflóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna.

Þetta tek ég heilshugar undir.  Það er kominn tími til að við hysjum upp um okkur, varðandi móttöku á fólki, sem hefur þurft að flýja skelfilegar aðstæður í heimalöndunum.

Ég vek athygli á "linknum" hérna fyrir neðan og hvet ykkur gott fólk til að fara inn á hann og skrifa undir.  Munum samtakamáttinn.

Og komasho!


mbl.is Athygli vakin á stöðu hælisleitenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er dáðst að okkur víða um heim!

Ég dáist að drykkjuþoli Íslendinga.

Ég dáðist lengi að mínu eigin drykkjuþoli eða alveg þangað til að ég fór í meðferð, þá hafði stemmarinn fyrir því alveg horfið og síðan hefur mér ekki stokkið bros í málaflokknum.Whistling

Það eru ekki bara við sjálf sem dáumst að okkur í drykkjudeildinni - ónei- Pablo Francisco gerir það líka.

Who the f..k is Pablo Francisco?

Hann ætlar allavega á Goldfinger.

Landkynning er alltaf góð sagði einhver, en..

það var áður en Flugleiðir auglýstu "Dirty weekend ferðirnar".

Hádújúlækæsland?

Ójá.

 


mbl.is Dáist að drykkjuþoli Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sleppa vel

Héraðsdómur Austurlands, dæmdi tvo menn í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.  Annar fékk 45 daga, hinn 3 mánuði.

Þeir slógu hann hnefahögg í höfuðið báðir, hentu í gólfið og veittust að honum þar og veittu honum ýmsa áverka.

Þeir munu ganga lausir.  Sá sem fékk "þyngri" refsinguna, braut reyndar skilorð en kva!  Það þarf meira til en þetta lítilræði til að dæma menn til fangelsisvistar.

Hver er forgangurinn, spyr ég enn einu sinni.

Súmí.


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iransforseti er vitlausari en honum er hollt..

og minnir mig á talsmann Saddams Husseins, í innrás Bandaríkjanna í Írak.  Þessi sem sagði að allt væri undir kontroll, þegar allt hrundi á bak við hann í mynd.  Sorglega fyndið mitt í allri eymdinni og hörmungunum.

Ahmadinejad hélt því blákalt fram að samkynhneigðir séu ekki til í Íran.  Ef ég tryði því að hann væri í afneitun, þá væri þetta í lagi, en gaurinn er svo vanur að komast upp með að segja allskonar vitleysu í fjölmiðlunum sem hann ræður yfir, að hann heldur örugglega að hinn vestræni heimur kaupi lygina úr honum.

Fyrir utan að afneita helförinni, ásamt ofannefndu, hvaða dellu ætli hann komi með næst? 

Mér kæmi ekki á óvart ef hann héldi því fram að það væri fullt jafnrétti í landinu.  

Later!

 


mbl.is Ahmadinejad segir samkynhneigð ekki þekkjast í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páfi dó og só????

Lina Pavanelli, læknir, hefur sakað Páfagarð um að brjóta gegn grundvallarstefnu sinni með því að leita ekki allra leiða til að lengja líf Jóhannesar Páls páfa, þegar hann lá banaleguna.

Páfagarður heldur því hins vegar fram að það hafi verið gert, þ.e. að halda páfa lifandi eins og hægt var.

Guð talaði og tók til sín páfann á hans efsta degi.

Kaþólikkar reisa ágreining við allan fjandann.

Páfinn dó og só???

Hann var hundraðogeitthvaðnæstumþvíára maðurinn. "In gods name people, give it a rest"

Ég meinaða!

Amen.


mbl.is Páfagarður sakaður um tvískinnungshátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Iceland Express lággjaldaflugfélag?

Ég er svo hissa.  Mér hefur fundist þeir vera með svipað verð og "flugfélagið okkar allra (hvort sem okkur líkar betur eða verr)", ögn lægra stundum, en í staðinn eru þeir með dýrustu samlokudruslur í heimi.

Hvað um það, ég er úti að fljúga greinilega.

En eins og einhver brekkan sagði; þá er vel borgandi fyrir það að vera Íslendingur.

Hm.. afsakið meðan ég tryllist úr hlátri.

Farin á flug.


mbl.is Vefur Iceland Express verðlaunaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilling!

Her er sama sem spilling, af einhverju tagi.  Hvernig eiga löglegir manndráparar að þrífast í öðru en spilltu umhverfi af hvaða tagi sem spillingin er?  Bara að fara fram gegn fólki, vopnaður og með leyfi að drepa er birtingarmynd spillingar.

Þess vegna er ég ekki hissa á þessu hneykslismáli innan bandaríska hersins. 

Hvenær ætla menn að átta sig á að hernaður skapar einungis fleiri vandamál, manna á meðal?

Mér líður eins og ég sé 100 ára þegar ég les svona.

 


mbl.is Hneykslismál skekur Bandaríkjaher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlitsþankahríð.

1 

Þegar ég var 13 ára, fannst mér ég hreint út sagt, ég vera ömurleg í útliti.  Mig dreymdi um að gera eftirfarandi breytingar:

1. Fá stórt arnarnef (mitt eigið svo lítið að það sást varla)

2. Vera ljóshærð með tægjuhár niður á bak (var svarthærð með hár niður á axlir).

3. Vera löng og hjólbeinótt (var dvergur þá og er enn, og var ekki viðstödd þegar Drottinn úthlutaði "hjólbeinum").

4. Að vera öðruvísi en ég var, svo einfalt var það.

Ég lét vinkonu mína, drátthaga mjög, teikna ofannefnda lýsingu á blað.  Ég á teikninguna ennþá.  Mikið skelfing er ég hrædd um að ef lýtalækningar hefðu verið í boði þarna á bítlaárunum væri ég öðruvísi en ég er í dag.  Ég hefði sleppt djúsglösunum á Hressó (11 kr.) í heilt ár og lagt inn á bók, til að komast í róttækt "makeover".

Svo hefur mér förlast með árunum að ég er fullkomlega sátt við sköpunarverkið.  En það er aldrei að vita, hvort maður skellir sér í augnumgerðisstrekkingu, ef edrúmennskan ásamt tilvonandi reykleysi, máir ekki út ólifnaðinn af fésinu á mér - fyrir jól.

Ég er nefnilega ekki ein af þeim sem "elska" hverja hrukku takmarkalaust. Mér nægir að vera hokin af reynslu, að innanverðu.

Ójá.

 


mbl.is Jennifer Lopez útilokar ekki lýtaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikhúsferð innblásin af Baltasar

 2

Þegar ég var stelpa var farið með mig á flest allar leiksýningar sem í boði voru og auðvitað elska ég leikhús.

Ég tók sömu aðferð á dætur mínar með ágætis árangri, þ.e. þær elska leikhúsið.

Þegar Maysa mín var 13 ára sýndi hún samt óvenju mikinn áhuga á að komast í Þjóðleikhúsið til að sjá  leikritið um rússnesku kennslukonuna hana Jelenu.  Við drifum okkur mæðgurnar, ekki mátti neita barni um leikhúsupplifunina sem myndi auðvitað stækka vitundarsvið hennar, bæta við tilfinningaflóruna og hvetja hana til enn frekari lesturs bókmennta (omg foreldrar). 

Í miðri sýningu varð mér litið á krakkann og þá sá ég að hún var með augun spennt á einn leikara á sviðinu - Baltasar.  Ég fór að fylgjast með enn betur og í hvert skipti sem Baltasar hreyfði sig, þá hreyfðist höfuð á ungling.  Í hléinu fór ég að spyrja út í verkið og María Greta Einarsdóttir leit á mig og sagði: Mamma ég er að horfa á Baltasar, ég tók ekkert eftir því hvað hinir voru að gera.

Trú mín á mannkyninu beið þarna mikinn hnekki.

Þetta kom upp í huga mér,  þegar ég las um að Baltasar væri með eftirsóttari leikstjórum.

Maðurinn er afburða leikari og afburða leikstjóri.

Verst að hann skuli ekki vera í hvorutveggja.

Og María Greta; skammastuðín, að hafa haft móður þína að ginningarfífli.

Úje!

 

 


mbl.is Baltasar eftirsóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband