Leita í fréttum mbl.is

Útlitsþankahríð.

1 

Þegar ég var 13 ára, fannst mér ég hreint út sagt, ég vera ömurleg í útliti.  Mig dreymdi um að gera eftirfarandi breytingar:

1. Fá stórt arnarnef (mitt eigið svo lítið að það sást varla)

2. Vera ljóshærð með tægjuhár niður á bak (var svarthærð með hár niður á axlir).

3. Vera löng og hjólbeinótt (var dvergur þá og er enn, og var ekki viðstödd þegar Drottinn úthlutaði "hjólbeinum").

4. Að vera öðruvísi en ég var, svo einfalt var það.

Ég lét vinkonu mína, drátthaga mjög, teikna ofannefnda lýsingu á blað.  Ég á teikninguna ennþá.  Mikið skelfing er ég hrædd um að ef lýtalækningar hefðu verið í boði þarna á bítlaárunum væri ég öðruvísi en ég er í dag.  Ég hefði sleppt djúsglösunum á Hressó (11 kr.) í heilt ár og lagt inn á bók, til að komast í róttækt "makeover".

Svo hefur mér förlast með árunum að ég er fullkomlega sátt við sköpunarverkið.  En það er aldrei að vita, hvort maður skellir sér í augnumgerðisstrekkingu, ef edrúmennskan ásamt tilvonandi reykleysi, máir ekki út ólifnaðinn af fésinu á mér - fyrir jól.

Ég er nefnilega ekki ein af þeim sem "elska" hverja hrukku takmarkalaust. Mér nægir að vera hokin af reynslu, að innanverðu.

Ójá.

 


mbl.is Jennifer Lopez útilokar ekki lýtaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afhverju langaði þig að vera hjólbeinótt ??  

Nei ætli maður sleppi ekki öllum svona aðgerðum, enda finnst mér fólk þarna í Ammeríku lýta svo einkennilega út eftir svona aðgerði.  T.d. Kenny Rogers, Dolly ofl.  Jakk

M (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 12:05

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ætli ástæðan hafi ekki verið sú að vilja vera einhverveginn allt öðru vísi en Guð skapaði mig. Híhí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 12:07

3 Smámynd: Ragnheiður

ég fann leið...einfalda og ókeypis leið...ég safna hári og strekki svo vel á taglinu. Fólk spyr að vísu sífellt oftar hvort ég sé af asískum ættum ..

Ragnheiður , 24.9.2007 kl. 12:13

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tek þennan, hlýtur að strekkja á augnumgerðinni

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 12:14

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahahahhaha þið eruð dásamlegar

Hrönn Sigurðardóttir, 24.9.2007 kl. 12:25

6 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert frábær Jenný!

Heiða Þórðar, 24.9.2007 kl. 12:59

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Mig langaði að vera ljóshærð með blá augu.... frekar langsótt

Heiða B. Heiðars, 24.9.2007 kl. 13:00

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Því langsóttara Heiða mín, því betra.  Muha

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 13:04

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú yndisleg Jenný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.9.2007 kl. 13:33

10 identicon

Það er alveg magnað hvað maður lét gera margar lýtaaðgerðir á andlitinu á sér í huganum á þessum blessuðu unglingsárum. Í dag myndi ég flokka þessar sömu aðgerðir undir skemmdarverk á andlitinu á mér.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 13:35

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Alveg ótrúlega fyndið hvað maður var ósáttur við útlitið. Þegar ég uppfyllti næstum alla staðla, há, grönn, ófeig en dökkhærð þá fann ég mér samt allt til foráttu. Ótrúlegt. Líst vel á aðferðina hennar Röggu.

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2007 kl. 13:42

12 Smámynd: Ibba Sig.

Jenný, ég er líka að spá i að strekkja á efri auglokunum svo kannski förum við bara saman og fáum hópafslátt? Ha?

En ég tek það fram að í mínu tilfelli verður þetta hvorki fegrunar- eða lýtaaðgerð enda ég fullkomin. Er bara hætt að sjá út fyrir þessu helv... 

Ibba Sig., 24.9.2007 kl. 13:47

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

testing vonn-tú-þrí

Jóna Á. Gísladóttir, 24.9.2007 kl. 14:44

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 24.9.2007 kl. 14:45

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þýðir þetta að ég sé IP tala ???

Jóna Á. Gísladóttir, 24.9.2007 kl. 14:47

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að ég hafi alltaf verið frekar sátt við sjálfa mig.  Hef haft frekar yfir litlu að kvarta gegnum tíðina.  Nú þarf ég samt að fara að far til Stebba Dan í rafnudd, svona til að minnka skvapið.  Hef gert átak í því árlega undanfarin ár.  En maður á að vera glaður með það sem maður hefur, ef líkamin er heilbrigður og vinnur rétt, þá er það gott, og munum að þakka honum fyrir að þjóna okkur svo vel.  Líkaminn er nefnilega musteri sálarinnar.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.9.2007 kl. 15:34

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Jónsí mín þú ert ip-talaog með nettan fót og frábæra kennitölu

Ibba söfnum í sætaferðir í Domus Medica.

Á unglingsárunum stelpur, þá erum við bilaðar.  Við erum enn bilaðar en bara öðruvísi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 15:39

18 Smámynd: krossgata

Úff 13.    Ég vildi líka vera öðru vísi.  Minna nef, lengri fætur, stærri augu, lengri augnhár og mjórri.  (En þá hefði ég nú runnið niður um niðurfallið í sturtu). 

Núna er mér sama um nefið og augun, hefði ekkert á móti því að vera hærri, en það skiptir engu lengur.  Hins vegar er engin hætta á að ég renni niður um niðurfallið þó ég mjókkaði aðeins.

krossgata, 24.9.2007 kl. 18:06

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahaha, ég elska ykkur í klessu, aularnir ykkar

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 18:26

20 identicon

Kem með ykkur í Dómus Medika. Það mætti alveg laga augnumgjörð strekkja andlit og setja púða í sitjandann sem er ósköp aumingjalegur,rýr og hangir. Er samt ekki frá því að sundið með hjálpartækjunum sé að skila sér í stærri rump en það tekur styttri tíma  að redda þessu í Dómus.hehehehehehe. Látum laga okkur fyrir brennivíns og tóbakssjóðinn

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.