Leita í fréttum mbl.is

Iransforseti er vitlausari en honum er hollt..

og minnir mig á talsmann Saddams Husseins, í innrás Bandaríkjanna í Írak.  Þessi sem sagði að allt væri undir kontroll, þegar allt hrundi á bak við hann í mynd.  Sorglega fyndið mitt í allri eymdinni og hörmungunum.

Ahmadinejad hélt því blákalt fram að samkynhneigðir séu ekki til í Íran.  Ef ég tryði því að hann væri í afneitun, þá væri þetta í lagi, en gaurinn er svo vanur að komast upp með að segja allskonar vitleysu í fjölmiðlunum sem hann ræður yfir, að hann heldur örugglega að hinn vestræni heimur kaupi lygina úr honum.

Fyrir utan að afneita helförinni, ásamt ofannefndu, hvaða dellu ætli hann komi með næst? 

Mér kæmi ekki á óvart ef hann héldi því fram að það væri fullt jafnrétti í landinu.  

Later!

 


mbl.is Ahmadinejad segir samkynhneigð ekki þekkjast í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ertu að halda því fram að karlar hafi ekki sama rétt og konur í Íran!?

Heiða B. Heiðars, 24.9.2007 kl. 20:26

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta er þvílíkur ruglukollur. Sá viðtal við hann áðan.

Koddu í getraun.  http://motta.blog.is/blog/motta/

Þröstur Unnar, 24.9.2007 kl. 20:28

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Má vart á milli sjá hvor er ruglaðri Ahmadinenad eða Búsh. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.9.2007 kl. 20:50

4 identicon

Hehehehehehehe. Vissi ekki hvort þetta væri brandari eða alvara fyrst. Honum er alvara og ekki bjargandi held ég. Þvílík vitleysa.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 20:54

5 identicon

Hann er því miður einn af þeim sem hægt er að kalla fífl. 

Guðrún B. (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 20:55

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Las um daginn um íranska konu sem er samkynhneigð (minnir að hún sé í Bretlandi) og getur ekki snúið aftur heim þá á hún á hættu að verða drepin......það kannski skýrir af hverju forsetinn heldur því fram að það sé enginn samkynhneigður í Íran.....hann drepur þá jafnóðum! Þessi maður er stórhættulegur og sorglegt að svona menn hafi völd!

Sunna Dóra Möller, 24.9.2007 kl. 21:03

7 identicon

http://www.youtube.com/watch?v=FAzMuHyg8Eg

Hvernig geta þeir ofsótt samkynhneigða ef þeir eru ekki til í landinu? 

Mæli með því að allir horfi á heimildarmyndina.

Geiri (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 21:12

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er nú meiri asninn.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.9.2007 kl. 21:27

9 Smámynd: Bara Steini

Hreint út sagt ótrulegt, en sýnir á sama tíma hvað erum ótrulega heppinn að vera hér á skerinu.

Bara Steini, 24.9.2007 kl. 21:55

10 Smámynd: krossgata

Af hverju er Íran sem þorpsfíflið í alþjóðaþorpinu allt í einu núna vaðandi í öllum fjölmiðlum?  Það eru fleiri þorpsfífl, sem fer ekki hátt um.  *hugsi, hugsi, hugs*

krossgata, 24.9.2007 kl. 22:16

11 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvað sem innihaldinu líður Jenný Anna þá er titillinn á þessu bloggi einn sá skemmtilegast sem ég hef lengi séð.

Gef 9,75

Árni Gunnarsson, 24.9.2007 kl. 22:36

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Árni Gunnarsson, 24.9.2007 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband