Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Dauði og djöfull

Nú er ég reið.  Ég er svo reið að mér er skapi næst að taka það út á húsgögnunum mínum.  Ég er svei mér þá, næstum því til í að endurskoða afstöðu mína til ofbeldis, þ.e. að það sé aldrei réttlætanlegt.  Ég tek fram að ég taldi upp á milljón áður en ég byrjaði að blogga.

Ég veit manna best að víðsvegar um allan heim er verið að nauðga konum og meiða þær með allskyns ofbeldi, selja þær, myrða og brjóta á þeim mannréttindi.  Sama gildir um börn.  En stundum fær maður utanundir þannig að undan svíður, en það er þegar persónuleg upplifun einnar manneskju er sögð, eins og í þessari frétt sem birtist núna um 15 ára gamla telpu, sem var höfð í fangaklefa með um 30 karlmönnum í rúman mánuð og þeir nauðguðu henni stöðugt á meðan hún var í klefanum.

Ógleði nær ekki að lýsa tilfinningu minni og reiði út í heim sem skenkir konum og börnum þessi skilyrði.  Mannréttindasamtök hvað?  Það er hægt að tala og tala en lítið breytist. 

Það er vont að vera ófær um að gera eitthvað til aðstoðar öllum þeim milljónum kvenna og barna sem stöðugt er verið að brjóta á.

En hérna er ekki nafnlaus massi til umræðu, ekki  x margar andlitslausar konur og börn, heldur ein 15 ára stúlka sem hefur hlotið sálarmein fyrir lífstíð.

Smá hugmynd.

Auðmenn, skutlið út millu eða svo og sendið stúlkunni þannig að hún geti fengið þá hjálp og þann stuðning sem hún eflaust er ekki fær um að kaupa sér sjálf.  Þá væri peningunum vel varið.

Mig hins vegar, langar til að taka þessa litlu stelpu, faðma hana og passa að enginn fái að meiða hana aftur.

Arg.

 


mbl.is 15 ára stúlka sett í fangaklefa með 20 mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggdólgar

 

Það lekur vatn af himni og þá hugsa ég gjarnan.

Ég er satt best að segja orðin dauðþreytt á bloggdólgunum, sem eru óskráðir jónar úti í bæ. Þeir liggja á blogginu og setja inn athugasemdir hjá mér og öðrum, sem innihalda allskyns persónulegt skítkast og óþverraskap. Það er eflaust freistandi fyrir hugleysingja að geta látið allt flakka án nafns.

Ég bloggaði um það fyrir stuttu að ég hafi ákveðið að loka á sóðana.  Við það hef ég staðið.  Tólf kvikindum hef ég meinað aðgöngu.  Það eru þeir grófustu.  Tveir voru svo ósvífnir að meila mér og kvarta!

Ég veit að ég skrifa oft um málefni sem kveikja heitar tilfinningar.  Ekki má gleyma að það stendur í höfundarboxi að ég sé VG og femínisti.  Það eitt virðist stundum nægt tilefni til að kveikja elda í sálarlífi dólganna og þeir fara hamförum í athugasemdakerfinu mínu.  Oft tala þeir um jákóra, þ.e. þá sem eru sammála því sem ég skrifa.  Mig grunar að þeir séu að neikvæðnijafna.Whistling

Það er hægt að loka á athugasemdir utan úr bæ og hafa bara opið fyrir skráða Moggabloggara.  Mér finnst ansans ári hart að gera það og ætla að sleppa því.  Það myndast nefnilega svo skemmtilegar umræður frá allskonar fólki við sumar færslurnar mínar og ég vil að sem flestir tjái sig, líka fólk sem er ekki að blogga.

Á tímabili hvarflaði það að mér að fara að blogga um píkur og typpi, blóm og banana, til að hafa alla góða, en iss, það er í lagi að blogga um það líka, en mikið rosalega væri það einhæft.

Niðurstaðan er því sú, að ég ætla að hafa opið áfram og ekki láta einverja asna í sálarkreppu stjórna blogginu mínu, en á strigakjaftana sem tæma hlandkoppana sína inni á minni síðu, held ég áfram að loka með mikilli gleði.Devil

Tæknin er frábær.

Annars bara góð!

Later,

Úje

 


Súluslútt - Úje

Ég er í góðu skapi, mér líður vel, ég er södd, mér er hlýtt, ég er edrú og í banvænu jólaskapi.

Ég hef setið á mér í allan dag, að blogga um fagnaðarefni dagsins, vikunnar og mánaðarins, a.m.k.

Vegna þess að ég er ekki í stuði fyrir leiðindi.

Ég nenni ekki í orðalögmál við "friðarelskandi" kverúlanta.

En þetta er minn fjölmiðll og ég hef skoðun á málinu.

Ég held, er nánast viss um að 90% kosningabærra aðila er sammála mér.

Þið vitið hvað ég meina.

Tenging við frétt og gleðiefnið upplýsist.Whistling

Ég blogga ekki út úr mér orði um málið.

Já, já,

Mikið rosalega er ég ánægð með lífið.

Live is beautiful.

Úje


mbl.is Borgarráð leggst gegn starfsemi nektarstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Piparsveinn með attitjúd - fíflafærsla

1

Þetta er fíflafærsla um dægurmál.  Þeir sem ekki treysta sér í það fara bara eitthvað annað.

Fyrir einhverjum árum horfði ég á þátt um piparsvein, í raunveruleikaþætti, og sá valdi sér konu.  Æi þið vitið, búið að tröllríða dægursjónvarpi í mörg ár.

Mér fannst þetta sorglegur þáttur, og ég dauðvorkenndi bæði piparsveini og stúlkunum.

Ferlega niðurlægjandi stöff.

Nú var ég að lesa á visi.is, að nýjasti piparsveinninn hefði sent "lokakeppendurna" heim af því hann var ekki ástfanginn af þeim.  Ég hefði getað sagt þessum manni að ástin kemur ekki fljúgandi þó maður fái tíu UMSÆKJENDUR til að velja úr.  Hélt einhver að þetta gengi svoleiðis fyrir sig með ástina? GMG, þá eru breyttir tímar.

Hvað varð um að verða lostin eldingu, vera sleginn í höfuðið, að missa málið, jafnvægisskynið og mátt í fætur fyrir neðan hné?  Hvað með hamingjutilfinninguna sem fær fulgana að syngja, blómin að ilma og sólina að verma (já í svartasta skammdeginu, kulda og trekki) þegar allt er fullkomið og maður hættir að borða og sofa um einhverra mánaða skeið?

Í þau skipti sem ég hef orðið alvöru ástfangin í lífinu hefur það gerst eins og að ofan er lýst og ekki endilega þegar það hentar og eftir pöntun.  Eiginlega alls ekki eftir pöntun ef ég á að vera alveg heiðarleg.

Ef enginn lamandi hughrif verða, ekkert 1000 w stuð í hjartastað á sér stað,  þá er það mín reynsla að málið er fyrirfram dautt.  Þrátt fyrir allan vilja í heiminum.

Annars þekki ég náunga sem tók þátt í einum svona piparsveinaþætti í Svíþjóð.  Ég var ekki hissa þegar hann var látinn fjúka, fyrstur allra.

En það er önnur saga sem verður sennilega ekki sögð.

I´m in love.

Úje. 


Engar byssur - Engin morðtól

 

Ég vil ekki að íslenska lögreglan gangi um með byssur.  Ég vil ekki að sú sama lögregla gangi um með rafbyssur heldur. 

Byssur eru stórlega ofmetnar svona yfir höfuð og þær valda hörmulegum slysum víða um heim.

Allsstaðar er að finna gikkglaða einstaklinga, líka í löggunni.

Það hlýtur að vera hægt að leysa vandmál sem upp koma með öðrum hætti en rafbyssum, sem nú stendur til að taka til brúks hjá íslensku lögreglunni.

Fríða Eyland Moggabloggari er með undirskriftalista í gangi hér.

Ég hvet fólk til að skirfa undir, gegn þessu morðtóli.


Dómaravaktin

 

"Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir nauðgun, en maðurinn var talinn hafa notfært sér að kona, sem hann hafði samræði við, gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 800 þúsund krónur í bætur."

I rest my case.


mbl.is 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jenný Anna jólast

 

Jæja þá er komið að því.  32 dagar til jóla og nú þýðir ekkert að hangsa og vafra um í eintómu kæruleysi lengur.  Það eru að koma jól.  Þau eru rétt handan við hornið.

Í dag ætla ég að viðra sjálfa mig, enda búin að vera svo lengi innanhúss, vegna veikinda, að ég óttast að ég sé komin með víðáttufælni.  Það kemur í ljós. 

En áfram að efninu. 

Ég fer og kaupi jólagardínur.  Ójá og gott ef ekki einn dúk eða tvo.  Maður getur alltaf á sig blómum bætt.

Húsband fór á taugum þegar ég tilkynnti honum að ég ætlaði í hinn alræmda Rúmfatalager.

Þangað fer hann ekki ótilneyddur, en ég þarf að sækja þangað bráðnauðsynlegan hlut.

Ég er enginn aðdáandi svona verslanamonstera sjálf, en stundum þarf að gera fleira en gott þykir.

Ég sagði bandinu að taka Pollýönnu á verslunarferðina, hann væri heppinn (og ég líka) að við værum ekki á leiðinni þangað á Þorláksmessu.  Hann róaðist.  Maðurinn er sjúklega hræddur við minn alræmda hillusvip.

Eftir að hafa gengið í gegnum miklar sorgir vegna yfirvofandi, mögulegs rjúpnaskorts, tók ég þá ákvörðun að hætta að velta mér upp úr þessu, annað hvort koma þær eða ekki og ef ekki þá nær það ekki lengra.  Við borðum þá Bamba eins og í fyrra. 

En nú er hinn formlegi jólabloggtími runninn upp, spennið beltin, nú verður allt vitlaust.

Hó,hó,hóBlush

Úje


Beiðni um hjálp

Ég gef mér að flestir hafi séð umfjöllun í fréttatíma RÚV um hræðilegt ástand í Bangladesh, þara sem 3000 manns hafa látist vegna hamfaranna sem gengu yfir Bangladesh í síðustu viku.  Alls var kallað eftir rúmlega 200 milljónum króna til aðstoðar fólki á hamfarasvæðunum.

Rauði Krossinn hefur sent þriggja milljóna króna framlag og íslensk stjórnvöld ætla að leggja fram sömu upphæð í gegnum SÞ. Mér finnst að Íslendingar geti gert betur.  Erum við ekki með ríkustu þjóðum heims?

Farsóttir eru yfirvofandi, rotnandi lík liggja um allt, vatn er mengað og hungursneyð yfirvofandi.  Látum nú gott af okkur leiða.

Hægt er að leggja fram framlög vegna hamfaranna í söfnunarsíma Rauða krossins, 907-2020

Komasho,

Sýnum samhug í verki.

 

 


Vændisblogg

 Löggan í Köben handók í nótt a.m.k. 15 vændiskonur, sem grunaðar eru um að hafa stundað vændi í borginni.  Þetta mun vera liður í baráttu dönsku lögreglunnar, gegn vændi og mansali.

Um 100 lögreglumenn munu hafa tekið þátt í aðgerðinni.

Ekki einn einasti þorskur var handtekinn.

Hvað er að Dönum?

Lesa þeir ekki athugasemdir á Moggablogginu, þar sem hver karlmaðurinn á fætur öðrum hefur kveðið upp úr með að vændi á alls ekki að vera bannað?  Því þá getur það farið neðanjarðarWhistling

Djö.. sem þeir eru fáfróðir í Köben.

Ekki nema von að Íslendingar séu að kaupa borgina eins og hún leggur sig.

Með húð og hári.

Úje.


mbl.is Lögreglan í Kaupmannahöfn með aðgerðir gegn vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af málfarslegum framförum ofurkrútts!

Jenný Unu Eriksdóttur, verður seint orða vant, eins og lesendur þessa fjölmiðils vita, þrátt  fyrir að hún verði ekki þriggja árrra fyrr en 30. desember n.k.

Í gærkvöldi var mamma hennar að ná í bækur til að lesa fyrir svefninn og Jenný sagði:

"Mamma setja bækurnar héddna" (bendir á sængina sína). 

 Mamman lufsar bókum á rúmið og greinilega ekki á réttan stað því Jenný segir ákveðin;

"Setja héddna manneskja".  Mamman í sjokki og furðu spyr:

"Hvað sagðirðu Jenný mín?"

"É saðði héddna manneskja! W00t

Jenný Una fór í Ikea í gær með mömmu sinni og pabba og þau fengu sér að borða.  Við matarborðið lítur barn upp, horfir lengi og stíft á pabba sinn og segir:

"Pabbi, þú ert líka fólk"

(Pabbinn rosalega ánægður og talsvert létt).  Svo..

"Ér fólk, mamma mín er fólk og pabbi er fólk, við gott fólk".  Ok, ok so far so good.

Þegar Jennýju er bannað eitthvað þessa dagana segir hún fullum fetum:

"Émáða alveg, amma mín segir já". 

Ég veit, ég verð að setja barni mörk.

Ég er ákveðin í að gera það... sko í janúarBlush

Góða og sofið fallega í nóttinni.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband