Leita í fréttum mbl.is

Piparsveinn með attitjúd - fíflafærsla

1

Þetta er fíflafærsla um dægurmál.  Þeir sem ekki treysta sér í það fara bara eitthvað annað.

Fyrir einhverjum árum horfði ég á þátt um piparsvein, í raunveruleikaþætti, og sá valdi sér konu.  Æi þið vitið, búið að tröllríða dægursjónvarpi í mörg ár.

Mér fannst þetta sorglegur þáttur, og ég dauðvorkenndi bæði piparsveini og stúlkunum.

Ferlega niðurlægjandi stöff.

Nú var ég að lesa á visi.is, að nýjasti piparsveinninn hefði sent "lokakeppendurna" heim af því hann var ekki ástfanginn af þeim.  Ég hefði getað sagt þessum manni að ástin kemur ekki fljúgandi þó maður fái tíu UMSÆKJENDUR til að velja úr.  Hélt einhver að þetta gengi svoleiðis fyrir sig með ástina? GMG, þá eru breyttir tímar.

Hvað varð um að verða lostin eldingu, vera sleginn í höfuðið, að missa málið, jafnvægisskynið og mátt í fætur fyrir neðan hné?  Hvað með hamingjutilfinninguna sem fær fulgana að syngja, blómin að ilma og sólina að verma (já í svartasta skammdeginu, kulda og trekki) þegar allt er fullkomið og maður hættir að borða og sofa um einhverra mánaða skeið?

Í þau skipti sem ég hef orðið alvöru ástfangin í lífinu hefur það gerst eins og að ofan er lýst og ekki endilega þegar það hentar og eftir pöntun.  Eiginlega alls ekki eftir pöntun ef ég á að vera alveg heiðarleg.

Ef enginn lamandi hughrif verða, ekkert 1000 w stuð í hjartastað á sér stað,  þá er það mín reynsla að málið er fyrirfram dautt.  Þrátt fyrir allan vilja í heiminum.

Annars þekki ég náunga sem tók þátt í einum svona piparsveinaþætti í Svíþjóð.  Ég var ekki hissa þegar hann var látinn fjúka, fyrstur allra.

En það er önnur saga sem verður sennilega ekki sögð.

I´m in love.

Úje. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elskan mín, þetta er allt fyrirfram planað. Næsti piparsveinn uppgötvar örugglega þegar helmingur þáttanna er búinn að hann er hommi. Þetta er bara handrit sem þú verður að leika eftir. 

Ásdís Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 19:58

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei, nei Ásdís, ég hef fyrir því öruggar heimildar að það er allt satt í sjónvarpi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.11.2007 kl. 20:03

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. Allt satt í sjónvarpi.. ég er líka alveg viss um það. Annars entust mér ekki 1000 w stuðin. Aðeins þetta breska sem var nú ansi hjákátlegt til að byrja með... ekki nema svona 40 w. Bara svona eins og meðal ljósapera.

Jóna Á. Gísladóttir, 22.11.2007 kl. 20:06

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér fannst þessir piparsveinaþættir asnalegir frá byrjun og fékk kjánahrollinn góða !

En ég man vel þegar ég sá mitt heittelskaða húsband fyrst....og það var alveg ótrúleg tilfinning....! Hann kom þegar ég átti síst von á og hefur verið hér síðan...ég fæ enn í hnén...!

Smá trúnó !

Sunna Dóra Möller, 22.11.2007 kl. 20:18

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er enn frekar máttlaus í hnjám en bara að morgni, um miðjan dag og á kvöldin.  Bara þá.  Úlalala

Jóna: Þú getur slappað af, 40 w duga, hefðu það verið 39 þá værir þú í slæmum málum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.11.2007 kl. 20:25

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ha? kemur ástin ekki úr kornflexpakka? Ég fer þá að borða múslí

Man óljóst eftir að hafa upplifað þetta með hnén og vöttin en held að slökkviliðið hafi mætt á staðin. Man óljóst eftir tilfinningunni samt.

Laufey Ólafsdóttir, 22.11.2007 kl. 21:22

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ já ásti kemur innanfrá, en ekki fljúgandi að utan, það er nokkuð víst. Aumingja maðurinn að vita ekki betur en þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.11.2007 kl. 21:27

8 identicon

Vinkona mín segir alltaf.

Ást er valmöguleiki, allt annað er gredda.

Hvað er þetta annað en gredda, þegar ungur pungur er umvafin fegurðardísum sem allt vilja fyrir hann gera til að komast fyrir framan myndavél ?  Auðvitað hnígur hann niður á endanum og játar,

hann er hommi, hann getur ekki meir, enda var hann einn á móti tuttugu.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 21:27

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Lenti einu sinni í svona 1000 W stuði og féll kylliflatur (á dansgólfinu), og meira að segja fylgdu nokkur alkóhól vött með, en það entist ekki.

Þröstur Unnar, 22.11.2007 kl. 21:37

10 identicon

Hver fattaði upp á þessum bachelor, bachelorette þáttum?? Stelpan mín var mest hneyksluð á því að þarna virtist ekkert eðlilegra heldur en prófa þrjár til fjórar nánast í sömu vikunni. Hún sagði bara: Oj! Hvernig geta þær verið með einhverjum sem var rétt að stíga upp úr rúminu með annarri og svo einherri annarri kvöldið áður?? Skil hana. Svo fær gæinn að velja hver fittaði best!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 21:38

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Allt satt í TV ........ örugglega

Marta B Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 21:57

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Takk Jenný fyrir falleg orð til mín á síðunni minni.

Marta B Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 21:58

13 Smámynd: Hugarfluga

Finnst samt flott hjá honum að kötta bara á dæmið í staðinn fyrir að velja bara einhverja og dömpa henni svo eftir nokkra mánuði eins og margir þessir batsjelorar gera. En er sammála .. hugmyndin að einhver geti orðið ástfanginn eftir pöntun er fráleit!

Hugarfluga, 22.11.2007 kl. 22:21

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

  Syngist í kór...  

Love is in the air everywhere I look around
love is in the air every sight and every sound
and I don't know if I'm being foolish
I don't know if I'm being wise
but it's something that I must believe in
and it's there when I look in your eyes. 

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.11.2007 kl. 22:39

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

lAnna: Ég man eimitt eftir stöðugum hjásofelsum hjá pipraranum þarna í lokin.  Sá var lausgirtur.  OMG

Hallgerður: Það hefur aldrei sakað að ljúga til að halda ástinni lifandi (þetta meina ég reyndar ekki, en það væri töff að halda því fram).

Fluga:  Ég held að það sé ekki séns í júnó að það gerist, þ.e. að maður verði ástfanginn eftir pöntun.

Jóhanna: Takk fyrir ljóðið.  Ég syng hástöfum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.11.2007 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2985878

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband