Færsluflokkur: Lífstíll
Fimmtudagur, 18. júní 2009
"In case" ég veikist eða slasist
Ég nenni ekki neinni jákvæðni í dag.
Í mínum huga er bara mánudagur og þá er gott að taka út pirringinn fyrir vikuna.
Ég var nefnilega haldin sjúklegri jákvæðni á s.l. mánudag og er enn að jafna mig.
Fyrsta mál á dagskrá er þessi glataða auglýsing frá Byr um fjárhagslega heilsu.
Eru ekki peningar búnir að gera okkur að bullandi lasinni þjóð og fjárhagslega fárveikri?
Fyrir utan að ég er búin að fá nóg af því að peningum sé troðið inn í alla skapaða hluti.
Þar er það búið. Tjékk.
Og talandi um heilsu.
Ég þarf stundum af fara til læknis.
Eins og flestir.
En það er sama hvað hrjáir mig ég fæ standard svar frá öllum læknum sem ég rekst á (ókei, ýkjur en ég má, þetta er mín síða).
Ég datt (full) á svölunum um árið þegar ég reikaði um með bjór í hendi grillandi eins og fífl og var að reyna að herma eftir lífi venjulegs fólks.
Hvað um það, ég fór á slysó, slösuð á hné (ó þú yndislega afneitun, mér láðist að útskýra hvernig ég gat mögulega hafa troðið löppinni undir gasgrillið, sem var framkvæmanlegt á 15. í bjór, vegna þess að nefndir útlimir voru orðnir mjúkir og útvatnaðir, en það er önnur saga).
Læknirinn sagði mér að hætta að reykja.
Það sprakk í mér hljóðhimnan um daginn, læknir kom heim, hann var fínn og gaf mér lyf við ígerðinni í eyranu og sagði mér í leiðinni (rarararara) að hætta að reykja.
Ég gæti dáið hérna úr fótbroti, alkahólisma (eins gott að ég er hvínandi edrú), astma, sólarexemi, gláku eða heimakomu (hvað er það?) af því að læknirinn sæi ekki í gegnum reykkófið.
Það gæti keyrt á mig ökutæki og mér yrði sagt að hætta að reykja!
Fjandinn hafi það, ég verð að hætta að reykja.
In case ég veikist eða slasist.
Djöfuls verkun, þetta endar með að ég losna frá jörðinni upp í fjandans himinhvolfið í dúndrandi háheilagleika.
Svo fullkomin sem ég er að verða.
Dæs.
Fimmtudagur, 18. júní 2009
Hættum þessu - út með blikkið
Ég reyni að leiða hjá mér andskotans orðuveitingarnar sem dynja reglulega yfir mann um áramót og á þjóðhátíðardaginn.
Og kannski oftar, hef ekki merkt við þessa atburði í mínu almanaki, ekki frekar en ég þekki þjóðhátíðardag Grænhöfðaeyja eða afmæli Betu drottningar.
Þessi gjörð og aðrar álíka tilgerðaruppákomur, snúa blóðrásinni í mér við.
Og ég verð blá í framan.
Hégómi, tildur, uppskafningsháttur og ankannalegheit er það sem mér dettur helst í hug.
Nú er lag að henda svona leiðindahefðum fyrir róða.
Við eigum ekkert nema okkur sjálf og skuldirnar.
Svona uppákomur eru í ljósi þess algjört stílbrot.
Voru líka stílbrot í gróðærinu en þá voru víkingaandskotarnir í áskrift á blikkið.
Kæri forseti,
Hættu þessari bölvaðri ekkisens vitleysu.
![]() |
Tíu sæmdir fálkaorðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Ekkert bölvað ekkisens fjallkonukjaftæði
Í allri spillingunni og ruglinu sem er að kæfa mig fæ ég smá aulahroll og skömmustutilfinningu yfir svona "fyndni" sem fréttin um timbraða gestinn vekur hjá mér.
Það er ekki við blaðamanninn að sakast, húmorinn minn er orðinn svo svartur síðan í haust að það er ekki um það talandi.
En að öðru.
Ég er ekki mikill þjóðernissinni svona yfirleitt, get ekki haldið því fram að ég hafi verið stolt af því að vera Íslendingur heldur, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki afrekað neitt sem gefur mér tilefni til að finna til mín.
Maður fæðist einfaldlega einhvers staðar og ræður engu um það.
En..
Ég er hins vegar bæði fegin og þakklát yfir að vera Íslendingur.
Það hefur hingað til falið í sér lágmarkshættu að búa á Íslandi nema auðvitað þegar náttúruöflin hafa farið hamförum.
Á morgun er sautjándinn sem var mikill hátíðisdagur þegar ég var stelpa.
Enda lýðveldið ekki búið að slíta barnsskónum.
Ég man eftir nýjum sportssokkum, hliðartösku, upphlutnum mínum, lyktina af blöðrugasi, pylsum og íspinnum, svo ég ekki tali um kandíflossið í Tívolí.
Það var frítt í strætó.
Fólk gekk um götur bæjarins hnarreist í sínu besta pússi og önnur hver kona á þjóðbúning.
Nú eru allir dagar nánast eins.
Það er búið að hátíðarjafna þannig að munurinn á hátíð og hvunndegi er lítill sem enginn.
En hvað um það.
Hafi ég verið þakklát og glöð með þjóðerni mitt, þá veit ég svei mér ekki hvort ég er það enn, nema að litlu leyti.
Ég skammast mín eiginlega ofan í tær.
Við erum með orðspor sem er ekki gott, við erum fjárglæframenn.
Svo erum við hætt að treysta hvort öðru, enda illa brennd.
Ég fer fram á að okkur verði haldið frá Fjallkonukjaftæði, sóma Íslands, sverði og skjöld.
Ekkert mont, engin samanhristingur, við getum þetta saman kjaftæði.
Við erum einfaldlega ekki ein þjóð í þessu landi.
Hluti hennar er stikkfrí. Meira að segja margir þeirra sem komu okkur á kaldan klaka með græðgi sinni og sjáftöku.
Ekki monta okkur, tala um hversu frábær við séum, dugleg, sterk og kúl.
Ég afber það ekki.
![]() |
Timbraður gestur lýsir eftir eiganda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Ég styð allan fjandann
Ég er að velta því fyrir mér svona í morgunsárið hvort það sé þroskamerki, nú eða hrakandi heilaheilsa sem gerir það að verkum að þessa dagana finnst mér ég ekki skilja eitt né neitt og vita enn minna.
Í alkafræðunum sem hafa haldið mér edrú vel á þriðja ár segir að einfalda skuli hlutina.
"Keep it simple".
Það er ekki létt verk að heimfæra þá speki inn í hvunndaginn sem blasir við okkur í þeim hörmungum sem ganga yfir landið.
En ég ætla að reyna.
--
Ég styð ríkisstjórnina enn og mun gera þangað til annað kemur í ljós.
Eins og t.a.m. ef það er ætlunin að laumupokast með Icesave-samninginn í gegnum þingið.
Þá er það adjö stuðningur og ég fer í mótmælabomsurnar.
--
Ég styð algjörlega og undantekningalaust rétt fólks til að mótmæla og sýna borgaralega óhlýðni og það án tillits til hvort ég er sammála tilefninu eða ekki.
Mér hrýs satt best að segja hugur við taktík lögreglunnar gagnvart mótmælendum á Austurvelli í gær og ég er að velta því fyrir mér hver hefur gefið fyrirskipanir um þessa valdbeitingu þeirra gagnvart almennum borgurum.
--
Ég styð líka rétt Sigmundar Davíðs til að missa sig og garga í ræðustól Alþingis, þó ég sé hrædd um að það sé ekki að gera mikið fyrir ímynd hans né Framsóknarflokksins.
(Æ,æ).
--
Ég styð málaefnalega umræðu en hafna skítkasti nema þegar ég sjálf á í hlut, um mig gilda einfaldlega aðrar reglur. (Úje).
--
Ég styð fullt af öðrum hlutum en má ekkert vera að því að sitja hér og tíunda þá.
Er svo bissí dúing noþþíng.
Later.
![]() |
Ríkið stígur fyrsta skrefið á langri ferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 13. júní 2009
Endurkoma krúttflokkana?
Við erum í djúpum óhreinindum eftir hrunið við Íslendingar, ég ætla ekki að gera lítið úr því.
En eftir að hafa fylgst með þinginu í síðustu viku og heyrt dómadagsspár formanns Framsóknarflokksins þá fer ég að brosa þegar ég les fréttir þar sem segir af bölsýnisræðum mannsins.
Þetta er úlfur, úlfur, heilkennið á sterum og amfetamíni ef þið vitið hvað ég meina.
Það er hægt að ofkveða góðar vísur svo svakalega að maður fer að taka þeim sem skemmtilegu tómstundagamni.
Ég meina það, samkvæmt SDG þá erum við svo illa stödd með þessa ríkisstjórn "sem hefur ekkert gert á allri sinni löngu starfsævi" að við eigum okkur ekki viðreisnar von.
SDG vill stjórnina frá.
Og hver á að koma í staðinn?
Jú, sko sjáið þið til, væntanlega hinir fersku flokkar SDG og Bjarna Ben.
Algjörlega síungar nýjungar eins og skáldið sagði forðum daga þegar hann auglýsti Vörumarkaðinn.
SDG er greinilega að láta sig dreyma um endurkomu krúttflokkanna sem eru báðir alsaklausir af öllu því sem úrskeiðis hefur farið hér síðast liðinn 18 ár eða svo.
Þetta finnst mér sjúklega fyndið enda ég með sóðalegan húmor.
Kæri formaður, kannski trúa flokksmenn þínir þessu rugli í þér, en ég segi satt og lýg því ekki að þrátt fyrir kreppu og almenna óró í skelfingu lostnum sálum okkar þá er held ég enginn tilbúinn til að treysta Framsókn og Sjálfstæðisflokki fyrir örlögum þjóðarinnar.
Amk. ekki enn.
En ég vona að SDG haldi áfram að tvinna saman og semja fleiri blóðugar hryllingssögur og tíunda fyrir okkur að allt sé á leið til helvítis.
Mér er farið að þykja þær svo rosalega skemmtilegar.
Eins og maður sé ekki meðvitaður um það tventíforseven hvar við erum stödd?
En einhvern veginn held ég það tími kraftaverkanna sé ekki upp runninn.
Þangað til þá ætla ég persónulega að fylgjast vel með.
Á meðan mun ég hafa kviðristukittið mér innan handar og sverðdansinn undir geislanum, svona til að taka úr mér versta aulahrollinn þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þrumar yfir þjóðinni með sinni bassaröddu.
Arg.
![]() |
Fjarar undan stjórninni" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 12. júní 2009
"Veronica decides to lie"
Það er ekki nóg með að Berlusconi sé stórklikkaður pilsaeltir allur löðrandi í hormónum, heldur er konan hans (fyrrverandi) í meira lagi undarleg!
Hugsið ykkur perraháttinn, að neita orðrómi um framhjáhald!
Ég hef reyndar aldrei heyrt neinn ganga svona langt í forherðingu.
Allir, sem ég þekki og eru með "salada on the side" játa fúslega öllum ásökunum um framhjáhald alveg um leið og einhver svo mikið sem ýjar að því.
Hvaða funn er í að hoppa um á afleiðum/hliðarvegum ef enginn er til að velta sér upp úr því?
Tökum mig t.d.
Ég hef haldið reglulega framhjá mínum fjölmörgu eiginmönnum. Aldrei nokkurn tímann hef ég lýst mig saklausa af því þegar (ef) þeir hafa spurt. Aldrei.
Ég lýg ekki að mínum löggiltu elskhugum - það er auðvitað ekkert annað en óheiðarleiki og ruddamennska.
Maður hefur sómatilfinningu þó lausgirtur sé og það með afbrigðum.
Andskotinn, ég er að fokka í ykkur, finnst svo merkilegt að það skuli teljast til tíðinda að fólk neiti framhjáhaldi.
Alveg: Veronica Lario, ástkær eiginkona mín, er það rétt að þú haldir framhjá mér, dúllurassinum þínum honum Berlusconi, elsku litla, sæta krúttinu þínu? Ha Veronika? Gússígússígússi!
Hún alveg: Neiiii - ertu ekki að fokking kidda mig Berli? Ég elska þig hormónavöndullinn minn.
Halló, það er kreppa, allt á leiðinni til andskotans og það er verið að velta sér upp úr þessu.
Mátulegt á ykkur að fá þetta brössoff frá mér fyrir að lesa þessa "frétt".
Farin að hitta elskhugann - eða væri á leiðinni i það ef ég ætti einn.
Take me to the limit one more time - lalalalalala!
![]() |
Neitar orðrómi um framhjáhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Enga Íslendinga
Ég legg óhrædd allt mitt traust á Evu Joly.
Ég treysti hreinlega engum öðrum til að sjá til þess að hér sé rétt staðið að málum varðandi rannsókn á bankahruninu.
Valtýr hverfur af vettvangi og hefur sjálfur lýst sig vanhæfan.
Það er vont að geta ekki treyst þeim sem eiga að gera upp bankahrunið.
Eftir allt sem á hefur dunið er það orðið svo að tortryggnin er alls ráðandi.
Hér á landi eru tengingar fólks líka í allar áttir, þjóðfélagið er svo lítið.
Verst eru pólitískt skipuðu embættismennirnir.
Aaaaðeins of valdamikil stétt finnst mér.
Best væri að Eva Joly hefði sína eigin starfsmenn og ráðgjafa í öllum störfum.
Íslendingar eiga ekki að koma nálægt þessu.
Þá væri mér rórra.
![]() |
Björn verður ríkissaksóknari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Búmm - búmm - búmm
Emilíana er ein af mínum uppáhalds söngkonum.
Alveg síðan ég heyrði í henni fyrst, þá barnungri.
Nú er hún stokkin inn á Billboard.
Trommandi af gleði.
Kemur mér í fantagott skap.
Til hamingju.
![]() |
Torrini trommar sig inn á Billboardlistann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Gull, krókódílar og skyldulesning Hruns
Mér er enn hálf óglatt eftir að hafa lesið um gullátið á Sigurjóni digra og félögum hans í Landsbanka.
Reyndar hafa fréttir af gróðærishegðun þessara mannandskota gert mér gramt í geði síðan þær fóru að berast fyrir nokkrum árum.
Þá var sagt að maður væri öfundsjúkur, ef aðdáunarstunurnar lýstu með fjarveru sinni og það er eins langt frá sannleikanum og hægt er að komast, amk. hvað mig varðar.
Ekki að ég sé svona frábær og nægjusöm (sem ég er og ekki orð um það meir), heldur vegna þess að ég fæ kjánahroll yfir heimskulegri hegðun, ofursnobbi og siðspillingu.
Að borða gull, að halda árshátíðir á kínamúr, fara í sjoppunna á þyrlunni, að eiga fleiriþúsund fermetra sumarhús, að kaupa sérpantaða bíla, snekkjur og einkaflugvélar, að vera með fjandans bötler, er merki um svo lága sjálfsmynd, svo mikla þörf fyrir að sýna fram á hversu öfundsverður maður er að það jaðrar við geðveiki.
Gullslegin meltingarfæri. Halló.
Eða fjólubláu og bleiku bindin sem garga á mann: Hér er ég, sjáið mig.
Það vantaði bara að þessi ofurplebbar væru með verðmiðana hangandi utan á sér.
Ómægodd átti andlislaus massinn að stynja ofan í hagkaupsklædda bringuna: Vá hvað mig langar að vera hann/hún?
Fyrirgefið en ég sá þetta fólk alltaf fyrir mér plokkandi nefhárin af mikilli alúð fyrir framan spegilinn. Eyðandi í það fleiri tímum. Svona tilgangslaust dekur.
En þrátt fyrir að allt sé hrunið í hausinn á okkur múgnum halda þessir sjálfskipuðu peningahetjur sem eru auðvitað ekkert annað en bölvaðir þrjótar, áfram að berast á.
Geta ekki einu sinni stillt sig um að glenna sig á myndum þar sem þeir mæta í veislur með hinu ríka fólkinu.
Hversu fokkings hégómlegur er hægt að vera?
Og heimskur?
Hermes er með eigin krókódílabúgarð í Ástralíu. Það þarf stundum marga krókódíla í hvert veski júsí.
"Kókófílarnir" í Ástralíu eru svo sannarlega fucked alveg eins og við Íslendingar.
Hinir íslensku bankaræningjar láta sig tæpast vanta í vöruhús Hermes eða hvað?
Úff.
Mig verkjar undan þessu.
Málið er að ég er að lesa um Hrunið. Nýútkomna bók Guðna Th. Jóhannessonar.
Það er erfitt að ná utan um alla þessa klikkuðu atburðarrás.
En þessi bók er skyldulesning fyrir alla sem vilja fá innsýn í hvernig kaupin gerðust á Eyrinni.
Blogga nánar um bókina þegar ég er búin með hana.
Later.
![]() |
Tískuhús ræktar eigin krókódíla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Gefa hvern andskotann?
Ég hef ekki séð einn einasta mann blogga um fréttina á RÚV í gærkvöldi, þessa um óréttmæta hækkun olíufélaganna á bensíni um daginn.
Ég alla vega henti mér í vegg vegna hennar OG veinaði mig hása.
Í ljós kom að þeir höfðu ekki leyfi til að hækka verðið á þeim sendingum sem þegar voru komnar til landsins.
Og þeir lækkuðu allir sem einn, alveg eins og þær hækkuðu líka allir í kór. Merkilegt hvað fyrirtæki í "samkeppni" geta verið samstíga.
En það er ekki þetta sem ég hjó eftir, heldur það sem N1 ætlar að gera við umframpeningana sem þeir innheimtu ranglega af kúnnunum.
Níumilljónir króna fengu þeir umfram það sem þeim bar og nú ætla þeir að "gefa" þá upphæð til góðgerðarmála á meðan Skeljungur t.d. borgar fólki til baka.
Gefa það sem þeir aldrei áttu?
Ekki misskilja mig, hef ekki á móti því að fólk og fyrirtæki gefi til góðgerðarmála, en finnst smekklegra að þá sé gefið af eigin fé.
Þeim væri nær að biðjast afsökunar og greiða til baka þessa peninga sem þeir höfðu af fólki.
Hvaða rugl er þetta?
Mikið djöfull er ég orðin leið á olíufélögum og þeirra undarlegu viðskiptaháttum.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 2987977
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr