Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 28. apríl 2007
SVONA FÓR UM SJÓFERÐ ÞÁ
Í dag ætlaði ég í heimsókn í konsningamiðstöð VG og ég ætlaði að kjósa. Hvorugt gerði ég en það er út af því að ég þekki of mikið af skemmtilegu fólki sem er alltaf heimsækjandi mig í tíma og ótíma (). Ég var að passa Jenny í nótt og við fórum út á róló í morgun og lékum okkur í vorinu og Jenny sagði mér að hún væri alltaf glöð og að maður ætti alltaf að skiptast á. Ég þekki marga sem mættu taka sér félagsþroska þessa tveggja ára barns sér til fyrirmyndar. Hún knúsaði mig líka í morgun þegar hún vaknaði af því henni finnst svo gaman að það skuli alltaf renna upp nýr dagur og þegar ég þakkaði henni fyrir sagði hún mér að hún væri "umsyggjusöm". Barnið stefnir fullum fetum í að verða gangandi stefnuskrá vinstri-grænna.
Nú að gestunum. Hér var fólk í stríðum straumum í dag. Sænski tengdasonur minn hann Erik pabbi Jenny að ná í hana. Helga dóttir mín og Jökull barnabarn, þrjár vinkonur sem komu allar í einu og fylltu út í eldhúsið með fyrirferðarmikilli nærveru sinni (ég meina andlegri fyrirferð, er ekki að segja að þær séu feitar) og gerðu það að verkum að ég fór ekki lönd né strönd. Rosalega pírí að vera svona vinsæll. Þær eru hins vegar líka örlítið skemmtilegar. En bara örlítið.
Það sem gerði þennan dag þolanlegan var að gestirnir voru Vinstri-grænir og Samfylkingarfólk. Þannig að það myndaðist smá kosningastemming í eldhúsinu en við greiddum ekki atkvæði.
Enginn úr Framsókn kom í heimsókn frekar en alla aðra daga og ekki neinir Sjálfstæðismenn heldur. Mamma og pabbi voru í Kolaportinu.
Hef ekki kynnst neinum í Ómarsflokki og ekki heldur neinum nema elskunni henni Ásthildi úr Frjálslynda og hún komst því miður ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 28. apríl 2007
VG PLÚS NÍU
Það er svo sannarlega byr í seglum vinstri manna þessa dagana. Samkvæmt nýrri könnun sem Capacaent gerði fyrir Mbl. og Ríkisútvarpið er VG og SF með jafnmikið fylgi eða 21,2%. Þetta segir þó ekki alla söguna. Ef þetta væri staðan þegar talið væri upp úr kjörkössum bættu VG við sig níu mönnum en SF tapaði sex. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 31,9% og Framsókn 10%.
Ég er að láta mig dreyma um að bæði VG og SF bæti nú vel við sig. Væri ekki draumur ef þessir tveir flokkar næðu að mynda ríkisstjórn bara sísvona án annara bragðefna.
Nú er að moða úr frjóum jarðvegi við VG þessa daga sem eftir eru fram að kosningum. Ég minni á Sprotatorgið sem veriður í kosningamiðstöðinni við Grensásveg í dag milli 13-17.
Framsókn er að tapa stórt en þeir fengu sex þingmenn en skv. þessu þá myndu þeir tapa jafnmörgum.
Úje hvað þetta er að verða spennandi.
![]() |
Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Laugardagur, 28. apríl 2007
HVERT ER LJÓÐSKÁLDIÐ?
Vegna fjölda áskorana (hm) hef ég verið beðin um að koma með aðra "hver er mannveran?" getraun. Í þetta skiptið er ekki verið að fíflast. Þessi kona hefur gefið út ljóð á bók. Hún elskar kántrítónlist, bloggar hér á moggabloggi af og til og er brjáluð í ís. Hún er sem sagt skáld, tónlistarunnandi, móðir og fædd í meyjarmerkinu. Þeir sem blogga hér hljóta að kannast við gripinn. Verðlaunin eru ferð í Sundhöll Reykjavíkur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Föstudagur, 27. apríl 2007
AF REYK, SVEFNI OG ATKVÆÐAGREIÐSLU
Þessi er ein af mínum uppáhalds kerlingum. Kannski af því ég er enn reykjandi. Jabb ætlaði að hætta 26. apríl á afmælisdegi húsbandsins en við gleymdum því bæði. Nú verðum við að hætta sama dag að ári. Hehe. Það er samt merkilegur fjári að kona skuli geta gleymt því að hún ætli að hætta að reykja. Eins gott að ég gleymdi ekki að fara í meðferðina í fyrra. Þá hefði ég nefnilega ekki fengið tækifæri til að drepa í ég væri dauð.
Ég bloggaði í dag um að ég hafi sofið yfir mig. Til klukkan 13,00 hvoki meira né minna. Dagurinn hefur verið dálítið í merki kerlingarinnar á myndinni. Smá öfugsnúinn og pirringslegur. Þegar ég vaknaði þarna seint og síðarmeir rifaði rétt svo í augun á mér og það var hægt að lesa aldurinn upp á dag í árhringjunum sem höfðu myndast undir augunum. Ég átti erfitt með að hreyfa mig og gera það sem ég þurfti að gera. Ég er með Jenny Unu Errrriksdótturrr og hana Ástrósu skádóttur mína til gistingar en það er hún Ástrós sem hendist með mér um allt blogg á myndinni minni. Núna í kvöldkyrrðinni þegar miðnættið nálgast er ég að vakna. ´
Ég fer og kýs utankjörstaðar á morgun. Svo ætla ég á kosningaskrifstofu VG við Grensásveg líka en þar er skemmtileg uppákoma sem kallast Sprotatorg á milli 1-5. Fullt af skemmtilegu fólki, vöfflur, músik, ljóð og fleira dúndur. Nú á að gíra sig upp fyrir kosningar. Ég tek Jenny með mér en hún fær ekki barmmerki og verður ekki heilaþvegin.
Síjúgæs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 27. apríl 2007
HELGI SELJAN!! SKAMMASTÍN!
Alveg finnst mér forkastanlegt þegar fréttamenn eru að ganga svona á fólk. Eins og Helgi Seljan í Kastljósinu bæði í dag og svo aftur í dag þegar hann var að reka fréttanefið á sér í einkamál hennar Jónínu Bjartmarz. Það er nottla einkamál konunnar að tengdadóttir hennar fékk íslenskan ríkisborgararétt vegna sérstakra aðstæðna eftir 15 mánaða dvöl í landinu á takmörkuðu námsdvarlarleyfi. Meiri heimtufrekjan í fréttamanninum. Enda var Jónínu misboðið og það all herfilega. Konan er bara venjulegur ráðherra. Heldur fólk að hún ráði einhverju? Nebb og hvernig eiga vinnufélagar hennar að vita að hún eigi eiginmann, hvað þá heldur börn og tengdadóttur. Heldur einhver að það takist með fólki einhver kynni þarna niðri í Alþingi? Ó nei ekki frekar en á Kárahnjúkum en þar þekkist nottla enginn. Iss. Þetta er nú meiri fréttamennskan.
Takk fyrir Kastljós og sérstaklega þakka ég þér Helgi Seljan fyrir að láta ekki þagga niður í þér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Föstudagur, 27. apríl 2007
FIMM VILLURÁFANDI SÁLIR EI MEIR
Eins og ég blogaði um fyrr í dag þá biðu mín fimm símtöl þegar ég staulaðist á fætur. Ég hringdi samviskusamlega í hringjendur og allir þessir vinir mínir ætluðu að segja sig úr þjóðkirkjunni með sama. Mér fannst það ekki leiðinlegt. Síminn hefur ekki stoppað og öllum er heitt í hamsi og ég tek það fram að mín fjölskylda ásamt vinum eru ekki upp til hópa trúlausir efahyggjumenn. Venjulegt fólk með snefil af víðsýni er bara nóg boðið. Að segja sig úr þjóðkirkjunni er einfaldlega gjörningur sem við getum framið til að sýna að okkur hugnast ekki viðhorf kirkjunnar manna þessa dagana.
Nóg sagt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 27. apríl 2007
HÚN GUÐ SAGÐI MÉR AÐ TJILLA
Ég svaf yfir mig. Ekkert lítið bara til klukkan 1 í dag. Ég vaknaði í fári. Guðmíngóð ég er orðin of sein. Guð sem er lesbísk, gagnkynhneigð, bisexuell, húmanisti, kærleiksrík og alltumvejandi orka og elskar konur og karla jafn mikið (líka Jón Val) hvíslaði í eyra mér huggunarorðum og sagði mér að hún hefði veitt mér þennan svefn því ég hafi þurft að hvíla mig á blogginu. Hún sagði mér líka að ég ætti ekki að vera reið út í fólk sem ætti erfitt með að skilgreina kærleikann því það væri atvinnuvandamál mannkynsins og yrði þannig enn um hríð eða þar til við vöknuðum hvert og eitt til vitundar um að við værum öll frá sömu uppsprettuni, það er uppsprettu hinnar miklu orku skilyrðislauss kærleika. Guð gef mér þolinmæði STRAX! Hm..ég dró sem sagt þá ályktun að ég þyrfti að bíða soldið lengi.
Ég missti af:
Læknisheimsókn á sykusýkis en blóðsykurinn er að falla ískyggilega oft og mikið og ég þarf sennilega að auka við insúlínið eða sprauta mig oftar á dag.
Mínum lífnauðsynlega bloggvinahring sem heldur mér gangandi.
Fréttunum í hádeginu
Þeim fimm sem höfðu hringt í mig í morgun
Minni hefðbundu bænastund þar sem ég bið fyrir stjórnarflokkunum (segi sonna)
Morgunmat, millisnarli, hádegismat og hinu millisnarlinu
AA-fundi
Yndislegri samverustund með ryksugunni og skúringartuskunni aðalsmerki hinnar frómu húsmóður
Ég misti af einhverju smotteríi til viðbótar en eins og sjá má af lista þá er ég ófrávíkjanlega merkileg persóna. Vó hvað ég er heppin að ég þurfti ekki að þvo gluggana í dag (jeræt).
Ég er viss um að með mikilli elju tekst mér að vinna þetta allt upp.. Ég fékk í staðinn deit með Guði og það er ekki á hverjum degi. Þegar komið var á hana fararsnið þarna í morgun þá spurði ég hvort Jónína Bjartmarz væri nokkuð að "plataokkur" hina krakkana þarna í tengdamóðurlögheimilisríkisborgaramálinu og Guð svaraði mér af sinni djúpu visku, dró augað í púng
og sagði: MUHAHAHAHAHAHAHAHA!
Súmígæs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 27. apríl 2007
AÐHYGLASÍNUM.IS
Þetta hefur verið töff dagur. Mikið af erfiðum og leiðinlegum fréttum eins og sjá má á bloggsíðunni minni. Kirkjuþingið sem hljópst undan merkjum varðandi samkynhneigða borgara þessa lands og hefur af þeim sjálfsögð mannréttindi.
Lýsingarnar á aðförum mannsins sem dæmdur var í dag í Hæstarétti fyrir misþyrmingar á tveimur konum og er í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegra árása bæði á þriðju sambýliskonunni.
Svo komu nýjustu hugglegheitin frá Framsókn (ekki að ég gráti það þótt þeir hverfi af kortinu). Að tengdadóttur Jónínu Bjartmarz hafi fengið ríkisborgararétt eftir 15 mánaða dvöl í landinu þrátt fyrir tímabundið dvalarleyfi. Þetta mun ekki eiga sér fordæmi töldu Kastljóssmenn. Ég ætla ekki að væna neinn um að fara með ósannindi en ég á erfitt með að trúa því að þingheimur sé svo illa tengdur að nefndarmenn sem fjölluðu um málið hafi ekki vitað um tengsl Jónínu og umsækjandans. Vó, vó því ef svo er þá eru viðkomandi í mergjuðum fílabeinsturni og með verulega samskiptaörðugleika. Halló!! Eru þingmenn og konur ekki 63 að tölu? Það er svo sannarlega kominn tími á að leysa Framsókn úr viðjum plussófanna þar sem þeir geta ekki lengur gúffað í sig og sína eftir hliðarleiðum.
Hafi ég haft óbeit á þessum flokki í sauðalitunum áður þá tók steininn úr þegar ég sá auglýsinguna frá þeim þar sem þeir hafa látið teikna afskræmda mynd af Steingrími J. Sigfússyni svo þeir í andaslitrunum geti nú mögulega náð til sín einhverju fylgi í komandi kosningum. Aðferðarfræðin er hreint dásamlega vitlaus. Þekkja þeir ekkert venjulegt fólk? Kona spyr sig?
![]() |
Nefndarmenn hafi tekið fram að þeim hafi verið ókunnugt um tengsl Jónínu og umsækjandans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 26. apríl 2007
SVAR Á MIÐNÆTTI - HVER ER MAÐURINN??
Sko! Vegna leiðinlegs dags ætla ég nú að bregða á leik og herma eftir vinkonu minni henni Dúu www.duasembloggarekki.blog.is en hún var með skemmtilega getraun í gangi þar sem við áttum að þekkja bloggvinkonu okkar á vægast sagt hroðalegri mynd. Nú spyr ég hver er maðurinn á myndinni? Myndin er frekar slæm en flestir munu sjálfsagt átta sig ef þeir ná að hugleiða á manninn (strákar ekki glápa á konuna hún heitir Vera og er ritari mannsins). Þessi maður er nokkuð nokkuð þekktur af störfum sínum. Meira fáið þið ekki að vita ljósin mín. Ég upplýsi hver maðurinn er á miðnætti. Muhahahahaha
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fimmtudagur, 26. apríl 2007
"THREE FOR THE PRICE OF ONE"
Nú í dag dæmdi Hæstaréttur karlmann í 5 ára fangelsi fyrir líkamsárásir á fyrrverandi sambýliskonu sína og húsbrot. Hann var líka sakfelldur fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi unnustu sinni. Sami maður hefur frá því í desember setið í gæsluvarðhaldi grunaður um stórfellt kynferðisbrot gagnvart þriðju konunni sem einnig var sambýliskona hans.
Ég hef áður sagt að ég er yfirleitt ekki mjög refsiglöð manneskja. Hér er hins vegar einbeittur brotavilji og mikil grimmd á ferðinni. Þrjár konur amk., eru fórnarlömb þessa manns. Ég myndi sætta mig við fimm ára fangelsi. Fimm ár fyrir hverja konu.
![]() |
Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir líkamsárásir á fyrrum sambýliskonur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.8.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 2988347
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr