Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Skemmtikrafturinn Össur Skarphéðinsson

Ég hef gaman að Össuri Skarphéðinssyni og ég held að hann yrði flottur skemmtikraftur á árshátíðum og ættarmótum.

Ég held jafnframt að það sé ekki séns að Össur geti þagað yfir leyndarmálum, hef reyndar lítið fyrir mér í því annað en tilfinninguna og svo auðvitað ótímabær upphlaup hans í gegnum tíðina.

Svo er hann yfirlýsingaglaður með afbrigðum og það er meðal annars þess vegna sem ég held að Össur færi vel á sviði.

Nú, iðnaðarráðherrann fór í heilarit á dögunum og var með kröftugar alphabylgjur.

Nú vann ég lengi vel á taugalífeðlisfræðideild á Lsp og þar kom fólk sem átti það til að trúa að úr heilariti mætti lesa hugsanir.

Hjá Össuri er þessi ótti tæpast fyrir hendi en lesandi ritsins sá einhver rof eða frávik í alphanu hjá karli og Össur telur sér skylt að láta vita að hann hafi greinst með kosningaskjálfta.

Ég held að þetta blogg um niðurstöðu heilaritsins sé ekki eitt af frumhlaupum iðnaðarráðherrans bjartsýna heldur er hann að springa úr óþreyju að koma skoðun sinni á framfæri.

Hann vill kosningar.  Gott ef hann er ekki að boða til þeirra með færslunni sinni.

Varðandi heilaritið þá ímynda ég mér að það hafi verið innan eðlilegra marka.

Trú mín á Össuri hins vegar verður hins vegar ekki lýst með þeim orðum.

Nú er að bíða næstu færslu?

Í hvaða rannsókn fer Össur næst?

Einhver?

Bylgjufærslan


Hvað segirðu gott?

Tvisvar sinnum í dag hef ég verið spurð að því hvað ég segi gott.

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst alltaf að ég þurfi að svara þessu sannleikanum samkvæmt, jafnvel þó ég viti að þetta er bara kurteisiskveðja.

Gæti allt eins verið, varstu að týna skeljar?  Eða vaknaðirðu í morgun?

Oftast bít ég í tunguna á mér, brosi hressilega og segi allt fínt en þú?

En í dag þá nennti ég því ekki.

Ég svarði eins og satt var að ég hefði það skítt og væri búin að vera í bullandi tilvistarkreppu frá áramótum nokkurn veginn.

Annar spyrjandi sagði, svona eins og sumir þáttastjórnendur hjá RÚV sem kunna ekki að hlusta, Ji, en æðislegt.

Ég brosti til baka og sagði "sjáumst" en hugsaði "megirðu detta á hausinn þú mannlega frystikista".

Hin manneskjan varð alveg miður sín, spurði hvað væri að og hvort hún gæti aðstoðað mig í þessum þrengingum.

Ég sagði nei takk, ég nenni ekki að tala um hvað er að, af því allt er að, nema það sem er fínt sko, sem er ekki margt en er samt þó nokkuð, en þetta sökkar, mér líður illa. kapíss?

Sko málið er að ég nenni ekkert að vera að blogga um hvernig mér líður upp úr og niður úr.

En stundum er maður að springa.

Og þið sem hittið mig og eruð tímabundin.

Plís ekki spyrja mig hvað ég segi gott.

Því ég segi andskotann ekkert gott og gæti viljað deila því með ykkur í smáatriðum.

Amk. í dag.

Annars fín bara.


Laugardagskvöld með Agli Helga

Ég hef of margar skoðanir.  Ég veit það og ég vinn að því í pjúra yfirvinnu að fækka þeim.

Sem er lygi, ég sé ekkert að því að hafa skoðanir á öllum sköpuðum hlutum.  Það heldur mér vakandi, spriklandi og á lífi.

Varðandi Björn Bjarnason þá hef ég skoðun á honum og mér finnst hann ekki mikill dúlludúskur.  Hvað sem því líður þá held ég að það skipti engu þó hann fari - inn á sviðið kemur einhver uppalningur úr íhaldsskólanum, kannski í flottari jakkafötum með flottari framkomu en sömu  glötuðu skoðanirnar.

Ég þjáist reyndar af skoðunum mínum þessa dagana og þess vegna langaði mig að henda mér í hlutleysis- og skoðanaleysisvegginn þegar ég sá að djöfulsins Júróvisjón er að byrja aftur.

Júróvisjón er eins og súpa sem hefur verið elduð úr matarleyfum síðasta mánaðar og soðin svo lengi að bragðið er eins og gerjuð borðtuska sem legið hefur í sólbaði í gluggakistu, eftir að hafa verið notuð til að þurrka upp mjólk og smjör af morgunverðarborðinu.

Júróvisjón er hámark hégóma og metnaðarleysis.

Ég hreinlega hata Júróvisjón.  Ég er til í að stofna grasrótarsamtök um að koma þessu lágmenningarógeði út úr heiminum.

Ókei ég skal viðurkenna að ég ýki tilfinningar mínar til þessa fyrirbrigðis en í alvöru.

Þetta kostar hafsjó af peningum.

Má ekki nota þá í eitthvað annað?

Eins og þátt um stjórnmál og fleira. 

Hvað með "Laugardagskvöld með Agli Helga"?

Nú eða "Kastljósi í sparifötunum"?

Ég er ekki að grínast.  Við þurfum núna allar þær upplýsingar um þjóðmál sem völ er á.

Það hefur sýnt sig að það koma í ljós spillingarmál á hverjum degi.

Það er borin von að hægt sé að fylgja þessu eftir nema með lengra Kastljósi og lengra Silfri.

Ég er að tala í alvöru.

Arg..

Ég hata Júróvisjón

 


mbl.is Fullyrt að Björn hætti eftir landsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggvi - éttu innmat - og áríðandi skilaboð

Eftir að allt hrundi til grunna í haust og við fórum á höfuðið og stöndum þar enn, líður mér eins og mér sé haldið ofan í vatni.  Einstaka sinnum fæ ég að koma upp og anda og er rétt að byrja að fylla lungun af lofti þegar ég er keyrð á bólakaf aftur.

Það er gott að græðgis- og spillingarverkin séu að koma upp á yfirborðið - auðvitað - en hvern hefði órað fyrir hversu mikill andskotans óþverri þreifst (og þrífst enn) á bak við hin glæstu Pótemkintjöld gróðærisfurstanna?

Ekki mér og var ég þó aldrei með glýju í augum yfir "el þotots del jeppos und þyrlupallos and gleymum helvítis heiminn í einum bitavæðingunni". 

Í kvöld urðu mér á þau leiðu mistök að detta út yfir Stöðvar 2 fréttunum og vakna við að hafa sofið af mér fréttatímann MINN á RÚV og Kastljósið.

Það er nú ekki mikill skaði skeður svo sem þar sem ég horfi á hvorutveggja á netinu en gat verið að einn friggings fréttatími gæti liðið án þess að upp kæmist um enn eina lygina, siðleysið og klíkuskapinn í bankamálunum?  Nei, nei, nei.

Er það nema von að almenningur treysti engu lengur?

Er skrýtið að við treystum ekki stjórnvöldum sem ítrekað hafa lofað nýjum tímum, nýju fólki og nýjum vinnubrögðum?  Hvar er siðbótin?  Svara.

Það eru sömu jakkaföt í bönkunum og þeir ljúga sig bláa í framan.  Jakkarnir hafa í besta falli skipt um penna og bindi og víxlað skrifborðum.  Aular.

Hvar er bankamálaráðherrann?  Mun hann segja af sér vegna stórkostlegs klúðurs og handabakavinnu í eftirleik hrunsins?  Nei.

Mun bankastjóri Landsbankans vera látinn fara og allir hinir úr innsta hring gamla bankans?  Nei.

Mun Árni Matt segja af sér vegna brots á stjórnsýslulögum þegar hann réð Þorstein Davíðsson minna hæfan er þrjá aðra umsækjendur?  Neibb.

Mun einhver segja af sér vegna stærsta klúðurs Íslandssögunnar sem mun færa okkur aftur um áratug og skerða lífskjör okkar allra? Nei, nei, nei.

Mun einhver axla alvöru ábyrgð?

Ég ætla ekki einu sinni að svara þessu.

Tryggvi - éttu innmat og þið sem látið þetta viðgangast....

Stundum er best að þegja.

Jájá.

ÁRÍÐANDI SKILABOÐ FRÁ LÁRU HÖNNU

FRÉTTIN


mbl.is Tryggvi hafði bein afskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"The "en" word"

222 

Best að skella inn einni EN-færslu, langt síðan síðast sjáið þið til.

Betra að skrifa um það heldur en að einhenda sér í uppvaskið sem bíður mín, en ég var með forsetahjónin af Búrúndí í heimsókn.

Ókei, þau eru frá Köben.

Það er þetta með orðið "en".  Ég blogga reglulega um fullyrðingarnar hjá fólki (stundum mér sjálfri líka) sem setur svo "en" fyrir aftan og segir hið gagnstæða.

Dæmi:

Þú ert alls ekkert feit EN þú mátt missa nokkur kíló.

Þú ert ekki þreytuleg, nei, nei EN þú ættir að hvíla þig betur.

Ég er ekki rasisti EN ég vill ekki sóansó frá sóandsó inn í landið.

Þú ert birtingarmynd fullkomnunar í þessum kjól EN þú ættir að fara í hinn kjólinn.  Hann klæðir þig betur.

Kapíss? No?

Ég var nefnilega að hugsa um yfirlýsingarnar frá ríkisstjórninni, fjölmargar sem hljóma á einn máta en þýða hið gagnstæða.

Kannist þið við þessar?

Það verður að fá allt upp á borðið, velta við hverjum steini EN það á alls ekki að leita að sökudólgum (hvað þá persónugera vandann),  heldur skrifa leynilegar skýrslur og ráða ráðum í reykfylltum bakherbergjum.

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra hefur brotið stjórnsýslulög sem er alvarlegt mál EN ég treysti honum til allra góðra verka.

Við munum aldrei láta kúga okkur til að greiða Icesave peningana EN við ætlum ekki að fara í mál við Bretana, bara borga og brosa.

Málið er allt að verða vitlaust í kringum mann.  Breytingarnar snöggar, umskiptin svo stór og sífellt bætast fleiri hneyksli í sarpinn.

Ég er hætt að geta meðtekið allt sem ég les, hvað þá orðað tilfinningar mínar gagnvart því.

Ég skil svo vel af hverju "helvítis fokking fokk" hefur slegið í gegn í samfélaginu eftir Áramótaskaupið.

Fólk er í vandræðum með að lýsa líðan sinni, sárindum, reiði og hneykslan.

Þess vegna grípur það til HFF þrátt fyrir að það sé ekki beinlínis fagurt orðasalat.

Nú hefur Eimreiðin birt skipurit "Nýja" Glitnis sem er auðvitað sami grautur í sömu skál eins og hjá Landsbanka sem birt er þar í gær.

Kíkið á skipuritið og sannfærist um að það er ekki verið að breyta neinu frá því sem var.  A.m.k. ekki neinu sem orð er á gerandi.

Það er einna helst bankastjóri Kaupþings sem virðist vera ærlegur í því að taka bankann inn í nýja tíma.

Enda fékk hann verðlaun frá aðgerðarsinnum í morgun, hið s.k. Ljós í myrkrinu.

Ég er farin í uppþvott EN ætla ekki að þvo upp fyrr en á mánudaginn.

En hvað?


mbl.is Eiríkur Tómasson: Blekktu eigendur bankanna starfsfólk sitt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver hefur sinn djöful..

Hver hefur sinn djöful að draga.

Íslenska ríkisstjórnin situr uppi með sjálfa sig.

Íslenskir mótmælendur sitja uppi með jólasveininn og friðarhöfðingjann Ástþór Magnússon.

Sem reyndar lætur ófriðlega.

Hver sagði að lífið væri auðvelt?


mbl.is Lá við að fundurinn leystist upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..og þeir halda áfram að myrða

Það er sagt að allt í lífinu fari í hringi.

Ég er farin að hallast að því að það sé satt.

Gyðingaofsóknirnar og skipulögð útrýming á þjóðinni í seinni heimsstyrjöld er nú endurtekin af þeim sjálfum með nútímaformerkjum á Gasa.

Nýjasta afrekið, skv. Sameinuðu Þjóðunum er að þeir hafi neytt 110 Palestínumenn inn í hús í Gasaborg og sprengt það síðan í loft upp sólarhring seinna.  Þrjátíu manns létu þar lífið.

Þegar útrýmingin á Gyðingunum áttu sér stað horfði heimurinn aðgerðarlaus á.

Þegar heimsstyrjöldinni lauk afsökuðu sig allir með því að hafa ekkert vitað, sem er ekki satt, sagan hefur fyrir löngu leitt það í ljós.

Aftur situr heimurinn hjá.  Það er eitthvað verið að vinna að drögum og ályktunum en enginn sér ástæðu til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael.

Enginn vill móðga guðs útvöldu þjóð.

Og þeir vita þetta Ísraelarnir.  Þeir eru búnir að spila á vonda samvisku þjóða heims og þeir vita sem er að þeir komast upp með þetta, eins og vanalega.

Fyrirgefið ríkisstjórnir og þá sérstaklega sú sem hér situr;

Hvað eruð þið að hugsa, hvernig getið þið setið hjá vitandi af skelfilegum morðunum á Gasa.

Á meðan vinna ísralskir hermenn í akkorði við að drepa saklausa borgara.

Hvað er að, fær fólk stein í hjartastað sem kemst til valda?


mbl.is Sprengdu hús fullt af fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrýming á þjóð

Utanríkisráðherrar vestrænna ríkja og arabalanda hafa náð samkomulagi um drög að ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem þess er krafist að komið verði tafarlaust á vopnahléi á Gaza-svæðinu.

Duglegir.  Búnir að berja saman drög.

Hvað ætli mörg börn verði myrt á meðan þeir komast frá drögum yfir lokaplaggið?

En annars var Brynja vinkona mín að senda mér þessa mynd.

Hún segir allt sem segja þarf.

Útrýming Palestínu

(Smellið til að stækka).

Hér má sjá útrýmingu á Palestínu og það er ekki hægt að ásaka Ísraela um kurteisi í landtökunni eða hvað?

Ég veit ekki með ykkur en ég er með kökkinn í hálsinum yfir morðunum á Gaza.

Einkum og sér í lagi nýjustu fréttir um börnin fjögur sem hímdu yfir líkum mæðra sinna og höfðu gert í fjóra sólarhringa.

Hvers lags djöfulsins barbarí er þessi heimur?

Og íslenskum stjórnvöldum finnst ekki ástæða til að slíta stjórnmálasambandi við barnamorðingjana.

Skömm er að.

P.s. Ég tek eiginlega aldrei þátt í söfnunarátökum á síðunni minni.  Það væri að æra óstöðugan ef ég ætlaði að gera það.

En núna geri ég undantekningu og geri það með gleði.

Hvet alla að greiða inn á þennan neyðarreikning til kaupa á lyfjum og öðrum vörum til sjúkrahúsa í Palestínu.

Bankanr.: 0542-26-6990,kt.520188-1349, merkt "PHR-Gaza


mbl.is Samið um ályktunardrög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppusaga af kærleiks þar sem úllendúllendoff spilar stóra rullu

Kreppan hefur teygt krumlur sínar hér inn á kærleiks á fleiri en einn máta.

Í dag gerðust þau stórtíðindi að símanum mínum var lokað.

Það hefur ekki gerst í ár og daga. 

Eftir að hafa úllendúllað reikningana á menningarheimili voru hér á Teigunum lenti símareikningurinn vitlausu megin við úllenið.

Ég var hins vegar með þann einbeitta ásetning að borga á mánudaginn en svona gleymdi að láta fyrirtækið vita.

Þannig að ég gat ekki hringt.  Sem er slæmt. 

Ég hringdi samt úr gemsanum í fyrirtækið.  Sem er dýrt.

Bar mig aumlega, baðst afsökunar, hélt hálftímaræðu um bágindalegt ástand heimilisfjármálanna.

Hún hlustaði og var betri en nokkur sálfræðingur sem kostar hvítuna úr augum vorum. 

Ég bauðst til að taka uppvaskið í mötuneytinu og jafnvel fara út með ruslið.

Það varð þó ekki úr í þetta skiptið.

Hún opnaði samstundis og ég hefði getað sparað mér fyrirlesturinn.

En ég mun borga síma og aðrar útistandandi eftir úllenið í rauðabýtið á mánudaginn.

Og þegar ég les þetta hefði ég alveg getað gert þetta mun dramatískara en ég hef gert hér.

En ég geri það ekki.

Ég á nefnilega ekki vitund bágt...

nema ef vera skyldi fyrir að vera búandi á Nýslandi.

Og fá ekki að kjósa...

En ég elska ykkur öll..

eða nánast.

Okei, farin.


..eins og iðnaðarmaður á sterum

Ég skil vel þá skoðun Jóns Bjarnasonar þingsmanns VG á að heilbrigðisráðherra eigi að segja af sér en það er mun líklegra að Jón Ásgeir kaupi sér íbúð í verkó.

Óskhyggja kæri Jón.

Ég hef reyndar aldrei séð neina glóru í að láta frjálshyggjumann í þetta embætti.

En mergurinn málsins er þessi;

Guðlaugur Þór er að sinna hugðarefni sínu kæru Íslendingar.

Sem er auðvitað að þjösnast á heilbrigðisþjónustunni, minnka aðkomu ríkisins að henni og færa stóra hluta hennar til einkaaðila.

Nú er kjörið tækifæri fyrir Guðlaug Þór að láta til skarar skríða.  Það er komin kreppa, príma kjörlendi fyrir niðurskurð þar sem síst skyldi.

Spara, spara, spara og skera niður.  Það hvín í niðurskurðaröxinni.  Hviss og bang.

Það má þó segja þessum ástmanni frjálshyggjunnar til hróss að hann er að vinna vinnuna sína, blóðugur upp að öxlum að vísu en iðinn sem iðnaðarmaður á sterum.

Sem er meira en hægt er að segja um stóran hluta ríkisstjórnar.

Hefur einhver séð Björgvin G nýlega?  Mér datt það svona í hug af því að hann er ráðherra bankamála og hér hafa bankar farið á hausinn og allt er í upplausn í þjóðfélaginu.

Ó, kannski hann hafi gleymt því, nú eða einhver ekki látið hann vita.

Eða þeir hinir sem hvorki sjást né heyrast á þessum örlagadögum.

Enn í jólafríi?

Maður spyr sig.

Og þið kæru kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem örkuðuð röggsamlega inn í kjörklefann í hitteðfyrra og settuð X við D.

Þið ættuð að hafa verið meðvituð um að íhaldið hefur aldrei lagt sig fram um að standa vörð um heilbrigðis- og félagsmálageirann.

Þið getið vart verið í alvörunni hissa og sár - ha?

Maður á ekki að segja svona en af því ég er komin með upp í kok af öllum sofandahætti landsmanna minna, til dæmis þeim sem sitja og býsnast og hneyklast yfir klæðaburði mótmælenda þá segi ég við ykkur.;

I frigging told you so!

 


mbl.is Ráðherra segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2987751

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband