Leita í fréttum mbl.is

"The "en" word"

222 

Best að skella inn einni EN-færslu, langt síðan síðast sjáið þið til.

Betra að skrifa um það heldur en að einhenda sér í uppvaskið sem bíður mín, en ég var með forsetahjónin af Búrúndí í heimsókn.

Ókei, þau eru frá Köben.

Það er þetta með orðið "en".  Ég blogga reglulega um fullyrðingarnar hjá fólki (stundum mér sjálfri líka) sem setur svo "en" fyrir aftan og segir hið gagnstæða.

Dæmi:

Þú ert alls ekkert feit EN þú mátt missa nokkur kíló.

Þú ert ekki þreytuleg, nei, nei EN þú ættir að hvíla þig betur.

Ég er ekki rasisti EN ég vill ekki sóansó frá sóandsó inn í landið.

Þú ert birtingarmynd fullkomnunar í þessum kjól EN þú ættir að fara í hinn kjólinn.  Hann klæðir þig betur.

Kapíss? No?

Ég var nefnilega að hugsa um yfirlýsingarnar frá ríkisstjórninni, fjölmargar sem hljóma á einn máta en þýða hið gagnstæða.

Kannist þið við þessar?

Það verður að fá allt upp á borðið, velta við hverjum steini EN það á alls ekki að leita að sökudólgum (hvað þá persónugera vandann),  heldur skrifa leynilegar skýrslur og ráða ráðum í reykfylltum bakherbergjum.

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra hefur brotið stjórnsýslulög sem er alvarlegt mál EN ég treysti honum til allra góðra verka.

Við munum aldrei láta kúga okkur til að greiða Icesave peningana EN við ætlum ekki að fara í mál við Bretana, bara borga og brosa.

Málið er allt að verða vitlaust í kringum mann.  Breytingarnar snöggar, umskiptin svo stór og sífellt bætast fleiri hneyksli í sarpinn.

Ég er hætt að geta meðtekið allt sem ég les, hvað þá orðað tilfinningar mínar gagnvart því.

Ég skil svo vel af hverju "helvítis fokking fokk" hefur slegið í gegn í samfélaginu eftir Áramótaskaupið.

Fólk er í vandræðum með að lýsa líðan sinni, sárindum, reiði og hneykslan.

Þess vegna grípur það til HFF þrátt fyrir að það sé ekki beinlínis fagurt orðasalat.

Nú hefur Eimreiðin birt skipurit "Nýja" Glitnis sem er auðvitað sami grautur í sömu skál eins og hjá Landsbanka sem birt er þar í gær.

Kíkið á skipuritið og sannfærist um að það er ekki verið að breyta neinu frá því sem var.  A.m.k. ekki neinu sem orð er á gerandi.

Það er einna helst bankastjóri Kaupþings sem virðist vera ærlegur í því að taka bankann inn í nýja tíma.

Enda fékk hann verðlaun frá aðgerðarsinnum í morgun, hið s.k. Ljós í myrkrinu.

Ég er farin í uppþvott EN ætla ekki að þvo upp fyrr en á mánudaginn.

En hvað?


mbl.is Eiríkur Tómasson: Blekktu eigendur bankanna starfsfólk sitt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Ég kom hér við og las EN nú fer ég annað að lesa..

Gulli litli, 9.1.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: Isis

uppáhaldið mitt er "Mér finnst mótmæli eiga rétt á sér, EN bara ekki þessi..."

Ég alveg krullast upp... banna þetta orð, og þá verður lífið miklu beinskeyttara og einfaldara... sver það

Isis, 9.1.2009 kl. 16:56

3 Smámynd:

Gott orð "EN" EN kannski full ofnotað

, 9.1.2009 kl. 17:18

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eitt merkilegasta smáorð tungumálsins, En ekki hvað?? góða helgi

Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 17:44

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

"Þú ert birtingarmynd fullkomnunar í þessum kjól EN þú ættir að fara í hinn kjólinn.  Hann klæðir þig betur."  Mér finnst þessi setning bezt og ekkert fargins en neitt með það!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 17:51

6 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Já, helvítis fokking fokk! EN eigðu samt góða helga Jenný mín.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 9.1.2009 kl. 18:00

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góð færsla Jenny

Óskar Þorkelsson, 9.1.2009 kl. 18:31

8 identicon

Sæl, Jenný, þessi skrif mín rötuðuðu ekki alveg á réttan svarreit í fyrstu.
Hér koma þau.
Ég er þér, Jenný og Hönnu Láru svo innilega þakklát og raunar fleirum
bloggurum ykkur líkum, fyrir skrif ykkar. Þið eruð  heiðarleg og sönn.
Málefnanleg, kjarkmikil og kröftug. Ef einhverjir geta flutt fjöll og brætt steina þá eru það þið. Svo marga hygg ég, að muni  fylgja ykkar málstað, að það gæti fullkomlega réttlætt útgáfu bókar með bloggskrifum ykkar, sem bæriheitið: "Áköll  þjáðar þjóðar."
Farið í friði,
Kolbrún Bára

kolbrún Bára (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 19:06

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 9.1.2009 kl. 19:12

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Já en Jenný....hunskastu til að vaska upp í einum hvínandi grænum!

Heiða B. Heiðars, 9.1.2009 kl. 20:26

11 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þetta ótætis N

sem finnst í öllum

einmanna orðum.

Þetta ókláraða M

sem greinir kynin

hvert frá öðru

Þetta óláns N

sem skilur á milli

skoðana manna

Þetta jarðneska N

sem ekki finnst

í Guði

Svanur Gísli Þorkelsson, 9.1.2009 kl. 22:48

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

"En" hvað ég skil þig

Sigrún Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 22:58

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

N leiðizt mér ...

Steingrímur Helgason, 9.1.2009 kl. 23:29

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, þið eruð frábær.

Og Svanur yrkir svo fallega um bölvað enið.

Kolbrún Bára: Þakka þér falleg orð.

Og þið hin eruð bara böggandi alltaf EN ég elska ykkur samt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.1.2009 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.