Leita í fréttum mbl.is

Kreppusaga af kærleiks þar sem úllendúllendoff spilar stóra rullu

Kreppan hefur teygt krumlur sínar hér inn á kærleiks á fleiri en einn máta.

Í dag gerðust þau stórtíðindi að símanum mínum var lokað.

Það hefur ekki gerst í ár og daga. 

Eftir að hafa úllendúllað reikningana á menningarheimili voru hér á Teigunum lenti símareikningurinn vitlausu megin við úllenið.

Ég var hins vegar með þann einbeitta ásetning að borga á mánudaginn en svona gleymdi að láta fyrirtækið vita.

Þannig að ég gat ekki hringt.  Sem er slæmt. 

Ég hringdi samt úr gemsanum í fyrirtækið.  Sem er dýrt.

Bar mig aumlega, baðst afsökunar, hélt hálftímaræðu um bágindalegt ástand heimilisfjármálanna.

Hún hlustaði og var betri en nokkur sálfræðingur sem kostar hvítuna úr augum vorum. 

Ég bauðst til að taka uppvaskið í mötuneytinu og jafnvel fara út með ruslið.

Það varð þó ekki úr í þetta skiptið.

Hún opnaði samstundis og ég hefði getað sparað mér fyrirlesturinn.

En ég mun borga síma og aðrar útistandandi eftir úllenið í rauðabýtið á mánudaginn.

Og þegar ég les þetta hefði ég alveg getað gert þetta mun dramatískara en ég hef gert hér.

En ég geri það ekki.

Ég á nefnilega ekki vitund bágt...

nema ef vera skyldi fyrir að vera búandi á Nýslandi.

Og fá ekki að kjósa...

En ég elska ykkur öll..

eða nánast.

Okei, farin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

það hefur tvisvar gerst hjá mér að símreikningur lenti í úlleninu í stað dúllensins. fyrir fimm árum var nettenginunni lokað. ég hringdi og bað um að yrði opnað svo ég gæti greitt gegn um heimabankann. í síðara skiptið, nú í desember, var öllu lokað. allt komið á sama reikning núna. ég hringdi (var í vinnunni) og greiddi gegn um heimabankann á sama tíma.

í bæði skiptin voru starfsmenn Símans mjög liðlegir og var opnað fyrir aftur í snatri.

Brjánn Guðjónsson, 8.1.2009 kl. 17:54

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Svo blessaður símareikningurinn lenti doff-megin. En svona gerast kaupin á eyrinni.

Helga Magnúsdóttir, 8.1.2009 kl. 17:55

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hvað gerðum við fyrir daga göngusíma?  Já sammála það vantaði smá drama í málið en alltaf er nú gaman að fylgjast með aðgerðum á kærleiks.

Ía Jóhannsdóttir, 8.1.2009 kl. 18:06

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 8.1.2009 kl. 19:57

5 Smámynd:

Kannast við úllen dúllenið. Er að berjast við að lenda ekki í því aftur. En úfff. Gott að barlómurinn borgaði sig

, 8.1.2009 kl. 21:01

6 identicon

Þú ert þá væntanlega hjá einhverju öðru símafyrirtæki en Símanum. Fyrir tveimur mánuðum var símanum hjá mér lokað einn morguninn - ég var að vinna í tölvunni þegar netsambandið datt út. Þegar ég gat hringt í þjónustuver Símans og bað um að fá opnað aftur í nokkra daga þangað til ég ætti betra með að borga, þá var neitað. Sagt var að þegar á annað borð væri búið að loka síma væri ekki opnað aftur fyrr en búið væri að gera upp. Hins vegar væri kostur á því að fá tveggja vikna frest ef um það væri beðið áður en til lokunar kæmi.

H. Magnússon (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 21:22

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú hefur væntanlega sagt henni að þú værir hleypidóni?

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 22:38

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú hefur væntanlega sagt henni að þú værir hleypidóni?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2009 kl. 22:49

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð fyndið.

Nei ég þorði ekki að ásaka hana um hleypidóna.  Hvað þó heldur kalla hana það.  En ég gerði það í huganum.  DJÓK.

H. Magnússon: Nei ekki hjá Símanum, sagði mig þaðan um leið og það kom annar möguleiki.  Leiðindafyrirtæki og dýrt úr hófi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.1.2009 kl. 23:19

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Love you to!

Edda Agnarsdóttir, 8.1.2009 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985757

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.