Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

FORVARNIR Á ÁSTRALSKAN MÁTA

1

Nú verður höfðað til ábyrgðarkenndar ungra ökumanna í nýjum íslenskum forvarnarauglýsingum, sem eiga sér hliðstæðu í áströlsku auglýsingaherferðinni þar sem gefið er í skyn að þeir sem aka hratt séu litlir menn.

Þetta eru neðanmittisforvarnir, það nýjasta í auglýsingaheiminum.

Myndbandið er tengt fréttinni.  Dæmið sjálf.


mbl.is Hraðinn drepur - getuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ Á ÉG AÐ GERA JENNY, ÉG GET EKKI GENGIÐ, SPURÐI ARFALATA VINKONA MÍN SEM DREYMIR UM MANN MEÐ SVEFNSÝKI

1

..en lenti í ofvirkum elskhuga og deitið stóð frá föstudegi fram á mánudagsmorgun.

Iss þið eruð nú meiri perrarnir, hér er ekkert klám börnin góð, né heldur ljósbláar sögur.  Verið úti að leika krakkar mínir.

Ég held að einhver hafi komist í tölvuna mína.

Þorrí


JAFNLEIÐINLEGASTA FRÉTT ÁRSINS..

 

..og jafnframt ein af þeim mest lesnu á Moggablogginu þessa dagana.  Tjara og grjót skemmdu bíla og það voru "blæðingar" inni í myndinni.

Ég fékk líka einu sinni einhverjar þær mestu blæðingar sem ég hef upplifað en það var ekki vegna tjöru og grjóts og það kom ekki í Mogganum.

Hver skrifaði eiginlega fréttina?


mbl.is „Með verstu blæðingum sem ég hef upplifað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AF KÓNGAFÓLKI AÐ GEFNU TILEFNI

1

Ég hef persónulega ekkert á móti kóngafólki en mér finnst mónarkí vera tímaskekkja.  Já jafnvel opíum fyrir fólkið.  Það verður einhver múgæsing og fjöldafullnæging sem fer af stað þegar þetta blessað fólk er annars vegar.  Samt er saga konungdæma ekki falleg, alveg sama hvar borið er niður. 

Þegar ég skrifaði um Díönu prinsessu var ég að skrifa út frá persónudýrkuninni sem oft fer í gang þegar manneskjur eins og hún deyja.  Sérstaklega ef þær deyja ungar, voru óhamingjusamar og í gylltu búri.  Það þýðir ekki að ég sé að dissa konuna, svo langt frá því en samt brann kommentakerfið mitt nánast yfir.  Tilfinningahitinn mikill og ef ég hefði fengið eins og 1/10 af þeirri orku og eldi sem ég fékk vegna þeirrar færslu, þegar ég hef skrifað um heimilisofbeldi, nauðganir og aðrar misþyrmingar sem sífellt eiga sér stað, hefði ég verið nokkuð lukkuleg með viðbrögðin.  Það eru mál sem þarf að ræða. Ekkert breytist með því að sitja og bíða.  Sagan segir okkur það.

Það er ekki að vera neikvæður þegar við tölum um hlutina sem betur geta farið.  Heldur ekki þegar ég t.d. bendi á að þarna er einhver fjöldahýstería þegar einhver hefur skoðun á þessari blindu aðdáun á venjulegri manneskju.  Ég hef ekkert á móti því að tónleikar í minningu konunnar séu haldnir, og eins og ein af mínum uppáhalds bloggvinkonum hún Anna (www.anno.blog.is) bendir á eru öll tilfelli til að halda konserta af hinu góða og ekki er verra ef ágóðinn af þeim rennur til líknarmála.

Í nútímanum vitum við að allar manneskjur eru fæddar  jafnar.  Aðstæðurnar sem fólk fæðist í eru það hins vegar ekki.  En að hefja fólk til skýjana, eins og tam bresku konungsfjölskylduna sem hefur fæðst inn í blóði drifin auðæfi og hefur það hlutverk að vera ósnertanlegur fulltrúi almúgans á myndum og í opinberum heimsóknum er bara ekki að kalla á mína aðdáun.  Og það er allt í lagi að vera ekki sáttur við skort á jafnrétti þegar fólk er annars vegar.  Ef við létum okkur vel líka og gagnrýndum aldrei, væri þá nokkur von til að hlutirnir myndu færast til betri vegar?

Hvernig komst svo breska konungsfjölskyldan til valda?  Með lýðræðislegri kosningu? I don´t think so.


HEILÖG DÍANA

1

Nú standa yfir minningartónleikar um Díönu prinsessu á Wembley.  Það er búið að gera vængjaðan engil úr konunni fyrir löngu og ég skil ekki þessa þörf fólks til að hefja venjulegar manneskjur til guðdóms og dýrðar.  Persónudýrkunin er algjör. 

Ef við tökum Móður Theresu, sem helgaði líf sitt fátækum er það rétt sem haldið er fram að verk hennar hafi ekki vakið jafn mikla athygli og ef Díana snéri sér við.  Auðvitað er það sorglegt þegar ungar manneskjur deyja af hroðalegum slysförum, en mér finnst eitthvað morbid við þessa tilbeiðslu.

Þorrí


mbl.is Elton John hóf minningartónleika um Díönu prinsessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVO RÓMÓ

1

Þegar bónorð hafa ratað mína leið í lífinu hefur það verið frekar óspennandi.  Eigum við ekki að giftast?  Ég meina barn á leiðinni og svona.  Eða við getum alveg eins gift okkur, það er hagkvæmara.  Í núverandi hjónabandi fórum við hins var bæði á hnén og erum þar enn.

Þrátt fyrir skort á rómantík í boðorðadeildinni utan í þetta eina skipti þá vogaði enginn þeirra sér að biðja mín þegar ég þreif klósettfjandann.  Enda hefði það verið ávísun á vandræði.  Alvarleg vandræði.

Þetta segir mér bara eitt.  Tony Blair er meistari lélegra tímasetninga.

Þetta fór undir spil og leikir og ekki orð um það meir.


mbl.is Blair bað Cherie á meðan hún var að þrífa klósettið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ EYÐA BÍL

Nú er ég eitt stórt spurningamerki þrátt fyrir að vera í foreldrafári út af ástandinu á Englandi.  Hvað þýðir að eyða bíl?  Afmáðu þeir bílinn af yfirborði jarðar?  Er ekki svona kerra sönnunargagn?  Ef honum hefur verið fyrirkomið þá myndi ég vilja vita hvers vegna.  Sumar fréttir kalla bara á meiri spurningar og maður er engu nær.

Ég hef aldrei heyrt um áður að bíl hafi verið eytt.  Einhver?


mbl.is Lögreglan í Skotlandi eyddi bíl við sjúkrahús í Glasgow
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GRILLÍGRILLÍGRILL

1

Nú er það grillveisla og það á línuna.  Er að verða vitlaus úr eirðarleysi og leti, hlýt bara að vera lasin, svei mér þá.  Hef varla nennt að hreyfa mig og ætti með réttu að hanga á einhverjum fjallstoppi núna, rjóð í kinnum, dinglandi löppunum til og frá (stolið úr Emmu)og úðandi í mig próteini, eða hvað sem það nú heitir sem svona fjallafólk setur í sig.

Nú skal sum sé grilla.  Jenny Una Errriksdóttirrr situr í öndvegi ásamt mömmusín auðvitað og svo koma skátvibbarnir mínir Einsi og Stebbi.  Maysan í Londres auðvitað, Helga í Róm og Ástrós er að vinna uppi í sveit og pabbi hennar Jenny að spila jazz úti á landi.  En við látum það ekki á okkur fá og drífum okkur í joggingallana og út á svalir.  Einn í einu af því þær eru svo litlar, segi sonna.

Ég snarféll fyrir þessu grilli á myndinni.  Svo kvenlegt og krúttlegt.  Ég er einmitt með svona blómaker á mínum svölum, alveg tilvalið fyrir kolagrill.  Ég er ekki að djóka, ég sver það.  Ætli ég geti notað annað eða bæði?  Ég var að pæla í því að hætta að nota það sem öskubakka og planta blómum í það en sá þá fyrir mér að það væri bara til að laða að stórar og ljótar flugur með illt í huga.

Ef þið sjáið reykjarmökk stíga fagurlega upp úr Seljahverfinu seinni partinn, þá er það þessi húsmóðir að fjölnýta blómakerið.

Síjúgæs!


VOÐA, VOÐA VINSÆL

Ríkisstjórnin nýtur mikils stuðnings þjóðarinnar en 83% sögðust styðja stjórnina skv. mælingu sem gerð var í júní af Capacent Gallup.

Ekki ætla ég að draga það í efa, en er við öðru að búast?  Stjórnin er í fríi og sólin hefur skinið nánast látlaust.  Þetta heita hveitibrauðsdagar og hver talar illa um brúðhjónin ÁÐUR en þau koma heim úr brúðkaupsferðinni?

Ekki ég, svo mikið er víst


mbl.is Mikill meirihluti styður ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRIR MÉR ERTU DAUÐ!

1

Áttræð kona á Englandi fékk neitun þegar hún ætlaði að taka út af reikningnum sínum, því samkvæmt gögnum bankans var hún látin.

Ég kannast við þetta vandamál.  Bankinn minn hefur umgengist mig eins og lík, nokkuð lengi.

Hm...


mbl.is Bankinn sagði áttræðri konu að hún væri látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.