Leita í fréttum mbl.is

AF KÓNGAFÓLKI AÐ GEFNU TILEFNI

1

Ég hef persónulega ekkert á móti kóngafólki en mér finnst mónarkí vera tímaskekkja.  Já jafnvel opíum fyrir fólkið.  Það verður einhver múgæsing og fjöldafullnæging sem fer af stað þegar þetta blessað fólk er annars vegar.  Samt er saga konungdæma ekki falleg, alveg sama hvar borið er niður. 

Þegar ég skrifaði um Díönu prinsessu var ég að skrifa út frá persónudýrkuninni sem oft fer í gang þegar manneskjur eins og hún deyja.  Sérstaklega ef þær deyja ungar, voru óhamingjusamar og í gylltu búri.  Það þýðir ekki að ég sé að dissa konuna, svo langt frá því en samt brann kommentakerfið mitt nánast yfir.  Tilfinningahitinn mikill og ef ég hefði fengið eins og 1/10 af þeirri orku og eldi sem ég fékk vegna þeirrar færslu, þegar ég hef skrifað um heimilisofbeldi, nauðganir og aðrar misþyrmingar sem sífellt eiga sér stað, hefði ég verið nokkuð lukkuleg með viðbrögðin.  Það eru mál sem þarf að ræða. Ekkert breytist með því að sitja og bíða.  Sagan segir okkur það.

Það er ekki að vera neikvæður þegar við tölum um hlutina sem betur geta farið.  Heldur ekki þegar ég t.d. bendi á að þarna er einhver fjöldahýstería þegar einhver hefur skoðun á þessari blindu aðdáun á venjulegri manneskju.  Ég hef ekkert á móti því að tónleikar í minningu konunnar séu haldnir, og eins og ein af mínum uppáhalds bloggvinkonum hún Anna (www.anno.blog.is) bendir á eru öll tilfelli til að halda konserta af hinu góða og ekki er verra ef ágóðinn af þeim rennur til líknarmála.

Í nútímanum vitum við að allar manneskjur eru fæddar  jafnar.  Aðstæðurnar sem fólk fæðist í eru það hins vegar ekki.  En að hefja fólk til skýjana, eins og tam bresku konungsfjölskylduna sem hefur fæðst inn í blóði drifin auðæfi og hefur það hlutverk að vera ósnertanlegur fulltrúi almúgans á myndum og í opinberum heimsóknum er bara ekki að kalla á mína aðdáun.  Og það er allt í lagi að vera ekki sáttur við skort á jafnrétti þegar fólk er annars vegar.  Ef við létum okkur vel líka og gagnrýndum aldrei, væri þá nokkur von til að hlutirnir myndu færast til betri vegar?

Hvernig komst svo breska konungsfjölskyldan til valda?  Með lýðræðislegri kosningu? I don´t think so.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Fyrir nú utan úrkynjunina sem hefur fylgt bresku konungsfjölskyldunni og varð henni nær að falli. Habsborgaraútlitið sem fjölskyldan ber svo sterkt með sér,  eins og Karl sem ber þetta útlit, eru merki úrkynjunar vegna of mikils skyldleika í Konungsættum Evrópu. Þess vegna keppist hver um annan að ná í nýtt blóð inn í fjölskyldurnar svo þær bara gufi ekki upp eða lendi hjá forsjárumönnun. Já það er margt skrýtið í kýrhausnum (amma sagði það aldrei)

Góður pistill hjá þér Jenný, viltu skrifa meir svona

Edda Agnarsdóttir, 2.7.2007 kl. 10:24

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ja skrifa gjarnan meir en það verður allt vitlaust.  Ég tek eina og eina þegar ég er sterk á taugunum Edda mín.

Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2007 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.