Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

ENN EIN PILLULAUSNIN...

1

..í baráttunni við offituna.  Rosalega eru þeir iðnir við kolann þessir vísindamenn sem liggja árum saman yfir patentlausnum við þessum neyslusjúkdóm.  Fólk étur á sig óþrif og svo á að taka inn pillu og redda málunum.  Þessi pilla tútnar út í maganum og gerir það að verkum að fólk upplifir sig satt.  Segir að því líði eins og eftir einn spaghettidisk.  Ó je.

Hvernig væri að leggja lóð á vogarskálarnar til varnar sultardauða víða um heim?  Við hin getum breytt mataræðinu og slakað á í græðginni.

 


mbl.is Megrunarpilla sem tútnar út í maganum er á tilraunastigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUNNUDAGSMORGUN HJÁ JENNY UNU

1

Hún Jenny Una Errriksdóttirrr er hjá ömmu og Einarrrri.  Hún unir sér afskaplega vel, eins og reyndar alltaf og er hamingjusöm og glöð.  Í morgun er hún búin að gera ýmislegt eins og að borða morgunmat, borða pez og horfa á barnaefni.  Þegar ég var að ganga frá í eldhúsinu, með töluverðu glamri, ímynda ég mér, sagði sú stutta: Heyrrrrðu góða! Hvað errrr í gangi? Ekki svona læti amma.  Úps, amman alveg skammaðist sín.

En það er ekki allt heilög hamingja hjá henni Jenny þessa dagana.  Hann pabbi hennar er að spila úti á landi á trommurnar og Jenny hefur séð hann einu sinni á heilli viku.  Það fer ekki vel með lítið hjarta og mitt í allri gleðinni yfir lífinu, færist sorg yfir litla andlitið, af og til og hún spyr:

"Amma hvarrr pabbi minn?"

"Hann er að spila á trommurnar svolítið langt í burtu"

"Pabbi minn ekki vera meir í "minnunni" koma heim til Jennysín"

"Pabbi kemur bráðum elskan"

"Jenny aleg þrrreytt að bíða, pabbi ekki trrromma meir koma heim og knúsa hana Jenny"

Svo man Jenny eftir því á ný,  hvað lífið er skemmtilegt og skellir sér út í að lifa því af öllum krafti.  En svo stingur aftur í litla hjartað og hún spyr eftir pabba sínum.  Svona getur lífið verið erfitt stundum fyrir tveggja ára snót.

Erik geturðu ekki flogið heim í klukkutíma eða svo til að gleðja hana Jenny?

Amman í smá rusli.


STAUFFENBERG JR. ALDREI ÁNÆGÐUR

 

Ég get alveg haldið vatni yfir Tom Cruise, alveg ljómandi vel.  Finnst þessi stubbur ekkert sérstaklega guðdómlegur en það eru kannski ekki margar konur sem deila þessari skoðun minni.  Hvað um það, mér finnst samt alveg út úr kortinu að pilturinn fái ekki að gera mynd um tilræðið gegn Hitler.  Þjóðverjar vilja það ekki og alveg sérstaklega vill Stauffenberg jr. það ekki.

Annars er þessi Stauffenberg júníór, greinilega ekki auðveldur maður.  Þrjár myndir hafa verið gerðar um föðurhetjuna og engin þeirra er syninum að skapi.  Þær eru annað hvort ekki nógu nákvæmar (gamli þjóðverjinn) eða bara afleitar.

Smá hugmynd til Cruise, komdu hingað karlinn og þú getur örgla fengið að leika Fjalla-Eyvind eða eitthvað.

Doktor E þessi fer undir trúarbrögð.  Það hlýtur þú að skilja.

Síjú eftir kaffi og sígó

 

 


mbl.is Faðirinn, sonurinn og Tom Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PJÚRA OFSÓKNIR

1

Hér er ég búin að vera í bloggpásu í kvöld og var að sinna fjölskyldunni og þegar ég skutla mér glaðbeitt á bloggið og ætla að fara að skrifa enn eina ódauðlega færsluna þá sé ég þetta:

"Steingeit: Njóttu allra þeirra samstilltu merkja sem lífið er að gefa þér. Ókunnugt fólk brosir til þín. Bílastæði losnar bara fyrir þig. Þú finnur aftur bestu nærbuxurnar."

Nú er ég hætt að hlægja.  Þessu er beint gegn mér persónulega, þetta er óvild.  "Þú finnur aftur bestu nærbuxurnar"!  þetta er pjúra dónaskapur og algjör viðbjóður.  Bílastæði losna.  Jeræt það væri flott ef ég væri á bíl svo ég tali nú ekki um á leiðinni eitthvað. 

Þetta mun vera nótt alla þeirra samstilltu merkja sem lífið er að gefa þér.  Ég sé eitt merki út úr þessu í nótt.  Og það er fokkmerkið sem Sigurrós var að senda mér.

Fokk jú tú vúman.

 

P.s. Hér kemur stjörnuspá Sigurrósar en hún er í illvirkinu. 

Njóttu hverrar mínútu eins og hún sé hin síðasta.  Þú ert uþb að verða atvinnulaus, peningalaus og á leiðinni í sumarskóla.  Að læra stafsetningu.


« Fyrri síða

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 2987948

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband