Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

ER ÞAÐ NEMA VON..

1

.. að konur njóti ekki fullra réttinda á við karlmenn í þessu þjóðfélagi, þegar hægt er að lesa eitthvað þessu líkt í bloggheimum árið 2007. 

Sérhver kona,
 jafnvel sú besta,
er að nokkru leyti fiðrildi og að nokkru leyti hýena.

Að því leyti fiðrildi,
að hún vill njóta allra blóma á lífsleiðinni,
en hýena,
þegar hún rífur í sundur manninn,
þegar hann getur ekki fullnægt kenjum hennar.

Höfundurinn heitir Þorkell og það skiptir svo sem ekki máli.  Mér datt bara í hug að deila þessu miðalda viðhorfi hans til kvenna með ykkur.

Kannist þið við það krakkar að konum sé líkt við dýr?   

Hýenur eru hræætur. 

Svo krúttlegt eitthvað.


"STÓLINN"

1

Hárgreiðslustóllinn hennar Ríkeyjar Pétursdóttur í Kópavogi hefur fengið á sig mynd sögupersónu í mínum huga eftir að hafa fylgst með honum í fréttum.  Stólinn verður fyrir eilífum hörmungum, aftur og aftur.  Honum er úthýst, hann er fyrir, hann er til óþurftar í Kópavogi og hann er mun hættulegri bæjarímyndinni en Goldfinger.

Stólinn og Ríkey vilja klippa fólk heima hjá Ríkeyju.  Í ÍBÚÐARHVERFI og nágrannarnir leggjast gegn því.  Ætli það fylgi mörg félagsleg vandamál svona stól?  Ætli það sé hætta á að fasteignaverðið í kringum hann hrapi á methraða?   Það gæti verið.  Ég þarf að fara að kvarta yfir konunni í næsta húsi við mig en hún er með leyfi fyrir fjórum barnavögnum á sínu heimili, hún er dagmamma sko og ég þarf að fara að kíkja á það mál.  Ég held að mér finnist óþægileg svona atvinnustarfsemi í heimahúsi.  Hm.

"Bæjarstjórn Kópavogs hefur tekið ákvörðun um að leggjast gegn því að umhverfisráðherra veiti Ríkeyju Pétursdóttur, hárgreiðslumeistara í Kópavogi, undanþágu frá skilyrðum um starfsleyfi. Tillaga þess efnis var samþykkt með sex atkvæðum meirihlutans gegn fimm atkvæðum minnihlutans."

Vandlifað eða þannig....


mbl.is Umsókn um hárgreiðslustól hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BRAGI SIGRAÐI Á FISKMARKAÐSMÓTINU

1

Í dag sigraði Bragi á Fiskmarkaðsmótinu en þar er keppt í langstökki á milli þorsk- og ýsukara.  Bragi var skreflengstur allra og vann hann með miklum yfirburðum.

 Við tökum þennan aftur.  Þetta var taflmót og Bragi sigraði en mótið var haldið í Fiskmarkaðnum innan um þorsk- og ýsukörin.

Lokatilraun. Bragi Þorfinnsson sigraði Ingvar Þór Jóhannesson í lokaumferð Fiskmarkaðsmótsins í kvöld.  Þetta er hárrétt eftir haft og það þýðir ekki að kæra mig fyrir óviðeigandi tengingu við frétt góðir hálsar.

En er ekki skemmtileg tilhugsun að það hefði getað verið keppt í teygjustökki, eða langstökki á milli kara?  Mér hefði fundist það rosalega krúttlegt.  Sko krúttlegt að lesa um en ekki að lykta af.

Takk fyrir mig og ég lofa því Mogginn minn að fíflast ekki svona gróflega aftur.

OK?


mbl.is Bragi sigraði á Fiskmarkaðsmótinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í JÚLÍMÁNUÐI VERÐUR ALLT VITLAUST

Go to fullsize image

...á fjölmiðlinum mínum.  Þrátt fyrir að vera í nánu samstarfi við Moggann sem er lýðræðiselskandi fjölmiðll (og ég er það auðvitað líka) ætla ég að "forbjóða" nokkra frasa í kommentakerfinu mínu.  Æi ég umorða þetta, ég ætla að vinsamlegast að fara fram á við ykkur að eftir 15. júlí þá notist þið ekki við eftirfarandi frasa:

1. No komment(því það er þá alveg eins hægt að segja ég er ósammála eða mér er skítsama um þessa færslu þína kjéddling eða því sleppa alveg að kvitta). www.jonaa.blog.is er með undanþágu þegar við ræðum afrek Samfylkingar í ríkisstjórn, þar sem hún kaus ekki rétt og skammast sín ennþá smá fyrir að hafa ekki farið að leiðbeiningum mínum (Blush).   Þorrí Jóna mín.

2. Tík nema þegar talað er um hunda- og hundarækt sem er mjög algengt hérna bloggsíðunni enda ég löngu farin í hundana.  Þetta gildir ekki um www.asthildurcesil.blog.isþví hún verður stundum smá pirr út í asnalegar kjéddlur.

4. Orðalagið "talað undir rós" og þetta er án undantekninga, nema þegar fólk setur hattinn sem er frammi í forstofu á hausinn á sér áður en það kommenterar.  Þessi hérna sko:

Image Preview

Þessi tilmæli bið ég ykkur kurteisilega að virða kæru vinir.  Ég er, eins og áður hefur komið fram mjög lýðræðiselskandi manneskja, þannig að ég hringi ekki á lögguna eða eitthvað, þótt einhver missi sig stundum.  Fram að 15. júlí er hinsvegar leyfilegt að kommentera, nókommentera, og tala um tíkur til hægri og vinstri svo framarlega sem það er gert undir rós.

Urrrrr

Þetta flokkast klárlega undir mannrækt.  Eruði ekki sammála því??


KONUR ERU KONUM...........

1

...góðar OG HANANÚ.  Þessi fullyrðing er amk. sannari en hin sem oftast heyrist.  Frá og með deginum í dag er bannað með lögum þessa fjölmiðils að nota "konum eru konum verstar" í kommentakerfinu hér  og hananú.  Ég nenni ekki að taka saman þau skipti sem þessi leiði frasi hefur verið notaður í mínu kommentakerfi og reyndar út um allt blogg. Ótrúlega lífseig þessi firra. Stundum reyndar notað án hugsunar enda frasinn orðinn eins og stórisannleikur í daglegu tali fólks.

Þessi fullyrðing er ekki byggð á nokkrum raunveruleika.  Það er ekkert sem segir að konum séu konur verstar.  Það eru hins vegar ansi margar konur sem geta vitnað um það gagnstæða. 

Niðurstaða:  Konum eru konum oftar en ekki góðar (ég minni á systra- og vinkonunet heimsins).  Þær eru stundum andstyggilegar hvor við aðra,  alveg eins og gengur og gerist í lífinu.  Mín reynsla er sú að oftar hef ég notið stuðnings og vináttu kvenna en hins.

Svo standið ykkur nú krakkar mínir.  Út með meiðandi frasa um konur (og karla líka já,já, já).

P.s. Mér kæmi ekki á óvart þótt einverjir nördar af hm.. sumu kyni sæju sig knúna til að setja einmitt téðan frasa í kommentakerfið.  Hm


HEFÐI MÁTT GERAST ÖLLU FYRR..

 

..en hvað um það.  ISG, utanríkisráðherra hefur ákveðið að lendingar ákveðinna flugvéla á Keflavíkurflugvelli og/eða Reykjavíkurflugvelli verði teknar til nánari skoðunar.  Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar umfjöllunar þings Evrópuráðsins í dag um skýrslu sem varðar leynifangelsi og ólöglegt fangaflug CIA í gegnum lofthelgi Evrópuráðsríkja.

Mikið skelfing er þetta tímabært.  Hvað ætli sagan eigi eftir að segja okkur um lögleysisgjörninga og mannréttindabrot Bandaríkjamanna,  sem þeir hafa hingað til afsakað með því að segjast vera í "Stríði gegn Hryðjuverkum"?

Úff.


mbl.is Lendingar ákveðinna flugvéla hér á landi teknar til nánari skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRAMHALD FRÁ FRUMBURÐI

 

Barst eftirfarandi skeyti frá frumburði, rétt áðan og það hélt skemmtilegar fréttir frá Róm.  Niðurlag ímeilsins var eftirfarandi:

"Ekki gleyma ad taeknivaeddi frumburdurinn les tolvupost I friinu og skodar
blogg.
Helga Björk Laxdal hdl
."

Af hverju ætli stelpunni finnist nauðsynlegt að segja mér það?

Bítsmí eða ætti ég að segja Súmí?

Muhahahahahaha


KIMMI KARLINN..

18

.. með tónleika hér í nóvember.  Ég þangað.  Það er allveg geggjaður stemmari í mér fyrir Kimmaranum.  Við eigum það líka sameiginlegt að hafa búið á Sofiegården í Köben.  Hann meðan þar var hálfgert hreysi fyrir útigangsfólk, ég eftir að byggðar voru þar flottar íbúðir.  Ég er alltaf einu skrefi á undan..

Merki við á almanakinu, alveg á hreinu.

Nananabúbú!


mbl.is Kim Larsen með tónleika á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI MARGMÁL HÚN ELSTA DÓTTIR MÍN..

1

 

.. en hnitmiðuð og skýr og ekki er hún húmorslaus stelpan.  Var að fá eftirfarandi ímeil frá henni þessari elsku..

" Komin til Romar. Knus fra frumburdi med Blackberry og fjaerbudarmanni.
Helga Björk Laxdal hdl
."

Mér létti nokkuð enda með þungar áhyggur af Blackberry

Síjú

P.s. Mynd af frumburði með Maysunni og Jöklanum.


ÁTTA ÁRA EIN Í SUNDI, 12 ÁRA AÐ HEIMAN?

1

Kva.. stundum á ég ekki orð, það er þó sjaldan.  Átta ára gömul geta börn sem farið ein í sund.  Er í lagi með okkur?  Sendir einhver börn á þessum aldri börn án fylgdar fullorðinna á sundstaðina?? Það hlýtur að vera eitthvað að mér.  Ég er bara gapandi..

Súmí!


mbl.is Börn undir 8 ára verða að vera í fylgd með ábyrgðarmanni í sundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband