Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

OPINN Í BÁÐA?

22

Ég ætlaði nú ekki að vera með tvíræðni hérna í pistlinum en sá eftir að ég byrjaði að skrifa að fyrirsögnin gæti orkað tvímælisBlush.  Ég læt hana standa því þegar ég las meðfylgjandi frétt finnst mér eins og biskupinn okkar sé eins og Framsóknarflokkurinn, opinn í báða enda.  Hann slær úr og í og ekki er nokkur leið að draga nokkra ályktun á skoðun hans varðandi hjónabönd samkynhneigðra eftir lestur fréttarinnar.  Biskupinn viðurkennir vissulega að verklag kirkjunnar þyki varfærið og fálmkennt.  Hvað er þá málið? Getur kirkjan verið þekkt fyrir "fálmkennd" vinnubrögð?  Nú er prestastefna og lag að breyta.  Af hverju er kirkjan að vafstra með þetta mál?  Er það ekki þeirra að kippa réttindum samkynhneigðra til hjónabands í liðinn.  Að fólk skuli ekki geta fengið kirkjulega vígslu ef það æskir þess er náttúrulega bara mannréttindabrot.  Ég myndi taka ofan fyrir þessu prestabræðralagi ef þeir hoppuðu inn í nútímann.  Arg.. hvað ég verð pirruð yfir þessari hugsanavillu sem sendir þau skilaboð til samkynhneigðra að þeir séu eitthvað verri manneskjur en annað fólk.

Amen.


mbl.is Biskup segir skiljanlegt að verklag kirkjunnar þyki varfærið og fálmkennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FER DORIS Í NEBBANN LÍKA?

22

Ég læt andrei hjá líða að blogga um Keith þar sem hann er einn af mínum uppáhalds, verandi í Stones.  En maðurinn er bóksataflega alltaf í fréttum.  Nú vegna þess að mamma Doris var að deyja s.l. helgi.  Keith sat við rúmstokkinn hjá mömmu síðustu dagana.  Doris var 91 árs þegar hún dó. 

Nú er bara að bíða spenntur.  Fer mamman líka í nebban á stráknum? Ásamt einhverju hvítu ógeðisdufti sem heitir kókaín.  Hann fer nú varla að mismuna foreldrunum strákurinn?  Ha??


mbl.is Rokkaramóðir látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HIN KATÓLSKA KVENNAKÚGUN

22

Þeir toppa sig sífellt í Vatíkaninu á sjálfum heimavelli katólskunnar.  Innan þeirrar kirkju hefur viðgengist aldagömul kvennakúgun og barnamisnotkun eins og nýleg dæmi frá Bandaríkjunum sanna.  Konum hefur verið haldið niðri með ofbeldi, að fá ekki að skilja, mega ekki nota getnaðarvarnir né hafa umráðarétt yfir líkama sínum.  Heimilisofbeldi á meðal katólskra á Írlandi er gífurlegt vandamál svo einhver dæmi séu tekin.

Næst æðsti embættismaður kenningakerfisins í Vatikaninu fór í dag hörðum orðum um hjónabönd samkynhneigðra og segir þau vera af hinu illa.  Fóstureyðingar eru persónugert hryðjuverk segir þessi frómi kirkjunnar maður einnig.

Þessar kenningar og álit Vatíkansins eru slæm fyrir alla.  Konur og karla.  Það er erfitt að trúa því að þetta viðhorf sé ráðandi hjá svo valdamikilli stofnun sem Katólska kirkjan er árið 2007.  Mér verður hálf illt við að lesa þetta. 


mbl.is Vatíkanið segir fóstureyðingar vera hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ELDHEITT ÁSTARSAMBAND D OG B

22

Eftir að hafa horft á Kastljósið í kvöld er ekki lengur neinn vafi í huga mínum um að stjórnarflokkarnir þrá ekkert heitar en að halda áfram í ríkisstjórn.  Þvílík ást og gagnkvæm aðdáun.  Nú hélt ég að stjórnarflokkarnir gengu óbundnir til kosninga.  Það er amk. yfirlýst stefna þeirra.  Það var svo sannarlega ekki hægt að sjá það í kvöld.  Ég hefði getað trúað að þarna sætu fulltrúar eins flokks svo kært var með Magnúsi og Guðlaugi og í seinni hlutanum Þorgerði og Jóni.  Framsóknarflokkurinn er ekki að heyja sína eigin kosningabaráttu.  Hann rígheldur í hendina á stóra bróður og taumlaus aðdáun Jóns á gjörðum Þorgerðar Katrínar var með ólíkindum. Svo má reyndar spyrja sig hvers vegna þessi uppröðun hefur verið viðhöfð á þessum kosningafundum Kastljóssins til þessa.  Stjórnarliðar öðrum megin og stjórnarandstæðan í hnapp hinum megin.  Það er hreint frámunalega  hallærislegt en gæti komið sér vel fyrir D og B þar sem þeir vilja greinilega ekkert frekar en að fá að halda áfram saman í valdabandalaginu.

Ég held að þeir sem gæla við möguleikann á breyttu stjórnarmynstri eftir 12. maí ættu að hafa þessa miklu kærleika stjórnarflokkana í huga.  Það breytist ekkert í íslenskum sjjórnmálum ef stjórnin  nær lágmarksmeirihluta.  Þetta er heitasta ástarsamband þessarar aldar það sem af er.

 


CATCH 22

22

Ég get nú ekki á mér setið að blogga um þessa frétt.  Flest verður konum að meini.  Núna er búið að rannsaka 18.000 danskar hjúkkur og niðurstaðan er að áfengisneyslan auki líkur á brjóstakrabbameini.  Sem alka þá kemur mér auðvitað ekki á óvart að áfengi í óhóflegu magni geti valdið alls konar veikindum (sbr. mína eigin sykursýki) en það er að verða vandlifað fyrir konur vegna eilíflegra sektartrippa sem vísindin leggja þeim á herðar.  Við erum ömurlegar mæður ef við borðum þetta eða drekkum hitt á meðgöngunni. Jafn slæmar ef við drekkum EKKI þetta og EKKI hitt.  Bara svo eitt dæmi sé tekið. 

Þegar ég átti miðstelpuna mína hana Maysu sagði ljósmóðirin við mig í vandlætingar tón (Maysan var minnst minna stelpna sem voru þó agnir líka en hún var 10 merkur og 48 cm) "Sjáðu hvað hinar konurnar eiga stór og stæðileg börn.  Þitt barn er svona lítið vegna þess að þú reykir". Ég var svo hrædd við áktorítet á þessum tíma að ég þorði ekki að segja kerlu að ég hafi ekki reykt á meðgöngunni. Sumir eiga lítil börn aðrir mun stærri.

Burtséð frá þessu og aftur að fréttinni.  Rannsóknir sem þessar eru góðra gjalda verðar en ég man eftir skrilljón rannsóknum varðandi drykkju bæði manna og kvenna og hvað hún eigi að geta leitt af sér.  Þess vegna kippir þessi óvirki alki sér ekki upp við nýjar rannsóknir sem segja að áfengisdrykkja auki líkurnar á þessum eða hinum sjúkdómnum.  Það er þegar vitað að óhófleg áfengisneysla er alvarlegt heilsufarslegt vandamál sem orsakar oft alvarlega sjúkdóma.

Hófdrykkjufólk hlýtur að geta drukkið áfram með góðri samvisku án allrar líkindaspeki.

Sólin skín og hvað er búið að rannsaka oft að sólin geti beinlínis verið lífshættuleg (ekki að tala um gróðurhúsadæmið).  Það er vandlifað í þessum heimi.


mbl.is Áfengisneysla eykur líkur á brjóstakrabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FLOTT FRAMTAK HJÁ UVG

22

Flott átak hjá ungum vinstri-grænum en þeir ætla, í tilefni dags umhverfisins að gefa hverjum borgarfulltrúa tvo strætómiða ásamt leiðbeiningum um hvernig þeir komast að heiman og í vinnuna.

Ég er ein af þeim sem vill sjá veg almennings samgangna sem mestan en verð að játa það að samhæfiing á tímatöflum vagnanna svo og langur tími milli ferða hentar ekki nútímanum.  Í Köben tam. gengur strætó á fimm mín. fresti allan daginn.  Strætó á að vera ókeypis eins og á Akureyri, það myndi spara mikla peninga ef fólk nýtti þessar samgöngur í staðinn fyrir að vera með bíl á mann eins og sumstaðar er.  Algjör geggjun.

Æðislegt hjá krökkunum og allir í strætó!


mbl.is Gefa borgarfulltrúum strætómiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAKIN MEÐ LÁTUM

42

Í morgun var ég vakin við eitthvað sem ég hélt að væri jarðskjálfti.. Rúmið ásamt minni mikilvægu persónu hristist og hristist.  Ég hentist á fætur, skelfingu lostin og um leið og ég var komin í lóðrétta stöðu áttaði ég mig á því að hávaðinn sem fylgdi hristingnum var ærandi.  Ég þaut út á svalir og viti menn í húsinu beint á móti var verið að skipta um glugga og klukkan var rúmlega 7 að morgni.  Viðgerðarmennirnir voru með svona "hífara" æi svona tæki sem hendist með fólk upp á efri hæðir utanfrá (hlýtur eiginlega að heita lyfta) og börðu þar og lömdu eins og mest þeir máttu.

38

Ég hringdi samstundis á lögregluna sem sagðist myndu fara og taka niður lyftuna sem brummar svakalega.  Nei ég er að plata.  Mig langaði til að hringja á lögregluna, hjálparsveitir skáta, landhelgisgæsluna og Landsbjörgu en ég lét það eiga sig af því ég er svo vel upp alin og sparkaði í næsta vegg í staðinn og meiddi mig í fætninum.

Nú er klukkan að ganga tíu.  Enn leikur allt á reiðiskjálfi og ekki má heyra mannsins mál.  Vitið þið hvað tekur langan tíma að skipta um glugga? Sko með umgjörð og öllu því ég sé í kíkinum mínum (Blush) að þeir eru að rífa tréverkið upp með rótum.  Alveg svakalega agressivir þessir gluggaskitpingamenn. 


ÓDÝRT EN NÆST DÝRAST SAMT

22

Fyrirsögn Moggans  um lyfjakostnað er "HEILDSÖLUVERÐ Á LYFJUM ÞAÐ SAMA OG Á NORÐURLÖNDUM".  Í fréttinni kemur kemur svo í ljós að í gervallri Evrópu eru lyf dýrust hér, eða 60% yfir meðalverði, ef undan er skilið Sviss.  Smásöluverðið getur verið arfalágt en það er kostnaðurinn á lyfjunum með álagningu sem skiptir máli. 

Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri frumlyfjaframleiðanda á Íslandi segir að allir stjórnmálaflokkarnir hafi sent frá sér ályktanir og stefni á að lækka útsöluverð lyfja.   

Ég spyr þá hvers vegna ekki er búið að lækka útsöluverðið fyrir lifandis löngu í öllu þessu bullandi "góðæri"?  Það eru sjúklingar og aldraðir sem mest þurfa á lyfjum að halda og þeir tilheyra ekki oft hátekjuhópunum sem eru að fitna og fitna á góðærinu títtnefnda. Velmegunin hefur nefnilega ekki farið með ljósum logum um allt samfélagið, svo fjarri því.  Ég er alveg hörð á því að með óbreyttri ríkisstjórn íhalds og framsóknar verður ekki rokið í að minnka kostnað öryrkja og ellilífeyrisþega í lyfjamálum né í heilbrigðiskerfinu.  Vinstri stjórn er það sem koma skal og hananú.

8


mbl.is Heildsöluverð á lyfjum það sama og á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MATARSTULDUR FYRIR 5089 KRÓNUR

22

Það kallast varla þungur fangelsisdómur að fá þriggja mánaða fangelsi fyrir endurtekin búðarhnupl en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann fyrir að hafa í febrúar s.l. stolið matvöru að andvirði 5089 króna úr verslun Hagkaupa í Kringlunni.

Og þó.. miðað við fangelsisdómana sem barnaníðingar og nauðgarar eru að fá þá er í þessu hreint æpandi ósamræmi.  Ég er ekki að mæla búðarstuldum bót, svo langt frá því en misræmið í dómum eftir alvarleika brota er með ólíkindum.


mbl.is Þriggja mánaða fangelsi fyrir búðarhnupl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKIPTIR ÞAÐ EINHVERJU MÁLI..

22

..hvort Simon Cowell ranghvolfir augunum eða gerir sig rangeygðan í framan?  Ég spyr vegna þess að á meðan fjöldi fólks er að deyja úr hungri, vosbúð, sjúkdómum svo maður tali nú ekki um mannfallið í Írak og aftökurnar í Saudi-Arabíu sem eru í fréttum dagsins. Skotárásin í USA var skelfileg en nánast samtímis féllu um 170 manns í stríðinu í Írak. Það virðist ekki vekja nándar nærri eins mikil viðbrögð og fjöldamorðin í USA.  Líf er líf.   Uppúrveltingur fólks varðandi augnaráð Colwells þegar talað var um morðin í Virginu er einkennandi fyrir rörsýn okkar vesturlandabúa.  Hverjum ætti ekki að standa á sama hvað þessi oflaunaða sjónvarpsdíva er að hugsa svona yfir höfuð?  Mér gæti ekki staðið meira á sama.

 


mbl.is Simon ranghvolfdi ekki augunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.