Leita í fréttum mbl.is

MATARSTULDUR FYRIR 5089 KRÓNUR

22

Það kallast varla þungur fangelsisdómur að fá þriggja mánaða fangelsi fyrir endurtekin búðarhnupl en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann fyrir að hafa í febrúar s.l. stolið matvöru að andvirði 5089 króna úr verslun Hagkaupa í Kringlunni.

Og þó.. miðað við fangelsisdómana sem barnaníðingar og nauðgarar eru að fá þá er í þessu hreint æpandi ósamræmi.  Ég er ekki að mæla búðarstuldum bót, svo langt frá því en misræmið í dómum eftir alvarleika brota er með ólíkindum.


mbl.is Þriggja mánaða fangelsi fyrir búðarhnupl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Það þarf að laga refsirammann til,það er ljóst.

Ragnheiður , 23.4.2007 kl. 17:05

2 Smámynd: Didda

Já stundum spyr maður sig ???

Didda, 23.4.2007 kl. 17:18

3 Smámynd: Púkinn

Óskup er leiðinklegt að sjá hvernigþú ert að troða greinunum þínum í bloggflokka þar sem þær eiga alls ekki heima.  Þetta lítur illa út, eins og þú sért hrædd um að enginn lesi þetta annars, en þetta er líka svolítill dónaskapur gagnvart þeim sem reyna að setja greinarnar sínar á rétta staði og sjá þig síðan ýta þeim í burtu.Með öðrum orðum, þetta kemur ljóðum, bókum, menningu og listum, spilum og leikjum og sjónvarpi hreint ekkert við.

Vertu nú væn og lagaðu þetta. 

Púkinn, 23.4.2007 kl. 17:41

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Farðu nú að flokka þig, kerling!!! Hehehhehe, ég flokka allt undir blogg en nú klæjar mig í puttana að fara að sýna meiri fjölbreytni. Bloggið um Boldið gæti flokkast undir menning eða spil og leiki ... vá, hvað það verður gaman hjá mér! Múahahhahaha 

Guðríður Haraldsdóttir, 23.4.2007 kl. 18:10

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bæði myndlaus og nafnlaus púki tjillaðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2007 kl. 19:00

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jabb Gurrí mín en Boldið á allavega heima undir menning og listir og nottla spil og leikir. Múahahahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2007 kl. 19:31

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jedúdamía þarf maður nú að fara að flokka bloggið niður líka.  Svei mér þá,  

En hér er eitthvað mikið að í refsilagarammanum, hann er kominn langt út fyrir mörkin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2007 kl. 19:45

8 Smámynd: Ragnheiður

Æj hvað er þetta ! Maður getur ekkert sortérað allt sem maður er að skrifa með mismiklum alvarleika. Allt of margir flokkar hérna sko

Ragnheiður , 23.4.2007 kl. 20:33

9 Smámynd: Púkinn

Mér sýnist þú ekki átta þig á þeim dónaskap sem þú ert að sýna öðrum bloggurum með því að misnota aukaflokkakerfið svona.

Ég vona nú að þú leiðréttir þetta fljótlega.

Púkinn, 23.4.2007 kl. 21:56

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef aldrei lagt upp með neinn dónaskap og skil ekki alveg við hvað þú átt.  Ég skil þetta flokkunarkerfi greinilega ekki.  Mun kynna mér það og bið þig vinsamlegast um að láta þessu lokið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2007 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985762

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband