Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
GUÐ GEF MÉR ÞOLINMÆÐI - STRAX!!!!!!
Ææ, amman er á bömmer. Maysan mín, Robbi og barnabarnið mitt hann Oliver sem búa í London ætluðu að koma um helgina og vera hér fram á mánudag. En Oliver er kominn með hlaupabólu!Búhú Við amma Brynja höfum talið dagana og beðið spenntar ásamt allri stórfjölskyldunni en nú er ferðinni frestað þar til barn hefur náð bata. Maysuna hef ég ekki séð síðan í sumar og þá í mýflugumynd þegar Saran gifti sig. Oliver kom með pabba sínum rétt fyrir jól og síðan virðast liðin mörg ár. Vonbrigðin eru sár.
Hvernig bregst amman við?
Jú hún kaupir sér drakt. Geggjaða drakt. Ég skammast mín nottla fyrir neysluhyggjuna, (verandi vinstri græn og allt) að leita huggunar í fatakaupum, en svona er þetta samt. Ég mun æða um allt í draktinni.
Þannig er mál með vexti að eftir að ég varð edrú, féll hamurinn og ég fékk aftur fyrri líkamslögun, þe eldspýtulögunina. Þar sem ég var orðin eins og fíll af bjórdrykkju og krumpaðist síðan á mettíma niður í upphaflega stærð á ég það enn til að garga þegar ég geng fram hjá spegli vegna þess að í huganum er ég enn vel við vöxt.
Annars er æðislegt að vera alsgáð. Ég vakna glöð á hverjum degi og í sátt við Guðslu og menn. Ég mun henda mér á AA-fund í draktinni, spóka mig um allt og bíða þess þolinmóð (hm) að ég fái Lundúnabúana í heimsókn alveg á næstunni. Það stendur í fræðunum að góðir hlutir gerist hægt. Sem örgeðja konu gerast þeir full hægt stundum, svona fyrir mína síðu!
Bloggar | Breytt 18.4.2007 kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
FRÉTTAFÍKN
Ég er fréttafíkill. Horfi á fréttir beggja vegna og út um allan heim. Meira segja á þá innsnjóuðu fréttastöð Fox þegar ekkert betra býðst.
Ég er fastur áhorfandi Kastljóss. Þó það nú væri. Breiðavíkurmálið var ákaflega vel unnið og nauðsynleg umfjöllun. Enn ein uppljóstrunin um illa meðferð á börnum á Íslandi fyrr og nú!
En eitthvað er Kastljósinu að hraka. Mér finnst einhver "Familie Journal" bragur á því undanfarið.
Eins og ónýt hæfileikakeppni í dansmennt, raftónlist og fleiru slíku. Vonandi er þetta bara tímabundið. Ekki má gleyma hinum "frábæru" vísindainnleggjum. Hvað gerði ég áður en mér varð ljóst að ég gæti kveikt á eldspýtu með myndvarpanum? Maður hefði getað fengið sér sígó í miðjum fyrirlestri hérna í denn! Og húsráðið um hvernig kveikja má í steinull!. Skortur á vitneskju um þetta mikilvæga atriði hefur háð mér alla mína hunds og kattartíð og eflaust megninu af þjóðinni.
BTW: Hvar er Sigmar, þungaviktarmaður Kastljóssins að öðrum ólöstuðum nottla?
Hef kíkt á Ísland í dag svona með öðru og sé þáttakendur nánast í faðmlögum eins og rými þeirra í mynd sé á stærð við frímerki. NÁLÆGÐ in the exreme! Finnst það sem ég hef séð harla léttvægt Ég bíð þó spennt eftir að þetta breytist til batnaðar.
Ég er einarður aðdáandi Kompáss. Sit límd yfir því á netinu (er ekki með áskrift) en bestur finnst mér Egill. Hann klikkar aldrei!!
Ég fer og undirbý kvöldmatinn. Verð að sjá fréttir og Kastljós nottlaán þess að þurfa að pissa, ná í vatn eða svara í síma. Ég gæti misst af einhverju mikilvægu
Bloggar | Breytt 8.3.2007 kl. 02:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
GJAFMILD VINKONA Í VORHAM
Dúa vinkona mín er að gera hreint hjá sér fyrir sumarið! Vorhormónarnir dansa í henni trylltan dans og ég, eðalvinkona hennar, er fórnarlamb þessa æðis.
Það byrjaði um daginn með að hún bauð mér sem nýja uppþvottavél að gjöf. Bara að ná í maskínuna sem fyrst. Hver vill ekki uppþvottavél? Já takk mín kæra. 5 mínútum síðar hringir hún og spyr hvort mig langi ekki í kubba fyrir Jenny Unu, Vala sé hætt að nota þá. Sniðugt elskan tack så mycket. Hún segist setja þá inn í uppþvottavélina ofannefndu. Síðan fer símtölunum að fjölga. Vantaði mig rimlarúm fyrir fullorðna, ekki nógu breitt fyrir Dúu. Þetta er sögufrægt rimlarúm, því jólasveinninn tók feil á því og barnarúmi og Dúa fékk í skóinn alla Jólasveinavertíðina í desember s.l. Rúm jú, víst gat ég notað það þó ekki væri nema í geymsluna. Það verður væntanlega sett í hina belgvíðu þvottavél. Vantar mig málverk á veggina, æi þetta gráa og brúna sko! Ekki þetta rauða og græna. Þetta kallast að vera listblindur en überlitgreindur. Audda vill ég gráu og brúnu listina á vegginn. Vantar þig prentara Jenfo, sko laser, ekki í lit en hann ælir úr sér milljónum eitaka á sekúndu. Jabb vantar alveg svakalega svona prentara takk. Hann fer í þvottavélina líka.
Hér er stikað á stóru. Áður var þessi gjafmilda vinkona mín búin að koma ásamt Völuskotti til okkar Jenny Unu og gefa barnabarni mínu sparkbíl, sem Jenny sparkaði í á nóinu þar sem það er algjörlega rökvíst að sparkbílar eru til að sparka í. Fleira fékk Jennslubarnið frá þeim mæðgum í hreingerningarhamnum þám barnasíma, andastrollu sem brbra-ar þegar hún er dregin áfram ofl. ofl.
Það er öllum kunnugt að menningarheimili mitt hér í borg á lítið skylt við Fríkirkjuveg 11 svona stærðarlega séð, þannig að í bænum mínum í kvöld, um leið og ég bið fyrir vi. grænum, samfylkingu, börnunum mínum, barnabörnum og sveltandi heimi, mun ég læða ofurlítilli eigingjarnri ósk að mínum æðri mætti. Gæti hún séð sér fært að slá á hormónahaminn hjá Dúu Dásamlegu, því mig vantar ALLT sem hún býður en hef ekki ótakmarkað pláss.
AMEN
Bloggar | Breytt 18.4.2007 kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
AÐ BLOGGA EÐA EKKI BLOGGA?
Ég hef ákveðið að blogga. Hef samt aldrei séð fyrir mér að ég ætti það eftir. En ég vil ekki vera minni kona en tam Katrín og Ibba stórvinkonur mínar. Þær segja mér að þetta sé über-skemmtilegt.
Smá þankahríð: Um hvað get ég bloggað?
Um:
..gleði mína með vinstri græna, um allar þær sterku konur sem eru þar í framvarðasveit.
..barnabörnin mín, Jökul Bjarka, Jenny Unu og Oliver Einar ofurbörn
..um það að vera óvirkur alki í bata
..um það að vera virkur alki á grafarbakkanum en að það sé að baki
..um hversu stolt ég er af stelpunum mínum
..um hversu góðar vinkonur ég á
..um þjóðmál
..um gleði mína með að klámráðstefnan var blásin af
..um væntingar mínar til vinstri stjórnar félgshyggjuflokkanna í vor
..um allt þetta og margt fleira get ég tjáð mig og á eflaust eftir að gera
Nú.. þá er bara að vinda sér í málin og bretta upp ermar. Ég þarf að læra að setja inn myndir því hvað er blogg án mynda?
Sólin skín og þetta er yndislegur dagur
Bloggar | Breytt 8.3.2007 kl. 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr