Leita í fréttum mbl.is

AÐ BLOGGA EÐA EKKI BLOGGA?

 

 blogg11

Ég hef ákveðið að blogga.  Hef samt aldrei séð fyrir mér að ég ætti það eftir.  En ég vil ekki vera minni kona en tam Katrín og Ibba stórvinkonur mínar.  Þær segja mér að þetta sé über-skemmtilegt.

Smá þankahríð: Um hvað get ég bloggað?

 Um:

..gleði mína með vinstri græna, um allar þær sterku konur sem eru þar í framvarðasveit.

..barnabörnin mín, Jökul Bjarka, Jenny Unu og Oliver Einar ofurbörn

..um það að vera óvirkur alki í bata

..um það að vera virkur alki á grafarbakkanum en að það sé að baki

..um hversu stolt ég er af stelpunum mínum

..um hversu góðar vinkonur ég á

..um þjóðmál

..um gleði mína með að klámráðstefnan var blásin af

..um væntingar mínar til vinstri stjórnar félgshyggjuflokkanna í vor

..um allt þetta og margt fleira get ég tjáð mig og á eflaust eftir að gera

Nú.. þá er bara að vinda sér í málin og bretta upp ermar.  Ég þarf að læra að setja inn myndir því hvað er blogg án mynda?

Sólin skín og þetta er yndislegur dagur

 

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ibba Sig.

Velkomin á bloggið, hlakka til að lesa um allt ofangreint. Vertu dugleg að skrifa svo maður hafi ástæðu til að kíkja hér inn a.m.k. daglega.  

Ibba Sig., 26.2.2007 kl. 15:28

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ibbs! Your wish is my command.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2007 kl. 15:37

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju.

Ég er enn að safna kjarki til að byrja..... en stefni á að verða algert hitt

Hrönn Sigurðardóttir, 26.2.2007 kl. 16:55

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir....Mundu eftirfarandi þegar þú rekst á það bráðum. Your wish is my command!!! You will not know what hit you in a lovely way...hehehe. Bloggedí blogg..og byrja svo.

Hrönnsla mín...þetta er eins og rithöfundarferillinn minn..er enn að safna kjarki til að byrja fyrir alvöru.... en stefni á að verða algert hitt

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.2.2007 kl. 17:16

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Get ekki beðið Katrín! Ætlar þú að hjálpa vinkonu þinni með myndirnar? Er algjörlega "bewildered and betrayed" varðandi þetta einstaka atriði.

Komasho

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2007 kl. 17:19

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

DD láttu ekki eins og banani.  Ég ætla ekki að kommentera á þetta með klámráðsefnuna, tilganginum er náð, hún verður ekki haldin.  Auli!

Bloggið mitt verður ekki fréttablogg en þú mátt gjarnan fiðra mig og tjarga ekki nauðsynlega í þessari röð

Ég elska þig líka

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband