Leita í fréttum mbl.is

GJAFMILD VINKONA Í VORHAM

 jenny7

Dúa vinkona mín er að gera hreint hjá sér fyrir sumarið! Vorhormónarnir dansa í henni trylltan dans og ég, eðalvinkona hennar, er fórnarlamb þessa æðis.

Það byrjaði um daginn með að hún bauð mér sem nýja uppþvottavél að gjöf. Bara að ná í maskínuna sem fyrst.  Hver vill ekki uppþvottavél? Já takk mín kæra.  5 mínútum síðar hringir hún og spyr hvort mig langi ekki í kubba fyrir Jenny Unu, Vala sé hætt að nota þá. Sniðugt elskan tack så mycket. Hún segist setja þá inn í uppþvottavélina ofannefndu. Síðan fer símtölunum að fjölga. Vantaði mig rimlarúm fyrir fullorðna, ekki nógu breitt fyrir Dúu. Þetta er sögufrægt rimlarúm, því jólasveinninn tók feil á því og barnarúmi og Dúa fékk í skóinn alla Jólasveinavertíðina í desember s.l. Rúm jú, víst gat ég notað það þó ekki væri nema í geymsluna. Það verður væntanlega sett í hina belgvíðu þvottavél. Vantar mig málverk á veggina, æi þetta gráa og brúna sko! Ekki þetta rauða og græna. Þetta kallast að vera listblindur en überlitgreindur. Audda vill ég gráu og brúnu listina á vegginn. Vantar þig prentara Jenfo, sko laser, ekki í lit en hann ælir úr sér milljónum eitaka á sekúndu. Jabb vantar alveg svakalega svona prentara takk.  Hann fer í þvottavélina líka.

Hér er stikað á stóru.  Áður var þessi gjafmilda vinkona mín búin að koma ásamt Völuskotti til okkar Jenny Unu og gefa barnabarni mínu sparkbíl, sem Jenny sparkaði í á nóinu þar sem það er algjörlega rökvíst að sparkbílar eru til að sparka í. Fleira fékk Jennslubarnið frá þeim mæðgum í hreingerningarhamnum þám barnasíma, andastrollu sem brbra-ar þegar hún er dregin áfram ofl. ofl.

Það er öllum kunnugt að menningarheimili mitt hér í borg á lítið skylt við Fríkirkjuveg 11 svona stærðarlega séð,  þannig að í bænum mínum í kvöld,  um leið og ég bið fyrir vi. grænum, samfylkingu, börnunum mínum, barnabörnum og sveltandi heimi, mun ég læða ofurlítilli eigingjarnri ósk að mínum æðri mætti. Gæti hún séð sér fært að slá á hormónahaminn hjá Dúu Dásamlegu, því mig vantar ALLT sem hún býður en hef ekki ótakmarkað pláss.

AMEN

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ibba Sig.

Þessi hormónaDúa vill kannski koma heim til mín og flytja draslið þaðan til þín Jenný? Ha? Hvernig hljómar það sem plan?

Ibba Sig., 27.2.2007 kl. 11:22

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Og ekki væri hún óvelkominn í bílskúrinn hjá okkur. Jenný vantar þig bökunarofn eða terpentínu? Gamla en vel nothæfa íþróttaskó eða blettóttan svefnpoka? Mjög hlýr.

Eins gætum við notað hormónatrippi til að pakka..þrífa...hreinsa teppin og þvo gluggana. Maður getur ekki bæði verið á kaffihúsi. bloggað og gert allt hitt líka. Segir sig sjálft.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.2.2007 kl. 11:32

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tek við, tek endalaust við mínar kæru. Opið milli 5-5,30 alla virka daga. Nb. frá 5 að morgni, Skilið????

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.2.2007 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband