Leita í fréttum mbl.is

GUÐ GEF MÉR ÞOLINMÆÐI - STRAX!!!!!!

 oliver5

Ææ, amman er á bömmer.  Maysan mín, Robbi og barnabarnið mitt hann Oliver sem búa í London ætluðu að koma um helgina og vera hér fram á mánudag.  En Oliver er kominn með hlaupabólu!BúhúCrying Við amma Brynja höfum talið dagana og beðið spenntar ásamt allri stórfjölskyldunni en nú er ferðinni frestað þar til barn hefur náð bata.  Maysuna hef ég ekki séð síðan í sumar og þá í mýflugumynd þegar Saran gifti sig.  Oliver kom með pabba sínum rétt fyrir jól og síðan virðast liðin mörg ár.  Vonbrigðin eru sár.

Hvernig bregst amman við?

Jú hún kaupir sér drakt.  Geggjaða drakt.  Ég skammast mín nottla fyrir neysluhyggjuna, (verandi vinstri græn og allt) að leita huggunar í fatakaupum, en svona er þetta samt.  Ég mun æða um allt í draktinni.

Þannig er mál með vexti að eftir að ég varð edrú, féll hamurinn og ég fékk aftur fyrri líkamslögun, þe eldspýtulögunina.  Þar sem ég var orðin eins og fíll af bjórdrykkju og krumpaðist síðan á mettíma niður í upphaflega stærð á ég það enn til að garga þegar ég geng fram hjá spegliSick vegna þess að í huganum er ég enn vel við vöxt.

Annars er æðislegt að vera alsgáð.  Ég vakna glöð á hverjum degi og í sátt við Guðslu og menn. Ég mun henda mér á AA-fund í draktinni, spóka mig um allt og bíða þess þolinmóð (hm) að ég fái Lundúnabúana í heimsókn alveg á næstunni. Það stendur í fræðunum að góðir hlutir gerist hægt. Sem örgeðja konu gerast þeir full hægt stundum, svona fyrir mína síðu!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ibba Sig.

Iss, hverju skiptir ein heimsókn frá útlöndum þegar þú getur verið lekker vinstri græn í dragt!

Heldurðu að þú verðir ekki rekin úr flokknum? Áttu ekki að vera í mussu og fótlaga skóm? 

Ibba Sig., 28.2.2007 kl. 13:20

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

...og með svarthvítt sjónvarp!! Ibbs róleg á fordómunum

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 13:33

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Draumaferðin er til Kúbu Dúa mín, en ég vel að sjálfsögðu DRAKT fram yfir ferðalög hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 14:40

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleymdi að geta þess að maður flytur sig stundum á milli flokka.  Alltaf á ferðinni á milli þessara tveggja mögulegu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 17:01

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það þýðir ekkert að vera alltaf að skipta um skoðun og stíl. Farðu í það sem þú klæddist áður og aftur í kvennalistann. Fólk heldur að þú sért örgeðja ef þú hagar þér svona!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 17:45

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kvennalistann kva???? Aldrei verið þar!! Þekkti ekki minn vitjunartíma darling. Er draktarkona að upplagi. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 17:57

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Barnabörnin þín eru dúllur sem eiga fína allsgáða ömmu í dragt. Heppin þau

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.2.2007 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband