Færsluflokkur: Spil og leikir
Þriðjudagur, 18. desember 2007
Hurðaskellir fautinn sá
Íslensku jólasveinarnir eru auðvitað bölvað pakk.
Það ætti öllum að vera ljóst.
Ef þeir væru til í alvörunni, sætu sumir þeirra inni "big time" enda má sjá að dómar fyrir matarstuld (hangilæri og lifrarpylsa þau nýlegustu), kalla á hörð viðbrögð dómskerfisins
Kannski voru nýlega dæmdir matarþjófar, alvöru jólasveinar.
Hvað um það..
Hurðaskellir er verstur.
Þeir sem skella hurðum eru ekkert annað en ótýndir ofbeldismenn.
Það er bara krúttlegt að lesa um kallinn, en hvernig haldið þið að það sé að búa með einum?
Allt árið. Einhver kúgari sem fær raðf...... af að láta heyra í sér, gera öllum hverft við.
Ég kann svei mér þá, betur við Kóksveininn. Hann er vel haldinn, drekkur bara kók og veður ekki inn á skítugum skónum.
Flott að fá fólk inn strompmegin.
Ég afneita hér með hinum íslensku durgum sem kallast jólasveinar.
Vil ekki sjá þá í mínum húsum.
Falalalalalala
Mánudagur, 17. desember 2007
Í sönnum jólaanda
Maður á Selfossi vaknaði við að allir jólapakkarnir til ástvinanna voru horfnir úr húsinu og ekkert merki var um innbrot. Síðar kom í ljós að einhver nákominn húsráðandanum hafði tekið pakkana til að kenna honum lexíu, en hann hafði ekki læst húsinu.
Fólk eins og þessi maður þarf enga óvini. Þessir "nákomni" sér alveg um þá deild og vel það.
Dásamlegt að fá svona hugmyndir fyrir jólin, svona til að kæta fólkið sitt. Sannur jólaandi.
Vó hvað þetta yrði gert aðeins einu sinni við hana mig.
Ég skildi Möggu hans Þórbergs sem skammaði hann fyrir að koma lifandi heim, þegar hann gleymdi að láta vita af sér og lenti á kjaftatörn og hún var búin að láta auglýsa eftir þessu stórkrútti, sem alltaf var á dottinu annars. Konunni var orðið heitt í hamsi...En
..ekki að Þórbergur og Magga eigi endilega heima hér í þessu samhengi en samt kom mér þetta í hug þegar ég las viðtengda frétt af vesalings manninum þarna í Þvagleggnum. Hvernig sem nú stendur á því.
Borgararnir í Árborg láta verkin tala, engar innantómar hótanir - ónei!
Falalalalala
Jólagjafir eru þó í húsi.
P.s. Ég gæti tekið Gretchinn (rándýra rarítetsgítar húsbands), falið hann fram að jólum, gert hann miður sín, látið hann tilkynna hvarf til löggu og gefið honum hann svo á aðfangadagskvöld. Tammtarara! Hann á nefnilega til að leggja hann full kæruleysislega frá sér, þessi elska. Hann myndi þá passa hann betur, eða hvað?
Ég yrði elskuð, elskuð ofar öllu.
Farin í málið.
Jólapakkarnir hurfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Sunnudagur, 16. desember 2007
Smá krúttsería
Maysa og Robbi eru búin að týna myndavélinni sinni og það er fátt um myndir frá London af þeim sökum. Amma-Brynja reddar þó því sem reddað verður, þessi elska og var að setja inn myndir frá því í nóvember, þegar Robbi útskrifaðist.
Fyrir vini, fjölskyldu og aðra velviljaða, set ég hér inn nokkrar myndir.
Maya og Robbi flott á því og Maysan pósar fyrir mömmu sína
Knús fyrir nóttina svo er horft á eitthvað spennandi
Oliver elskar ömmu-Brynju Tammtatamm.. Robbi útskrifaður
Laugardagur, 15. desember 2007
Úje - Súmí - Bítmí - Bætmí
Á mánudaginn mæti ég niður á Umferðarstofu og tryggi mér eitthvað af ofannefndum bílnúmerum. Úje er mitt merki, hin reyndar líka og ég skal finna þann í fjöru sem fer inn á mitt svið hérna.
Ætli það megi ekki vera með númer eins og hálfviti, vanviti, mergsugur, neyðarhemill, fullur, reiður, trúarnöttari og þ.u.l.?
Ég tékka á þessu á mánudaginn og læt vita. Spennandi ekki satt?
En af hverju vildi maðurinn á Akranesi ekki hafa GAY 17 á bílnum sínum?
Gay þýðir glaður eða kátur.
Hmm...
Bítsmí.
Úje
Blátt bann við dónalegum bílnúmerum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 14. desember 2007
Fullorðinsbjánar?
Er það góð auglýsing fyrir "Just4kids" að það komi í fréttum að þeir hafi miskunnað sig yfir leikfangaglaða Íslendinga sem voru komnir í biðröð fyrir utan búðina í óveðrinu (með börn sumir), þrátt fyrir ítrekuð tilmæli frá lögreglu og öðrum sem vinna við að halda í horfinu, núna í morgun fyrir opnun búðar? Já, nokkuð sætt af þeim að opna aðeins fyrr, af því röðin fyrir utan var komin í "lárétta" stöðu eins og maðurinn sagði. Líka nokkuð góður leikur hjá þeim að troða sér í blöðin af tilefninu, það geysar jú verðstríð, segja þeir.
En er það góð auglýsing fyrir Íslendinga að gefa skít í svona fyrirmæli og ana af stað með börnin sín til að geta flippað út í leikfangabúðinni? Held ekki. Gæti reyndar sagt ýmislegt fleira um hvað mér finnst en ætla að sleppa því.
Róleg meðan ég öskra á mig hása.
Hin tveggja ára Jenný Una Eriksdóttir gæti kennt sumum foreldrum eitt og annað, því áðan sagði hún við mig í símann: Amma þú mátt ekki fara út í vonda verrinu. Þa e mjög mjög hættulett. Heyrið þið það ábyrgðarleysisfrömuðir.is
Það er ekki eins og það sé verið að fara í nauðsynlegar ferðir hérna. Leikföng minn afturendi.
Fruuuuuuuuuuuuuuuuussssssssssss
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Þriðjudagur, 11. desember 2007
Bloggarar með jólasveinahúfur
Jesús minn hvað það er orðið jólalegt í bloggheimum. Annarhver bloggari er búinn að troða jólahúfu á hausinn á sér og það framkallar hvert krúttkastið á fætur öðru, hjá mér sko. Fólkið er misfært á tækin og tólin sem notuð eru til að skella inn þessum höfuðfötum, sumstaðar lenda húfurnar á ská, yfir auga, fram á enni eða aftur á hnakka. Arg svo sætt.
Svo vandast málin þegar umræðan harðnar. Í athugasemdakerfum bloggheima, er verið að ræða alvarlega hluti stundum, og fólk alveg bálreitt og vill undirstrika meiningar sínar eins og t.d.: "Steinþegiðu hálfvitinn þinn" eða "Meira femínistabullið í þér kelling" eða "Þetta verður ekki þolað lengur". Og höfundurinn grafalvarlegur á meðfylgjandi mynd með jólahúfu og hana ofan í augu eða aftur á hnakka.
Þá liggur maður í hlátri og kemst í þetta líka bráðskemmtilega jólaskap.
Takk jólasnúðarnir mínir.
Ég elska bloggara með jónsveinahúfur.
Falalalalala
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Þriðjudagur, 4. desember 2007
Jólastemming í tali og tónum..
eða.. í tónum ef þið kaupið nýja jólalagið frá Baggalút.
Hér í húsi er undirbúningur undir jólin á fullu blasti. Úje.
Út um eldhúsgluggann sé ég blokk og þar gefur á að líta eina sundurleitustu jólaskreytingu mannkynssögunnar, þ.e. hvað varðar liti lögun og skreytingaraðferðir. Mér finnst það lýsa svolítið einstaklingseðli Íslendingsins, að búa með öðrum en gefa fjandann sjálfan í alla sýmmetriu og skreyta sjálfstætt. Ekkert samvinnukjaftæði neitt.
Mér finnst þetta krúttlegt, jafnvel þó blokkin, sé á að líta eins og vafasamur samkomustaður fyrir perra sem ferðast til ónefndra Asíulanda í svínslegum tilgangi.
Á einum stað er búið að skreyta jólatré. Mér varð svo mikið um að ég hringdi í jólalögregluna og kærði viðkomandi.
Annars er ég að baka, hvað annað, fellur aldrei verk úr hendi í desembermánuði, ég er svo svakalega jóluð á því.
Nú er ég að hlusta á jólalög með Frank Sinatra, búin að kveikja á kertum og ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi.
Falalalalala
Baggalútur í jólafíling | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Sunnudagur, 25. nóvember 2007
Frunsur og brotnar neglur!
Frost í dag víðast hvar. Já, já, segið mér fréttir.
Ég vaknaði fyrir allar aldir með Jenný Unu Eriksdóttur, og hárið á mér hefur verið límt við andlitið á mér síðan. Ég get ekki snert nokkurn skapaðan hlut án þess að fá straum. Mér er kallt.
Það myndi toppa ástandið á þessum frostkalda degi ef ég fengi frunsur og brotnar neglur.
Toppurinn á tilverunni.
Annars bara góð.
Góðann daginn.
Læt fylgja með eina mynd af Jenný Unu þegar hún var pínulítil og hafði stolist upp á borð.
Krútt.
Víða talsvert frost í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 22. nóvember 2007
Af málfarslegum framförum ofurkrútts!
Jenný Unu Eriksdóttur, verður seint orða vant, eins og lesendur þessa fjölmiðils vita, þrátt fyrir að hún verði ekki þriggja árrra fyrr en 30. desember n.k.
Í gærkvöldi var mamma hennar að ná í bækur til að lesa fyrir svefninn og Jenný sagði:
"Mamma setja bækurnar héddna" (bendir á sængina sína).
Mamman lufsar bókum á rúmið og greinilega ekki á réttan stað því Jenný segir ákveðin;
"Setja héddna manneskja". Mamman í sjokki og furðu spyr:
"Hvað sagðirðu Jenný mín?"
"É saðði héddna manneskja!
Jenný Una fór í Ikea í gær með mömmu sinni og pabba og þau fengu sér að borða. Við matarborðið lítur barn upp, horfir lengi og stíft á pabba sinn og segir:
"Pabbi, þú ert líka fólk"
(Pabbinn rosalega ánægður og talsvert létt). Svo..
"Ér fólk, mamma mín er fólk og pabbi er fólk, við gott fólk". Ok, ok so far so good.
Þegar Jennýju er bannað eitthvað þessa dagana segir hún fullum fetum:
"Émáða alveg, amma mín segir já".
Ég veit, ég verð að setja barni mörk.
Ég er ákveðin í að gera það... sko í janúar
Góða og sofið fallega í nóttinni.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 01:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 19. nóvember 2007
Nú ætla ég að blogga um jólatré - Varúð - Ekki fyrir viðkvæma
Nú blogga ég um jólatré.
Jólatré eru dásamleg.
Þau lykta vel og eru sígræn.
Fólk skreytir þau og kveikir síðan á þeim með ljósaseríum.
Seríurnar geta verið einlitar og marglitar, allt eftir smekk.
Svo er sett skraut á toppinn, sem oft er engill eða stjarna.
Ég keypti mér ógeðslega flott gervijólatré í fyrra (165 cm. s.s. stærri en ég sjálf).
Það gerði ég af því ég fann á mér að það yrði hörgull á jólatrjám í Evrópu í ár.
Hm.. Ef einhverjum finnst að sér vegið með þessari jólatrésfærslu, þá er ég magnaður bloggari.
35 dagar til jóla og
skreytum hús með greinum grænum (eða grænum greinum).
Falalalalala!
Norðmenn flytja út jólatré til Þýskalands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 11
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 74
- Frá upphafi: 2987142
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr