Leita í fréttum mbl.is

Hurðaskellir fautinn sá

Íslensku jólasveinarnir eru auðvitað bölvað pakk.

Það ætti öllum að vera ljóst.

Ef þeir væru til í alvörunni, sætu sumir þeirra inni "big time" enda má sjá að dómar fyrir matarstuld (hangilæri og lifrarpylsa þau nýlegustu), kalla á hörð viðbrögð dómskerfisinsWhistling

Kannski voru nýlega dæmdir matarþjófar, alvöru jólasveinar.

Hvað um það..

Hurðaskellir er verstur.

Þeir sem skella hurðum eru ekkert annað en ótýndir ofbeldismenn. 

Það er bara krúttlegt að lesa um kallinn, en hvernig haldið þið að það sé að búa með einum?

Allt árið.  Einhver kúgari sem fær raðf...... af að láta heyra í sér, gera öllum hverft við.

Ég kann svei mér þá, betur við Kóksveininn.  Hann er vel haldinn, drekkur bara kók og veður ekki inn á skítugum skónum. 

Flott að fá fólk inn strompmegin. 

Ég afneita hér með hinum íslensku durgum sem kallast jólasveinar.

Vil ekki sjá þá í mínum húsum.

Falalalalalala


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Púkanum í mér finnast þessir kauðar bráðskemmtilegir, að minnsta kosti úr fjarlægð. Ég skal ekki segja hvernig brugðist yrði við ef maður þyrfti að búa með einum þeirra - hverjum sem er.

Það er allt önnur Ella!

En Kóksveinninn hlýtur að hafa þurft að fá falskar tennur skömmu eftir fæðingu miðað við meinta óhollustu vökvans.

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.12.2007 kl. 10:31

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 18.12.2007 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31