Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Ást og friður

Svei mér þá ef fyrrverandi Frjálslyndi er ekki jafn órólegur og sumir nýir flokkar á Alþingi.

Við nefnum engin nöfn.

Allt verður þeim að meini.

Hvenær hætti fólk að geta talað saman og leyst úr málum?

Ég bara skil etteggi.

Er ekki hægt að finna sér stað í friði á jörðu, ást og gleði?

Okei, ekki sannfærandi en mikið rosalega er ég þreytt á skemmileggjandi stjórnmálaöflum.

Munur en ég - kem með friði og elska alla.

Ég lýg því auðvitað eins og ég er löng til (162 cm í réttstöðu og á hælum - djók).

En ég er í góðu skapi.

Ætla mér stóra hluti.

En fyrst ætla ég að færa mitt alkunna og fagra menningarheimili úr 105 í 101, þar sem ég mun ástunda fagurt mannlíf og heilbrigt líferni í framtíðinni.

Og farið með friði börnin góð.

Pís lof and happíness.

Úje.


mbl.is Saka Ólaf F. um fjárdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða foss eretta?

bjarki_mr_magnsson_jpg_550x400_q95

Ég hef mikinn áhuga á fossum.

Sá þessa mynd á DV og er búin að velta þessu mikið fyrir mér.

Eru þetta Hraunfossar?

Sé ekki alveg myndina vegna Bjarka Más Magnússonar sem var dæmdur fyrir skelfjalaust ofbeldi á fyrrverandi sambýliskonu sinni um daginn.

Mál án hliðstæðu segir fólk.

En ég myndi ekkert vera að dreifa myndum af honum til að sem flestir sjái hvernig hann lítur út, eða þannig.

Það er sko fossinn sem ég hef áhuga á.

Pjúra fossaðdáandi.

Eru þetta Hraunfossar eða hvað?

Einhver?

Látið spurninguna berast.


Aumingja Erill krúttfrömuður talar tveimur tungum

Erill Ónæðisson 

Elsku Erill, ætlar seint að sjá ljósið.

Þá er ég ekkert að tala um að þessi síglaði djammari þurfi að fara í meðferð, ónei, enda er ég viss um að karlinn á nokkrar að baki.

Nei, ég er að tala um hversu dýrt þetta er fyrir hann að búa úti í bæ en eiga sér fast aðsetur hjá löggunni um helgar.

Ég man ekki eftir einni einustu helgi síðan netmogginn varð staðreynd að Erill væri ekki í helgardvöl hjá löggunni.

Mogginn segir alltaf frá því samviskusamlega.

Kannski eru þeir að senda Erli félaganum óbein skilaboð.

Erill minn vertu bara heimilisfastur á Hverfisgötunni.

Þá getum við hætt að láta mömmu þína vita í gegnum Moggann að þú sért heill á húfi.

Svo gæti Mogginn kallað skóflu skóflu í staðinn fyrir að klína öllu á Eril einan.

Segja hlutina eins og er:

Það var allt vaðandi í ógeðslegu fylleríi eins og vanlega um helgina.

Migið utan í hús, ælt á gangstéttina og fjöldi manns reyndi að fyrirkoma hvert öðru.

Það er íslenska sem lýsir ástandinu vel.

Aumingja Erill.

Vegna allra minna fjölþóðlegu lesenda víða um heim þá kemur færslan beint úr þýðingarvélinni, svona líka glæsileg.

Elsku Erill,'re late to see the light.

Then I am not talking about that síglaði party needs to go into treatment, Oh, as I am sure that man of few behind.


No, I'm talking about how expensive it is for him to live out in town but have a fixed place of cops on the weekends.

I remember not by one individual weekend since netmogginn became fact that Erill would not helgardvöl the police.

Mogginn's conscience ever since.

Perhaps they send indirect messages Erli partner.

Erill my be just a resident of the Hverfisgötunni.

Then we stopped to let your mom know through the Posts that you complete at stake.

So could Mogginn called shovel shovel instead of Klint all the Eril alone.

Say things like is:

It was all in vaðandi disgusting fylleríi as vanlega weekend.

Migið outside the house, ælt gangstéttinni and the number of people tried to come to each other.

It is Icelandic, which describes the situation well.

Poor Erill.


mbl.is Erill hjá lögreglu í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af uppskafningum og útlensku bjargráði

Vá, nú renna upp góðir tímar.

Íslenska komin í gúggúl þýðingarvélina.

Ég ætla að láta þýða ýmsar þingræður sem ég hef átt erfitt með að skilja yfir á ensku eða sænsku og athuga hvort ég fæ ekki botn í þær á erlendu tungumáli.

Getur ekki orðið þvælnara en á frummálinu, kannski leynist þar glóra ef ég er heppin.

Finnska gæti komið betur út en íslenskan hjá sumum mætum þingmönnum.

Rakastastinúa.

Svo langar mig í tilefni sunnudagsins að fá smá útrás yfir orðanotkun ákveðinnar starfsstéttar við Austurvöll.

Málið er að það er allt fullt af málfarsfasistum sem troða sér inn í athugasemdakerfi fólks á blogginu og leiðrétta það stöðugt.

Málfarsbloggin eru hins vegar fróðleg og skemmtileg og ég les þau með mikilli ánægju.

Ég get þolað bæði sjálfri mér og öðrum að verða á í messunni málfarslega en ég þoli ekki uppskrúfað málfar og yfirborðsmennsku í tali og þegar ég rekst á það - nú þá hætti ég að hlusta.

Sumir þingmenn eru alltaf að "koma fram fyrir þjóð sína" og þeir eru með svo miklar áhyggjur af "þjóðinni sinni".

Gússí-gússí.

Þjóðin mín; ég gæti gubbað.

Djöfuls hroki.

Hvernig væri að tala um "þjóðina" og vera meðlimur hennar heldur en að tala um hana eins og fóstra talar um börnin sín.

Birgitta í Borgarahreyfingunni notar t.d. mikið "þjóðin mín".

Getur verið að þingkonan noti þennan stíl svona almennt?

Að henni sé "illt í augunum sínum" af þreytu?

Svöng í "maganum sínum"eftir langar fundasetur yfir Icesave?

Óánægð með "sjónvarpsdagskránna sína" þegar á að slappa af yfir RÚV á síðkvöldum.

Birgitta er ekki ein um þetta uppskrúfaða og væmna málfar sem setur mig tafarlaust í öflugt pirringskast.  Það eru þó nokkrir sem fara á kostum í uppskafningadeildinni.  Sigmundur Ernir er annað dæmi sem ég man eftir í augnablikinu.

Í staðinn fyrir að fara hamförum yfir þágufallssýki og einstaka enskuslettum í bloggi (blogg er talmál gott fólk) þá mætti biðja þetta fólk sem lufsast hefur inn á þing, margir fyrir hrein mistök, að tala mannamál og að það hætti að standa í pontu með sínar prívat sjálfshátíðir, talandi niður til "þjóðar sinnar".

Plís "Birgittan mín" og þið hinir "þingmennirnir mínir".

Komið endilega út úr sjálfshátíðartjandinu og takið ykkur sæti með oss hinum.

Afsakið meðan ég teygi mig í ostaskerarann minn og sneiði af mér aulahrollinn minn.

Lalalalala.

Og hefjast nú leikar.


mbl.is Íslenska í þýðingarvél Google
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunaflokkurinn berst um á hæl og hnakka

Leynt og ljóst hafa Bjarni Ben og Sigmundur Davíð unnið að því að koma því þannig fyrir að stjórnin falli.

Það er auðvitað eðlilegt að stjórnarandstaða sækist eftir að komast á bekkinn en það er til háborinnar skammar að hegða sér svona á þessum erfiðu tímum í sögu þjóðarinnar.

Málefni og hagur þjóðarinnar hafa verið sett til hliðar en klækjastjórnmál hafa ráðið allri framgöngu þessa fólks, allt gert til að komast að kjötkötlunum.

Ég á orðið í erfiðleikum með að fylgjast með í þinginu vegna framíkalla frá stjórnandstöðunni sem hagar sér eins og götustrákar af báðum kynjum (fyrirgefið götustrákar).

Nú þarf ég ekki að velkjast í vafa lengur um hver áform BB og félaga eru.

"Verði fyrirvörunum við ríkisábyrgð á Icesave-samning ríkisstjórnarinnar hafnað, verði ekki fallist á skilaboðin frá Alþingi, er ég jafnframt þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin eigi að segja af sér,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á opnum fundi í Valhöll í morgun."

Hrunaflokkurinn ætlar ekki að gera það endasleppt.

Bjarni Ben ætar að troða sér í stjórn.

Ég veit að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn leggja mikið á sig núna.

Það þarf að verja gamla valdabatteríið, koma í veg fyrir breytingar og pólitísk uppgjör.  Sannleikurinn má ekki verða ljós.

Þeim má ekki verða kápan úr því klæðinu.


mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Firring.com

 silkbed

Er ekki komið nóg af þessu rugli með Michael Jackson?

Flytja sæði hans til Englands til að koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar komist í það og noti það til að geta nýjan erfingja að auðæfum hans!

Nei annars, ég læt þetta eiga sig.  Það er ekki um þetta bloggandi.

Það hlýtur að vera að engir séu óprúttinir á Englandi og að þetta rugl allt saman sé í hæsta máta eðlilegt.

Farin að leita að sjálfspyntingarkittinu og fakírbretti til að jafna mig á.

Þetta á eftir að ganga frá mér hvort sem er.

Firring.com.


mbl.is Sæði Jacksons til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er alls ekki frétt um Borgahreyfinguna!

Ekki í fyrsta sinn sem ég gef mér að ég viti hvað standi í frétt með því að lesa bara fyrirsögnina.

"Hljóp tvo hringi" las ég og þá taldi ég víst að fréttin væri um þingmannaþrennu Borgarahreyfingarinnar sem er alltaf á hlaupum undan kosningaloforðunum.

Sillí mí.

Ég sá um leið og ég opnaði fréttina og hugsaði málið að auðvitað ætti þetta ekki við um þau Birgittu, Þór og Margréti.

Þau hafa nefnilega hlaupið í mun fleiri hringi en tvo.

Mér er því bæði ljúft og skylt að biðjast forláts.

Jamm.


mbl.is Hljóp tvo hringi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bókablogg um Kínverjann

Kínverjinn

Ég var að lesa nýju bókina hans Hennings Mankell.

Kínverjann.

Hún er frábær.

Glæpasaga sem heillaði mig upp úr skónum.

Af hverju?

Jú hún er meira en glæpasaga, hún er um pólitík, fjöldamorð, þrælahald, græðgi og réttindabaráttu.

Í bókinni er farið víða um heim bæði í tíma og rúmi.

Sögusviðið teygir sig frá Svíþjóð, Englands og alla leið til Kína í nútímanum ásamt Kína og Bandaríkjum fortíðar.

Ótrúlega vel skrifuð bók sem er heillandi, ógnvænleg, fróðleg og spennandi, allt í senn.  Ein af þessum spennubókum sem halda manni föngnum allt til enda.

Ég er að verða fíkin í krimma sem er alveg nýtt fyrir mér.

Ha?

Lesið Kínverjann, þið verðið ekki svikin.


Að kaupa sér sígarettupakka þegar manni vantar eitthvað að lesa....

Hjá ríkissjóði eru minni tekjur og meiri útgjöld.  Sem von er.

Á kærleiks eru svipaðar tekjur og meiri útgjöld.

Ég sver það þetta stefnir í roð og bein.

Þá er spurningin um að skera niður.

Sem gæti reynst þrautin þyngri, löngu búin að skera allt niður í nánast ekki neitt.

Einn sukkfaktor er þó eftir og hann kostar hvítuna úr augum vorum.  Sígaretturnar.

Vá, nærri þúsara pakkinn, held ég.  Er eins og aðrir fíklar, spyr ekki um verð en borga fyrir dópið það sem upp er sett.

Veit að ég þarf að hætta að reykja.  Fjárhagsins- og heilsunnar vegna.

Ekki samt koma með reynslusögur um hversu létt þetta sé, né heldur benda mér á bækur, nikótínlyf, dáleiðslunámskeið eða önnur úrræði og umfram allt ekki segja mér að fara út að labba.

Er algjörlega upplýst um stöðuna.

En það sem ég get látið áletranirnar á pökkunum fara í taugarnar á mér.

Ekki af því að það sé ekki satt og rétt hvaða afleiðingar reykingar geta haft ónei. 

Heldur vegna reykingarfasismans og forsjárhyggjunnar sem má finna í textanum á pökkunum.

Sem er auðvitað settur þarna af ríkinu sem er hinn löglegi díler tóbaks.

Seldu mér byssu og ráddu mér frá því að nota hana.  Halló.

Fyrir utan upphrópanirnar um að reykingar drepi, orsaki kransæðasjúkdóma, ótímabæran dauðdaga, skaði fóstur og þá sem í kringum mann eru, sem er ekkert annað en pjúra tilfinningakúgun af verstu sort, þá getur heimskan í einni aðvöruninni komið mér til að garga mig hása.

Þar stendur nefnilega skýrum stöfum: "Reykingar eru stórhættulegar, byrjaðu aldrei að reykja".

Jabb, fólk sem ekki reykir kaupir sér auðvitað sígarettupakka þegar því vantar eitthvað að lesa!

Alveg: Stendur í sjoppunni og valið stendur á milli Skakka Turnsins eða Winston long.  Halló.

Er maður mikið að velta sér upp úr varnaðarorðum á vöru sem maður notar ekki?

Hmrmfp.....

 


mbl.is Minni tekjur og meiri útgjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundarmálið ekki Sigmundarmál þegar upp er staðið?

Ég vona að þessi óheppilega uppákoma varðandi Sigmund Erni fái nú skjóta greftrun.

Nóg komið.

En af því að allt hefur logað vegna málsins og allir haft á því skoðun, ég líka og þær fleiri en eina, þá er best að taka það fram að ég er búin að sjá enn einn vinkil á málinu.

Sigmundarmálið hefur nefnilega mest lítið með Sigmund sjálfan að gera svona eftir á að hyggja.

Það er vont og skammarlegt að mæta fullur í vinnuna. 

Það er þó hægt að bæta skaðann með því að láta það ekki gerast aftur og gera svo hreint fyrir sínum dyrum.

Það sem upp úr stendur í þessu Sigmundarmáli er því ekki Sigmundur sjálfur heldur vinnufélagarnir.

Sem kölluðu frammí fimmtíuogátta sinnum, sagt og skrifað á meðan þingmaðurinn hélt ræðuna sína.

Svo hlógu þessir mannvinir að ástandi þingmannsins og drógu hann sundur og saman í háði.

Og í staðinn fyrir að láta þar staðar numið fóru þessir fordómalausu og alltumvefjandi vinnufélagar í andsvör út í það endalausa.

Til að fá þingmanninn til að gera sig að enn meiri kjána.

Ég hef unnið á mörgum vinnustöðum í gegnum tíðina.

Ég man aldrei eftir svona óþverraskap varðandi samstarfsfólk sem missteig sig á einhvern máta.

Varaþingforsetinn Ragnheiður Ríkharðsdóttir fer svo með málið inn á forsetanefndarfund og tíundar þá ætlun sína í Mogganum.

Ekki koma og halda því fram að ég sé meðvirk með SER.

Það er ekki þannig.

Get alveg viðurkennt það sjónarmið sem rökrétt að fyllerí í vinnunni kalli á afsögn.

En Alþingi Íslendinga er ekki staður sem ég vildi vinna á ætti ég í erfiðleikum.

Nebb, þá vildi ég heldur vinna í ormagryfju hálfvitahrepps.


mbl.is Sigmundur Ernir baðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband