Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Fjölmiðlar

..nema Sjálfstæðisflokkurinn

Loksins.

Þingflokksformenn allra þingflokka á Alþingi, NEMA Sjálfstæðisflokks, hafa lagt fram frumvarp um að kosningalögum verði breytt þannig að færi gefist á persónukjöri í kosningum til Alþingis.

Auðvitað er þetta ekki nóg, miðað við kröfur almennings en þetta er ágætis byrjun.

Svo verður auðvitað stjórnlagaþing og þá má taka þetta betur í gegn.

En ég fagna því að geta þá kosið fólk í flokkunum í stað þess að verða að hlíta uppröðun prófkjara eða forvals.

Það færist til bókar hér með að auðvitað er Sjálfstæðisflokkurinn ekki á pari með almenningi í þessu máli fremur en Seðlabankafrumvarpinu.

Hann vill engar breytingar, enda ekki mjög lýðræðislegur flokkur sjálfur frelsisflokkurinn.

Munið það.

Jabb og góðan daginn.


mbl.is Leggja fram frumvarp um persónukjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlar - yddið blýantana

Ég er að fara að sofa.

En áður en ég geri það þá verð ég að koma því á framfæri hversu undrandi og hneyksluð ég er á því að enginn hafi haft rænu á að athuga sannleiksgildi yfirlýsinga Björgúlfs Thors á s.l. ári, varðandi flýtimeðferð á dótturfélagavæðingu bankans í Bretlandi.

Nú hefur sjálfstætt starfandi blaðamaður athugað málið og Bretar kannast ekki við málið!

Ekki miði, ekki nóta fyrirliggjandi um málið.  Allt eintómt kjaftæði í BT.

Erum við algjört þróunarríki í upplýsingaöflun?

Eða trúum við öllu sem við okkur er sagt?

Rosaleg siðblinda er í manninum ef hann hefur komið í sjónvarp og logið eins og sprúttsali.

Sem hann gerði.  Ekkert ef þar á ferð.

Fjölmiðlar - yddið blýantana, svona á ekki að gerast.

Það ríður á að hverjum steini sé velt við (kannast einhver við þennan?).

Fjandinn hafi það - ekki gleyma að sukkbarónarnir settu okkur á hausinn.

Í boði þáverandi ríkisstjórnar.

Og hinnar á undan henni.

Góða nótt.

Kastljós um málið.


Þeir eru ekki flokkurinn

Stundum fallast manni heldur.

Nú eða maður sígur saman í stólnum þar sem maður situr og horfir á sjónvarpið.

Í fréttunum var viðtal við fúlan Geir Haarde.

Hann var ekki hrifinn af skýrslunni sem "vissir nafngreindir menn" skrifuðu og gagnrýndu harðlega forystu flokksins og þá fremstan í flokki, hann sjálfan.

Hann var alveg urrandi á svip alveg eins og hann var þegar hann tjáði sig um eggjakastið og "ofbeldismennina" á mótmælafundunum á Austurvelli.

Alveg; þessir menn!  Frusss!

Munið þið þegar ISG sagði við okkur á fundinum í Háskólabíó að við værum ekki þjóðin?

(Ég veit, heimskulega spurt, en ég varð).

Það voru stærstu mistök sem hún gat gert.  Það muna þetta allir og munu ávalt gera.

Geir var í sama ham og ISG í Háskólabíói.

Hann segir að það sé málfrelsi í Sjálfstæðisflokknum en að "þessir menn" tali ekki í nafni flokksins.

Ergó:

Þeir eru ekki flokkurinn.

En Ásta Möller á hins vegar hrós skilið fyrir að biðjast afsökunar.

Það gengur einfaldlega kraftaverki næst að það skuli koma afsökunarbeiðni frá þessum flokki fullkomnunar og mistakaleysis.

Alveg er ég viss um að Ásta er væn kona og ætti að vera í VG.

Eða eitthvað.


mbl.is Baðst afsökunar á mistökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdakikk

Ég harma innilega veikindi ISG.

Ég óska henni fulls bata og það sem fyrst.

Að því sögðu..

"Hún sagðist undanfarna fimm mánuði hafa barist við alvarleg veikindi sem hefðu kippt sér út úr daglegum veruleika. Því væri tímasetning á prófkjöri og kosningum ekki sú heppilegasta fyrir hana. „Ég hugleiddi alvarlega að draga mig alveg í hlé og hætta í pólitík. En mér fannst að í því fælist uppgjöf gagnvart þessum veikindum mínum og ákvað því að berjast við þau," sagði Ingibjörg Sólrún og bætti við að hún væri þess fullviss að hún nái fullri heilsu."

Fyrirgefið þið en mér finnst þetta ekki alveg rétti vettvangurinn til að berjast við veikindi.

Svo held ég að ISG ætti að átta sig á því eins og vinur hennar og samstarfsmaður GHH gerði að í pólitík er best að þekkja sinn vitjunartíma.

Ég er mjög umfram um að fá félagshyggjustjórn eftir kosningar.

En ég treysti ekki Sollu til að koma því á koppinn.

Hún lofaði síðast en fór beint til íhaldsins.

Sjálfstæðisflokkurinn verður, bara verður að vera í skammarkrók næsta kjörtímabil að minnsta kosti.

Ofboðslega togar valdið í fólk.

Á maður að fara að kynna sér kikkið?


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Tortímandinn" II

 tormtimandinn

"Heimildir" Moggans herma að Davíð sé á leið í framboð á Suðurlandi.

Davíð plús Moggi plús heimildir:  Nokkuð öruggt myndi ég ætla.

Ég tek þessu fagnandi auðvitað.

Það kemur til að því að enn munu nokkrar krónur hringla í ríkiskassanum sé hann hristur.

Það getur auðvitað ekki gengið.

Er þá ekki alveg tilvalið á fá sjálfan "Tortímandann" til að klára málið?

Ég hefði haldið það.

Ég hélt að Heiða vinkona mín og ræðuskörungur morgundagsins væri að grínast þegar hún bloggaði um að fólk væri í alvöru að fagna framboði Davíðs.

En því miður, það er fólk þarna úti sem enn hefur ekki sett atburði í samhengi.

Ekki frekar en Davíð sjálfur.

Það alvarlega við þetta annars farsakennda mál er að þetta fólk gæti komið Davíð að völdum.

Og fyrir það þurfum við að búa fái forheimskunin og foringjadýrkunin útrás í kjörklefanum.

Ég held að ég sé farin að skilja söguna betur.

Og mig langar ekki til að hún endurtaki sig.


mbl.is Davíð í framboð á Suðurlandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjörið svo vel - þeir eru ykkar

Í gær heyrði ég í fréttunum að Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra,  ætlaði ekki að gefa kost á sér í prófkjör, "vegna þess að hann hafi farið vítt og breitt um kjördæmið og af samtali sínu við kjósendur hafi hann komist að því að mikill vilji sé fyrir endurnýjun í flokksforystunni".

Ergó: Árni var að segja að það væri ekki eftirspurn eftir honum í Sjálfstæðisflokknum.

Ofsóknarbrjáluð eins og ég er orðin, hugsaði ég með mér að nú væri eitthvað enn alvarlegra sem þyrfti að leiða athyglina frá, fyrst maðurinn játaði opinberlega að hans væri ekki óskað.

Nú er það komið á daginn.

Takk Árni Mathiesen fyrir að koma okkur í dýpsta skítapoll hingað til, í allri Íslandssögunni.

Fólk sem getur ekki gert sig skiljanlegt á ögurstundu, hvort sem er á eigin móðurmáli eða öðru á að láta skrifa fyrir sig bréf, nú eða hafa með sér túlk.

Eða steinþegja, það getur ekki gert sama skaða að vera bara á nókommenti.

Þetta eru dýrustu mistök íslenskrar sögu.

Eða hvað?

Svo má ekki gleyma því að núna skil ég af hverju Geir haarderaði á að slá á til Brown og spyrja hvað lægi að baki einu eintaki hryðjuverkalaga á Ísland.

"Maby I should have".  Jájá.

Ég ber hér með fram þá frómu og mjög svo tímabæru ósk að íslensk þjóð gefi Sjálfstæðisflokknum gott og langt frí.

Davíð, Geir Haarde, Árni Matt og fleiri virðast hafa þvælst hver um annan þveran í bankahruninu.

Hver einustu mistök sem hægt var að gera voru framin af þvílíkri snilld að ætla mætti að vandað hafi sérstaklega verið til verka.

Og við sitjum uppi með skaðann, ásamt börnum okkar og barnabörnum.

Ég er svona að því komin að klæða mig í klofstígvélin og sjógallann til að freista þess af veikum mætti að halda þessu fólki frá öllu sem heitir opinber rekstur, pólitísk umsýsla og þvílíku.

Þeir sem vilja Rip, Rap og Rup í einkarekstur.

Gjörið svo vel.

Þeir eru ykkar.

 


mbl.is Hryðjuverkalög vegna samtals Árna við Darling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott á okkur

Nú er klappliðið í bloggheimum að gera Davíð Oddsson að fórnarlambi.

Hann var svo sterkur í viðtalinu, svo sannfærandi, svo sannur.

Sínum augum lítur hver silfrið.

Með hvaða gleraugum er fólk að horfa sem sér eitthvað traust við framkomu Davíðs Oddsonar?

Og hvaða andskotans þörf fyrir "sterka leiðtoga" er að þjá íslensku þjóðina?

Eitthvað gamalt undirkastelsisheilkenni að trufla okkur, þráin eftir kóngi.

Landið er á höfðinu, hvað er að fólki?  Sleikurinn við vöndinn er aldrei langt undan hjá þessari þjóð.

Ég er orðin hundleið á því að Davíð Oddsson skuli sitja og sitja og að enginn virðist geta gert nokkuð í því.

Við hvað er fólk hrætt?

Ef þjóðin getur ekki með mótmælum komið því til skila!

Ef ríkisstjórnin getur ekki komið því til skila!

Ef alþingi getur ekki komið því til skila (í boði Framsóknar)!

Af hverju hendum við okkur ekki á hnén og tilbiðjum Davíð.

Þá fær sá hluti almennings sem vill láta "sterka einræðisherra" stjórna sér helvítis kikk út úr því.

Við hin höldum svo áfram að röfla.

Davíð stjórnar hér greinilega öllu hvort sem er.

Við erum aumingjar og undirlægjur Íslendingar, amk. stór hluti þjóðar og þings.

Gott á okkur.


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notist eftir þörfum

Raunveruleikafirring, heift, reiði, hroki, geðvonska, pirringur, forstokkun, sjálfsvorkunn, sjálfsdýrkun, skortur á sjálfsgagnrýni, hefnigirni, sjálfsupphafning, ofsóknaræði, blinda, ónæmi á aðstæður, mont og frelsarakomplex.

 Er að reyna að lýsa því sem ég sá í Kastljósi kvöldsins.

Ofanskráð orð má nota eftir þörfum, eitt eða öll.

Mér er nákvæmlega sama.

Ég er hér til að þjóna.

En svona eftir á að hyggja, andskotinn að maður væri ekki búinn að fatta það að Jésús væri í Seðlabankanum.

Mér hreinlega dauðbrá þegar þetta rann upp fyrir mér í miðju viðtali.

KASTLJÓSIÐ


mbl.is Davíð í Kastljósviðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottasti blaðamaðurinn "okkar"

Stundum hitta verðlaun í mark.

Svo fáfengileg sem þau oft eru þá finnst mér að þessi verðlaun hljóti að vera eftirsóknarverð.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir er frábær blaðamaður, hún á þetta svo sannarlega skilið.

Mér finnst ég eiga smá í henni af því hún er á Mogganum.

Það er auðvitað eitthvað að mér, tel mig yfirleitt ekki eiga neitt sameiginlegt með þeim miðli.

Múha.

Ég man þegar Steingrímur Sævarr rak Þóru Kristínu.

Þá varð ég hissa.

Mikið má Stöð 2 snæða hjarta og önnur innyfli vegna þeirrar ákvörðunar.

Ég er hins vegar að gæta tveggja afkomenda minna.

Jenný Una og Hrafn Óli eru í pössun af því foreldrar þeirra eru á "ballett", að sögn Jennýjar.

Ballett mun vera ball.

Vér óskum þeim góðrar skemmtunar.

Ég er hins vegar úrvinda - hvernig gat ég verið með þrjú hérna í denn?

Úff, amman og afinn farin til kojs.

Til hamingju aftur Þóra Kristín.


mbl.is Þóra Kristín blaðamaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyjan að verða eyland?

Ég er ekki sú eina sem er nánast hætt að lesa eyjuna. 

Hún er að verða það sem ekki á að verða hægt að vera - andskotans eyland.

Þessi uppáhaldsfrétta- og bloggvefur undirritaðrar er nú á hraðri leið með að breytast í kosningaáróðursvef fyrir fullt af fólki.

Sem blogga til að prófkjörast.

Nú eru allir sótraftar á sjó dregnir og þeir hafa tekið land á hinni fyrrum ágætu eyju.

Reyndar eru Egill og fleiri eðalbloggarar enn þess virði að maður lesi en það er óþolandi að það verður vart þverfótað fyrir baráttubloggum.  Mig á 1. 2. og 3.!!

Svo eru það bloggararnir annars staðar sem eru á leiðinni í pólitíkina og ætla í forvöl eða prófkjör.

Nú ætla ég að móðga þá en skítt sama, ég vil bara að fólk viti hvar það hefur mig.

Ekki - og ég meina ekki, senda mér pósta og skilaboð um nýja áróðurspistla og benda mér á að lesa.

Það er vísasta leiðin til að ég eyði þeim og lesi ekki orð.

Ég er líka fúl yfir skorti á nýliðun hjá flokkunum.

Þetta er að stórum hluta fólk sem er búið að vera í hlutverkum innan flokka í langan tíma.

Sem er fínt - en hvar er nýja fólkið?

En fyrirgefið mikið skelfing er mikið af flottum konum hjá VG.

Jess ég held að ég muni kjósa VG nema eitthvað óvænt komi uppá.

Svo óska ég Geir Haarde og fjölskyldu hans velfarnaðar í veikindabaráttunni sem framundan er.

Jabb, ekki fleira í bili.


mbl.is Geir gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30