Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

AÐ FESTAST Í KARAKTER

1

Ég veit ekki með ykkur en ég trúi því alveg að Britney Spears hafi ráðist á ljósmyndara þegar hún var að undirbúa sig fyrir kvikmyndahlutverk.  Hún lifði sig bara um of inn í rulluna konan.  Þetta mun vera algengt vandamál.

Allavega sá ég einn þátt, einhverntímann, sem heitir "Tekinn" og þar var íslenskur leikari fenginn til að þykjusturáðast á mann fyrir að bögga konu.  Leikarinn gekk svo vasklega  fram í þykjustuofbeldinu að það þurfti mann og annan til þess að stöðva leikinn.  Aðspurður um hvað hefði valdið kastinu sagði hinn ungi, fagri og ríki leikari: Ég er leikari maður, ég slekk ekki á hlutverkinu bara eins og ekkert sé.

Sem sagt Britney er listamaður.  Tilfinningarnar geta borið mikla listamenn ofurliði.

OMG þvílíkt búllsjitt.


mbl.is Ofbeldi Britney vegna kvikmyndahlutverks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SJÁLFSMÆRING

 1

Einhver verður að mæra mann, ég mæri sjálfa mig af og til af því ég er svo æðisleg.  (roðnu- og skömmustukarl).  Ég tók ekki eftir því að það eru komnar yfir 200.000 flettingar á síðuna mína og ég byrjaði að blogga 26. febrúar.  Er það kúl eða er það kúl?  Ég held að rós vikunnar fari til mín að þessu sinni, enda hörgull á rósahöfum þessa dagana (ég meina það ekki, á bestu bloggvini ever).

Jenny Anna I love you to pieces, you are simply the greatest.Blush

Nú fer ég og kasta upp, afsakið á meðan ég bregð mér á salernið.  En þetta eru doldið margar heimsóknir ha? Erþaðeggibara? Ha?


ÉG ER AÐ MISSA ÞAÐ - GJÖRSAMLEGA AÐ TAPA MÉR

 

Í gær var ég sjálfri mér og öðrum til skemmtunar í Kringlunni.  Mér til skemmtunar af því ég gekk á milli búða.  Gestum og gangandi til ómældrar ánægju þar sem ég gekk hnarreist um með gleraugun á nefinu og sólgeraugun á hausnum. 

Það snérust hálsar.  Ég hélt að það væri vegna óumræðilegs glæsileika mín.

Læfsökks!


MÓTEFNABLOGG LIGGUR NIÐRI...

1

.. þar til á föstudaginn vegna efnisskorts.  Allar mínar leiðinlegu vinkonur eru svo fágaðar þessa dagana, hanga bara á kaffihúsum eða við baðstaði borgarinnar (alla 500) og njóta lífsins. Ég talaði við nokkrar þeirra og fyrir utan að vera sármóðgaðar yfir því að ég opinberaði þessar slöku hliðar á þeim, þá voru þær ekki glaðar með að ég skyldi upplýsa lesendur bloggsins um að mér fyndist þær leiðinlegar, taktlausar og þul.  Ég sagði þeim reyndar að það væri alls ekki kvenfyrirlitning fólgin í því að gera lítið úr konum. Ósei,sei nei. Það hefur upplýsingagildi og þegar best lætur hvetur það til opnari umræðu, tam um kynlíf.  Merkilegt en satt. Að níða skóinn af konum hefur því afspyrnu jákvæða merkingu.  Sérstaklega þegar það er gert af kynsystrum þeirra.

Ég var að velta því fyrir mér hvort sólin hafi ekki jákvæð áhrifa á fólk í þá veru að það þoli sjálft sig aðeins betur.  Þurfi ekki að hlaupa um allt til að leita að fólki til að spegla sig í.  Þessar konur eru amk. ákaflega sáttar við sjálfa sig en á meðan er ég efnislaus sem er auðvitað slæmt því "the show must go on".

En þar sem allt fer í hringi, líka við stelpurnar, þá bíð ég róleg eftir að næsta fár gangi yfir og þá neyðist ég líka til að blogga um það en það geri ég bara sem innlegg í kvennabaráttuna.

Muhahahahaha!


NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST

 

Sko ef hún Laufey bloggvinkona og einn af nágrönnum heimilisins fyrir heimilislausa við Njálsgötu, væri ekki í London og ég í öruggu skjóli, þá þyrði ég ekki að skrifa um þetta mál eitt einasta orð.  Sko ég skil ekki þessi læti sem verða oftast, hvar sem er í borginni ef opna á einhvers konar heimili fyrir illa statt fólk.  Auðvitað er þetta ákveðið álag á nágranna, en oftar en ekki rætist úr svona starfsemi og fyrr en varir eru allir ánægðir.

Það sem mér finnst hallærisleg málamiðlun hjá borginni að fækka vistmönnum niður í 8 í stað 10 sem upphaflega var áætlað að byggju þarna.  Ég held að það skipti varla miklu máli.  Allavega opnar heimilið eigi síðar en 1. október nk.

Ég held að nú verði allt vitlaust út af þessu máli.

En hvernig er það; eru heimilislausir ekki hættir að vera það þegar þeir flytja þarna inn?

Laufey súmíHeart


mbl.is Ákveðið að hefja rekstur heimilis fyrir heimilislausa í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BLOGGVINAFOK

Þrjár afskaplega óhamingjusamar manneskjur fuku út af bloggvinalistanum í dag. Hvers vegna?  Jú vegna þess að bloggvinatiltekt er fastur liður hjá mér og ég verð að geta skrifað eitthvað um tiltektina í hverri viku.  Annars voru þessir þrír hættir að blogga.  Minnir mig (hehe).  Það er svo gaman að skrifa um bloggvinatiltektir, þá verður svo mikil þátttaka í kommentakerfinu. 

Annars fuku ljót orð, mikið var grátið þegar við fórum á kaffihús í dag og gerðum upp okkar mál, ég og þessar þrjár ólukkulegu mannverur.  Við skildum ekki sátt en ætlum að láta þetta malla og endurnýja kunningsskapinn í haust.

Þetta vildi ég láta ykkur vita elskurnar.

Síjúinalittulvæl.


SUMARIÐ HENNAR JENNYAR UNU

Hér kemur sumarsyrpa af henni Jenny Unu Errriksdótturrrrr, fólki til yndisauka.

Gjörsvovel!

001003006

Jenny og Sara "binkona"            Ef þú smælar framan í heiminn þá mun..           ég fæ franskar hjá ömmu og Einarrrri

0040050002

Jenny hugleiðir                  og skellihlær                  og blæs sápukúlur með Isabellu

Sumarið er svo dásamlegt þegar maður er tveggja árrrrrrra.


ÞÚSUNDIR MANNA Í KÓPAVOG..

..til að mótmæla því að Goldfinger verði opinn áfram.  Mikill hugur er í fólki þar sem það streymir gegnum Fossvogsdalinn, með mótmælaspjöld, allir sameinaðir í markmiðinu, Íslendingar, útlendingar, konur og menn.  Loksins náðist samstaða.

Óviðeigandi tenging við frétt? Ó nei, þetta er óskalisti sem ég er að birta hérna í von um að samvinna náist á Stór-Reykjavíkursvæðinu að leggjast á eitt, gegn vændi, mansali og súludönsum.  Hvar sem þá er að finna.  Þá verður gott að búa í Kópavogi og Reykjavík (segi svona).

Annars verður mikið um dýrðir í Kópavoginum annað kvöld því þá fagnar Ungmennafélag Íslands 100 ára afmæli sínu með stærsta landsmóti sem haldið hefur verið hér á landi. 

Úje!


mbl.is Þúsundir manna á leið í Kópavoginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ LIFA MÝTUNA

1

Mér er illa við goðsagnir.  Sérstaklega þær sem lúta að samskiptum kynjanna.  Arg hvað þær fara í taugarnar á mér og vó hvað þær eiga sjaldan rétt á sér.  Mýtur eins og t.d.

Konur elda af nauðsyn, karlar elda af ástríðu.

Tengdamæður eru ömurlega við tengdadætur/tengdasyni.

Karlmenn kunna ekki á þvottavélar konur geta ekki skipt um dekk.

Konur kunna ekki að keyra.

Konur eru kaupóðar karlar hata stórmarkaði.  Hm.. þessi situr svolítið í mér.  Í mínu tilfelli og húsbandsins er klisjan nefnilega sönn.  Ca. einu sinni í mánuði dreg ég hann með mér í Kringluna og kaupi það sem ég nenni ekki að kaupa dags daglega.  Í dag vorum við að versla í matinn, húsbandið var að kaupa sér skó, ég þurfti í snyrtivörubúð og svona annað smálegt og gott bara.  Húsbandið segir að ég fái "hillusvip" í búðum.  Að ég verði dreymin á svip og til alls líkleg þegar ég stend frammi fyrir miklu hilluplássi fullu af góssi.  Þannig að einu sinni í mánuði lifi ég bölvaða mýtuna og ég hata það.  Ég reyni að lokka húsband með að benda honum á tónlistardeildina, kaffihúsin, græjudeildina og sjónvarpsdeildina en hann víkur ekki frá mér.  Svo illa lifir hann sig inn í mýtuna um kaupóðu konuna að þegar við komum að kassanum, visakortið er rifið upp, þá stendur hann eins og dauðadæmdur maður þangað til upphæðin er nefnd.  Í hvert skipti færis svipur óheyrilegs léttis yfir andlitið og hann lítur á mig þakklátum augum, svona líka glaður með að ég hafi ekki sett okkur á vákortalista kortafyrirtækisins.  Alltaf svo hissa.  Einu sinni í mánuði alveg standandi hissa. 

Ég get svarið það.  Ég vil ekki vera klisja.  Ég fer með vinkonum mínum eða dætrum næst.

Síjúgæs

 


BÚHÚFÆRSLUJÖFNUN

124

Hér má sjá hetju dagsins hann Oliver við ýmis tilefni.   Nú er sérfræðingur búinn að skoða fótinn og gifsið (eða gipsið) nær nú bara upp að hné og hann hendist um allt, alveg rosa glaður.  Mamman og pabbinn fara með kvöldfluginu til Spánar þannig að þetta fór nú betur en á horfðist.

Ég talaði við Oliver í símann áðan hann sagði "noine" (9) fyrir Granny-J svo hún gæti fengið sitt daglega krúttukast og sagði líka "love you amma".  KRÚTTMUNDUR DJÓNS.!Þannig að nú eru allir glaðir, enginn rosalegur skaði skeður, börn gróa fljótt.  Nú mætti bara bévítans hryðjuverkaógninni létta af London og helst auðvitað öllum heiminum svo amman geti slappað af.

Síjúgæs


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 2988570

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.