Færsluflokkur: Tölvur og tækni
Miðvikudagur, 2. maí 2007
HÉR HEFST SKRÁNING Á....
..reiðhjólasögu Jenny Unu Errriksdóttur. En í dag ætla amma og Einarrrr að fara í Markið og versla hjólið sem þið sjáið hér fyrir neðan. Jenny veit að við ætlum að ná í hana og mömmu eftir skóla og kaupa fyrsta alvöru farartækið hennar. Hjólið fær hún ma vegna þess að hún er "umsyggjusöm", "skiptist alltaf á", "er alltaf glöð","elskar jákarla, gívaffa og kókófíla" og svo þarf barnið að geta farið með sjálfa sig á milli staða. Hreyfisaga Jenny á fótknúnum farartækjum er skráð hér á blogginu í fyrsta sinn. Áður en amma hennar hefur snúið sér við mun Jennslubarnið halda á ökuskírteini. OMG!
Amma-Brynja fer til London í afmælið hans Olivers 12. maí og með sér mun hún hafa pening frá Ömmunni og Einarrri til að kaupa hjól handa 2. ára strák sem fer alltaf hratt yfir, líka á tveimur jafnfljótum.
Lovjú
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
HIN VAFASAMA GULLMOLA DAGSINS HLÝTUR...
...Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokks fyrir ótrúlega frammistöðu sína í kvöldfréttum Stöðvar 2 í dag. Ásta hefur sem frægt er orðið, lýst yfir áhyggjum sínum af mögulegri íhlutun forsetans í komandi stjórnarmyndunarviðræðu. Halló Ásta það er eitt af hlutverkum forseta að veita umboð um myndun ríkisstjórnar. Molann hlýtur hún fyrir að ganga tvö skref áfram og svo 23 afturábak með því að neita Stöð 2 um viðtal um málið, svara þeim síðan þar sem þeirr hittu hana uppi við Árbæjarlaug og játa þar að hún hefði áhyggjur af þessu með forsetann. Koma síðan og biðja um að fá að skýra mál sitt. Ég hef ekki séð í áratugi aðra eins hringavitleysu hjá stjórnmálamanni í neinu máli.
Þessi merkilega færsla sem fjallar um áhyggjur Ástu af forsetanum má lesa á www.astamoller.blog.is
Borgar Þór Einarsson flokksbróðir Ástu sá ástæðu til að lýsa yfir áhyggjuleysi sínu vegna mögulegrar aðkomu forsetans að myndun stjórnar. Úff þvílíkur vandræðagangur.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
AF HITASÓTT, RÁNDÝRUM MAT OFL.
Úff ég er með hita. Sótthitta já. Sit hér og ræð fram í gráðið með beinverki, höfuðverk og almmennt slen. Ég finn til í hárinu. Hafið þið verið með verki í hárinu? Augun ranghvolfast í höfðinu á mér og það er vont að reykja. Vont að reykja segi ég en ekki ómögulegt. Í þessu ástandi er ógerlegt að vera með sleifina á lofti þannig að hér var brugðið á það ráð að panta mat utan úr bæ, sem vegna breytts lífsstíls gerirst ákaflega sjaldan núorðið. Uppáhaldsstaðurinn Nings varð fyrir valinu. Eftir að hafa hringt þangað vorum við að pæla í því húsbandið og ég hvort það hafi orðið rosaleg hækkun í hafi á hrísgrjónum eða eitthvað. Þeir eru sko flottir á Nings, ekki misskilja mig en 2.800 karl á mann fyrir svona horaða og matgranna einstaklinga er nú bara hvítan úr augunum á manni. Bæði hönd og fótur. Ég er ekki nísk en fyrir þessa peninga má gera ýmsilegt skemmtilegt, nytsamt og uppbyggilegt.
Annars er ágætt að lesa blogg þegar heilsufarið er í lakara lagi. Ég á reyndar alveg ótrúlega skemmtilega bloggvini úr öllum stjörnumerkjum (hehe) og þeir eru allir í "rithöfundamerkinu" með tungl í húmor og pólitíska vakningu rísandi.
Held áfram að lesa blogg og skrifa líka. Ef þið eruð ekki sátt við það þá getið þið beðið fyrir ykkur, ég hef parkerað minni eðlu seingeitarpersónu við tölvuna og hananú!
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
ER CASTRÓ DÁINN HM..?
Ég er nú í alvöru að pæla í því hvort Castro sé allur. Hann var hvergi sjáanlegur í hátíðahöldunum á Kúbu í dag en margir héldu að hann myndi nota tækifærið og koma fram opinberlega á 1.maí. Karlinn hefur ekki sést frá því að hann gegst undir aðgerð í júlí í fyrra.
Þeir eru svo leyndardómsfullir þarna á Kúbu. Ég hef verið að láta mig dreyma um að komast til draumalandsins áður er karlinn væri allur en nú er hann kannski bara farinn yfir móðuna miklu. Ætili bróðir hans sé búinn að kasta honum í fangabúðir? Kona spyr sig. Endilega segið mér ef þið hafið fréttir af þessu ofurkrútti.
Síjúgæs
Kastró hvergi sjáanlegur í hátíðarhöldum á Kúbu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 1. maí 2007
MEIRA BLAÐUR UM STJÖRNUSPÁR
Það er nú svo þegar verið er að bíða eftir einhverju eins og kosningunum núna þá finnur maður sér eitthvað til dundurs til að létta biðina. Ég er enn í stjörnumerkja pælingum þrátt fyrir að ég hafi nú ekki mikla trú á því fyrirkomulagi öllu. Samt er þetta skemmtilegt dund. Ég var að velta því fyrir mér hvort eitt merki fremur öðru væri í meirihluta hvað varðar fólkið mitt og vini. Ég held að á einni æfi séu svona 100 manneskjur sem tengjast manni náið með einhverjum hætti þótt sumir staldri stutt við en aðrir meira og minna allan tímann.
Ég á sex systur og einn bróður merkin eru: fiskur, hrútur, naut, 2 vogir, steingeit, ljón. Dætur mínar eru bogamaður, vog og ljón. Eiginmenn (þorry þo mikið hjarðeðli og endurnýjunarþörf) tvíburi, sporðdreki og naut. Vinkonurnar (þessar sem eru komnar til að vera) tvíburi, meyja, 3 naut, fiskur, vatnsberi. Þetta er það sem ég man.
Niðurstaðan er að meyjur eru sjaldséðar í mínum kunningjahóp. Nema nottla eitt megababe (Dúa) en meyjur eru svo smámunasamar og korrekt segja fræðin. Ég er meira svona gjörningakona. Dúa getur sagt ykkur að hún raðar súpupökkunum eftir stafrófsröð, notar reglustriku til að raða í fataskápana ásamt litgreiningarspjaldi. Þegar hún er að ærast yfir drasli þá er hún oftast að tala um sælgætisbréfið sem hún gleymdi á stofuborðinu. Ég er nú hrædd um það.
Það er bókstaflega allt löðrandi í nautum í kringum mig. Yndisleg systir mín, eiginmaður og vinkonur og litli Oliver minn sem á 2ja ára afmæli á kjördag. Enda hefur komið á daginn í lífsbröltinu mínu að ég hef haft þörf fyrir alvöru vini. Ójá. Þar kemur nautið sterkt inn. Vogirnar eru líka í stórum stíl að vega salt við mig, dætur, systir og bróðir og vinir. Vogirnar eru svo yndislega óbalanseraðar og alltaf að taka ákvarðanir um sama málið. Saran mín er alltaf vegandi og metandi. Ljónið hún Maysa mín er lífsglöð og skemmtileg. Hún er opin, frjáls og utanáliggjandi. Elskar margmenni. Ég þekki svo yndislegt fólk í öllum þessum merkjum. Bogamaðurinn hún dóttir mín er auðvitað yndisleg og mömmukrúttið mitt. Þekki annars ekki marga í því merki. Steingeiturnar eru margar (fullkomnar eins og Jenny mín og ég sjálf) en ég vill ekki gera hin merkin döpur. Þau komast ekki með tærnar þar sem ég hef hælana. Ætli sjálfshól sé einkennandi fyrir steingeit?
Hvaða merki lýsa þá með fjarveru sinni í lífi mínu. Það er lítið af fiskum, enn minna af vatnsberum, smá af hrútum (á yndislega systur í því merki og pabba líka) dash af tvíburum bara einn lítill og krúttlegur krabbi (hann Jökull minn) og megakúsan mín. Æðislegt merki. Afhverju þekki ég ekki fleiri krabba? Vona að ég hafi ekki gleymt neinu orðin kolrugluð í höfðinu á öllu þessu merkjastandi enda ekki vön að hugsa í stjörnumerkjum og það getur gert hvern mann stórbilaðan!
Síjú
Þriðjudagur, 1. maí 2007
ÆFING FYRIR KOSNINGAR 1. MAÍ
Ég verð alltaf svolítið væmin 1. maí, á frídegi verkalýðsins. Var alin upp við að þetta væri hátíðisdagur okkar alþýðunnar. Ég er ekki mikið fyrir kröfugöngur en hef gengið oftar en ekki og það er stemming að vera í göngunni. Nokkurs konar vorjól. Ég verð smá klökk, finn fyrir samkenndinni með félögunum svona eins og þegar klukkurnar hringja inn jólin. Yndisleg móment.
1. maí á kosningaári er sérstaklega hátíðlegur og mikilvægur dagur. Krafan í dag er að "fátækt verði útrýmt í einu ríkasta landi veraldar".
Nú eru bara 10 dagar í kosningar. Það er um að gera að fljóta ekki sofandi að feigðarósi. Það er kominn tími á breyttar áherslur á Íslandi alsnægtanna. 5000 börn lifa undir fátæktarmörkum og það er ekki náttúrulögmál að það eigi að vera svoleiðis. Það er heldur ekki náttúrulögmál að aldraðir og öryrkjar lepji dauðann úr skel margir hverjir. Stjórnarliðar tala um að það sé verið að vinna í málum þessara hópa. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft 16 ár til þess og Framsókn 12. Úff þeir eru bara alveg sveittir við að kippa þessu í liðinn. Rosalega er þetta erfitt mál að laga. Bara tugir ára og nú þegar við göngum til kosninga er þetta alveg að bresta á samkvæmt þeim.
Ég vona að hinn almenni maður átti sig á vægi atkvæðisins og noti það skynsamlega. Það er á fjögura ára fresti sem við getum valið. Við getum valið viðvarandi ástand sem hentar sumum í þessu þjóðfélagi eða breytt því þannig að forgangsröðunin verði önnur og í þágu stórs meirihluta þjóðarinnar.
Generalprufan er á morgun. Eigum við ekki að þramma saman og efla baráttuandann? Sjáumst í göngunni.
Krafan 1. maí að fátækt verði útrýmt á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Mánudagur, 30. apríl 2007
HUGTAKIÐ AÐ BÚA VIÐ SKERT FERÐAFRELSI..
..fær nýja merkingu eftir að ég horfði á Kastljósið í kvöld. Ég varð döpur þegar rakið var í smáatriðum á hvaða forsendum tengdadóttir umhverfisráðherra fékk sinn ríkisborgararétt. Enn sorglegra er að verða vitni að því að nefndarmennir þrír sem höfðu með málið að gera neituðu að svara fyrir gjörðir sínar. Er fólk algjörlega búið að gleyma hvers vegna það situr þarna? Að við kjósendur höfum treyst þeim til verka? Samkvæmt þessu þá er rétt það sem Kastljósið benti á að það er auðveldara að fá ríkisborgararétt en dvalarleyfi. Ég ráðlegg þeim sem hafa verið í stöðugum vandræðum vegna dvalarleyfa, að sækja bara um ríkisborgararétt. Það ætti að skotganga.
Skert ferðafrelsi er nöturlegur raunveruleiki margra miljóna manna um allan heim. Það kemur til vegna pólitískra ofsókna, fátæktar og fleiri vondra og ómanneskjulegra hluta í heiminum. Að þurfa að sækja um dvalarleyfi milli anna í námi og kalla það að búa við skert ferðafrelsi er misnotkun á hugtakinu og hreint skammarlegt að í skjóli samtryggingar skuli gerast svona hlutir eins og virðist klárlega vera raunin samkvæmt ítarlegri umfjöllun Kastjóssins í kvöld.
Öllum getur orðið á, líka góðum stjórnmálamönnum. Að viðurkenna mistök er merki um þroska. Væri það ekki bara sniðug hugmynd?
Mánudagur, 30. apríl 2007
MEIRA UM STÖRNUMERKI
Ég er að mörgu leyti jarðbundin kona verandi steingeit (hm) en ég hef í mér svona vingulselement sem gerir það að verkum að ég pæli líka í andlegum málefnum án þess að ég sé að flíka því eitthvað sérstaklega. Stjörnuspeki hefur mér hins vegar alltaf fundist frekar leim. Litgreiningar og augnalestur líka. Vinur minn sem var blaðamaður á gamla DV sagði mér að þeir blaðamenn sem hefðu haft fá verkefni þann daginn hefðu fengið stjörnuspá blaðsins sem verkefni. Það er að skálda hana frá degi til dags. Ég veit ekki hvort þetta er satt en miðað við stjörnuspár í blöðum þá kæmi mér ekki á óvart að mjög hugmyndasnauðir menn væru í því að búa hana til svo þeir ættu fyrir salti í grautinn.
Ég man aldrei hvað ég er með rísandi ( sko merki). Ég veit þó að það er allt löðrandi í sporðdreka í merkinu mínu. Minnst af steingeit.
En hvað um það. Einu sinni lét ég draga mig á stelpukvöld hjá þekktum snyrti hér í borg (veit ekki afhverju ég lét til leiðast. Er algjörlega á móti svona fyrirsjáanlegum skemmtiatriðum). Það var mikið hlegið. Mér var sagt að ég væri með Davíðs Oddssonar element (hann og ISG bæði steingeitur). Hvað varð þá um Sollu-elementið? Ég hefði amk. flaggað því. Snyrtirinn klikkti út með að segja yfir allan hópinn að honum fyndist steingeitur erfiðar (hann vildi ekki endurgreiða mér kvöldið), þær væru svo óþægilegar í tilsvörum, sjáfsuppteknar (moi?) og vissar í sinni sök. Hm.. það hefði ég nú getað sagt mér alveg sjálf. Svon nefndi hann dæmi um náinn ættingja sinn sem dæmi um leiðindi steingeitarinnar og útlistaði með orðum og æði fyrirkomulag þessarar manneskju. Ef Gulli Stjarna hefði ekki gert kort fyrir mig einhverju seinna er ég hrædd um að lítil trú mín á stjörnuappíratinu hefði endanlega dáið drottni sínum.
Þetta skrifar steingeit, með sporðdreka í tungli og bogamann rísandi.
p.s. Er bloggóð í dag vegna þess að ég nenni ekki að þrífa. Enda lítið drasl hér á bæ. Ætli það séu stjörnurnar að stríða mér?
OMG
Mánudagur, 30. apríl 2007
MOGGINN SAGÐI ..
..við mig, beint upp í opið fésið á mér, að ég ætti að smæla framan í heiminn. Ætli þeim finnist ég of alvörugefin? Rosalega finnst mér það leiðinlegt. Ég varð smá fúl svona fyrst en svo hugsaði ég að þetta væri sennilega vel meint.
Þetta er sko mín persónulega stjörnuspá á Mogganum, steingeitin. Ég veit að hún er skrifuð sérstaklega fyrir mig.
Æi ég gleymdi að þeir sögðu líka að mér hætti til að taka hlutum of persónulega. Hvernig ætli þeir fái það út?
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 30. apríl 2007
OG BOMBU DAGSINS Á....
..( og hún er illalyktandi skuluð þið vita) hið "mannvæna" fyrirtæki Impregilo sem hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er harðlega vinnubrögðum yfirlæknis við Kárahnjúkavirkjun og þeim ásökunum sem hann hafi haft í frammi. Nú þykir mér týra. Kunna þeir ekki að skammast sín þessir menn? Bölvuð frekja í lækninum að vera að ætlast til að borin sé virðing fyrir trúnaðarupplýsingum milli sjúklinga og læknis. Ekki er ósvífinin minni í þessum heilsugæslulækni þegar hann viðrar áhyggjur sínar af starfsfólki því sem hann ber heilsufarslega ábyrgð á sem fær matareitranir og mengunarsjúkdóma á færibandi. Pólisía fyrirtækisins er greinilega sú að við fíbblin eigum að láta þá í friði með sín mannréttindabrot.
Nú hefur talsmaður fyrirtækisins lokað á athugasemdir hjá sér á blogginu. Talsmaðurinn er svo skemmtileg myndbirting þessa bófafyrirtækis sem Impregilo er. Þeim er illa við að fólk tjái sig, talsmanninum greinilega líka.
Fyskam!
Impregilo mótmælir vinnubrögðum og ásökunum læknis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 15
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 78
- Frá upphafi: 2987146
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr