Leita í fréttum mbl.is

ER CASTRÓ DÁINN HM..?

22

Ég er nú í alvöru að pæla í því hvort Castro sé allur.  Hann var hvergi sjáanlegur í hátíðahöldunum á Kúbu í dag en margir héldu að hann myndi nota tækifærið og koma fram opinberlega á 1.maí.  Karlinn hefur ekki sést frá því að hann gegst undir aðgerð í júlí í fyrra.

Þeir eru svo leyndardómsfullir þarna á Kúbu.  Ég hef verið að láta mig dreyma um að komast til draumalandsins áður er karlinn væri allur en nú er hann kannski bara farinn yfir móðuna miklu.  Ætili bróðir hans sé búinn að kasta honum í fangabúðir?  Kona spyr sig.  Endilega segið mér ef þið hafið fréttir af þessu ofurkrútti.

SíjúgæsHeart


mbl.is Kastró hvergi sjáanlegur í hátíðarhöldum á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er hann ekki bara á hvínandi kúpunni og hefur ekki efni á að kaupa sér ný föt til að koma fram opinberlega ?  Maður í hans stöðu lætur ekki sjá sig í sömu fötunum tvisvar.  Kona spyr sig líka. 

Anna Einarsdóttir, 1.5.2007 kl. 16:59

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe það gæti verið málið!

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 17:14

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Var að hugsa þetta í morgun, þegar ég heyrði að hann hefði ekki látið sjá sig í dag.

Undarlegt!

Hrönn Sigurðardóttir, 1.5.2007 kl. 17:27

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Völvan okkar á Vikunni heldur því fram að hann lifi ekki út þetta ár ... og heldur ekki Gorbashev hinn rússneski ... mig grunar að hún hafi ruglað honum saman við Pútín, en hvað veit maður!

Guðríður Haraldsdóttir, 1.5.2007 kl. 17:33

5 Smámynd: bara Maja...

hef ekki grænann guðmund um kommrat Castro,  en langaði bara að kommenta...

bara Maja..., 1.5.2007 kl. 18:42

6 Smámynd: halkatla

ég er komin með áhyggjur - og þetta er pottþétt samsæri. Mjög dularfullt.

halkatla, 1.5.2007 kl. 18:57

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þó að félagi Castro yfirgefi þetta tilverusvið, mun hann lifa góðu lífi áfram í hjörtum okkar.

Jóhannes Ragnarsson, 1.5.2007 kl. 19:22

8 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Endilega drífðu þig til Kúbu, það er svo gaman þar, yndislegt fólk, flott músík og falleg hús. Þótt sum þeirra séu í niðurníðslu er það bara yfirborðið, þarf ekki mikið til að lífga upp á þau, og búið að gera það með góðum árangri sums staðar. Castro lifir hvort sem hann deyr eða ekki ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 1.5.2007 kl. 19:37

9 Smámynd: Merlin

Ég get ekki látið mér detta í hug hvar karlanginn heldur sig þessa dagana

Merlin, 1.5.2007 kl. 19:38

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ég held að hann sé löngu dauður, þetta hefur bara verið leikari sem við höfum séð síðustu mánuði

Ásdís Sigurðardóttir, 1.5.2007 kl. 19:47

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kannski er dúllan í fríi á Miami!

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 22:26

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Jóhannes hann mun lifa í mínu og allra sem eru yfirleitt með svoleiðis líffæri.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 22:27

13 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Jenný mín, við Björgólfur kippum þér með til Jamaíka og við getum skroppið saman þaðan til Kúbu. 

Laufey Ólafsdóttir, 1.5.2007 kl. 23:54

14 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Castro er auðvitað kominn á níræðisaldurinn svo maður getur auðvitað búist við því að hann deyji hvað úr hverju, alveg óháð veikindum hans. Ég held að hann sé ekki dáinn ennþá og getur þess vegna lifað í nokkurn tíma í viðbót, en ég tel ólíklegt að hann taki við valdataumunum á ný. Það besta sem Castro getur gert er að lifa nógu lengi til að þeir sem taki við af honum fái nógan tíma til að festa sig í sessi. Það er allavega víst að Castro mun halda áfram að lifa í huga fólks, ekki bara á Kúbu heldur um alla heimsbyggðina.

Guðmundur Auðunsson, 3.5.2007 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 13
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985844

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband