Færsluflokkur: Bloggar
Sunnudagur, 22. júlí 2007
SORGLEGT EN SATT..
..að það er allt fullt af fíflum úti í umferðinni, sem setja almenning í stórhættu, ógna bæði lífi og limum. Þeir eru ekki allir ungir. Þessi ökumaður, karl á fertugsaldri var tekinn á tæplega 200 km. hraða á Reykjanesbrautinni í dag.
Hann var sviptur á staðnum til bráðabirgða! Til bráðabirgða, halló? Er ekki mælirinn fullur þegar fólk keyrir svona hratt?
Ég hefði haldið það. Burt með skírteinið.
Súmí.
![]() |
Tekinn á tæplega 200 km hraða á Reykjanesbrautinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
HÚN FRÆNKA MÍN....
..utan að landi, auðvitað, stendur fyrir stóru búi og er með milljón hesta og eitthvað af meme. Hún á engan mann og á ekki heimangengt frá búskapnum til að krækja sér í einn. Hún frétti af einkamálum.is og þar væru margir mætir menn á sveimi og vel brúklegir til undaneldis. Hún setti in auglýsingu þar sem hún tíundaði kosti sína, eignir og útlit. Það gekk ekki nógu vel, allir voru giftir, nýlega fráskildir eða öðruvísi uppteknir. Frænkan úr sveitinni gafst ekki upp, hún fattaði að í einkamálum gildir öfugmæla aðferðin. Eftirfarandi auglýsing var sett inn og nú fær hún ekki frið fyrir eðlilegum mönnum.
Kyn: | Kvenkyns | |
Aldur: | 39 ára | |
Landshluti: | Landið og miðin | |
Kynhneigð: | Gagnkynhneigð(ur) | |
Flokkur: | Vinátta / Spjall | |
Hæð: | 171 cm. | |
Þyngd: | 65-70 kg. | |
Augnlitur: | Óuppgefið | |
Hárlitur: | Óuppgefið | |
Auglýsing skoðuð: | 1534 sinnum | |
Síðast tengd: | 22. júlí 2007 | |
Klukkan: | 14:47 | |
Óska eftir að kynnast ófríðum, subbulegum, giftum mönnum í verulegri yfirþyngd sem standa í forræðisdeilum (við konu nr. 2 en eru núna með konu nr. 4)) og eru óheiðarlegir, heimskir, gjaldþrota og með fullt af beinagrindum inni í skáp. Best væri svo ef þú ert líka á vondum stað í lífinu. | ||
Til að senda þessum notanda skilaboð þarftu að skrá þig inn hér til hliðar eða nýskrá þig. |
Þessu vildi ég deila með ykkur elskurnar mínar.
Æmsósjokkd.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
ÉG VAR ALVEG VISS
..um að fréttin væri um Búska forseta Bandaríkjanna, og þurfti að lesa hana tvisvar til að ná því að hún væri um Yves Leterme, sem þykir líklegur sem næsti forsætisráðherra Belga. Hann kunni ekki textann við þjóðsönginn og vissi ekki af hverju Belgar fögnuðu þennan dag.
Það er nú kannski óþarfi að vera með svona kröfur á fólk. Búski hefur t.d. sýnt að það þarf ekki einhvern svaka heila til að verða forseti í einu af valdamestu ríkjum veraldar. Það þarf bara að hafa páfagauksminni og geta lært allan andskotann utanbókar.
Yves getur það örgla líka.
Kröfur, kröfur, kröfur.
![]() |
Kunni ekki textann og þekkti ekki söguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
SPEGILL.. FRAMHALD
Nú, nú, eftir ævintýri morgunsins með speglinum, var ég að vonum ansi þreytt og fór og lagði mig. Ég sofnaði þungum svefni.
Mig dreymdi risastór skæri í kanínubúning og bleikum converse-skóm sem hlógu geðveikislega og eltu mig um allt.
Nema hvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
SPEGILLINN TALAR
Mér hefur verið ráðlagt að brosa í spegilinn á morgnanna, jafnvel bjóða mér góðan daginn og svoleiðis, þið skiljið. Þetta geri ég yfirleitt á hverjum morgni, þ.e. brosi flóttalega til sjálfrar mín, svona frosnu brosi en er alveg í rusli vegna þess að ég er svo full af einhverjum kjánahrolli.
Í morgun vaknaði ég fyrir allar aldir. Ég fór beint í morgunverkin, þvoði mér í framan og burstaði tennur og dreif mig svo í brosstandið með hálfum huga, eftir að hafa tvítjékkað á svalalæsingunni, útidyrahurðinni og fjórlæst baðherberginu.
Mér brá þegar ég horfði í spegilinn. Það var ekki af undrun og aðdáun á sjálfri mér þótt ótrúlegt megi virðast. Spegilmyndin horfði á mig úrillum augun og sagði:
SP: Ekki flott á okkur hárið nú frekar en endranær. Eitthvað heyrt talað um hárgreiðslustofur?
Ég: HA?
SP: Þetta ástand er nú ekki til að brosa yfir, sérðu gráu hárin hérna fremst, t.d. hér (hönd á spegilmynd beinir frekjufingri að örfínum gráum geislum við topp). Hvernig eigum vér að brosa þegar ástandið er svona?
Ég: (Enn í áfalli) Haaa?
SP: Vér nennum ekki þessum brosleik fyrr en eftirfarandi ábendingar hafa verið lagaðar:
a) hár klippt
b) hár litað og strípað
c) augabrúnir plokkaðar
d) Lýtaaðgerð framin á augnumgjörð
Þangað til verður beitt dagsektum.
Æmstillsjeiking!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
NERÐIR SÍÐASTIR Í RÖÐINNI
Auðvitað eru nerðirnir síðastir í röðinni. Hér og þar má sjá/heyra hjáróma raddir þeirra hrópa í fyrirsögnunum "KLUKK". Halló, klukkið er liðið undir lok. Við vorum að því fyrir fleiri dögum síðan. Tíminn líður hérna á netinu og nú erum við að byrja á "Í grænni lautu".
Þetta er eins og að bjóða gleðileg jól í febrúar og vera jólalegur í framan um leið.
Bítsmíðispípúljúnó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
BAKA OG BAKA..
..en ekki kjaftur kýs mig neinsstaðar. Ég er viðstöðulaust bakandi þessa dagana. Ég baka kanelsnúða, pönnukökur, kryddkökur, bananabrauð og núna döðlubrauð og fólkið mitt gúffar þessu í sig eins og hungraðir úlfar. Allir svo hræddir um að þetta sé tímabundið ástand, að ég komist til sjálfrar mín á hverri stundu og baki upp frá því ekkert nema vandræði.
Beikingvúmankræsfordjöstis!
![]() |
Íslenskt bakarí komið í úrslit í keppni í Flórída |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Laugardagur, 21. júlí 2007
GLATAÐ TÆKIFÆRI
Ég hafði ekki hugmynd um að Búskur forseti hafi farið frá völdum á meðan hann fór í krabbameinsskoðun í dag.
Ef ég hefði vitað að hann væri ekki forseti Bandaríkjanna lengur, þótt ekki hafi það verið langur tími, hefði ég svo sannarlega gert mér dagamun.
Fruuuuuuuusssssss!
ÆMBEVILDERDANDBÍTREID!
![]() |
Bush hefur tekið aftur við völdum eftir læknisskoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 21. júlí 2007
FYRIR JÓNU ÁGÚSTU
..Gísladóttur, eðalbloggvinkonu mína (www.jonaa.blog.is) en mér finnst ég þurfa að útskýra hillusvipinn margfræga betur fyrir henni.
Húsbandið kýs frekar að fara með skrifaðan lista í matvörubúðir heldur en með undirritaðri.
Ástæða: Hann heldur því fram að það komi óræður hillusvipur á frómu mig og að ég sé til alls líkleg.
Útskýring fyrir Jónu: Bretinn þinn virðist líka telja það fjárhagslega hagstæðara að dingla um allt með miðanum fremur en þér. Alla vega, Jóna mín, þá vissirðu strax hvað hillusvipurinn þýddi.
Niðurstaða: Ég er kúl, Jóna er kúl. Mér finnst gott að hafa húsbandið í innkaupunum en ég fer alltaf nokkrum sinnum í mánuði og lif mýtuna "konur eru kaupóðar", ekki fer maður að eyðileggja svo útbreitt kjaftæði um konur, og svo finnst mér best að gera hlutina þannig að ég standi ærlega undir nafni.
Muhahahahahaha
Súmígæs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 21. júlí 2007
NEYÐARLÍNUR EÐA "HEITIR SÍMAR"
Eru til umræðu nú þegar fjöldahystería ríkir um heim allan vegna útgáfu Harry Potter bókarinnar og þar með afdrifum söguhetjanna í þeirri merku bók. Það er sum sé talið, a.m.k. í Bretlandi, að mikið álag verði á viðkomandi "hotlines" af því fólk muni fara í sorg og aðskilnaðarerfiðleika eftir lesturinn.
Mér hefur fundist þetta pínu fyndið, pínu yfirdrifið, pínu hallærislegt og pínu aumingjalegt.
Svona var það víst líka þegar hinn væmni drengjakór "Take That" hætti samsullinu.
HVERS VEGNA VAR EKKI BOÐIÐ UPP Á SVONA ÞJÓNUSTU ÞEGAR BÍTLARNIR HÆTTU???
Þá væri maður kannski í betri málum í dag en raun ber vitni.
Bítsmí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.8.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr