Leita í fréttum mbl.is

BAKA OG BAKA..

..en ekki kjaftur kýs mig neinsstaðar.  Ég er viðstöðulaust bakandi þessa dagana.  Ég baka kanelsnúða, pönnukökur, kryddkökur, bananabrauð og núna döðlubrauð og fólkið mitt gúffar þessu í sig eins og hungraðir úlfar.  Allir svo hræddir um að þetta sé tímabundið ástand, að ég komist til sjálfrar mín á hverri stundu og baki upp frá því ekkert nema vandræði.

Beikingvúmankræsfordjöstis!


mbl.is Íslenskt bakarí komið í úrslit í keppni í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk elskan og ég þig með skinkuhornin æðislegu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 00:20

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Djösins myndarskapur í ykkur stelpur.  Ég baka sko ekkert nú orðið.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 00:25

3 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Áttu góða og auðvelda uppskrift af döðlubrauði? Vinkona mín bakaði stundum svoleiðis þegar við leigðum saman en ég nennti aldrei að leika það eftir því það var alltaf svo mikið vesen eitthvað. Mér þykir gaman að baka en vil ekki hafa hlutina of flókna því vanlega er ég að gera eitthvað annað á meðan líka.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 22.7.2007 kl. 00:30

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Here goes, fann þessa á netinu og er einföld og ótrúlega gómsæt.

2 bollar púðursykur
4 egg
2 msk smjörlíki
3 bollar hveiti
2 tsk matarsódi
250 gr saxaðar steinlausar döðlur

Döðlur í pott með pínu vatni, sjóða í mauk, hræra vel á meðan.
allt í skál, heitar döðlur saman við.

baka í ca 1 klst, 150-160 c.
í miðjum ofni.

Tekur ekki nema 3 mín. eða svo að hræra döðlurnar niður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 00:34

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hvenær hefurðu eiginlega tíma fyrir bakstur? Blogg-meinakið þitt/mitt...maður er einsog rúsína í rassgati samanborið við þig. Þvílíkur kraftur og elja... please segðu mér að það sé allt morandi í skit heima hjá þér...knús og óskir um góða helgi þér og þínum til handa. Þú ert svo lovely elsku Jenny min. (nú tala ég einsog ég sé að deyja...)

Heiða Þórðar, 22.7.2007 kl. 00:39

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er líka flott. 

Heiða bloggfærslurnar renna í gegn án fyrirhafnar.  Er svo fjölhæf skilurðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 01:11

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þú ert óxla dugleg að blogga og baka ... þvílík öfund í þessu liði Ég skal baka ofan í þig í ammmlinu mínu! Þá geta nú þeir bloggvinir sem nenna að koma smakkað líka! Skal lemja hana Önnu fyrir að rugla þér saman við einhverja aðra Jennýju! Gott hjá þér að skella. Heheheheheh, þú ert algjör dýrð!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.7.2007 kl. 01:26

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Villtu að ég hjálpi þér að baka fyrir ammlilið Gurrí mín (ein komin með mikilmennskubrjálæði af því hún er búin að baka í mánuð eða svo). Múhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 01:29

9 identicon

Ég vona að það sé hægt að panta svona konur á Netinu en þær eru sjálfsagt dýrari en japönsku silikondúkkurnar. Maður verður að leggja fyrir.

Múmínsnáðinn (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 01:30

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú hlýtur að vera illa brenglaður fíbblið þitt múmínasni.  Ert eins og uppáþrengjandi könguló undir ýmsum nöfnum á kommentakerfinu.  Halltu áfram bjáninn þinn.  Ég elska hálfvita.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 01:39

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. Múmínasni. ASNI. Hei, bakarinn sem um ræðir er bróðir Grétars Örvars (ekki þú sko)

Jóna Á. Gísladóttir, 22.7.2007 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband