Leita í fréttum mbl.is

Öðruvísi svínaflensa

godfather3 

Eftir að fréttir bárust af lögbanninu á RÚV hef ég ekki getað lesið fréttir eða blogg um málið.

Þar til í morgun að ég neyddi mig til þess.

Allt í einu fékk ég bara meira en nóg.

Svo margt hefur gerst síðan í haust sem er erfitt að horfast í augu við.

Svo ég tali nú ekki um nýjustu fréttir að "vinabragði" Norðurlandaþjóðanna ásamt misnotkun ASG á sjóðnum, þ.e. að neyða Íslendinga til að samþykkja Icesave til að umsamið lán verði afgreitt.

En auðvitað er það ekki sagt upphátt.

En að Kaupþingi.

Kaupþing ver "stóru" viðskiptavini sína með kjafti og klóm.

Í leiðinni verja þeir sjáfa sig og vilja klóra yfir vankunnáttu sína, siðleysi og græðgi.

Svona til að bíta nú höfuðið af skömminni.

Ég er ekki í vafa um að nýjustu skilaboðin eru skýr.

Íslenskur almenningur á að borga, með blóði, svita og tárum.

En fjandinn fjarri þeim að við skulum geta lesið um spillinguna og ógeðið sem viðgekkst (og gerir kanski enn?).

Eftir þetta nýjasta útspil er ég komin með svínaflensu.

Svínaflensu sem herjar á réttlætiskenndina, trú á manneskjunni og á Íslensku siðferði.

 


mbl.is Lögbanni mögulega hnekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú á að bíta höfuðið af skömminni

Nú skil ég ekki, er það skilanefndin sem er að fara fram á lögbann?

Hvað um það nú á að bíta höfuðið af skömminni.

Sannleikurinn verður ekki stöðvaður.

Held að hann verði eins og flóðbylgja sem ekkert fær stöðvað.

Og hafið þið það spillingarfrömuðurnir ykkar.


mbl.is Kaupþing fer fram á lögbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammastín!

Halló, var einhver að gera lítið úr sjáandanum henni Láru?

Draga hana sundur og saman í háði?

Ha?

Jabb, ég gerði það smá en ekki mikið.

Skammastu þín Jenný Anna Baldursdóttir.

Nú hringi ég í Láru og fæ lottótölur kvöldsins hjá henni.

Og á mánudaginn flyt ég úr landi með féð.

Sest hreinlega að á Mallorca, nú eða Kúbu, svei mér þá.


mbl.is Snarpur jarðskjálfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litli Landsímamaðurinn hvað?

Það er talað við konu í Mogganum í dag sem lenti í því að klóakið stíflaðist í sumarbúðstaðnum sem hún dvaldi í og svo ætlaði hún á tónleika með Helga Björns í Valhöll en við vitum hvernig það fór.

Tónleikarnir hurfu í reyk.

Það sem ég skil hins vegar ekki af hverju fjölmiðlar hafa ekki hangið á mínum húni.

Ég var beisíklí síðast kaffigesturinn á þessu sögufræga hóteli eins og frægt er orðið.

En þar sem húsbandið gleymdi að taka með sér sígó og það var bara sitthvor í pakkanum þá stöldruðum við ekki lengur við en sem nemur svona korteri.

En þarna sátum við í sólinni með Norsurum og Svíum á þessu föstudagseftirmiðdegi sem verður skráður í sögubækur, og þá hefur sennilega verið farið að rjúka.

Vonandi var það ekki sígóstubburinn logandi sem ég henti inn um opinn glugga á hótelinu sem magnaði eldinn.

Nei, nei, en ég upplifi mig ógeðslega merkilega vegna nærveru minnar við þennan atburð sem er auðvitað hörmulegur og ekkert öðruvísi.

Skrýtið samt að ekki einn fjölmiðlungur hafi viljað taka við mig exklúsív opnuviðtal með mig reykjandi á forsíðu vegna nálægðar minnar við söguna.

Ég sem er litla Valahallarkonan með insæd informeisjón.

Litli Landsímamaðurinn hvað?

Skömm aðessu.


mbl.is Klóakið stíflaðist og hótelið brann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í nafni Óðins og Þórs

Ég fór einu sinni á útihátíð.

Þar sem ég átti foreldra og aðra aðstandendur sem létu ekki hópþrýsting hræra við sér varð ég að bíða þar til ég varð 16.

Ég man eftir þessu hæpi í kringum verslunarmannahelgi og að ég gekk í gegnum þvílíka sorg yfir að fá ekki að slást í hópinn á meðan ég var ekki komin á samningsstigið við foreldrana.

Allir vissu þá og vita enn að verslunarmannahelgin er fyrir flesta unglinga sem fá að fara á eigin vegum út í sveit, aðgöngumiði að flippuðu djammi.

Með afleiðingum því miður eins og dæmin sanna.

Ég fór sem sé í Mörkina þegar ég var 16 og heldur betur búin að missa af hormónalestinni því ég fór heim daginn eftir með vegaeftirlitsmanni.

Það var nákvæmlega ekkert sjarmerandi við fjöldafylleríið, ekki einu sinni fyrir mig sem kallaði nú ekki allt ömmu mína.

En hvað um það.

Verslunarmannahelgin er opinbert leyfi á fjöldafyllerí.

Svo getur fólk móðgast ef það vill og haldið því fram að það sé vondur minnihluti sem hagi sér eins og bilaðir valtarar á stjórnlausri leið niður brekku en það er ekki þannig, það er nefnilega meirihlutinn sem fer á húrrandi fyllerí.

Svo eru tjaldbrennurnar þar sem öllu lauslegu er hent á eld í versta falli en skilið eftir út um allt í besta. 

Ég hef hins vegar aldrei verið í Vestmannaeyjum um þessa helgi og veit ekkert hvernig sú skemmtun artar sig nema af því sem ég les í blöðum.

Í nafni Óðins og Þórs hagið ykkur.

Það er nefnilega líf eftir þessa helgi.


mbl.is Margir á ferli í Eyjum í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera hálfviti í félagsskap snillinga

Þarf ekki að setja þetta AGS-lið á samskiptanámskeið?

Vaða í fjölmiðla áður en þeir tilkynna Íslenskum yfirvöld um frestun á afgreiðslu lánsins?

Og enn bíðum við.

Smekklegt.  Þetta lið reynir ekki einu sinni að þykjast bera lágmarksvirðingu fyrir Íslandi.

Annars skil ég ekki hvernig við gátum lent í bankahruni og öllum þessum hörmungum við Íslendingar.

Sko miðað við alla sérfræðingana hér á blogginu, í fjölmiðlum og annars staðar, þá erum þeir með öll svörin og kunna þetta upp á sína tíu fingur.

Ekki kjaftur setur spurningamerki við eigin skoðanir.

Þær eru í öllum tilfellum það eina rétta, viskan drýpur af þeim. 

Nema ég offkors og aðrir tvístígandi hálfvitar sem sveiflast í skoðunum eftir því sem upplýsingar berast.

En ég segi það satt, með alla þessa sérfræðinga ættum við að vera í góðum málum.

Svo sagði Bjarni Ben í kvöldfréttunum að þetta væri nú ekki mikið mál þó AGS frestaðist.

Hann er líka einn sérfræðingurinn til sem þarf svo enga ábyrgð að taka.

Rosalega vildi ég vera svona örugg með mig.


mbl.is Formleg niðurstaða um frestun endurskoðunar AGS ekki komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver þarf eiginlega peninga?

Þar höfum við það.

Þá geta þeir slappað af sem mest hafa djöflast.

Nú bíð ég eftir að Bjarni Ken og Sigmundur Davíð ásamt fleirum mætum stjórnarandstæðingum fari að tala um að það sé ekki tenging á milli Icesave og AGS-lánsins.

Og hver þarf peninga eiginlega?

Ekki við sýnist mér

Bömmer.

 

 

En það er svo annað mál að við hefðum betur látið AGS eiga sig í upphafi.

Enda þeir algjörlega misheppnuð stofnun með eintóma bömmera á cívíinu.

Núna liggja nefnilega öll bjargráð í gegnum þá.

Landstjórnin á Íslandi er AGS.

Og gott fólk - við erum hér með í djúpum skít.


mbl.is Afgreiðslu AGS frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleygði manni í gólf og kom fram vilja mínum við hann

Kannski eiga fréttir um hver greiðir mest í Reykjavík og út um hin ýmsu skattaumdæmi á landinu, erindi við fólk.

En mér leiðast þessi rapport alveg óskaplega.

Mér þætti nær að það yrðu skrifaðar fréttir um liðið sem á peninga í tonnum en greiðir lítinn sem engan skatt.

Ég er kannski ósanngjörn þegar ég segi og skrifa að útrásargelgjurnar komast ekki í námunda við að gjalda fyrir mistökin og græðgina með þessum milljónum sem þeir borga til samneyslunnar.

En í morgun vorum við hér á kærleiks að ræða það yfir fyrsta kaffibolla dagsins (sem við í kreppunni drekkum sameiginlega með röri bara svo það sé á hreinu að við þjáumst hérna), að það væri skelfilegur skortur á jákvæðum fréttum þessa dagana.

Ég: Já en það er ekki hægt að flytja jákvæðar fréttir af þeim manngerðu hamförum sem nú ganga yfir þjóðina.  Hvaða jákvæðu fréttir myndu hugnast þér?

Hann: T.d. að það væri búið að frysta eignir útrásarunglinganna og svo væri ekki leiðinlegt að umheimurinn kæmi skemmtilega á óvart með að styðja okkur í baráttunni við risana um Icesave.

Ég: Halló, ertu á sveppum?  Heldurðu að það verði?

Hann: Kannski.  Manstu eftir einhverju jákvæðu.  Ég hreinlega verð að fá að heyra eitthvað fallegt.

Ég: Já, ríkið fær ógeðslega mikla peninga í gegnum Tryggingastofnun þegar fjármagnstekjurnar verða dregnar af elli- og örorkulífeyrisþegunum um mánaðarmótin.

Hann: Sumt breytist aldrei.  Ég get að minnsta kosti treyst á að þú ert alltaf jafn kvikindisleg.

Ég: Pling og Bingó. Svo ertu nýrakaður og droppdeddgjorgíus svona í morgunsárið. 

(Svo hoppaði ég á manninn sem angaði af rakspíra og fleygði honum á gólfið og kom fram vilja mínum við hann).

(Lesist: ég náði af honum veskinu meðan hann var að jafna sig eftir fallið). 

Svona erum við krúttleg á kærleiks.  Heilög hamingja allan sólarhringinn, allan ársins hring.

Samræður eru einnig eftir því djúpar.

Javohl.

 


mbl.is Hreiðar Már greiðir mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég heyri í hurðum skellast

Ég vissi það!

Eða hélt mig vita.

Að meirihluti landsmanna (59%) styðji aðildarviðræður við ESB.

Ég styð þær líka heilshugar án þess að ég hafi hugmynd um hvort okkur sé betur borgið innan ESB eður ei.

Aðeins þannig komumst við að því og getum jafnvel tekið um það upplýsta ákvörðun þegar þar að kemur.

Annars held ég að ég og þessi 59% séum um það bil að verða fyrir vonbrigðum.

Ef það er rétt að ASG frestar fyrirtökunni einu sinni enn (þá vegna Icesave) þá fer allt lás allsstaðar.

Ég heyri í hurðum skellast.

Púmm heyrist í Norðurlandaútidyrunum.

Púmm, púmm, heyrist í stóru útidyrunum í Brussel.

Púmm, púmm, pang, heyrist í dyrunum þar sem lánsfjármagnið á heima víðast hvar.

Ég segi það enn og ég segi það aftur.

Við erum um það bil að verða óvinsælli en Castró er í Ameríku.

Frussssssss

Eins gott að það er hægt að borða íslenskar kótelettur í öll mál.

Hmprfm


mbl.is Meirihluti styður viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af itjótum og kraftaverkafólkinu í stjórnarandstöðunni

Þegar við horfðum á fréttina um 43 milljarða króna lánið sem Landsbankaútibúið í London lánaði Björgúlfi Thor, þar sem fram kemur að fyrrverandi stjórnendur segjast ekki hafa litið á hann sem tengdan aðila, þá hlógum við hátt á kærleiks.

Hvað annað getur maður gert?

Maðurinn á stóran hlut í bankanum, ásamt pabba sínum en þeir eru auðvitað ekki tengdir heldur.

Þetta helvítis kjaftæði er svo borið á borð fyrir mann af þessu hjólhýsahyski (fyrirgefið þið hjólhýsahyski að ég skuli gera ykkur skömm til) sem rændi og ruplaði Ísland og nærliggjandi lönd.

Hvernig væri að hætta að spyrja þetta fólk?

Stefnum þeim fyrir allan peninginn.

Svo er Björgólfur Thor með hótanir.

Og hinn nördinn þarna Wernerson á leiðinni í mál.

Það er bókstaflega verið að fokka upp orðsporinu þeirra í fjölmiðlum á Íslandi.

Orðsporinu sko.  Hafið þið heyrt hann betri?

Og að öðru en samt ekki.

Nú er útlit fyrir að öll sund séu að lokast með lán frá Norðurlöndum og AGS.

Vegna Icesave.

Hvað sem fólki finnst um Icesave þá erum við í vondum málum ef við fáum ekki þetta fé inn í landið.

Og nú bíð ég spennt.

Ég bíð eftir að Rip, Rap og Rup í Borgarahreyfingunni ásamt bestu vinunum í Sjálfstæðis og Framsókn sem vilja ekki Icesave leggi lausnina á málinu á borðið fyrir þjóðina.

Vilji þeir vinsamlegast hrista hana fram úr erminni strax, þetta mál er að verða algjört svartnætti og eitthvað verður að gera.

Standið nú við stóru orðin.

"Put your money where your mouth is"

Við erum um það bil að verða algjörlega fucked.


mbl.is Litu ekki á Björgólf Thor sem tengdan aðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.2.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 2987381

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.