Leita í fréttum mbl.is

Í nafni Óðins og Þórs

Ég fór einu sinni á útihátíð.

Þar sem ég átti foreldra og aðra aðstandendur sem létu ekki hópþrýsting hræra við sér varð ég að bíða þar til ég varð 16.

Ég man eftir þessu hæpi í kringum verslunarmannahelgi og að ég gekk í gegnum þvílíka sorg yfir að fá ekki að slást í hópinn á meðan ég var ekki komin á samningsstigið við foreldrana.

Allir vissu þá og vita enn að verslunarmannahelgin er fyrir flesta unglinga sem fá að fara á eigin vegum út í sveit, aðgöngumiði að flippuðu djammi.

Með afleiðingum því miður eins og dæmin sanna.

Ég fór sem sé í Mörkina þegar ég var 16 og heldur betur búin að missa af hormónalestinni því ég fór heim daginn eftir með vegaeftirlitsmanni.

Það var nákvæmlega ekkert sjarmerandi við fjöldafylleríið, ekki einu sinni fyrir mig sem kallaði nú ekki allt ömmu mína.

En hvað um það.

Verslunarmannahelgin er opinbert leyfi á fjöldafyllerí.

Svo getur fólk móðgast ef það vill og haldið því fram að það sé vondur minnihluti sem hagi sér eins og bilaðir valtarar á stjórnlausri leið niður brekku en það er ekki þannig, það er nefnilega meirihlutinn sem fer á húrrandi fyllerí.

Svo eru tjaldbrennurnar þar sem öllu lauslegu er hent á eld í versta falli en skilið eftir út um allt í besta. 

Ég hef hins vegar aldrei verið í Vestmannaeyjum um þessa helgi og veit ekkert hvernig sú skemmtun artar sig nema af því sem ég les í blöðum.

Í nafni Óðins og Þórs hagið ykkur.

Það er nefnilega líf eftir þessa helgi.


mbl.is Margir á ferli í Eyjum í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við hljótum að vera á svipuðum aldri því ég man þetta svipað. Nema að ég grenjaði út að fá að fara í Húsafell 15 ára. Beitti fyrir mig yngri frænku svo ég hagaði mér skikkanlega. En allar verslunarmannahelgar eftir þetta voru geeegggjaðar. Fyllerí útí eitt og einstaka minning um Rúnar beran klifrandi uppí rjáfur; gítarsnillingar á 2. eða 3. sviði að spila Á sprengisandi o.m.fl. En dóttir mín var alltaf send erlendis á þessum tíma og er að velta því fyrir sér núna, löngu seinna, af hverju henni þyki ekkert varið í þessa helgi.  Og við hlægjum að því báðar hvað sú gamla er hress með uppeldisaðferðirnar.

Rósa (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 11:24

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Lífið er dýrt,

dauðinn þess borgun.

Drekkum í dag,

yðrumst á morgun.

Héðinn Björnsson, 31.7.2009 kl. 11:31

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rósa: Góð.

Héðinn: Ég myndi iðrast ef ég væri ekki blásaklaus sko aldrei þessu vant.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.7.2009 kl. 11:33

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

"Fórst heim daginn eftir með.. Vegaeftirlitsmanni"? Fyrsti eiginmaðurinn?

Magnús Geir Guðmundsson, 1.8.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985716

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband