Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Íslenskt réttarfar ekki fyrir konur og börn

Það stoðar lítt að kæra presta sem hafa misnotað aðstöðu sína gagnvart sóknarbörnum.

Ég segi þetta af því þannig er það því miður langoftast.

Tvær stúlkur stóðu eftir af fleiri og kærðu sóknarprestinn á Selfossi.

Sem tók sér fjandansmálamyndafrí á meðan rannsókn fór fram en hélt samt áfram að gifta og svona þrátt fyrir það.

Honum fannst greinilega ekkert að því.  Enda svo tilfinningaheitur og mikill knúsari og faðmari. 

Hefði betur flaðrað heima hjá sér og haldið höndum undir kirtli í vinnunni.

Ég hef ákveðna afstöðu í svona málum.

Ég trúi þolendunum þangað til annað kemur í ljós.

Enda sjaldgæft að konur og börn séu að dikta upp svona í höfðinu á sér.

Ég hef sagt það áður og ég segi það enn, íslenskt réttarfar er ekki fyrir konur og börn.

Þegar ég les eftirfarandi tvær málsgreinar þá fer hrollur upp eftir bakinu á mér.  Minnir mig á annan guðsmann með lækningamátt sem varð tíðrætt um strauma.

"Honum var m.a. gefið að sök að hafa strokið annarri stúlkunni um bakið utanklæða og látið þau orð falla að honum liði illa og straumarnir streymdu úr líkama hans við það að faðma hana.

Þá var honum einnig gefið að sök að hafa faðmað aðra stúlku og kysst hana nokkrum sinnum á kinnina. Auk þess hafi hann reynt að kyssa hana á munninn og látið þau orð falla að hann væri skotinn í henni og hún væri falleg."

Kynferðisleg misnotkun hefur alltaf verið tengd kirkjum og trúarbrögðum.

Mis mikið reyndar en alltaf eitthvað.

Það er ein af ástæðunum fyrir að mér er meinilla við trúarbrögð.

Þau hafa afskaplega lítið með trú að gera.

Og fyrir mér eru prestar engir umboðsmenn guðs á jörðinni.

Vonandi verður þessum dómi áfrýjað til hæstaréttar.


mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki verðbólgan Árni - heldur þú

Það eru sviptingarnar í þjóðfélaginu og verðbólgan sem eru ástæðan fyrir mótmælunum segir Áddni dýró.

Hva, ég vissi það, maðurinn er jafn næmur á púls þjóðarinnar og stórvirk vinnuvél með bilaðar bremsur.

Árni, ég skal klippa þetta út í pappa fyrir þig og félaga þína.

Það er engin ein ástæða fyrir mótmælum og reiði fólks.

Það er allur viðbjóðurinn og spillingin sem  vegna bankahrunsins og annarra atburða í kjölfar þess er nú orðin öllum sýnileg sem á annað borð vilja hafa augun opin.

Dæmi:  Þú gefur ekkert upp um þitt persónulega hlutabréfabrölt.  Ert með þá sjúku skoðun að það sé einkamál þitt og komi engum við.  Halló - vakna, þú ert fokkings fjármálaráðherra.

Og annað dæmi þar sem þú hefur líka slegið í gegn hjá þjóðinni.

Ráðning Þorsteins Davíðssonar sem liggur nú til skoðunar hjá Umboðsmanni Alþingis og er búið að gera í óratíma.  Hvar er það statt það bölvað siðleysismál?

Er kannski búið að binda hendur umboðsmannsins?

Fólk mótmælir vegna siðspillingar, leynimakks, kunningjatengsla og ég gæti endalaust talið.

Fólk er reitt vegna þess að stjórnmálamenn senda okkur fingurinn, þrátt fyrir mótmæli, borgarafundið, lélegar niðurstöður úr skoðanakönnunum hvað eftir annað þar sem fram kemur að fólk er algjörlega búið að fá nóg.  Vill breytingar.

Þið sitjið og nánast enginn vill það - jú nema þið og örfárir gæðingar.

Stilla mótmælum í hóf segir þú! Hvað þýðir það?  Á fólk að mótmæla tvisvar á ári?

Andskotans rugl.


mbl.is Þarf að stilla mótmælum í hóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vönduð vinna - vanar konur

Ég bloggaði einu sinni um þáttinn Gott Kvöld og síðan hef ég ekki horft.

Mér leið eins og boðflennu í einkapartíi en það er ekki að marka ég er komin af "séðogheyrt"aldrinum.

En ég virðist ekki ein um þessa skoðun, áhorfið hefur hrapað.

Fyrir mína parta vil ég sjá dýpri viðtöl við fólk og kannski væri lag að fara að finna nýja viðmælendur, í fleiri þáttum af svipuðu tagi.

Fólk sem hefur ekki lagt líf sitt á borðið fyrir íslensku þjóðina í tugum viðtala á ÖLLUM fjölmiðlum.

Það er nefnilega til fullt að skemmtilegu fólki sem sjaldan heyrist í alls staðar að úr lista- og menningargeiranum.

En að öðru..

Ofnamaðurinn sem ég pantaði mér í gær, af því árans ofninn eyðilagði hverja kökuuppskriftina á fætur annarri, kom sá og sigraði.

Hann tók rúman níuþúsundkall fyrir að hringja á dyrabjöllunni og annan níuþúsund til að gera við (eða fyrirtækið sem sendi hann).

Mér datt í hug að það væri hægt að tala við svona fólk, eins og ofnamanninn í sjónvarpinu.

Og þá er ég auðvitað ekki að meina það, heldur er ég að fokka í ykkur börnin góð.

En það var framið óvopnað rán í eldhúsinu hjá mér í morgun og ég blikkaði ekki auga.

Enda rænd í hvert einasta skipti sem ég fer út í búð að kaupa í matinn.

Vönduð innkaup vanar konur.

Úje


mbl.is Ört minnkandi áhorf á Gott kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og mér sé ekki sama?

Jú, alveg kúl á tauginni.

Haggast ekki.

Dettur ekki í hug að fagna þessum fréttum neitt sérstaklega.

Ónei.


mbl.is VG stærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö samhliða fjárhús teljast ekki vera þorp

Ég er skríll.  Það hlýtur að vera vegna þess að ég ber virðingu fyrir fólkinu sem settist að í Seðlabankanum í dag og mótmælti á friðsaman máta því gerræði sem ríkir í landinu og að ekki skuli vera hlustað á yfirgnæfandi vilja fólksins.

Eins og Davíð burt.

Svo geysast aularnir fram á ritvöllinn og garga skríll, skríll, skríll, en flestir án þess að kenna sig við nafnið sitt.  Gott að rífa kjaft og vera með attitjúd án þess að gefa sig til kynna.

Heeeeetjur.

Mig langar að fremja eitthvað og nei það er ekki morð eða ofbeldi sem ég er að hugsa um heldur andlegt spark í andskotans afturendann á þessu liði.

En svo er það lúðinn fyrir norðan.  Hann gapir  af hneykslan yfir framferði mótmælandi á síðunni sinni.

Er hægt að vera svona mikill plebbi án þess að vera hreinlega háaldraður Framsóknarmaður af gamla skólanum hafandi aldrei séð stærra þorp en tvö samhliða fjárhús?

Maðurinn er á unga aldri búandi í næst stærstu "borg" landsins.  Agureyris.

Svo kemur fólk og segir að það sé allt í lagi með friðsamleg mótmæli, en að hlamma sér niður í Seðlabankaanddyrinu, henda eggjum í Alþingishúsið eða hrópa fyrir utan löggustöðina það má ekki.

Það er nefnilega ekki friðsamlegt.

Kæru vinir, leyfið mér að upplýsa ykkur.

Friðsamleg mótmæli teljast vera það alveg þangað til mótmælendur beita fólk ofbeldi.

Nú eða dýr.

Og hana helvítis nú.

Og mikið árann sjálfan sem mér líður betur.

Gamli hippinn er að vakna til lífsins.

Hvar er blómsveigurinn og bjöllurnar svo ég tali nú ekki um sílóið (djók).

Góðar stundir.


mbl.is „Við viljum bara réttlæti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óánægja á RÚV

Ég er hrygg yfir niðurskurðinum á RÚV.

Mér finnst að útvarpsstjóri hefði mátt skera sjálfan sig niður töluvert meira en um skitin 10%, maðurinn er með ofurlaun og hlunnindi sem eiga ekki að þekkjast hjá ríkisfyrirtækjum.

Verst finnst mér hvað niðurskurðaröxin er öflug í svæðisútvarpinu.

Þó ég sé ekki landsbyggðarmanneskja og hafi lítinn hag af svæðisútvarpi þá er auðvitað fyrir neðan allar hellur að vera að skera niður þessa litlu þjónustu sem landsbyggðin hefur.

Stundum er eins og höfuðborgarsvæðið sé upphaf og endir alls.

Er ekki hægt að skera niður í "séðogheyrtdeildinni sem mér sýnist hafa vaxið nokkuð frísklega í góðærinu"?

Svo var verið að segja upp tæknimanni sem unnið hefur til margra ára á stofnuninni.

Starfmenn RÚV eru bullandi ósáttir og ég styð þá heils hugar.

Merkilegt hvað topparnir eru alltaf ómissandi en fólkið á gólfinu er látið fjúka miskunnarlaust.

Arg.


mbl.is Starfsmenn Rúv boða til funda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðferðuð til háheilagrar edrúmennsku

"Mér hlýtur að vera í nöp við sjálfa mig" sagði ég stundarhátt við undirritaða þegar ég sat vafin innan í teppi og peysur úti í fimbulkuldanum og reykti rétt áðan.

Sígó er mín eina fíkn sem eftir stendur í þeirri andans hreingerningu sem ég hef gert á sjálfri mér undanfarin ár (tugi).

Eftir að hafa meðferðað sjálfa mig til háheilagrar edrúmennsku (að svo miklu leyti sem hægt er að tala um háheilögheit í sambandi við mína aumu persónu) á ég þennan eina löst eftir og mér þykir vænt um helvítið á honum.

En eftir að sígófíknin var gerð brottræk úr veislusölunum á kærleiks og send með skömm út í skýli hefur gamanið farið að kárna illilega.

Ég hef ekki heilsu í þetta.  Ég þoli illa kulda. 

Það er ekki til sú úlpa, þeir vettlingar, treflar, teppi eða föðurland sem getur klætt af mér þennan napra andskota sem smýgur inn í merg og í bein.

Ég sagði við minn löggilta elskhuga í gærkvöldi að mér væri orðið alltaf kalt.

Hann sagði spekingslega: "Það er kalt úti, kalt inni, kalt í sálu, kalt í sinni (maðurinn er gangandi rímnamaskína) og það er kreppan sem leggst svona í veðurfarið.

Ég: Ekki drepa mig úr jákvæðni.

Hann: Ó ég gleymdi að taka fram að við eigum hvort annað og lauk í ísskápnum.  Þessari ástarjátningu fylgdi illyrmislegt glott.

Ég sagði honum auðvitað að ég elskaði hann líka og svo sparkaði ég í sköflunginn á honum til að undirstrika mínar ólgandi tilfinningar.

En þetta er ekki alslæmt.  Það fæst nikótínúði í apótekinu og ég er alvarlega að íhuga notkun á viðkomandi.  Það er einfaldlega of kalt fyrir fíkn sem iðkuð er undir beru.

Ef ég hætti að reykja þá á ég ekkert eftir, enga bresti, allir gallar heyra sögunni til og mynd mín mun lenda á koparristum og íkonum í nálægri framtíð.

Hvað get ég sagt?

Ég er alls ekkert fyrir að ýkja. 

Þetta er fíflafærsla í boði komandi hátíðar.

Gleðilegan jólamánuð krúttin mín.

 


« Fyrri síða

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2987930

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.