Leita í fréttum mbl.is

Ekki verðbólgan Árni - heldur þú

Það eru sviptingarnar í þjóðfélaginu og verðbólgan sem eru ástæðan fyrir mótmælunum segir Áddni dýró.

Hva, ég vissi það, maðurinn er jafn næmur á púls þjóðarinnar og stórvirk vinnuvél með bilaðar bremsur.

Árni, ég skal klippa þetta út í pappa fyrir þig og félaga þína.

Það er engin ein ástæða fyrir mótmælum og reiði fólks.

Það er allur viðbjóðurinn og spillingin sem  vegna bankahrunsins og annarra atburða í kjölfar þess er nú orðin öllum sýnileg sem á annað borð vilja hafa augun opin.

Dæmi:  Þú gefur ekkert upp um þitt persónulega hlutabréfabrölt.  Ert með þá sjúku skoðun að það sé einkamál þitt og komi engum við.  Halló - vakna, þú ert fokkings fjármálaráðherra.

Og annað dæmi þar sem þú hefur líka slegið í gegn hjá þjóðinni.

Ráðning Þorsteins Davíðssonar sem liggur nú til skoðunar hjá Umboðsmanni Alþingis og er búið að gera í óratíma.  Hvar er það statt það bölvað siðleysismál?

Er kannski búið að binda hendur umboðsmannsins?

Fólk mótmælir vegna siðspillingar, leynimakks, kunningjatengsla og ég gæti endalaust talið.

Fólk er reitt vegna þess að stjórnmálamenn senda okkur fingurinn, þrátt fyrir mótmæli, borgarafundið, lélegar niðurstöður úr skoðanakönnunum hvað eftir annað þar sem fram kemur að fólk er algjörlega búið að fá nóg.  Vill breytingar.

Þið sitjið og nánast enginn vill það - jú nema þið og örfárir gæðingar.

Stilla mótmælum í hóf segir þú! Hvað þýðir það?  Á fólk að mótmæla tvisvar á ári?

Andskotans rugl.


mbl.is Þarf að stilla mótmælum í hóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

heyr heyr

Hólmdís Hjartardóttir, 2.12.2008 kl. 15:49

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Maðurinn er fáviti..afsakið orðbragðið en maður verður að kalla hlutina sínu réttu nöfnum...en það er náttla hans einkamál nema ef vera skyldi að vitleysigangurinn bitnar á okkur öllum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.12.2008 kl. 15:52

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

dýr yrði Árni allur

Brjánn Guðjónsson, 2.12.2008 kl. 15:54

4 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Fjármálaráðherra fara að vinna.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 2.12.2008 kl. 16:10

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Nú verður mótmælt, sem aldrei fyrr

Sigrún Jónsdóttir, 2.12.2008 kl. 16:41

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 2.12.2008 kl. 16:42

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ótrúlegur maður......ég er viss um að hann er að reyna að vera fyndinn til að bæta ímyndina og hækka fylgið...sýna hvað hann getur verið sniðugur og slær á létta strengi! Annað er of sorglegt til að hugsa það til enda, hvernig hægt er að vera svona gjörsamlega úr takti við lífið og fólk í kringum sig....

Sunna Dóra Möller, 2.12.2008 kl. 17:06

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég trúi því bara ekki að fólk skuli ekki fá upp í kok. Hvað er að?

Heiða B. Heiðars, 2.12.2008 kl. 17:12

9 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Það sem mér finnst alvarlegast í okkar þjóðfélagi er að ráðamenn þjóðarinnar ulla á okkur.  Maður mætir hvern laugardag niður á Austurvöll, og þeir gefa okkur langt nef.  Hvar endar þetta?  Þeim varð ágengt í Thailandi, blokkeruðu heilann flugvöll.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 2.12.2008 kl. 17:51

10 Smámynd: Þór Jóhannesson

Þetta stefnir allt í eina átt, sem við höfum bæði lesið um í bókmenntum og horft á í kvikmyndum:

http://www.youtube.com/watch?v=wXlUO9yDWzI

Þór Jóhannesson, 2.12.2008 kl. 18:28

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta lið hefur engan skilning á því hvað er að gerast í þessu þjóðfélagi, eina skoðunin virðist vera að þetta sé ekki þeim að kenna.

Helga Magnúsdóttir, 2.12.2008 kl. 18:36

12 Smámynd:

Ullabjakk. Ráðherrar og þingmenn eru upp til hópa svo siðblindir að þeim finnst ekkert athugavert við það sem hefur gerst  Og Árni er náttúrulega dýralæknir. Það hefur löngum verið sagt að þeir sem gerast dýralæknar verði það vegna þess að þeir geta ekki verið innan um fólk    - passa ekki í mannheima     Í þessu tilfelli held ég að það sé alveg rétt.

, 2.12.2008 kl. 18:52

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa: Ertu á launum við að verja kerfið? Múha.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.12.2008 kl. 19:56

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Læknamistök?

Hrönn Sigurðardóttir, 2.12.2008 kl. 21:08

15 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Þú ert snillingur

Hva, ég vissi það, maðurinn er jafn næmur á púls þjóðarinnar og stórvirk vinnuvél með bilaðar bremsur.

Ég frussaði á tölvuna þegar ég las þetta, skamm Jenný!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 2.12.2008 kl. 21:46

16 Smámynd: Gerður Pálma

Árni er samnefnari leynifélagsins sem situr vid thjódarskútustýrid áttavitalaus, hans vidbrogd eru mjog edlileg og algjorlega í stíl vid fyrri storf, hann svíkur ekki lit, hann hefur bara ekki hugmynd um hvar hann er eda hvada skada hann hefur valdid thjódinni. Hann flýtur áfram medvitundarlaus og hefur ekki ordid var vid ad mótmaeli thjódarinnar seu eitthvad í tengslum vid sig, sem er algjorlega samkvaemt stefnu stjórnarinnar, thetta er kallad stadfesta. Thad er ekki haegt ad álasa manninum, thetta er hans besta meira er ekki til,  blankheit eru vída ad finna.

Gerður Pálma, 2.12.2008 kl. 22:46

17 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

heyr heyr

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 2.12.2008 kl. 22:54

18 Smámynd:

Já Gerður , eins og ég segi - úr takt við mannheima

, 3.12.2008 kl. 00:53

19 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

"Ekki verdbolgan Arni -heldur tu". Svo heyrdist mer tu spyta ut um annad...!

Guðrún Magnea Helgadóttir, 3.12.2008 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985735

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband