Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Föstudagur, 17. ágúst 2007
OG ENN BORAR MANNFJÁRINN
Ég blogga reglulega um Borarann Iðna, í húsinu mínu. Manninn sem hefur linnulaust borað með ca. viku millibili, lengst, frá því hann (það er hann, búin að komast að því) kom í húsið, fyrir tveimur árum eða svo. Nú hafa borskruðningarnir leikið við hlustir mínar frá því um kvöldmat. Hér titrar allt og skelfur með reglulegu millibili.
Mig grunar að hann sé með íslenskan heimilisiðnað í stofunni hjá sér og sé að búa til fakírbretti. Það ku vera nýjasta afslöppunaraðferðin hjá "selebunum".
Samt held ég að ég sé að venjast þessum nágranna mínum, svona smátt og smátt.
Ég valdi hann fram yfir Helga Björns á Kaupþingstónleikunum í sjónvarpinu.
Það segir heilmikið.
I´m stark raving mad and loving it!
Súmí!
Úje
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
EINN KARLKYNS Á LEIÐINNI
Ég var ekki varla búin að skrifa færsluna með pælingum mínum yfir kvenkynsnafngiftir fellibylja áður en nýr fellibylur fór í loftið. Sú færsla fór reyndar smá í taugarnar á sumum. Hvað um það. Nú kemur vel á vondan því nú var bandaríska veðurstofan að gefa út aðvörun um að fellibylurinn DEAN sé á leiðinni inn Karíbahaf og muni styrkjast verulega næsta sólarhringinn.
Ég vona að Dean hegði sér og engin slys verði á fólki og eignum.
![]() |
Spá miklum styrk fellibylsins Dean |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
GÖMUL SAGA EÐA HVAÐ?
Ég man ekki betur en að Demi Moore hafi leikið fatafellu sem vann fyrir sér og barninu með fatafækkuninni. Finnst ekki einu sinni svo langt síðan að ég horfði á þá mynd. Nú er Jessica Biel búin að skrifa undir samning um mynd með sama innihaldi. Þ.e. strippari með veikan dreng. Að hún síðan ætli að bera rass og brjóst, mun vera aðalinntak fréttarinnar.
Ég spyr hinsvegar.
Eru þeir algjörlega hugmyndasnauðir í Hollýwood eða hafa þeir frétt það sem við hér á blogginu vitum nú þegar, að nekt og kynlíf selur?
Það skyldi þó aldrei vera.
Bítmíandbætmíandsúmítúdei.
Úje
![]() |
Jessica Biel fækkar fötum í næstu mynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
SAMSÆRISKENNINGAR GMG
Ég hef heyr að Hórsteinn í Tónus hafi keypt allan miðbæinn af Löðrungsfeðgum. Arg. Mikið rosalega er ég þreytt á samsæriskenningum. Sumir ástunda að setja fram þessar kenningar eins og stórasannleika, sem þó oftar en ekki, á við nokkur rök að styðjast. Þetta heitir á læknisfræðilegu máli að vera "paranoj".
Það er varla hægt að opna blað (né blogg), án þess að rekast á víðáttulangar greinar um samsæri hægri vinstri. Auðvitað veit ég að það er hellingur í gangi á bak við tjöldin, en að eyða orku í hvað mögulega er í gangi, hver er mögulega að ganga frá hverjum og hver mögulega er skíthæll og ómenni, er nægjanlegt til að stefna geðheilsu konu í all verulega hættu. Ég vil gjarnan vera upplýst um hlutina þegar þeir hafa átt sér stað og eru áþreifanlegir og á borðinu. Nú bið ég vinsamlegast alla samsæriskenningarfrömuðina (vá langt orð) að merkja skrif sín með "varúð ekki fyrir einstaklinga í andlegum óbalans". Nei og þó, reynsla mín af sjálfri mér er sú að rekist ég á viðvörun einhversstaðar þá fer ég samstundis og velti mér upp úr hvers vegna hún var látin þar.
Annars hef ég reynt að lesa nokkrar samsæriskenningar. En ég verð að játa að fljótlega gafst ég upp. Mitt auma höfuð hafði ekki getu í að skilja allar flétturnar sem þeystust fram og til baka í tíma og ná yfir heilu ættbálkana. Úff þetta er heil fræðigrein!
Væruð þið ekki til í að snúa ykkur að raunveruleikanum gott fólk. Hitt er svo þreytandi til lengdar. Fyrir nú utan að það er stöðugt verið að vega að fólki með getgátum. Það er ljótt sagði hún amma mín mér og hún hafði alltaf rétt fyrir sér sko.
Ég kem með friði.
It´s killing me I svear.
Úje
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
EINN ÍSKALDAN BJÓR OG OPN´ANN Á STAÐNUM
Ég vissi ekki að það væri hægt að kaupa bjór í stykkjatali. Er kannski hægt að labba inn í ríkið, eins og maður gerði í sjoppurnar hérna í denn, kaupa einn kaldann og láta tak´ann upp og kaupa glerið?
Ég er hissa á að borgarstjórinn í Reykjavík skuli hafa farið fram á, bréflega við ÁTVR, að draga úr þessari þjónustu, þ.e. að geta keypt bjór í stykkjatali. Þetta héti nú forræðishyggja ef einhver úr vinstri-grænum kæmi með viðlíka tillögu. Það hefur hingað til ekki verið viðurkennt af hægri mönnum að minnkað aðgengi að áfengi, hjálpaði til við að draga úr drykkju og óreglu.
Vilhjálmur segist ekki munu gráta það, hverfi vínbúiðin úr Austurstræti.
Ég fæ ekki sé hvernig ólæti í miðbæ Reykjavíkur tengjast téðri verslun, nema að það hafi farið fram hjá mér að hún sé opin á nóttunni.
Auglýsi eftir samhenginu þarna. Vínbúð í Austurstræti, læti á nóttunni og þá oftast um helgar.
Anybody?
Úje
![]() |
Vill vínbúðina burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
WINHOUSE Í VONDUM MÁLUM
Amy Winehouse er ein af mínum uppáhaldssöngkonum, af yngri kynslóðinni. Þessi götustrákastelpa er með ótrúlega heillandi rödd og skemmtilegt attitjúd. Nú er hún búin að fresta enn einum tónleikum stelpan, vegna heilsubrests en allir telja sig vita að það er áfengis- og fíkniefnavandamál hennar sem er að sliga hana.
Winehouse hlaut í febrúar Brit-tónlistarverðlaunin fyrir bestu frammistöðu kvenna á tónlistarsviðinu á Bretlandi á síðasta ári.
Mikið hefur verið fjallað um söngkonuna í fréttum breskra fjölmiðla vegna áfengis- og fíkniefnavandamálanna. Nú bið ég til almættisins um að konan komi sér í meðferð. Ég ætti að vita það manna best að það gerir gæfumuninn.
Hér er svo meðferðarlagið hennar Amy eða "Rehab" þar sem hún harðneitar að fara í meðferð. Hlustið og njótið.
http://www.youtube.com/watch?v=GgfrxZlrYR4
Úje
![]() |
Amy Winehouse hættir við tónleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
AFMÆLSBARN DAGSINS.....
..er miðstelpan mín hún Maysa eða María Greta Einarsdóttir, eins og hún heitir fullu nafni. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég hélt á henni í fyrsta sinni, en hún kom í heiminn á ofsahraða og hefur verið snögg að öllu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur, dugleg og snögg. Maysan er falleg að utan og innan og (áður en ég verð væmin) á svona dögum óska ég þess að hún væri landfræðilega nær mér, stelpan mín, svo ég gæti knúsað hana. Maysan er sem sagt 29 ára í dag (OMG).
Knús til þín Mays og sendu sama á Oliver, Robba og Brynju frá okkur og njóttu dagsins.
Elska þig snúlla!
Smjúts.
Úje
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Föstudagur, 17. ágúst 2007
REYKINGABÖGG
Það er engu eirt. Mette-Marit má ekki reykja í friði. Hún var staðin að, takið eftir, staðin að (eins og hún sé forstokkaður glæpon) reykingum í brúðkaupsveislu í sumar. Norska krabbameinsfélagið hefur lýst miklum vonbrigðum með tíðindin.
Ok, reykingar eru óhollar, ég veit það. Kannski á konan að ganga á undan með góðu fordæmi, af því hún er prinsessa og svona, en fyrir mig er ekki til sá kjaftur, á himni og jörð sem yrði mér fyrirmynd til að hætta að reykja. Enginn mannlegur máttur nema ég sjálf yrði kveikjan að því. Enda ætla ég að hætta á árs edrúafmælinu mínu í október. Ef Óli og/eða Dorrit reyktu, gæti mér ekki staðið meira á sama. Það væri einhverveginn ekki mitt mál og myndi ekki snerta mig fyrir fimm aura. Kannski er þetta öðru vísi hjá þjóðum með konungsríki. Það má vera.
Rosalega er erfitt þarna hjá þeim í Noregi, nú um stundir. Kóngafólkið hagar sér bara eins og almúginn. Nú Metta og svo englafrömuðurinn, sem var að opna skólann sinn. Ves að vera með svona ófullkomið fólk, þrátt fyrir að það sé stútfullt af bláu blóði.
For your information, þá var ég reykjandi á meðan ég skrifaði þessa færslu. Sko andlegur stuðningur við Mette-Marit.
God natt mina nordiska vänner.
Úje
![]() |
Mette-Marit krónprinsessa átalin fyrir reykingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007
SUMARLOK OG ÓÐURINN TIL EBAY
Hjá mér er sumrinu lokið. Formlega. Því lauk eftir verslunarmannahelgi. Það sem kemur af hlýju og sólardögum eftir þann tíma er bónus og ekkert annað. Það er komið hárbeittur kuldastingur í veðráttuna, þrátt fyrir að sólin skíni sem aldrei fyrr. Einhver mótmæli? Nei, ég hélt ekki.
Ég merki haustið á því hvernig fólk bloggar, þessa dagana. Ég sjálf líka. Alvarlegri málin eru að taka meira yfir. Það er fleira að gerast í samfélaginu og sumardoðinn er að renna af fólki. Auðvitað má alveg halda áfram að fíflast og hafa gaman, en samfélagið er að komast í eðlilega fúnksjón, smám saman.
Ég tek þessum tíma fagnandi. Sumarið er frábært, að sjálfsögðu, en þegar það er búið þá er það búið og annað tekur við. Ég nenni ekki að hanga yfir þessari árstíð á meðan hún er í dauðateygjunum. Þetta er það góða við að búa við árstíðaskipti. Alltaf einhvert nýtt tímabil að taka við. Spennandi.
Nú er að bíða spennt, með regnhlífina, pollagallann og berjatínuna. Eða þannig. Halló haust. Gaman að sjá þig.
P.s. fann þennan óð til Ebay í dag þegar ég var að hlusta á músik á netinu. Alveg bráðskemmtileg parodía. Hlustið endilega.
http://www.youtube.com/watch?v=cnS4NCMQFOI
Úje!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007
FARA FIMMTÁN ÁRA BÖRN Í FANGELSI Á ÍSLANDI??
Nú er ég í sjokki og aldeilis bit. Ég fylgist greinilega ekki með. Í viðtengdri frétt stendur að fimmtán ára gamall síbrotapiltur hafi verið dæmdur í Héraðsdómi í 2-1/2 árs fangelsi. Ég er búin að skanna fréttina og þar stendur fangelsi, ekki uppeldisstofnun.
Ekki misskilja mig, pilturinn hefur framið alvarlega ofbeldisglæpi, auk brota á öðrum hegningarlögum en ég hélt satt best að segja að börn á Íslandi væru ekki dæmd í fangelsi. Mér finnst það svo út úr kortinu.
Þarna er barn sem á við verulega örðugleika að stríða og auðvitað þarf hann aðstoð og að sjálfsögðu á hann að hljóta refsingu fyrir brot sín. Í samræmi við aldur.
Nú spyr ég eins og bjáni, er mikið af krökkum undir lögaldri á Litla-Hrauni og ef ekki hvar eru börnin fangelsuð á Íslandi?
I know I´m clueless
Úje
![]() |
Fimmtán ára síbrotapiltur dæmdur í 2 ½ árs fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 2987754
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr