Leita í fréttum mbl.is

EINN ÍSKALDAN BJÓR OG OPN´ANN Á STAÐNUM

 

Ég vissi ekki að það væri hægt að kaupa bjór í stykkjatali.  Er kannski hægt að labba inn í ríkið, eins og maður gerði í sjoppurnar hérna í denn, kaupa einn kaldann og láta tak´ann upp og kaupa glerið?

Ég er hissa á að borgarstjórinn í Reykjavík skuli hafa farið fram á, bréflega við  ÁTVR,  að draga úr þessari þjónustu, þ.e. að geta keypt bjór í stykkjatali.  Þetta héti nú forræðishyggja ef einhver úr vinstri-grænum kæmi með viðlíka tillögu.  Það hefur hingað til ekki verið viðurkennt af hægri mönnum að minnkað aðgengi að áfengi, hjálpaði til við að draga úr drykkju og óreglu.

Vilhjálmur segist ekki munu gráta það, hverfi vínbúiðin úr Austurstræti. 

Ég fæ ekki sé hvernig ólæti í miðbæ Reykjavíkur tengjast téðri verslun, nema að það hafi farið fram hjá mér að hún sé opin á nóttunni.

Auglýsi eftir samhenginu þarna.  Vínbúð í Austurstræti, læti á nóttunni og þá oftast um helgar.

Anybody?

Úje


mbl.is Vill vínbúðina burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð lausn hjá Vilhjálmi borgarstjóra. Hann mun ekki gráta að ÁTVR fari úr Austurstrætinu en spurningin er mun hann gráta þegar hann rekur verslunina 10-11 úr Austurstrætinu? Vilhjálmur er einn frelsispostulanna sem vill áfengi í matvörubúðir og þegar verslunin 10-11 í Austurstræti fer að selja áfengi þá verður hægt að kaupa það þar allan sólarhringinn. Fín lausn á vandamálum miðbæjarins ekki satt.

Þorgeir Baldursson (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 12:02

Þorgeir Baldursson (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 14:23

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahahaha.  Nú hló ég upphátt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 14:33

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Eins og ég sagði í einni færslunni... endar með því að fasistarnir setja útgöngubann á fólk um helgar. Það má ekki reykja í miðbænum, ekki kaupa áfengi og helst bara ekki láta sjá sig þar eftir miðnætti!!

helv... pakk

Heiða B. Heiðars, 17.8.2007 kl. 14:43

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Satt Heiða og ég bíð spennt eftir að borgarstjóri réttlæti skoðun sína á að selja áfengi í matvörubúðum.  Muhahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 14:51

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég skil ekki borgarstjóra hvað hvers vegna má hún ekki vera þetta skil ég ekki.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.8.2007 kl. 14:58

6 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

nákvæmlega, þetta eru svoldið skrýtin rök.  Búð sem er opin á mjög afmörkuðum tíma, hvernig getur það haft áhrif á læta um helgar og á nóttunni. 

Sædís Ósk Harðardóttir, 17.8.2007 kl. 15:04

7 Smámynd: Birna Dís

Er betra ef rónarnir þurfa að safna og kaupa 6stk. í einu? Sé ekki að þeir hætti að drekka..

Birna Dís , 17.8.2007 kl. 15:10

8 Smámynd: Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir

Ég skildi heldur ekki alveg hvað Vínbúðin í Austurstræti hefur með ólætin í bænum um helgar að gera. Furðuleg rök sem kannski meika sens fyrir meiri hugsuði en mig.

Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir, 17.8.2007 kl. 15:20

9 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ha vissirðu ekki að þú getur keypt bjór í stykkjatali og sumsstaðar kaldan? Hvar hefurðu verið kona?

Brynja Hjaltadóttir, 17.8.2007 kl. 16:07

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, Brynja mín, í meðferð fyrir tæpu ári og eftir það langt frá vínbúðum heimisins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 16:25

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Bíddu nú við. Rökin fyrir að öll heimili sem gerð eru fyrir róna þurfi að vera í miðbænum eru þau að annars fari þeir ekki heim. Rökin fyrir rónavananum er svo þau að hægt er að kaupa bjór í stykkjatali í ÁTVR í Austurstræti og best er að færa búðina. Bíddu... eru rónarnir einu íbúar bæjarins??? Og hversu lengi hafa rónar verið í miðbænum. Ja, alla vega lengur en Vínbúðin það er nokkuð ljóst. Það er einhver rökleysa að bíta í rassgatið á sjálfri sér hér. I'm really confused.

Laufey Ólafsdóttir, 17.8.2007 kl. 17:53

12 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Það er nú búið að selja bjór í lausu miklu lengur en það...

Brynja Hjaltadóttir, 17.8.2007 kl. 21:41

13 identicon

Villi þarf þá líka að sjá til þess að ekki séu apótek í miðbænum, eða a.m.k. að skrifa þeim bréf um að selja ekki spíra, hvorki kaldan né í stykkjatali!!!

Anna (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband