Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

1,2 MILJARÐAR ER TERTUBITI...

1

...þegar Nasa setur upp hreinlætistæki í geimnum.  Allt gert til að fá geimfarana til að hætta að kúka á gólfið.

Ojákrakkarmínir.


EKKI Í VERKAHRING LÖGREGLU..

 

..að koma á staðinn og bjarga skelfdu smábarni út úr bíl, þegar það læsist inni.  Auðvitað er það einkamál barnsins og foreldranna að finna út úr því. 

Stundum held ég að ég búi á annarri plánetu.  Apaplánetunni.


mbl.is Eins árs gamall drengur læstist inni í bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IKEAHEIMSÓKN JENNYJAR UNU

1

Jenny Una Errriksdóttirrr fór í IKEA í gær með mömmu sinni.  Hún vildi gefa ömmu og Einarrri gjöf og valdi eftirfarandi:

Grænt flísteppien Jenny hugsaði sér gott til glóðarinnar og sá fyrir sér huggulegheit fyrir framan sjónvarpið í vetur.  (Við eigum eitt rautt sko, barn verður að hafa til skiptanna)

Þvottapokasem mamman vildi kaupa handa ömmunni og Einarrri, Jenny samþykkti því hankarnir voru í öllum regnbogans litum.

Gul, rauð, blá og græn glös en Jennyju fannst einmitt að það vantaði litadýrð í glasabúskapinn hjá ömmunni og Einarrrri.

Ilmkerti þarna kom mammann inn í málið og Jenny var sátt við valið.

Myndarammi því það eru bara 538 myndir af barni á kærleiksheimilinu.  Jenny sá ástæðu til að bæta úr skortinum.

Lítil telpa kom svo með pakkann sem var stærri en hún sjálf, til ömmunnar og Einarrrs og sagði; "sjáiði Jenny kaupa fínt". 

Og svo hjálpaði hún til við að taka upp alla fallegu hlutina sem hún og mamman höfðu keypt, fékk egg að borða og svo sat hún undir fína græna teppinu og horfði á Maditt og var algjörlega sæl og glöð.

Ég er enn í krúttukasti.

P.s.  Jenny vildi að sjálfsögðu fá dinner í versluninni og valdi sér kjötbollur (barn sænskt og trygg föðurlandinu).  Borðaði eina, leit á mömmu sína og sagði: "Jenny alveg svöng".  Ég er í krúttkremju. OMG

 


ÉG VEIT HVER SEMUR STJÖRNUSPÁNNA...

Steingeit

...og hún ætlar að gera líf mitt að helvíti bara sér til skemmtunar.  Nú afhjúpaði kjéddlan sig ískyggilega.

Spákonan er www.gurrihar.blog.is

Þessi kona er aðstoðarritstjóri Vikunnar.  Hún var að taka saman bók um reynslusögur sem hún hefur að mestu skráð sjálf og hafa birst í Vikunni.  Nú eru 50 stykki af þeim sem sagt í þessari bók, sem hún sendi mér í dag þessi elska. Ógisla fróðleg og skemmtileg bók en ég ætla nú ekki að fara mæra konuna.  En það er púki í kerlu.  Þess vegna gekk hún of langt í spánni minni og afhjúpaði sjálfa sig í leiðinni.  Sjáið:

"Steingeit: Það sem er einhvers virði, þarf ekki alltaf að kosta mikið. Ef þú þráir visku, geturðu lesið bók eftir athyglisverða einstaklinga - ókeypis. Það er eins og þeir tali beint til þín."
Gotjúbeib.
Ekki halda því fram að ég sé nojuð. 
Í þetta skipti brá mér verulega og ég er ekki að fíflast.

NÚ HÆTTI ÉG AÐ BLOGGA...

1

..ef þið grátbiðjið mig ekki að hætta við það.  Segi svona.  Ég er svona að fylgjast með stelpunum, þeim Ellý og Jónínu og reyna að taka mér þær til fyrirmyndar og ég er búin að ellýast í bili og nú var ég að hugsa um að jónínast smá.  Þess vegna er ég hætt að blogga næstu 20 mínúturnar og fer með skoðanir mínar annað á meðan.  Þar sem ég fæ borgað.  Ef þessi færsla verður horfin í fyrramálið þá er það líka út af jónínskunni.  Þetta er herbragð.  Vó hvað fólk á eftir að elska mig og hata mig.

Þetta er allt saman runnið undan rifjum Baugs enda blogga ég í boði þeirra.

Síjúgæs!


FRAMHALD AF FÓTBROTI

99

Oliver hleypur um allt með gipsið, sem nær nú bara upp á hné.  Hann var í dýragarðinum í dag með ömmu-Brynju og Gunni stórufrænku.  Brynja er svo góð við Granny-J að hún sendir mér myndir af ævintýrum dagsins á hverju kvöldi.  Foreldrarnir eru sum sé í góðu yfirlæti á Spáni og í Londres rignir það.  Nananabúbú Brynja mín.

101100

Og Oliver býður góða nótt.  Hann er flottur með gipsið Ha??

 


FÆRIBANDAVINNA..

 

..hjá böðlunum í Írak.  Íraskur liðsmaður hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda hefur verið tekinn af lífi í Bagdad.  Svo á að setja fleiri úr Hussein hópnum í gálgana.  Þetta er bara eins og verksmiðja.  Fólk drepið á götum úti algjörlega tilviljanakennt og stjórnvöld sjá svo um að láta sínar aftökur ganga fyrir sig í röð og reglu.

Meiri andskotans villimannshátturinn. 


mbl.is Íraskur hryðjuverkamaður tekinn af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER VERÐUR LEIÐUR?

 

Ég tengi stjörnuspána eins og venjulega við bloggið mitt.  Núna er ég yndislega ónákvæm í loforðum mínum og hver les á sinn hátt í orð mín og allir búast við ólíkum niðurstöðum.  Einhver verður leiður.

Ladídadída.. og svo framvegis osfrv. Eina sem mögulega passar er vegna snúrubloggsins fyrr í dag.  Áfengisverslunin örgla þessi sem verður leiður af því ég er löngu hætt að kaupa af þeim bjór í stórum stíl.

Ójá þannig er nú það.


TVÖFÖLD ÁNÆGJA

 

Þar hljóp á snærið hjá mér.  Frétt af Britney Spears klikkar aldrei sem gleðigjafi enda lifi ég bókstaflega á því að lesa um hana og Paris Hilton.  Finnst þær í raun mjög djúpir persónuleikar, alls ekki fyrirsjáanlegar og svo eru þær svo lítið yfirborðskenndar.

Britney er sko ekki alki þrátt fyrir að hún hagi sér eins og einn slíkur.  Hún er búin að fara í meðferð og komast að því gagnstæða.  Nú ætlar hún búin að útiloka móður sína úr erfðarskrá sinni til að tryggja að amman fái ekki forræði yfir sonum hennar tveimur, falli hún frá.  Ég skil Britney vel, mamma hennar píndi hana í meðferð, bölvuð kjéddlingin.

Hin ánægjan er nýyrðasmiður Mbl.  Þessi sem slær inn fréttirnar (sko þetta eru fréttir).  Hún skrifar svo skemmtilega: "Spears sögð gera systur sína Jamie Lynn að forsjáraðila og fjárhaldamanni drengjanna".  Krúttlegt nýyrði.

Mogginn reddar alveg deginum.  Það er deginum ljósara.


mbl.is Britney útilokar móður sína í erfðaskrá sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEGAR HÆGIST UM

1

Á kærleiksheimilinu Litla-Hrauni gengu nokkrir fangar í skrokk á samfanga sínum og fótbrutu hann. Heilsugæslulæknirinn tók "mynd" af brotinu og sendi það í bæinn.  Hnéð er illa brotið og þarf maðurinn að fara í aðgerð.  En það voru allir svo bissí að fanganum var skellt í gips og hann er að bíða eftir að það opnist glufa hjá þeim fyrir sunnan.

Kva, vonandi verður hann tekinn í aðgerð með haustinu, svona þegar hægist um. 

Er ekki í lagi?

Bítsmí.


mbl.is Fótbrutu samfanga á Litla-Hrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 2987937

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband