Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

ÉG GLEYMDI HÉRNA LÍTILRÆÐI!

1

Úpps ég er orðin svo gleymin.  Hef þess vegna þessa rauðu slaufu á vísifingri hægri handar til að minna mig á allt það sem ég þarf að deila með ykkur bloggvinir og aðrir gestir.  Þegar líf manns er svo fullt af spennandi viðburðum og það eru ekki einu sinni AUGLÝSINGAHLÉ á milli atriða og hver spennandi atburðurinn rekur annan í hinu villta lífi mínu, þá hef ég gripið til þessa ráðs.  Ég get því miður ekki ráðlagt ykkur hvernig þið eigið að gera líf ykkar auðugri að viðburðum en þið lufsurnar ykkar getið allavega lesið um mitt "hektiska" líf ykkur til upplyftingar.  Eftir að ég varð snúra hefur líf Indíana Djóns orðið eins og hjá fóbiskum perra með torgfóbíu sem fer aldrei út fyrir hússins dyr.  Ójá.

Í gær gleymdi ég að segja ykkur frá æsispennandi atburði sem gerðist í Hagkaup í Kringlunni.  Eftir að fólk hafði nær snúið sig úr hálsliðnum vegna mergjaðrar og sérstæðar fegurðar minnar og limaburðar (þar sem ég sveif um með körfuna úr Hagkaup sem svo vildi ekki vera með á mynd) fór ég allt í einu að sjá tvöfalt.  Ég var í sykurlosti.  Staðurinn var nottla vel valinn, allt löðrandi í akútvörum fyrir sykursjúka og ég drógst nær dauða en lífi að næsta sælgætisrekka og reif í mig súkkulaði.  Meira segja þarna olli fegurð mín og kynþokki ofsaundrun í sælgætisdeildinni.  Það gláptu bókstaflega ALLIR á mig.  Úff eins og fólk hafi aldrei séð konu fá sér nammi á meðan hún verslar.  Auðvitað veit ég að það var lásý afsökun til að fá að horfa á mig sem lengst.

Þessu vildi ég deila með ykkur dúllurassarnir mínir og ég gleymdi því í gærkvöldi af því að líf mitt er svo óheyrilega villt.

Kræst hvað ég á gott að vera ég.  I love my selv!


HVAÐA GUÐ ER MAÐURINN AÐ TALA UM?

Ég hef nokkur prinsipp á mínum bloggfjölmiðli.  Ef undan eru skildir Bítles- og Stónsmeðlimir þá blogga ég yfirleitt ekki um "selebs".  Mér finnst það svo leiðinlegt og yfirborðskennt, eins og tilveran hjá því sjálfu virðist oft vera.  Núna bara verð ég að tjá mig um þessa frétt.  Lindsey Lohan, er sum sé komin í meðferð út af alkóhóli og dópi (bæði læknadópi og svo kókaíni).  Karlinn vonar auðvitað að dóttirin nái bata og hann segir að Promises meðferðarstöðin í Malibú þar sem Britney Spears fór til að komast að því að hún væri EKKI alki, ynni aðallega eftir tólf spora kerfinu sem væri byggt á boðorðum Guðs.  Vó.. hugsaði ég eru tólf sporin byggð á boðorðum Guðs?  Aldrei veit maður nokkurn skapaðan hlut.

Það er reyndar ansi oft minnst á Guð í tólf spora kerfi AA-samtakanna en samkvæmt skilningi OKKAR á honum.  Þ.e. við horfumst í augu við að það er til máttur okkur æðri en sá máttur er að eigin vali þess sem tileinkar sér þetta stórkostlega kerfi.  Mig langaði bara að hnykkja á því vegna þess að þeir sem ekki trúa á hin venjulega Guð geta sett hvað og hvern sem er í það hlutverk.  Við þurfum ekki að vera hefðbundinnar trúar til að nýta okkur AA-samtökin.  Það er það sem er svo æðislegt og sporin hafa hjálpað mér mikið þessa mánuði sem ég hef verið á snúrunni.  Hér koma svo hin tólf reynsluspor.

1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
2. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs,samkvæmt skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.
5. Við játuðum misgjörðir okkar fyrir Guði,sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst.
6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.
7. Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
8. Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.
9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út afbar viðurkenndum yfirsjónir okkar umsvifalaust.
11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.
12. Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum alkóhólistum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.
 

Auðvitað óska ég svo stúlkunni Lindsey góðs bata og að hún finni sinn æðri mátt "samkvæmt skilningi sínum á honum".

 


mbl.is Michael Lohan segir dóttur sína háða ýmsum lyfjum og fíkniefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKRAUTLEGUR LAUGARDAGUR

Við Inga-Lill hentum okkur í Kringluna til að versla eitt og annað en fyrst og fremst var ég að kaupa inn til örheimilisins.  Myndina hér að ofan tók ég af innkaupakörfunni í Hagkaup (Devil), en þetta er nottla skammarlegt lítilræði sem ég druslaði ofan í körfuna, bara einhverju hent smálegu og góðu í framhjáhlaupi í vagninn til að eiga eitthvað að narta í.  Nú ég klippti mig, eða lét klippa mig og er nú einum forljótum fimmtán sentímetrum fátækari.  Iss, tómur tertubiti að klippa hárið enda það eina sem ég hef getað safnað um ævina.

Við komum heim úr Kringluförinni heilum farmi af djönki ríkari og viðkomandi haugur af óþarfa  kostaði nottla hvítuna úr augum mínum, handlegg og fót.  Þetta var samt einangrað fyrirbæri (sko kaupæðið).  

Við gerðumst síðan últra hællærisleg, ég, Inga-Lill og húsbandið og keyrðum austur fyrir fjall.  Plebbalegasta laugardagsferðalag sem hægt er að hugsa sér en það rigndi allan tímann.  Við stoppuðum í Hveragerði og eini sjáanlegi staðurinn til að drekka kaffi á var...haldið ykkur... EDEN.  Þar fór í verra.  Blómin öll í órækt, mig langaði ekki einu sinni að stela afleggjara, allt í tréverki úr PLASTI og mér leið eins og ég væri komin í KÁNTRÍBÆ.  Mikið rosalega er Eden leim staður.   Við neyddum ofan í okkur kaffibolla og borðuðum samlokurnar og pönnukökurnar sem við höfðum með í nesti (róleg skáldagyðjan tók yfir) og vorum snögg að því.  Upp í bíl stukkum við eins og lömb á vori og bruummmmm við fórum aftur heim, hvar við hentumst í "respektive" sófa og tjilluðum þar til ég settist hér við tölvuna um miðja nótt til að gefa ykkur rapport, elskurnar mínar.

Síjúinalittúlvæl! 


HINN SÍGLAÐI SUMARSTARFSMAÐUR..

p Sumarstarfsmaðurinn á stjörnuspávaktinni í gærkvöldi.  Fellur aldrei verk úr hendi!

..Moggans, þessi sem er með ábyrgðina á stjörnuspánni, heldur áfram að slá sjálfum sér við (veggi og gólf).  Núna er þýðingarhæfileikinn í fullum blóma og hvaða máli skiptir orðalag og stafsetning þegar boðskapurinn er góður?  Stjörnuspá sunnudagsins fyrir undirritaða er svohljóðandi:

"Steingeit: Viltu ráðast á vandamál? Gefðu því allt sem þú átt. Hvert sem þú ert að hreinsa geymsluna heima eða í hausnum, þá virkar að kíkja í horn sem vilja gleymast."

Spekin vellur frá þessari slyngu og skemmtilegu sumarstarfspersónu.  Hvað gerði ég við líf mitt áður en hún kom inn í það þessi elska?  Ég hélt aldrei að ég ætti einhvern tímann eftir að bíða með öndina í hálsinum eftir að spáin væri sett á netið hvern dag.

Gúddnætgæs!


GÖMUL OG NÝ SAGA!

Ég var viðloðandi Samtök um Kvennaathvarf um margra ára skeið.  Það sem skar í augu hjá öllum sem komu að starfinu innan Kvennaathvarfsins var líðan barnanna sem komu til dvalar með mæðrum sínum.  Undantekningalaust voru þau þolendur ofbeldisins.  Mjög oft sem andlegir þolendur þar sem þau bjuggu við spennuna og óttan sem fylgir heimilisofbeldi og því miður allt of oft höfðu þau verið beitt ofbeldi sjálf, þe. líkamlegu og/eða kynferðislegu. 

Ég sá einu sinni þriggja og fjögurra ára systkini draga buxurnar sínar niður til að fela marblettina.  Ég sá börn með misstóra áverka en öll voru þau skelfingu lostin, þótt þau segðu ekki orð, störðu bara fram fyrir sig tómum augum.

Við sáum þau hjarna við og öðlast örlitla trú á betra líf eftir því sem dögunum í athvarfinu fjölgaði.  Við sáum glitta í börn sem þráðu frið og öryggi og gátu sleppt gjörgæslunni á foreldrunum.  Það á engu barni að bjóða upp á svona uppvaxtarskilyrði.  Ég held að skilningurinn á því sé að aukast og  Guði sé lof að Kvennaathvarfið skuli vera til fyrir þessi börn og mæður þeirra.  Þar er a.m.k. von til að mæðurnar komist út úr þeim vítahring sem heimilisofbeldi er og geti skapað krökkunum sínum nýtt og betra líf sem þau eiga svo innilega skilið.


mbl.is Mörg barnanna í Kvennaathvarfinu beitt ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KLÁMRÁÐSTEFNAN GERÐ UPP

Alveg finnst mér furðulega auðvelt fyrir klámráðstefnugestina alræmdu að fá greidda "sáttargreiðslu" vegna ákvörðunar eigenda Hótel Sögu að hætta við að hýsa ráðstefnugesti.  Forsvarsmenn hótelsins hafa fallist á að greiða á fimmta tug gesta einhvers konar sárabætur vegna þess að hótelið hætti við að hýsa þessa ráðstefnugesti.  Er ekki alltaf verið að lofa og prísa frelsið?  Er eigendum Hótel Sögu ekki leyfilegt samkvæmt "frelsispólitíkinni" að úthýsa hverjum sem er af sínu hóteli?  Sigurgeir Þorgeirsson hjá Bændasamtökunum telur að þetta jafngildi ekki viðurkenningu á sekt í málinu.  Hvernig ber þá að túlka þessar millur sem þeir eru að greiða klámráðstefnufólkinu? Eru það pjúra almennilegheit? 

"Um er að ræða greiðslu vegna ferðakostnaðar, kostnaðar við gistingu og vinnu við undirbúning klámráðstefnunnar. Ekki fékkst gefið upp um hve háa upphæð er að ræða en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins nemur hún nokkrum milljónum króna."

Ég get svarið að þetta vefst töluvert fyrir mér eins og ég er nú súper vel af Guði ger.  Af hverju borga þeir ef það er ekki jafnframt verið að viðurkenna einhverja sekt í málinu?  Hm.....


mbl.is Fallast á sáttagreiðslu vegna afboðunar klámráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIL BLOGGVINA MINNA!

1

Eins og þið sjáið fór ég með bloggvinina niður í Nautshólsvík til að taka af þeim mynd.  Þetta eru sko bloggvinirnir sem ég held inni og elska út af lífinu.  Fyrr í vikunni henti ég hins vegar út 12 stykkjum af vafasömum vinum og tók líka mynd af þeim í Nauthólsvík.

Burtséð frá öllum fíflagangi þá vil ég bara segja ykkur kæru vinir að ég er rosalega bissí á meðan Inga-Lill er hjá mér.  Ég hendi inn einni og einni færslu en næ aldrei að fara allan blogghringinn.  Ég reyni þó að lesa hjá öllum. Ég ætla sko ekki að missa af neinu.  Ég vil ekki að þið haldið elskurnar mínar að ég sé svona "dissin" í eðli mínu og bið ykkur að hafa biðlund á meðan ég er í æðisgegnu og villtu sumarfríi mínu sem ég get ekki bloggað almennilega um án þess að eiga á hættu að vera tekin til fanga af lögreglunni (segi sonna).  Sjáumst á morgun og ég les eins og vanalega.

Smjúts tújúpípúlHeart


AF FÖSTUDEGI, JENNSLUBARNINU OG BABEL

Dagurinn í dag hefur verið góður.  Flestir annasamir dagar eru það.  Hér var helgin undirbúin með þrifum, keypt í matinn og drukkið mikið kaffi.  Sænska vinkonan drekkur fleiri bolla á dag og ég smitast.  Jenny kom til ömmu og Einarrrs og við höfum ekki séð hana síðan í matarboðinu á mánudag.  Jenny er með streptokokkasýkingu og hefur því verið heima.  Á þessum dögum sem liðnir eru, síðan við sáumst hefur hún bætt við sig heilmikið í orðaforða.  Hún er nú tveggja og hálfs og orðin nær altalandi.  Hún spyr hvort maturinn sé tilbúinn, hvað sé eiginlega að og hvort hún megi fá sælgæti.  Svo sagði hún lækninum sínum að hún væri þriggja ára og ætti afmæli í dag.  Hún kemur aftur á morgun með góða skapið og skemmtir okkur hérna fyrir ofan snjólínu.

Ég horfði á Babel í kvöld.  Væntingarnar voru gífurlegar enda mikið búið að lofa þessa mynd bæði í ræðu og riti.  Mér hugnaðist myndin engan veginn og þessar sögur sem verið er að tengja saman hafa engan tilgang finnst mér og ég fann aldrei til samúðar með karakter Brad Pitt og þeirrar sem leikur konuna hans en nafnið hennar er ekki til staðar í hausnum á mér á þessari stund.

Ég keypti SÁÁ-álfinn í dag, þennan fyrir unga fólkið og skellti honum á útidyrnar til að sölumönnum væri sýnilegt að þetta heimili væri búið að versla fyrirbærið.  Það breytti ekki því að tvisvar var hringt á bjöllunni og þar sem ég er svag fyrir málstaðnum, fyrir nú utan það að vera skjólstæðingur þessara samtaka, skarta ég nú þremur álfum á hurðinni.  Krakkar sem seljið can´t you take a hint???

Æi, læt þetta duga fyrir svefninn.

Gúddnætgæs!


ÚTTEKT Á KYNFERÐISLEGRI ÁREITNI..

.. á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka kemur tæpast til að skila miklum sannleika.  Ég dreg í efa að konur sem þar vinna og eiga afkomu sína undir starfinu komi til með að gera miklar játningar þegar Vinnueftirlitið gerir almenna úttekt á málinu.  En Jóhanna Sigurðardóttir, félgsmálaráðherra, hefur falið þeim að vinna málið.

Sömu tilfinningu fékk ég þegar ég sá í fréttum frá för portúgalska sendiherrans til Kárahnjúka til að kanna þar aðstæður landsmanna sinna.  Viðtölin við verkamennina voru ósannfærandi vegna þess að maður veit að þeir eru þarna í vinnu sem skiptir sköpum fyrir afkomu þeirra.

Ég er ein af mörgum sem hef áhyggjur af öllum þeim ljótu fréttum sem berast frá virkjunarsvæðinu varðandi aðbúnað og aðstöðu fólks af erlendum uppruna.

Arg..


mbl.is Ásakanir um kynferðislegt áreiti verða skoðaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"FEITAR" FLUFFUR Í FARBANNI

Indverskur dómstóll hefur dæmt Indian Airlines í hag en flugfélagið setti flugfreyjur í farbann af því að þær voru of þungar að mati félagsins.  Dómstóllinn taldi að flugfélagið hefði rétt á að grípa til slíkra aðgerða með tilliti til öryggis og hertrar samkeppni á flugmarkaðnum.

Alls staðar í heiminum er stöðugt verið að lítilsvirða konur.  Birtingarmyndir kvennakúgunarinnar eru misjafnar, sumar grímulausari en aðrar, en það er ekki til það land í heiminum þar sem kvenfyrirlitningin grasserar ekki meira og minna dulin að sjálfsögu.  Ein af flugfreyjunum sem sett var í farbann var 2 kg. þyngri en "reglur" flugfélagsins sögðu til um.  Það er víða í heimi litið á konuna sem "æskilegasta" þegar hún er lítil, grönn og máttlaus og borðar eins og fugl.  Kona sem er í slíku ástandi er minna ógnandi.  Hún vekur líka verndartilfinningu hjá karlrembusvínum sem stöðugt óttast að þurfa að mæta konu á jafnréttisgrundvelli.

Ég ætla að vona að íslensku flugfélögin taki ekki upp þennan ósið nógu lengi hafa íslenskar flugfreyjur þurft að berjast við steríótýpuna af hinni "dæmigerðu" flugfreyju.  OMG hvað lífið getur verið erfitt stundum.

SíjúgæsInLove


mbl.is Deilt um þungar flugfreyjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 2988554

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband