Leita í fréttum mbl.is

Svar óskast

Það er ekkert réttlæti til, okkur Íslendingum til handa ef við eigum að borga Icesave reikinginn.

Almenningur hefur ekki stofnað til þessarar skuldar.

Landsbankinn gerði það og rakaði að sér fé.

Nú skil ég minna en ekki neitt í svona græðgisbissness en hvar eru allir þessir peningar?

Hafa þeir gufað upp?

Ég vil ekki að börnin mín og barnabörn sitji uppi með þessa skuld.

Hvar eru þessir menn sem eru höfundar og hönnuðir að þessu óskapnaði?

Af hverju eru þeir ekki að skrifa undir skuldbindingar?

Landsbankadeildin er að öðlast nýja merkingu í huga mínum.

Svar óskast.

 


mbl.is Mótmæla Icesave samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hvumpinn

Nú þetta vilduð þið, kusuð Vinstri Glæra til valda, Jóhanna sést ekki, Samfylkingin er falin bak við VG og formælandi ríkisstjórnarinnar er Skallagrímur.  Við hverju var að búast?

Hvumpinn, 3.6.2009 kl. 15:00

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Er það ekki makalaust alveg að ætla að kenna ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu, um fall efnahagskerfis Íslands. 

 Halló!.,  þó þú sért Hvumpinn, þá þarftu ekki að vera bæði blindur og heyrnarlaus. -   Þó það sé satt,  að við hverju má svosem búast af fólki,  sem enn er að reyna að hamast við að sjá flísina í auga náungans,  á meðan það getur ekki séð bjálkann í sínu eigin auga.

En Jenný Anna, vonandi fáum við svar strax í dag, um gang mála gagnvart Icesave, en mér skilst að fyrrum Seðlabankastjóri  DO, hafi gengið í ábyrgð fyrir Icesave á sínum tíma, þ.e.a.s. Seðlabankin.

Og síðan Geir í samtali við Mr.  G. Brown,  og síðast  Árni Matt  í samtali við A. Darling.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.6.2009 kl. 15:29

3 identicon

Smákrimminn Lalli Johns var að fá 10 mánaða fangelsis dóm en Bjöggarnir, Hannes Smáras. Hreiðar Már, Siggi feiti og Ólafur Ólafs ganga enn lausir ?????????????????????????????????????

Stefán (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 15:50

4 identicon

af hverju er bönkunum ekki gert að spara,loka útibúum og draga saman til að borga sínar skuldir eins og heimilin verða að gera?...

zappa (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 16:39

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Samþykki alþingi þetta eru það hrein og klár landráð. Flóknara er það ekki.

Arinbjörn Kúld, 3.6.2009 kl. 20:23

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála, mótmæli því að við borgum Icesave. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.6.2009 kl. 00:10

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Vér mótmælum öll!!!!!!!!!!

Rut Sumarliðadóttir, 4.6.2009 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985767

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband