Leita í fréttum mbl.is

Ekki binkona þín

Þegar Jenný Una Eriksdóttir var bara tveggja ára ögn (en nú er hún rígfullorðin fjörgurra ára kona, hokin af reynslu) notaði hún smá refsitækni á ömmuna ef sú gamla hljóp ekki eftir prinsessudyntum dömunnar.

Hún setti upp krúttlegan þóttasvip og sagði hátt og skýrt.

Amma þú ert ekkert binkona mín.

(Síðan þá hefur binkonuorðið verið notað grimmt í fjölskyldunni og mun verða notað áfram um ókomna tíð, en það er önnur saga).

Þetta datt mér í hug þegar ég les fréttirnar um sármóðgaða Kínverja í sendiráði Íslands, sem ætla heim en vilja ekki segja það, eru að kúga með fýlunni og þögninni.

Sendiherrann hefur einfallega tekið binkonuna á þetta og sagt við utanríkisráðherrann (fulltrúa hans) eitthvað á þessa leið:

Þið megið ekki leika ykkur við Dalai Lama.  Við erum ekki binir hans.

Kína er ekki binkona ykkar lengur.

Svo hefur hann strunsað út af öllum þeim krafi sem lágvaxin persóna hans var fær um.

Búhú!

Er einhver grenjandi yfir þessu nema sendiherrann?

I don´t think so.


mbl.is Engin tilkynning frá sendiráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

híhíhí ég sá þetta alveg fyrir mér

Kolbrún (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985854

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband